Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 27

Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Önd í aðhaldi Akfeitur steggurinn klórar sér á belgnum yfir sig leiður á brauðátinu. Fólk hefur verið beðið um að gefa ekki öndum brauð við Tjörnina í Reykjavík nú þegar ungatíminn fer í hönd. Ómar Þá er stóri dagurinn runninn upp. Í dag getum við gert upp við fortíðina og mark- að stefnuna til fram- tíðar. Það sem við ákveðum í dag stend- ur í fjögur ár, svo það er vissara að vanda valið. Valið er einfalt hér í Reykjavík. Það snýst um hvort við viljum að stöðnun undanfarinna ára fái að festa rætur eða hvort við viljum að tekið sé til hendinni í borginni, bæði inni í Ráðhúsi og úti á götum, torgum og grasbölum. Sumir segja að í pólitíkinni sé þetta allt sama tóbakið, en svo er ekki. Fátt er fjær sannleikanum eins og borgarbúar vita. Við sjálfstæðismenn höfum skýra sýn á framtíð borgarinnar þar sem hags- munir borgarbúa eru í öndvegi:  Við viljum leggja áherslu á grunnþjónustuna; í stað þess að gera alls konar fyrir alla með aukn- um álögum og skuldasöfnun.  Við viljum lækka leigu og hús- næðisverð með auknu framboði á lóðum fyrir fjölbýlishús en ekki á kostnað borgarbúa.  Við viljum auka þjónustu og val- frelsi allra íbúa, en ekki steypa allt í sama mót.  Við viljum styðja við barnafjölskyldur, byggja leikskóla og styðja við öflugt tóm- stundastarf.  Við viljum tryggja öfluga og góða þjón- ustu við eldri borgara; í stað innantómra viljayfirlýsinga.  Við viljum lækka álögur á borgarbúa; og hverfa af þeirri braut að síhækka álögur og auka skuldir borg- arinnar. Það er til mikils að vinna og því skora ég á þig að leggja leið þína á kjörstað í dag og hvetja fjölskyldu og vini til þess að taka þátt í lýð- ræðishátíðinni með þér. Þannig kjósum við betri framtíð fyrir Reykjavík og okkur sjálf. Eftir Halldór Halldórsson » Við viljum leggja áherslu á grunn- þjónustuna; í stað þess að gera alls konar fyrir alla með auknum álög- um og skuldasöfnun. Halldór Halldórsson Höfundur er borgarstjóraefni Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík. Valið er einfalt í Reykjavík Sjálfstæðismenn í Garðabæ hafa ávallt lagt ríka áherslu á traustan fjárhag og ráðdeild í rekstri bæj- arins.Traustur fjár- hagur er undirstaða þess að hægt sé að veita bæjarbúum góða og fjölbreytta þjónustu. Allar þjón- ustukannanir sem við höfum látið fram- kvæma hafa leitt í ljós að Garðbæing- ar eru mjög ánægðir með þá þjón- ustu sem þeim er veitt. Í því sambandi má benda á að Garðabær hefur verið valið „Draumasveit- arfélagið“ mörg undanfarin ár af tímaritinu Vísbendingu sem fjallar m.a. um efnahagsmál. Fyrir síðustu kosningar gáfum við sjálfstæðismenn mörg fyrirheit sem við höfum ýmist lokið við eða komið í framkvæmd. Nú felast í stefnuskrá okkar sjálfstæðismanna fyrir kom- andi kjörtímabil rúmlega 90 fyrirheit sem við munum að sjálfsögðu upp- fylla eins og við höfum ávallt gert. Fyrirheit okkar sjálfstæðismanna eru framsækin og metnaðarfull. Þannig höfum við viljað stjórna með skýrri framtíðarsýn og markmiðum, sem eru tímasett með hliðsjón af að- stæðum hverju sinni. Framúrskarandi skólar Kjósendur geta treyst því að við sjálfstæð- ismenn munum halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á síð- ustu árum. Það er metn- aður okkar, að Garðabær verði áfram góður og framsækinn bær. Það er engin tilviljun að Garða- bær sé og hafi verið einn af eftirsóttustu kostum til búsetu á höfuðborgar- svæðinu. Í bænum eru framúr- skarandi góðir skólar, sem náð hafa eftirtektarverðum árangri í alþjóð- legum samanburði. Öflugt íþrótta- og tómstundastarf fyrir þá sem það kjósa og um leið er samfélagið öruggt og fjölskylduvænt. Nálægðin við ein- stakar náttúruperlur sem hafa verið friðlýstar eykur lífsgæði íbúanna og komandi kynslóða. Það er metnaður okkar sjálfstæðismanna, að Garða- bær sé í fremstu röð hvað snyrti- mennsku og umhverfismál áhrærir. Öflugt félagsstarf Í frjálsum félagasamtökum býr mikil þekking og kraftur. Starfsemi þeirra er órjúfanlegur hluti lýðræð- islegs samfélags. Félagslega virkir íbúar eru líklegri til að gera kröfur gagnvart stjórnsýslu hvað varðar fagmennsku og gæði þjónustu. Teng- ing er á milli mikils félagsauðs í sam- félagi og ánægju íbúa með þjónustu. Sameinuðu þjóðirnar hafa með hlið- sjón af þessu hvatt stjórnvöld til að vinna meira með félögum og fé- lagasamtökum við stefnumörkun og áætlanagerð til að bæta lífsgæði íbú- anna. Það er stefna okkar sjálfstæð- ismanna í Garðabæ að vinna náið með og hlúa að hinum ýmsu félögum í bænum, hvort heldur er á sviði íþrótta- og æskulýðsmála, líknar- og mannúðarmála eða menningar og lista. Garðbæskt samfélag Góðir Garðbæingar, ég hvet ykkur til að mæta á kjörstað og nýta ykkur atkvæðisréttinn og merkja X við D á kjördag og gefa okkur sjálfstæð- ismönnum áframhaldandi braut- argengi við stjórn bæjarins til góðra verka fyrir „garðbæskt“ samfélag, þar sem bæjarbragurinn einkennist af virðingu, samkennd og jákvæðni. Eftir Gunnar Einarsson » Það er metnaður okkar sjálfstæðis- manna, að Garðabær sé í fremstu röð hvað snyrtimennsku og um- hverfismál áhrærir. Gunnar Einarsson Höfundur er bæjarstjóri og oddviti sjálfstæðismanna í Garðabæ. Ástæðulaust að breyta því sem vel gengur Það er alltaf ákveðin stemn- ing sem fylgir kosningum og kjördegi, hvort sem kosið er til Alþingis, sveitarstjórna eða um tiltekin stórmál. Kjör- dagur er einfaldlega hátíðis- dagur, mikilvægur gleðidagur fyrir lýðræðið þar sem al- menningur tekur stóra ákvörðun um framtíðina. Þess vegna er svo mikilvægt að all- ir nýti sér þennan rétt, fari á kjörstað í dag – með það eitt að markmiði að gera morgundag- inn betri en daginn í dag. Alvöru stjórnmál Það er stórt og afdrifaríkt skref að hefja þátttöku í stjórnmálum. Við erum svo lánsöm að búa í landi þar sem fjölmargir gefa kost á sér til slíkrar þátttöku. Þannig gefa í dag rúm- lega 2.900 einstaklingar kost á sér í 184 fram- boðum víðsvegar um landið. Á öllu landinu hafa íbúar og frambjóðendur undanfarið rætt það sem betur má fara, hver séu mikilvægustu fyrir fólk og fyrirtæki, öruggar og skilvirkar samgöngur, fjölbreytta menntun og hvernig við almennt getum bætt lífsgæði fólks, aukið bjartsýni og tryggt að vonir sem flestra geti orðið að veruleika. Í öllum þessum málum hefur Sjálfstæð- isflokkurinn skýra stefnu. Stefna Sjálfstæð- isflokksins er að forgangsraða í þágu fólksins sjálfs og nýta til fulls þá getu, þann kraft og samtakamátt sem í þeirra eigin frumkvæði býr. Það má aldrei gera með því að standa fyrst og fremst vörð um kerfið sjálft á kostnað íbúa, líkt og gert hefur verið í Reykjavík síð- ustu ár þar sem kostnaður meðalfjölskyldu hefur aukist um heil mánaðarlaun vegna ákvarðana borgarstjórnar. Aðrar leiðir eru færar og aðrar leiðir þarf að fara. Leiðir þar sem markmiðið er alltaf að auka vald og val al- mennings með skýrum markmiðum um lægri skatta, minna umfang kerfisins og fleiri tæki- færi fólks og fyrirtækja til að skapa aukin lífs- gæði í samfélagi sínu á hverjum stað. Um þessi mikilvægu mál kjósum við í dag. Um leið og ég óska okkur öllum til hamingju með daginn, hvet ég alla til að nýta sér kosn- ingaréttinn og hafa þannig áhrif á framtíðina. arstjórna liggja einmitt þar og stærstu póli- tísku spurningunum er svarað með ákvörðunum um hvernig forgangsraða skuli opinberu fjármagni. Undan þessum stóru og alvöru pólitísku spurningum mega hvorki flokkar né frambjóðendur víkja sér, enda skipta svörin við þeim kjósendur miklu máli þegar gengið er til kosninga. Þátttaka þín Í dag eru það hins vegar ekki bara fram- bjóðendurnir sem taka þátt í stjórnmálum. Í dag tökum við öll þátt með því að kjósa. Áherslumálin eru misjöfn eftir sveit- arfélögum og aðstæðum á hverjum stað, en kosningarnar hljóta alls staðar að snúast um þá grundvallarstefnu og þau grunngildi sem farsælast er að ráði för á komandi árum. Alls staðar verður þannig kosið um fleiri tækifæri verkefnin framundan og hvernig við gætum í sameiningu nýtt betur tækifærin á hverju svæði. Við sem höfum starfað í sveit- arstjórnarmálum vitum hvað þetta eru mikilvæg verkefni, hversu miklu þau geta breytt og hversu mikil for- réttindi það eru að fá að taka þátt í úrlausn þeirra. Ég gleymi því þó seint þegar þegar ég ákvað að færa mig úr sveitastjórnarmálum yfir í landsmálin að afar velviljaður ein- staklingur kom til mín, klappaði mér á bakið og lýsti ánægju með að loks- ins hefði ég ákveðið að takast á við „alvöru stjórnmál“. Raunin er hins vegar sú að það að vilja bæta nærsamfélagið og vinna að verkefnum sveit- arstjórna eru ekki síður alvöru stjórnmál en landsmálin. Það er alvöru pólitík að hafa áhrif á betri menntun komandi kynslóða; það er al- vöru pólitík að móta mikilvæga velferðarþjón- ustu; að skipuleggja byggð með farsælum hætti; að tryggja skilvirkar samgöngur og hafa áhrif til góðs á allt annað sem heyrir undir sveitarstjórnir. Það er líka alvöru pólitík að hafa áhrif á það hvernig sameiginlegum sjóðum okkar er ráð- stafað. Stærstu pólitísku ákvarðanir sveit- Nýtum tækifærið – kjósum í dag Eftir Hönnu Birnu Kristjánsdóttur Hanna Birna Kristjánsdóttir » Stefna Sjálfstæðisflokks- ins er að forgangsraða í þágu fólksins og nýta til fulls þá getu, þann kraft og sam- takamátt sem í þeirra eigin frumkvæði býr. Höfundur er innanríkisráðherra og varafor- maður Sjálfstæðisflokksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.