Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Þegar þetta er ritað eru þrjár
umferðir eftir í keppni landsliðs-
flokks á Skákþingi Íslands sem
fram fer í Stúkunni á Kópavogsvelli
og alt bendir til þess að loka-
umferðirnar verði æsispennandi en
úrslit margra skáka hafa komið
hressilega á óvart. Fyrir mótið lét
greinarhöfundur þau orð falla að
Guðmundur Kjartansson væri til
alls vís. Hann er einn efstur eftir
sex umferðir með 4 ½ vinning og
hefur náð að vinna löng og ströng
endatöfl og hefur teflt af mestu ör-
yggi allra keppenda. Henrik Dani-
elsen kemur næstur með 4 vinn-
inga, hefur m.a. unnið Hjörvar
Stein og Braga. Í 3.-5. sæti koma
svo Héðinn Steingrímsson, Hannes
Hlífar Stefánsson og Bragi Þor-
finnsson, með 3 ½ vinning.
Hannes komst í toppsætið eftir
fjórar umferðir en tapaði þá fyrir
Héðni og lék gróflega af sér í væn-
legri stöðu gegn Þresti Þórhalls-
syni og tapaði aftur. Þröstur er í 6.
sæti með 3 vinninga en sex efstu
eiga allir möguleika á Íslandsmeist-
aratitlinum. Geta má þess að loka-
umferðin sem tefld verður á morg-
un, sunnudag, býður uppá skákir
Hannesar og Henriks, Hjörvars og
Guðmundar og Héðins og Braga.
Aðstæður í Stúkunni á Kópa-
vogsvelli, þar sem einnig fer fram
keppni í áskorendaflokki, en þar er
Magnús Teitsson efstur með 5 ½
vinning af sex, eru prýðilegar.
Hrósa ber frábærri heimasíðu sem
býður uppá fjölbreyttar beinar út-
sendingar frá öllum skákum lands-
liðsflokks og valinna skáka áskor-
endaflokks. Hins vegar fær Stefán
Kristjánsson ekki mikið hrós fyrir
að hætta við þátttöku 2 klst. áður
en keppni hófst. Þeir sem hlaupa í
skarðið með stuttum fyrirvara geta
ekki undirbúið sig fyrir svo harða
keppni og tefla þ.a.l. við ójafnar að-
stæður á við aðra keppendur.
Þröstur Þórhallsson er alltaf
sami baráttujaxlinn og vann glæsi-
legan sigur á Héðni Steingrímsson
í 3. umferð en hafði tapað í tveim
fyrstu umferðunum:
Héðinn Steingrímsson – Þröstur
Þórhallsson
Vængtafl
1. c4 e6 2. g3 d5 3. Bg2 Rf6 4.
Rf3 Be7 5. O-O O-O 6. b3 c5 7. Bb2
Rc6 8. e3 b6 9. Rc3 Ba6 10. De2
Hc8 11. Hac1 Dd7 12. Rb5
Þetta ferðalag riddarans lítur
ekki illa út en svartur gerir best í
því að láta hann afskiptalausan.
12. … Hfd8 13. d4 cxd4 14. exd4
De8 15. Hfd1 h6 16. a4
Óþarfur leikur sem skapar vissa
veikleika á drottningarvængum.
Gott var 16. Re5.
16. … Bb7 17. Re5 a6 18. Rxc6
Hxc6 19. Rc3 Hcc8 20. cxd5 exd5
21. Dd3?!
Annar ónákvæmur leikur. Betra
var 21. Bh3.
21. … Dd7 22. Hc2 Bb4 23. Hdc1
He8 24. Ra2 Hxc2 25. Dxc2 Bd6 26.
Rc3 h5!
Smátt og smátt hefur svartur
náð frumkvæðinu og þessi framrás
h-peðsins á eftir að reynast ör-
lagarík.
27. Dd2 Df5 28. Dd1
Það er erfitt að finna áætlun, 28.
He1 strandar á 28. … Hxe1+ 29.
Dxe1 Dc2! o.s.frv.
28. … h4 29. Df3 Dg5 30. Hd1
hxg3 31. hxg3 Rg4!
Óveðursskýin hrannast upp, 32.
Bh3 má svara með 32. .. Bc8 með
ýmsum hótunum tengdum ridd-
aranum.
32. Bc1 Dh5 33. Bf4 Bb4!
Ein hugmynd svarts er að skipta
uppá c3 og leika – a5 til að finna a6-
reitinn fyrir biskupinn.)
34. Rxd5
34. … Be1!
Beint til upprunans! Byrjendur
vita flestir að f7- og f2-peðin eru
sérstaklega viðkvæm.
35. Rf6+ gxf6 36. Dxb7 Bxf2+
37. Kf1 Rh2+ 38. Kxf2 Dxd1 39.
Be4 Rg4+ 40. Kg2 De2+
- og Héðinn gafst upp. Tapið
hægði á honum en sló hann þó ekki
út af laginu.
Guðmundur Kjartansson efst-
ur – æsispennandi Íslandsþing
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Undanfarnar vikur
hefur þónokkuð verið
fjallað um sterka stöðu
Sjálfstæðisflokksins í
bæjarfélögunum sem
liggja að Reykjavík.
Þetta gerist á sama
tíma sem fylgið við
flokkinn í Reykjavík,
samkvæmt skoð-
anakönnunum, er í
sögulegu lágmarki.
Eftir allt skipulags-
klúðrið, vanhirðuna og virðing-
arleysið sem núverandi meirihluti
hefur sýnt borgarbúum, þá geta
borgarbúar ekki hugsað sér annan
borgarstjóra en þann sem stýrt hef-
ur aðförinni að þeim. Má helst líkja
þessum svefngengilshætti borg-
arbúa við meðvirka fjölskyldu
drykkjumannsins sem lætur allt yfir
sig ganga frekar en að viðurkenna
vandamálið.
Og vandamálið? Jú, við vitum
hvað það er. Allir sem vettlingi geta
valdið hafa flúið borgina. Flutt í
nærliggjandi sveitarfélög þar sem
sveitarstjórnarmálin eru enn tekin
föstum tökum en ekki álitin eitthvað
til að grínast með. Þetta er fólk sem
vill komast ferða sinna hindr-
unarlaust, fá grasið slegið og snjó-
inn hreinsaðan af götunum. Þetta er
fólk sem ekki þarf að láta kenna sér
aftur að hjóla. Bankahrunið hristi
upp í því, fékk það til að endurmeta
stöðu sína. Hvað er ég, hvað vil ég
og hvernig vil ég hafa umhverfi
mitt? Reykjavík kom ekki vel út í
þeirri athugun. Áralangt sukk R-
listans, stöðug hjaðningavíg þar sem
sjúkur maður var hafður að leik-
soppi og síðan trúðsleikir síðasta
kjörtímabils voru ekki líkleg til að
treysta átthagaböndin.
Við bættist að ekki hef-
ur verið hægt að líta
framhjá fyrirlitning-
unni sem borgaryf-
irvöld sýna öllu sem
viðkemur peningum.
Lögbundnar greiðslur
eins og útsvar, sem
ætlað er að styrkja
innviði samfélagsins,
eru nýttar í sandkassa-
leiki fólks sem aldrei
hefur fullorðnast.
Fólkið sem flutti var
fólkið sem borgaði útsvarið. Eftir
situr fólk sem annað hvort borgar
ekkert eða getur ekki selt húsin sín.
Byrðarnar leggjast því allar á þá
sem eftir eru.
Vinstriflokkarnir byggja tilveru
sína á aumingjavæðingu. Hún við-
heldur hringrás lífs þeirra. For-
gangsröðin er á hreinu, fyrst þarf að
búa til vandamál, síðan kalla saman
fund, jafnvel blása til ráðstefnu til
að leysa það. En vandamálin eru
aldrei leyst, því það myndi gera
vinstri menn óþarfa. Allar aðgerðir
leiða því til enn fleiri vandamála
sem þarf að leysa. Og þannig koll af
kolli. Áslaug María Friðriksdóttir,
frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins,
vakti athygli á hvernig útsvarsgreið-
endur í Reykjavík eru blóðmjólkaðir
svo borgarstjórnarmeirihlutinn geti
haldið iðju sinni áfram. Samkvæmt
súluriti sem Áslaug vísar í mátti
hver fjölskylda í Reykjavík greiða
kr. 130.000 til fjárhagsaðstoðar árið
2013. Það ár greiddi hafnfirska fjöl-
skyldan 50.000 til fjárhagsaðstoð-
arinnar og sú akureyrska 30.000.
Furðulítið hefur verið um þetta rætt
og eiginlega ótrúlegt að slík sjálfs-
afgreiðsla úr vösum útsvarsgreið-
enda skuli ekki hafa náð eyrum
fólks. Og enn furðulegra að enginn
skuli hafa sett þessi útgjöld í sam-
hengi við nýlega skýrslu Rauða
kross Íslands. Skýrslu sem er einn
allsherjar dómur yfir þessu
tilfærslukerfi úr vösum borgaranna
yfir til bótaþeganna. Skýrslan dreg-
ur upp dapra mynd af því sem gerist
í lífi þess fólks sem stendur ekki
jafnfætis samborgurum sínum; er
ekki á vinnumarkaði og tekur því
ekki þátt í því sem gerir samfélag að
samastað. Þetta fólk hefur verið
aumingjavætt af yfirvaldi sem segist
bera hag þess fyrir brjósti en skilur
ekki að gjafafé rænir það sjálfsvirð-
ingunni. Nú þegar eru þriðju og
fjórðu kynslóðar bótaþegar farnir
að banka upp á dyr félagsmála-
stofnana. Fólk sem aldrei á eftir að
komast inn á vinnumarkað vegna
þess að sjálfsmynd þess er í rúst og
bótakerfið dregur úr því allan mátt.
Á þessu kjörtímabili sem er að
líða tryggði borgarstjórnarmeiri-
hlutinn að slík yrðu örlög þessa
varnarlausa fólks. Í stað þess að
styðja fólk sem fallið hefur af at-
vinnuleysisskrá, til endurkomu á
vinnumarkaðinn, þá hækkaði hann
bætur til þeirra. Samhliða því bjó
hann til nýjan hóp bótaþega, þ.e. þá
sem líta svo á að bilið milli bóta og
lægstu launa sé svo lítið að það svari
ekki kosnaði að rísa upp úr sófanum
fyrir það.
Vinstri menn telja sig hafa einka-
rétt á að útdeila annarra fé. Ekki er
mánuður síðan vinstri menn á Al-
þingi ætluðu gersamlega að sturlast
vegna þess að handfylli fjölskyldna,
sem ekki þurfa á bótakerfinu að
halda, gætu hugsanlega átt von á
1-2 milljónum vegna leiðréttingar á
húsnæðislánum. Nú, nokkrum dög-
um síðar, er öllum, ríkum sem fá-
tækum, boðin frí dagvistun fyrir
börnin sem mun kosta útsvarsgreið-
endur u.þ.b. 1,5 milljónir á barn á
ári. Frístundakort er hækkað í kr.
50.000 og er nú einnig boðið úr vasa
útsvarsgreiðenda, fyrir öll börn. Og
nú þurfa stóru börnin, sem útsvars-
greiðendur hafa kostað frá vöggu til
manns, að fá þak yfir höfuðið. Hinn
gjafmildi Dagur býður nú útsvars-
greiðendum að byggja yfir þau
svona u.þ.b. 3000 íbúðir svo blessuð
börnin geti haldið áfram að leika sér
áhyggjulaus. Og engin merki eru
um að hinir meðvirku útsvarsþrælar
ætli ekki að taka slaginn með hon-
um.
Hvenær er útsvars-
greiðendum ofboðið?
Eftir Ragnhildi
Kolka
»Eftir allt skipulags-
klúðrið, vanhirðuna
og virðingarleysið …
geta borgarbúar ekki
hugsað sér annan borg-
arstjóra en þann sem
stýrir aðförinni að þeim.
Ragnhildur
Kolka
Höfundur er lífeindafræðingur.
Hve mikið þarf hver fjölskylda að greiða í skatta vegna
fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga?
Kr.
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
Akureyri Hafnarfjörður Reykjavík