Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 43

Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 43
fjarðar. Húsinu var komið fyrir í Kinnahverfi nánar tiltekið að Bröttu- kinn 9. Meðan á flutningunum stóð og verið var að gera Sjólyst íbúð- arhæft í Hafnarfirði, bjuggu for- eldrar hans að Suðurgötu 35 og einnig í Gúttó. Í Kinnunum ólst Arnbjörn upp. Þar kynntist hann leikfélögum og vinum til margra ára. Hverfaknatt- spyrnufélag var stofnað í Kinnunum og nefndist það Spyrnir. Seinna gekk Arnbjörn til liðs við íþróttafélag Hauka og iðkaði og lék knattspyrnu með nokkrum aldursflokkum þess. Fyrsta skólaganga Arnbjörns var í tímakennslu í Gerðaskóla 1950-51 Hann gekk síðan í Barnaskóla Hafn- arfjarðar og stundaði skyldunám í Flensborg. Um fermingu byrjaði Arnbjörn að vinna, fyrst meðfram skóla. Fyrstu störfin sem hann vann voru í fiski hjá Jóni Gunnarssyni. Síðan var það hin svokallaða bæj- arvinna sem tók við. Arnbjörn hafði mikla unun af því að smíða úr tré og teikna. Hann er sagður mjög laghentur. Eftir hann liggja nokkrir vel hannaðir og smíð- aðir sólpallar og sumarhús. Einnig hannaði hann nokkur lógó fyrir fyr- irtæki. Á árunum sem hann starfaði í lögreglunni var á hans hendi að teikna upp öll gatnamót í bænum í þeim mælikvarða sem notaður var fyrir tryggingarfélögin er árekstrar og slys áttu sér stað. Var í lögreglunni í 42 ár Arnbjörn hóf árið 1963 akstur sendibifreiðar frá Nýju sendibíla- stöðinni sem var við Miklatorg. Þar ók hann bifreið sinni til ársins 1967, er hann hóf störf í lögreglunni í Hafn- arfirði. Hann ók þó sendiferðabifreið- inni fyrst um sinn meðfram starfi lög- reglunnar. Arnbjörn starfaði í lögreglunni til ársins 2009, eða sam- fleytt í 42 ár er hann hætti fyrir ald- urssakir, 65 ára. Á árunum 1976-1979 starfaði Arnbjörn einnig við Sædýra- safnið í Hafnarfirði. „Eitt minnisstæðasta tímabil í lög- reglunni var árið 1973, er ég ásamt nokkrum nemum í Lögregluskóla rík- isins vorum sendir á hamfarasvæðið í Vestmannaeyjum á fyrstu dögum gossins.“ Árið 1998 fór Arnbjörn að snúa sér að andlegum málum. Árið 1999 og 2000 sótti hann sér nám í heilun og hefur sinnt henni meðfram öðru. Hann hefur sótt sér ýmis námskeið og þekkingu í gegnum árin í sam- bandi við andleg mál. Árið 2011 gekk hann til liðs við Sálarrannsóknarfélag Hafnarfjarðar og situr í stjórn þess í dag. Arnbjörn tók að sér hlutastarf í versluninni Debenhams í Smáralind árið 2010 og mun hann ljúka störfum þar nú í sumar. Fjölskylda Arnbjörn er kvæntur Sjöfn Jó- hannsdóttur, f. 8.4. 1947, húsfreyju og starfsmanni leikskólans Vesturkots í Hafnarfirði. Hún er dóttir hjónanna Jóhanns Kr. Björnssonar, forstjóra sælgætisgerðarinnar Liljunnar, sem starfrækt var í Hafnarfirði, f. 15.6. 1916, d. 8. 12. 1982, og Kristrúnar Mörtu Kristjánsdóttur, húsfreyju í Hafnarfirði, f. 1.1. 1915, d. 24.12. 1978. Börn Arnbjörns og Sjafnar eru Hjördís Arnbjörnsdóttir daggæslu- kona, f. 6.11. 1966, búsett í Hafn- arfirði, gift Þorsteini Gíslasyni for- stjóra, f. 27.6. 1961. Börn Hjördísar og Jóns Hafsteinssonar eru Kristrún Marta og Hafsteinn Hafnfjörð, barn Þorsteins og fósturbarn Hjördísar er Sif Þorsteinsdóttir; Róbert Arn- björnsson, f. 20.8. 1968 málari. Hann er giftur Jónínu Rósu Ragnarsdóttur, f. 25.10. 1971. Börn þeirra eru Katrín Sjöfn og Róbert Arnar; Björk Arn- björnsdóttir, f. 29.11.1974, fulltrúi hjá KPMG, gift Arnari Gíslasyni, löggilt- um fasteignasala, f. 1.6. 1973. Börn þeirra eru Thelma Karen og Arnar Freyr. Systkini Arnbjörns eru Björg Leifsdóttir, f. 13.12. 1948, Steinar Már Leifsson pappírsráðgjafi, f. 12.10. 1956, og hálfsystir samfeðra er Kolbrún Leifsdóttir, f. 17.9. 1949. Foreldrar Arnbjörns eru Leifur Björnsson múrarameistari, f. 9.10. 1918, d. 18.4. 2002 og Guðmunda Stella Haraldsdóttir saumakona, f. 11.4. 1920. d. 29. 3. 1997. Úr frændgarði Arnbjörns Leifssonar Arnbjörn Leifsson Jón Jónsson bóndi í Stíflisdal í Þingvallasveit áður vinnumaður á Klausturhólum í Grímsnesi Þuríður Þorgilsdóttir vinnukona á Klausturhólum, frá Stóruborg í Grímsnesi Haraldur Jónsson bóndi á Skeggjastöðum Björg Ólafsdóttir húsfreyja á Skeggjastöðum í Gerðahreppi Guðmunda Stella Haraldsdóttir saumakona og húsmóðir í Hafnarfirði Ólafur Gíslason bóndi á Skeggjastöðum, Gerðahr., Gull. Guðrún Hildibrandsdóttir húsfreyja, f. í Vesturholti, Rang. Sigurlaug Níelsdóttir vinnukona á Hvoli, V-Hún. Sigurbjörn Björnsson bóndi á Geitlandi, V-Hún. Björn Konráð Sigurbjörnss. Bóndi á Sigríðarstöðum í Vestur- hópi, síðar verkamaður í Rvík Arndís Guðmundsdóttir húsfreyja, fædd í Skyttudal Leifur Björnsson múrari í Hafnarfirði Guðmundur Þórðarson bóndi í Skyttudal, Bólstaðarhr. A-Hún. Sigurlaug Guðrún Bjarnadóttir bústýra og húsfreyja í Skyttudal ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Steinþór Gestsson alþingis-maður fæddist á Hæli í Gnúp-verjahreppi 31.5. 1913, sonur Gests Einarssonar bónda á Hæli og k.h. Margrétar Gísladóttur. Systir Gests var Ingigerður, móðir Helgu, móður Ingimundar arkitekts, Ein- ars, fv. forstjóra Sjóvár, og Bene- dikts hrl., föður Bjarna fjármála- ráðherra. Steinþór lauk gagnfræðaprófi frá MA árið 1933 og var bóndi á Hæli 1937-1974. Steinþór sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokk sem þingmað- ur Suðurlands frá 1967-1978 og frá 1979-1983. Þá sat hann í hrepps- nefnd Gnúpverjahrepps 1938-1974 og var oddviti hennar í þrjátíu ár. Einnig sat hann m.a. í sýslunefnd Árnessýslu. Hann gegndi embætti formanns Landssambands hestamannafélaga 1951-1963 og var formaður Véla- nefndar ríkisins 1963-1972. Þá sat hann í Þingvallanefnd 1970-1979 og 1980-1984. Einnig sat hann í fleiri nefndum og var m.a. formaður bygg- ingarnefndar þjóðveldisbæjar 1974. Þá sat hann í stjórn Stóðhestastöðv- ar ríkisins frá 1979 til 1995. Enn- fremur sat hann í stjórn Búnaðar- félags Íslands, Framkvæmda- stofnunar og Áburðarverksmiðju ríkisins en þar gegndi hann stjórnarformennsku frá 1983. Stein- þór var ritstjóri Suðurlands árið 1979 og skrifaði auk þess fjölda rita og greina. Steinþór var mikilvirkur í stjórn- málum, bæði á landsvísu og sveit- arstjórnarstigi, og starfaði einnig öt- ullega að félagsmálum. Þá stofnaði Steinþór MA-kvartettinn með skóla- félögum sínum. Varð hann vinsæl- asti söngkvartett síns tíma. Steinþór var kvæntur Steinunni Matthíasdóttur, f. 8.10. 1912, d. 6.2. 1990. Foreldrar hennar voru Matt- hías Jónsson, bóndi á Skarði og Fossi í Hreppum, og k.h. Jóhanna Bjarnadóttir. Börn Steinþórs og Steinunnar: Jóhanna, fv. skólastjóri í Gnúpverjahr.; Gestur, fv. skatt- stjóri; Aðalsteinn, hrossabóndi og tamningamaður; Margrét, bóndi í Háholti, og Sigurður bóndi á Hæli. Steinþór Gestsson lést 4.9. 2005. Merkir Íslendingar Steinþór Gestsson 90 ára Guðbjört Magnúsdóttir Perla Kolka Sigríður Sörensdóttir 85 ára Árni Ásgrímur Blöndal Edda Magnúsdóttir Helgi Ólafsson 80 ára Matthías Eyjólfsson Sigurður Helgason 75 ára Björg Sigurvinsdóttir Jolanta Szczepanek Trausti Tómasson 70 ára Guðrún Daníelsdóttir Hjörtur Hjartarson Sigrún Aðalsteinsdóttir Sigurður R. Gíslason Zuzanna Kurczynska 60 ára Guðrún Egilsdóttir Haraldur Einarsson Kristín R. Úlfljótsdóttir Sólrún Andrésdóttir 50 ára Ari Ísberg Arnar Fahning Lúðvíksson Ágústa Kristjánsdóttir Björk Traustadóttir Elín Einarsdóttir Elísabet Einarsdóttir Gunnar Ólafsson Harri Kjartansson Ingunn Mai Friðleifsdóttir Ragnheiður Guðmundsd. Ragnhildur Ragnarsdóttir Sigrún Kr. Kristbjörnsdóttir Sigurjón Sigurðsson Sólrún Halldórsdóttir Sveinn Kristján Jónsson 40 ára Agata Dominika Klimczak Aneta Sabina Vigfússon Ágúst Jóhann Auðunsson Ágúst Torfi Hauksson Claudia Nicole Jakobs Dagný Ósk Arnarsdóttir Erlingur Þorkelsson Helga Margrét Sigurbjörnsdóttir Hrönn Snorradóttir Jóhannes Helgi E. Levy Michal Kulikowski Sigmar Búi Sigþórsson Stefnir Snorrason 30 ára Aðalbjörg Sigurjónsdóttir Arilíus Marteinsson Arndís Kristjánsdóttir Hlynur Örn Kjartansson Ingunn H. Vilhjálmsdóttir Martin Alfons Mörsdorf Matthías Leifsson Ólafur Þór Pétursson Rafal Andrzej Szczerbowski Þorsteinn Már Kristinsson Sunnudagur 90 ára Helga Tryggvadóttir Ingólfur Páll Steinsson Sigrún Þórðardóttir Þóra Þórðardóttir 85 ára Ágústa Kristín Sigurjónsdóttir Katrín Fjóla Jóelsdóttir Kristrún Skúladóttir 80 ára Sigþrúður Sigurðardóttir Sveinn Daníelsson Þorbjörg Pálsdóttir 75 ára Árni B. Sveinsson Hilmar Skarphéðinsson Margrét G. Ingólfsdóttir Sigurlaug Þorleifsdóttir Þorbjörg Berg Guðnadóttir Þórunn J. Ólafsdóttir 70 ára Benedikt Sigurðsson Elín Baldvinsdóttir Guðmundur Björnsson Hjálmar Vigfússon Óskar Gunnarsson Sigrún Þorsteinsdóttir Sædís Eiríksdóttir Vilborg Garðarsdóttir 60 ára Ása Eiríksdóttir Bjartmann Elísson Fjóla Haraldsdóttir Guðjón Þór Guðjónsson Guðmundur Þór Ármannsson Guðrún R. Daníelsdóttir Loftur Ólafsson Ólafur Bjarni Guðnason Petrína Halldórsdóttir Sif Matthíasdóttir Sigurður Jóhann Ingólfsson Skúli Hannesson 50 ára Anna María Hilmarsdóttir Björg Þorvaldsdóttir Brynja Þóra Valtýsdóttir Eggert Þorgrímsson Gunnar Magnússon Helga Guðmundsdóttir Helga Jóhannsdóttir Krzysztof Przybylski Páll Ólafsson Sigurlaug Hólm Ragnarsdóttir Steinunn Júlía Steinarsdóttir Vigdís Elizabet Hjaltadóttir Þóra Elín Arnardóttir 40 ára Alfred Halldórsson Anna Danuta Sobanska Ása Eyjólfsdóttir Björn Sigurðsson Brynja Dröfn Jónsdóttir Elín Gunnarsdóttir Halldóra Björt Ewen Helena Halldórsdóttir Ingunn Vattnes J ónasdóttir Jón Örn Arnarson Kári Freyr Unnsteinsson Kolbrún Hrafnkelsdóttir Kristín S. Þorsteinsdóttir Larisa Gaivoronska Larisa Simanovskaya Marco Goncalves Gomes Nevin Hassan A. Shalaby Ólöf Björnsdóttir Ómar Magnússon Pétur Ingi Haraldsson Robert Nowak Skarphéðinn Pétursson Þórir Jónsson Hraundal 30 ára Ágúst Sævar Einarsson Becky Elizabeth Forsythe Egill Jónasson Erla María Sigurðardóttir Eva Þórarinsdóttir Flosi Jón Ófeigsson Garðar Árnason Hafþór Valur Guðjónsson Helga Björk Pálsdóttir Helgi Pétursson Hrafnkell Pálsson Iwona Monika Galeczka Jóna K. M. Nikulásdóttir Marcin Kamienski Óskar Guðjón Óskarsson Patrick Roloff Snorri Helgason Stefán Valmundsson Zin Rui Low Til hamingju með daginn Flokkunarílát sem einfalda ferlið Viðarhöfða 2 110 Reykjavík | Sími 577 6500 | www.takk.is | takk@takk.is ýmsar stærðir og gerðir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.