Morgunblaðið - 31.05.2014, Qupperneq 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
✝ Björn Björns-son – Bubbur –
fæddist á Ísafirði
22. júní 1932. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Vest-
fjarða 20. maí
2014.
Foreldrar hans
voru hjónin Björn
Jóhannsson, sjó-
maður, f. 1901, d.
1982 og Guðbjörg
Sigurðardóttir, f. 1892, d. 1981.
Systkini Björns: Matthildur Sig-
ríður, f. 1920, d. 2002; Jóhann
Rósinkranz, f. 1924, d. 2003;
Hallbjörn Sigurður, f. 1926, d.
2003; Torfi Tímóteus, f. 1927;
Jónas Guðmundur, f. 1929, d.
2002 og Kristján Friðrik, f.
1934. Fósturbræður Björns: Jón
Kristján Símonarson, f. 1930 og
Jóhann Rósinkrans Sím-
onarson, f. 1933, d. 2013.
Björn giftist eftirlifandi
eiginkonu sinni, Guðnýju El-
f. 1979, gift Guðmundi Helga
Albertssyni, f. 1982. Börn
þeirra eru Rannveig og Albert.
Fyrir átti Guðný dótturina Sig-
rúnu Birgisdóttur, f. 1959 gift
Ingvari Ísdal Sigurðssyni, f.
1955. Börn þeirra eru Sigurður
Alfreð og Ellý Sandra. Lang-
afabörnin eru fjögur.
Björn ólst upp í Vallaborg á
Ísafirði ásamt systkinum sínum
og fósturbræðrum. Fimmtán
ára gamall fór hann til sjós,
fyrst á síldarbát en einnig á
trébátum sem sigldu með
aflann til Bretlands. Um 1950
flutti hann sig yfir á togara;
m.a. Ísborg ÍS-250, Ásúlf
ÍS-202, Ísbjörn ÍS-15 og Sól-
borg ÍS-260. Frá 1969 – 1974
gerði hann út á sínum eigin
bát, Valdísi ÍS-72. Hann hóf síð-
an störf á Guðbjörginni ÍS-46
árið 1975 þar sem hann endaði
sinn sjómannsferil árið 1982.
Eftir að í land var komið vann
Björn hjá Niðursuðu-
verksmiðjunni á Ísafirði til
1992 en þá tók Básafell við
þangað til hann fór á eftirlaun
2003.
Útför Björns fer fram frá
Ísafjarðarkirkju í dag, 31. maí
2014, og hefst athöfnin kl. 14.
ínborgu Páls-
dóttur, f. 27.11.
1940, þann 26. des-
ember 1966. For-
eldrar Guðnýjar
voru Páll Borg-
arson, f. 1887, d.
1969 frá Tyrðil-
mýri á Snæfjalla-
strönd og Sigrún
Sigurðardóttir, f.
1906, d. 1990 frá
Kollafjarðarnesi í
Strandasýslu en þau bjuggu í
Bolungarvík.
Börn Björns og Guðnýjar
eru: 1) Sigurður, f. 1965, giftur
Pálínu Sinthu Björnsson, f.
1964. Dóttir þeirra er Guðný
Birna. 2) Elín Björk, gift Ingi-
mundi Gestssyni, f. 1965. Dætur
þeirra eru Elísabet og Katrín.
Fyrir á Ingimundur dótturina
Hallfríði Svölu. 3) Pálína, f.
1971, gift Þór Austmar, f. 1968.
Börn þeirra eru Björn Austmar
og Marý Austmar. 4) Guðbjörg,
Það er komið að kveðjustund.
Ég er ein af þeim heppnu sem
geta sagst hafa átt „besta pabba í
öllum heiminum.“ Hann var ein-
faldlega bestur, bæði sterkur og
traustur, allt sem pabbar eiga að
vera.
Sem sjómannsdóttir var ég vön
því að hann væri mikið í burtu.
Þegar hann kom í land var dekrað
við okkur börnin – við vorum
keyrð í skólann og jafnvel var far-
ið í bakaríið. Eftir að hann kom í
land kynntumst við honum betur
og hann var alltaf til staðar fyrir
okkur. Hjá honum voru aldrei
nein vandamál – hlutirnir voru
bara leystir – og yfirleitt fyrr en
seinna.
Pabbi sýndi það og sannaði að
jákvæðnin lengir lífið. Rétt rúm-
lega sextugur fékk pabbi hjarta-
áfall sem skemmdi hjartað þannig
að hann náði sér aldrei að fullu og
átti alltaf í baráttu. Ég held að
hann hafi komist í gegnum þetta
með þolinmæði og sínu einstaka
jafnaðarskapi. Fáir hefðu trúað
því að jaxl eins og hann gæti sætt
sig við orðinn hlut en hann var
ótrúlegur. Það var helst að hann
væri pirraður út í okkur systurnar
þegar við vorum að banna honum
að halda á töskum eða öðrum
þungum hlutum. Þegar hann hélt
upp á 80 ára afmælið fyrir tæpum
tveimur árum þá heimsóttum við
Sjóminjasafnið Vík og fórum um
borð í varðskipið Óðin. Honum
fannst við systurnar ganga ansi
langt þegar við vorum í sífellu að
reyna að halda í hann í þessum
bröttu stigum, þröskuldum og
þrengingum sem eru um borð í
svona gömlu skipi. Þarna var hann
á sínum heimavelli og þurfti sko
enga aðstoð!
Ég held að pabbi hafi fylgst
með nánast öllum fréttatímum
sem í boði voru. Það verður skrítið
að geta ekki tekið upp símann og
rætt við hann um málefni dagsins.
Það var sérstaklega gaman að
heyra hvernig hann las stjórnmál
líðandi stundar, hverjir voru að
standa sig og hverjir ekki. Honum
fannst einstaklega gaman þegar
við vorum ekki sammála honum –
hafði gaman af því að ýta við okk-
ur og hlusta á rökin.
Ég veit að pabbi er kominn á
góðan stað, honum líður vel. Sökn-
uður okkar er mjög mikill. Að
kveðja er erfitt. Ég er svo innilega
þakklát fyrir pabba minn sem um-
vafði okkur öll með ást og um-
hyggju og var svo sannarlega
„besti pabbi í öllum heiminum“.
Takk fyrir allt, pabbi minn.
Þín
Pálína.
Fátækleg þakkarorð um mild-
an og áhrifamikinn gæfumann,
Björn.
Frændi minn og uppeldisbróðir
hefur haft mikil og góð áhrif á líf
mitt. Fyrsta gjöfin sem ég man
eftir, lítill, blikk-, upptrekktur
spörfugl sem hoppaði um gólfið
var frá honum. Fyrstu kynnin af
ljósmyndun voru á myndavélina
hans. Fyrstu kynni mín af sorg og
áhættu sjómannslífsins voru þeg-
ar Bubbur missti vin sinn í Djúp-
inu. Fyrstu kynni mín … minning-
arnar eru fleiri, Bubbur fyllir upp í
alla mína æsku. Þegar togarasjó-
mennirnir hennar ömmu minnar
komu úr siglingu, sama hvenær
sólarhrings var, fylltist heimilið af
gjöfum og gleði. Það var Bubbur
sem færði mér gjafir. Eftir á að
hyggja virðist hann hafa tekið mig
að sér. Lánsöm þar eins og alltaf í
lífinu, með Bubba sem stóra bróð-
ur og ömmu mína sem fóstru.
Samskiptin á unglingsárunum ein-
kenndust af gleði, stríðni og ráð-
gjöf sem entist. Ég ætti honum að
mæta ef ég færi út af sporinu.
Þetta var áhrifaríkt því hann var
ávallt mildur í dómum sínum. Það
var svo gaman að alast upp með
bræðrunum, enda uppgrip hjá
mér í buxnapressun og skóburst-
un því „Grautó“ húsmæðraskólinn
var á Ísafirði og ungir menn
þurftu að halda sér til. Á hverju
hausti fylltist bærinn af ungum
konum og þar leyndist lífsföru-
nautur hans.
Sumarið 1965 hringir Bubbur
til Vestmannaeyja í mig rígmont-
inn, hrærður og glaður, hann var
orðinn pabbi. Fjölskyldufaðirinn
Bubbur hefur verið mikill gæfu-
maður að eignast sína góðu konu
Guðnýju og frábær börnin.
Ánægja og samhljómur einkenni
þeirra hjóna, Bubba og Guðnýjar.
Margir minnast Bubba sem ljúf-
lings, en fyrir mér er hann mik-
ilhæfur ráðgjafi sem veitti ung-
lingnum afdráttarlaus ráð og
lífsgildi. Það er engin tilviljun að
yngri sonur minn ber Björns-nafn-
ið. Það er svo margt að þakka fyr-
ir. Kæra Guðný, Sigrún, Siggi, El-
ín, Pálína, Guðbjörg og
fjölskyldur, ég votta ykkur samúð
mína, ykkar missir er mikill. Gæf-
an fylgi ykkur ávallt.
Guðbjörg Grétarsdóttir
(Gugga).
Fallinn er frá elsku föðurbróðir
minn, Bubbur frændi. Þegar ég
minnist hans þá kemur fyrst upp í
huga mér hversu hlýlegur og góð-
ur hann var. Hann var alltaf glað-
ur og tók fólki ávallt opnum örm-
um.
Á uppvaxtarárum mínum á Ísa-
firði eru ógleymanleg árlegu ára-
mótahófin þar sem fjölskyldur
okkar fögnuðu nýju ári saman.
Það var alltaf mikil tilhlökkun að
hittast, hlæja yfir áramótaskaup-
inu, brenna burt gamla árið með
flugeldum og fagna því nýja með
kökuveislu. Ég minnist Bubba
frænda helst við eldhúsborðið,
heima á Hjallaveginum, þar sem
við drukkum kaffi og ræddum
málin. Bubbur hafði sérstaklega
gaman af því að segja, glettinn á
svip, skemmtilegar sögur af
mönnum og málefnum líðandi
stundar.
Guðný, Sigrún, Sigurður, Elín,
Pálína, Guðbjörg og fjölskyldur.
Ég votta ykkur innilega samúð á
sorgarstundu. Ég vona að minn-
ingin um góðan mann, föður, afa
og vin verði ykkur til huggunar og
styrks.
Bubbur, ég vil þakka þér fyrir
allar samverustundirnar í gegn-
um árin. Minningin um þig mun
lifa í hjarta mínu og verma um
ókomin ár. Far í friði. Þinn frændi,
Gunnar Torfason.
Í dag kveð ég elskulegan
frænda minn, Björn Björnsson,
með söknuði. Það er margt sem
flýgur í gegnum hugann og marg-
ar eru minningarnar þegar ég
hugsa til þín. Þú varst ávallt kall-
aður Bubbur, ákaflega hjartahlýr
og góður frændi sem vildi allt fyrir
mann gera. Það var því ósjaldan
sem þið hjónin leyfðuð okkur
systrum að gista á ykkar heimili
þegar við vorum í Reykjanesskóla
og fórum í skólafrí út á Ísafjörð.
Við vorum eins og heima hjá okk-
ur. Það var fyrir nokkrum árum
að við hjónin fórum í páskafrí til
Súgandafjarðar og ætluðum við
að taka bíl á leigu en það mátti
Bubbur ekki heyra nefnt. Við gæt-
um notað bílinn hans þessa viku
sem við værum fyrir vestan, ann-
að kom ekki til greina af hans
hálfu. Ég er þakklát fyrir allar
þær góðu stundir sem við höfum
átt saman í gegnum tíðina. Það
var gott að vera í návist þinni,
elsku frændi. Þú sýndir mér og
minni fjölskyldu mikla væntum-
þykju. Þau voru ófá símtölin sem
við áttum saman og spjölluðum
við um allt og ekkert. Minninga-
brotin frá þessum árum eru mörg
og verða þau varðveitt í lífsbók-
inni sem er okkar dýrmætasta
eign. Þannig verða minningarnar
alltaf mælikvarði á það hvernig
við höfum lifað lífinu,gagnvart
sjálfum okkur og öðrum. Elsku
frændi, ég kveð þig með þessu er-
indi af ljóði Davíðs Stefánssonar.
„Svo djúp er þögnin við þína sæng,
að þar heyrast englar tala,
og einn þeirra blakar bleikum væng,
svo brjóstið þitt fái svala
(Davíð Stefánsson)
Ég votta Guðnýju og börnum
hennar og þeirra fjölskyldum inni-
lega samúð á sorgarstundu. En
minningin um góðan mann, föður,
afa og vin mun án efa verða þeim
til mikillar huggunar og styrks.
Guð blessi minningu Björns
Björnssonar.
Hervör Hallbjörnsdóttir
og fjölskylda.
Björn Björnsson
(Bubbur)
ÞAR SEM FAGMENNSKAN
RÆÐUR
Blómaverkstæði Binna | Skólavörðustíg 12 | Sími: 5613030
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir,
SIGURÐUR JÓNSSON
frá Húsavík í Vestmannaeyjum,
til heimilis að Hraunbúðum,
lést á Hraunbúðum laugardaginn
24. maí.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hraunbúða
fyrir einstakan hlýhug og umhyggju.
Þeim sem viljast minnast hans er bent á að láta Hraunbúðir
njóta þess.
Útförin mun fara fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum
laugardaginn 7. júní kl. 14:00.
Kristinn Sigurðsson, Valgerður Ósk Sævarsdóttir,
Ástrós Kristinsdóttir, Hafsteinn Þór Jóhannsson,
Sigurður Alfreð Kristinsson, Berglind Ósk Kristinsdóttir
Ólafur Ingi Kristinsson
og systkini.
✝
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
BERGÞÓRA JÚLÍUSDÓTTIR,
Keilusíðu 10d,
Akureyri,
lést föstudaginn 23. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar á Akureyri
fyrir hlýja og góða umönnun.
Lárus R. Halldórsson,
Róbert Viðar Lárusson, Sif Sigmundsdóttir,
Bergþóra Rós Lárusdóttir,
Rán Lárusdóttir, Brynjar Brynjarsson,
Júlíus Sævarsson, Brynhildur Geirsdóttir,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
Ægisíðu 78,
Reykjavík,
andaðist á heimili sínu laugardaginn 24. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn
4. júní kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið – endurhæfingar-
og stuðningsmiðstöð fyrir krabbameinsgreinda og aðstandendur
þeirra.
Vilhjálmur Svan Jóhannsson, Sesselja R. Henningsdóttir,
Valgerður Jóhannsdóttir, Jakob H. Magnússon,
Ólafur Jóhannsson, Helga Sigurðardóttir,
Laufey Jóhannsdóttir, Jan Bernstorff Thomsen,
Þráinn Jóhannsson, Erna Andreassen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR GUÐMANNSDÓTTIR,
Njarðarvöllum 6,
Njarðvík,
lést föstudaginn 16. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýju.
Sérstakar þakkir til alls þess góða hjúkrunarfólks sem kom að
umönnun Sigríðar.
Vilhjálmur Þórhallsson,
Þórhallur Vilhjálmsson, Sólveig Bjarnadóttir,
Guðrún Vilhjálmsdóttir,
Ólafía S. Vilhjálmsdóttir, Nathan Balo,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær unnusti minn og besti vinur, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
BRYNJÓLFUR INGIBJÖRN JÓN
KRISTINSSON,
Gullsmára 11,
Kópavogi,
lést fimmtudaginn 22. maí.
Útför hans fer fram frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 3. júní klukkan 13.
Erla Sigurjónsdóttir,
Kristinn Brynjólfsson,
Kristjana Brynjólfsdóttir,
Páll Brynjólfsson,
Hildur Brynjólfsdóttir,
Valdís Brynjólfsdóttir,
Sigríður Kristín Brynjólfsdóttir,
Hrund Brynjólfsdóttir,
tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.