Morgunblaðið - 31.05.2014, Side 44

Morgunblaðið - 31.05.2014, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 www.gengurvel.is Halldór Rúnar Magnússon - eigandi HM flutninga PRO•STAMINUS ÖFLUGT NÁTTÚRULEGT EFNI FYRIR KARLMENN P R E N T U N .IS PRO•STAMINUS fæst í flestum apótekum, heilsubúðum og heilsuhillum stórmarkaða Pissar þú oft á nóttunni? Er bunan orðin kraftlítil? Tíð þvaglát trufluðu vinnuna og svefninn Halldór R. Magnússon, eigandi HM-flutninga ehf, vinnur við alhliða vöru- dreifingu og flutningsþjónustu og keyrir því bíl stóran hluta vinnudagsins. „Þvagbunan var farin að slappast og ég þurfti oft að pissa á næturnar. Á daginn var orðið afar þreytandi að þurfa sífellt að fara á klósettið og svo þegar maður loksins komst á klósettið þá kom lítið sem ekkert!“ segir Halldór „Ég tek eina töflu á morgnana og aðra á kvöldin og finn að ég þarf sjaldnar að pissa á næturnar. Bunan er orðin miklu betri og klósettferðirnar á daginn eru færri og áhrifaríkari.“ 20% afsláttur Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Röddin innra með þér sem segir þér að gera þetta en ekki hitt ýtir þér inn á braut- ir sem virðast ekki ýkja hagnýtar. Tileinkaðu þér því aðrar og árangursríkari aðferðir. 20. apríl - 20. maí  Naut Segðu nákvæmlega hvað þig vantar, þú færð það líkega. Vertu hluti af atriðinu og leyfðu þessu að koma í ljós, þú getur hvort sem er ekki haft áhrif á útkomuna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ættir að verja deginum með vin- um þínum ef þú mögulega getur. Reyndu að bæta sambandið við systkini og/eða ætt- ingja. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu það ekki fara í skapið á þér þótt athygli annarra beinist að þér. Allt sem þú gerir til að lífga upp á heimilið kemur sér vel. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú ert nú loksins í þeirri aðstöðu að geta ráðið ferðinni. Mundu að gjalda líku líkt síðar því þeir sem eru öðrum gleðigjafar þurfa líka á uppörvun að halda. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er hætt við að þú bíðir lægri hlut ef þú reynir að standa uppi í hárinu á þeim sem eru ofar settir. Besta leiðin til þess að mæta þeim er að þegja eða sýna þolinmæði. 23. sept. - 22. okt.  Vog Útkoman úr því sem gerist í dag er ekki í samræmi við það sem þú átt von á, heldur miklu betri. Gerðu ekki meira en þú hefur efni á. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Fæst orð hafa minnsta ábyrgð og þú mundir seint fyrirgefa þér ef þú yrðir til þess að ljóstra upp viðkvæmu leyndarmáli. Færri verk en vel unnin er það sem gildir. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Að hugsa of mikið um aðstæður sínar getur haft lamandi áhrif, en í dag er það leynivopn þitt í leitinni að velgengni. Sýndu tillitssemi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það býr einstakt fólk ekki langt frá þér sem þú hefur ekki hitt. Valið stendur á milli þess að fá umbun strax og að bíða, þú veist hvað gera skal. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ólík öfl togast á hið innra með þér og þú veist ekki í hvorn fótinn þú átt að stíga. Jafnvægi skapast þegar þú leyfir loftinu að endurnæra þig. Hvaðeina sem þú gerir færir þér ávinning. 19. feb. - 20. mars Fiskar Það er varasamt að trúa einhverju sem útilokar allar aðrar viðeigandi upplýs- ingar. Vertu opin/n fyrir því sem má betur fara, örlítil breyting getur haft gífurleg áhrif. Vísnagáta séra Sveins Víkings ísíðustu viku var þessi: Hana börnin bæta við. Boðar logn og sólskinið. Þér í fangið erfið er. Oft er gott að búa hér. Ekki stóð á því að lausnir bær- ust. Harpa á Hjarðarfelli átti þessa: Börnin hækka býsna hratt. Boðar hæðin veður milt. Hæðir upp er heldur bratt. Hæð í blokk hér nefna vilt. Og hér kemur Helgi R. Einars- son, staddur á Burstarfelli í Vopnafirði í sauðburði, – „og gott að hugsa á garðabandinu“ segir hann og er ekki ofsagt, því að dýrt er kveðið eða oddhent: Vísna- gæða -gátu ræð þótt gáfnafæð mig hrjái, að mér læðist lausnin „hæð“, ljóð í næði skrái. Þessi er lausn Hjartar Hjálmars- sonar á Flarteyri: Börnin sína bæta hæð. Bergþórssonur skýrði hæð. Er í fangið erfið hæð en útsýni er gott af hæð. Rétt er að rifja upp, að á þessum tíma var Páll Bergþórsson veður- stofustjóri. Páll í Hlíð á þessa gátu: Hann var pabba orfi á, oní jörðu rekinn sá. Neðst á bátnum aftast er, oft á göngu sárna fer. Svör þurfa að berast ekki síður en á miðvikudag og væri skemmti- legt að fá nýjar gátur til að spreyta sig á. Dr. Sturla Friðriksson sendi mér þessa limru og hafði við orð að kannski vildi ég birta hana fyrir kosningar. Svo að það er ekki seinna vænna! Það er kunnugt að í kosningum sé kjósendum látinn í té einhver kosningaseðill eða svoleiðis bleðill með krít til að krossa við D. Ég sýndi karlinum á Laugaveg- inum limruna og lét hann sér vel líka, hallaði undir flatt eilítið til hægri og sagði: Mér við Degi hugur hrýs hvergi vil ég slíka en íhaldið ég kátur kýs og kerlingin mín líka! Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Kosningalimra, gátan og fjaðurhatturinn Í klípu „SKJÓLSTÆÐINGURINN MINN LÝSIR YFIR SAKLEYSI SÍNU, Á ÞEIRRI FORSENDU AÐ ALLIR AÐRIR ERU AÐ GERA ÞAÐ SAMA OG HANN.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SKRIFA BARA UNDIR MEÐ NAFNI MÁGS MÍNS, ÞAR TIL ÉG FÆ MINNIÐ AFTUR.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá faðmlag og hrós á hverjum degi. LÁNADEILD JÁ, LÍSA, ÉG HELD AÐ MENN SÉU BETRI EN KONUR. JÚ, Í FYRSTA LAGI ERUM VIÐ ÞROSKAÐRI. EKKI BLANDA KANÍNUINNISKÓNUM MÍNUM Í MÁLIÐ! BÍDDU ÞAR TIL HÚN HITTIR BANGSANN HANS. SVO ORÐRÓMURINN ER SANNUR ... ÞAÐ ER Í ALVÖRU SKORTUR Á ST. BERNARDS HUNDUM Á ÞESSU SVÆÐI. MUU! Víkverji er enn að hugsa um viðtalvið fótboltakappann Pape Ma- madou Faye sem birtist í Sunnu- dags-Morgunblaðinu um síðustu helgi. Þar kom fram að hann upplifði rasisma hér á Íslandi, einkum á fót- boltavellinum, og það þegar hann var barn að aldri. Aðkastið var meðal annars af hálfu foreldra. Já, fullorðið fólk sem hreytti ókvæðisorðum í barn, fyrir það eitt að hörundslitur þess var ann- ar en þess eigin. x x x Nokkur umræða hefur spunnistum æsta foreldra á hliðarlín- unni. Þjálfarar hafa einmitt tjáð sig um þennan vanda sem þeir geta stundum skapað. Þjálfarar hafa þurft oftar en ekki að biðja fólk vinsamleg- ast um að sýna stillingu. Foreldr- arnir eru í raun sjálfir að keppa í gegnum börnin sín. Dæmi eru um að sumir foreldrar hreinlega missi sig og gleðjist yfir óförum annarra barna í hinu liðinu. Sbr. umfjöllun Sunnu- dags-Morgunblaðsins fyrir nokkrum mánuðum.Við eigum enn langt í land og engin tilviljun að Pollapönkarar syngja: „Burtu með fordóma!“ x x x Það var annað sem Víkverji hnautum í viðtalinu við Faye og það var frásögn hans af æsku sinni. Hann fæddist í Pikine, úthverfi Dakar, höf- uðborgar Senegal en það er fátæk- asta hverfið á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir það leið hann ekki skort, „ég fékk föt og það var alltaf matur á borðinu. Meira bað maður ekki um,“ segir hann í viðtalinu og heldur áfram og segist hafa verið hamingju- samt barn; gekk í skóla, sparkaði bolta og deildi herbergi með þremur frændum sínum því stórfjölskyldan bjó saman. Hún bjó þröngt en engan skorti neitt. x x x Grunnþarfir barnsins voru upp-fylltar. Annað þurfti ekki. Ör- yggi, matur, skóli og leikur. Víkverja varð litið inn í barnaherbergi heim- ilisins, og fylgdist í nokkra daga með því hvaða dót afkvæmið lék sér með. Það var ekki nema brot af öllu góss- inu. Það kemur í verkahring okkar fullorðna fólksins að bæta góssi á binginn. víkverji@mbl.is Víkverji Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Krist- ur. (Fyrra Korintubréf 3:11)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.