Morgunblaðið - 31.05.2014, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014
Listahátíð í Reykjavík 2014
Vilhjálmur A. Kjartnasson
vilhjálmur@mbl.is
Í myndinnsetningarverkinu Biðin
sem sýnt verður á tjaldi á stóra svið-
inu í Þjóðleikhúsinu dagana 3. og 4.
júní gefst tækifæri til að sjá lifandi
goðsagnir úr leihúsheiminum gæða
hráan texta verksins Beðið eftir Go-
dot, eftir Samuel Beckett, lífi. Jón
Atli Jónasson les senulýsingar og
stýrir lestrinum en með honum lesa
Gunnar Eyjólfsson og Erlingur
Gíslason hlutverk Vladimirs og
Estragons og Lucky og Pozzo lesa
Arnar Jónsson og Pétur Einarsson.
„Mig hefur lengi dreymt um að setja
upp þetta verk með þessum einstöku
leikurum en aldrei gefist réttur tími
til þess. Það hefur ekki verið auðvelt
að fá þessa leikara saman en þeir
voru þó allir tilbúnir að taka þátt í
þessari uppfærslu á verkinu,“ segir
Jón Atli en hann hefur sótt mikið í
leikverkið í öðrum verkefnum sínum
enda er leikverkið Beðið eftir Godot
eitt besta leikrit tuttugustu ald-
arinnar að hans mati.
Spurningin um tilvistina
Stuttu eftir eina hryllilegustu
styrjöld sem mannkynið hefur háð
og milljónir ungra manna voru enn
að aðlagast borgaralegu lífi skrifar
Samuel Beckett Beðið eftir Godot
eða árið 1949. Jón Atli segir spurn-
inguna um tilvistina vera aðdrátt-
arafl verksins. „Spurningin er auð-
vitað sígild og á við á öllum tímum.
Verkið er þannig úr garði gert að
fyrir áhorfendann er eins og hann
hafi heyrt það milljón sinnum áður
en er samt að sjá það í fyrsta skipti.“
Leikverkið býður upp á ýmiss
konar túlkun og það hefur verið sett
upp víða, m.a. í fangelsum, en Jón
Alti segir það vinsælt verk að setja
upp í fangelsi enda tengja fangar sig
vel við biðina. „Bandaríski rithöf-
undurinn Susan Sontag leikstýrði til
að mynda uppfærslu á verkinu í Sa-
rajevó í Bosníustríðinu. Uppsetn-
ingar á verkinu er orðnar mjög
margar enda einstakt verk.“
Vinnan á bakvið tjöldin
Uppsetning Jóns Atla er eins og
verkið sjálft, einstök. Í stað þess að
vinna að því í marga mánuði, setja
upp leikmynd og hanna búninga er
sýnt hvernig verk af þessum toga
verður gætt lífi í höndum leikara.
„Þarna sjá leikhúsgestir hvernig
leikarar nálgast efnið í upphafi,
hvernig við förum í gegnum það og
það gætt lífi. Biðin er heimild-
armynd um þessa vinnu leikarans,“
segir Jón Atli en sjálfur hefur hann
ekki séð myndina enda hans hlut-
verk að leikstýra leikverkinu en
heimildarmyndin var í höndum ann-
arra. „Þór Ómar Jónsson leikstýrði
heimildarmyndinni og ég hlakka
bara til að sjá afrakstur hans starfs
á tjaldinu í Þjóðleikhúsinu.“
Leikhúsið Gestir sýningarinnar Biðin sem er hluti af Listahátíð í Reykjavík fá tækifæri til að sjá stórleikara ís-
lenska leikhússins vinna að verki Samuel Beckett, Beðið eftir Godot, í upphafi vinnu- og sköpunarferlisins.
Skyggnast bak við tjöldin
í Þjóðleikhúsinu
Verk Samuel Beckett glætt lífi af goðsögnum leikhússins
Morgunblaðið/RAX
» Sýningin „S7 – Suðurgata >> Árbær(ekki á leið)“ var opnuð í Árbæjarsafni í
gær. Sýningin er á dagskrá Listahátíðar í
Reykjavík og sækir innblástur í rómaða
starfsemi gallerísins Suðurgötu 7 á árunum
1977 til 1982 en húsið hefur síðan verið flutt
á Árbæjarsafn. Listamennirnir Erla Silfá
Þorgrímsdóttir, Hrafnhildur Helgadóttir,
Sæmundur Þór Helgason og Styrmir Örn
Guðmundsson vinna ný verk í húsinu.
Sýningarverkefnið er samstarf Nýlista-
safnsins, Minjasafns Reykjavíkur og
Listahátíðar.
Metnaðarfull myndlistarsýning var opnuð í Árbæjarsafni
Ingi Rafn Sigurðsson, framkvæmdastjóri
Listahátíðar, opnar sýninguna.
Morgunblaðið/Ómar
Ragnheiður Káradóttir, Hrafnhildur Helgadóttir, sem er ein sýnenda og
Brynjar Helgason voru við opnunina í Árbæjarsafninu.
Agata Mickiewicz og Styrmir Örn
Guðmundsson, sem er einn sýnenda.
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Síðasta sýningarhelgi:
Betur sjá augu – Ljósmyndun íslenskra kvenna 1872-2013 í Myndasal
Silfur Íslands í Bogasal
Innblástur á Torgi
Silfursmiður í hjáverkum í Horni
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár - grunnsýning
Skemmtilegir ratleikir
Safnbúð og kaffihús
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið frá 10-17 alla daga.
Lusus naturae
Ólöf Nordal,
Gunnar Karlsson
og Þuríður Jónsdóttir
Listamannaspjall
sunnudag 1. júní kl. 15
Hnallþóra í sólinni
Dieter Roth
Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri.
www.hafnarborg.is,
sími 585 5790
Aðgangur ókeypis
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Dögg Guðmundsdóttir
leiðsögn sun. kl. 14.
næstsíðasta sýningarhelgi.
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is
Opið daglega kl. 11-17, lokað mánudaga.
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson - Yfirlitssýning 23.5. - 26.10. 2014
PÍANÓ 29.5.-29.6. 2014
Sýningin er á Listahátíð í Reykjavík 2014
PULL YOURSELF TOGETHER
Sýning á videóverki hollensku listakonunnar, Ninu Lassilu á kaffistofu safnsins.
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur • KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Sýningarnar, HÚSAFELL ÁSGRÍMS og FORYNJUR. Opið sunnudaga kl. 14-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR Laugarnestanga 70, sími 553 2906
SPOR Í SANDI, Sigurjón Ólafsson Yfirlitssýning 24.5. - 29.11. 2014
Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. www.lso.is
Opið kl. 12-17. Lokað mánud.
Verslunin Kraum í anddyri
Garðatorg 1, Garðabær
www.honnunarsafn.is