Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 47

Morgunblaðið - 31.05.2014, Síða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2014 Hekla Dögg Jónsdóttir, Unnar Örn sýningarstjóri, Anna Hrund Másdóttir og Dorothée Kirch. Kristján Már Pálmason, Marsibil Mogensen 6 ára og Leif- ur Ýmir, sem er einn sýnendanna. Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Halldór Ás- geirsson við opnun sýningarinnar. Birta Guðjónsdóttir, Berglind Jóna Finnsdóttir og Ólöf Gerður Sigfúsdóttir. Nákvæmlega níu mánuðumeftir minnisstæðan ein-leik sinn með I, CultureOrchestra kom unga georgíska píanóljónynjan Khatia Buniatishvili aftur út hingað. Nú ein síns liðs við Steinwayflygil hússins. Það dugði samt til að fylla Eldborg í meira en einum skilningi. Annars vegar var aðsóknin nærri 100%, er sagði sitt um undangengið orðspor. Að hinu leyti nýttist frábær hljóm- burður salarins í þaula á víðast mögulegu styrkrófi – og ekki sízt á þeim neðstu mörkum hins heyr- anlega sem oftar verða í góðum kammersal en í sinfónískri ómvist. Hafði einleikarinn greinilega fyrir löngu áttað sig á þeim girnilega aukakosti tónvangsins sem Víkingur Heiðar varð manna fyrstur til að kanna vígsluárið 2011. Í þremur orðum sagt var samnefn- ari kvöldsins kannski einmitt þessi: „Blíðuhót og bylmingshögg“ – og allt þar á milli. Því ekki aðeins nutu dreymandi unaður jafnt sem drynj- andi fítónskraftur sín til fullnustu af gagnkvæmum andstæðum, heldur gat einnig að heyra gegnmúsíkalska mótun á jafnt söngrænum augnablik- um sem í trommusveiflandi hrynseið – og allt tandurskýrt, sama hvað á gekk! Slíkt hlaut að kalla á undirtektir í heitara lagi, enda uppskar Katja ekki aðeins eitt klapp á fæti heldur tvö áður en yfir lauk – raunar með sama dúndrandi moto perpetuo aukalagi eftir Prokofjev og rifið hafði áheyrendur upp úr skónum sl. ágúst. Eiginlega var hvergi dauðan punkt að finna í gjörvallri dag- skránni. Buniatishvili hélt hlust- endum sínum á stöðugum nálum frá byrjun til enda – jafnt í innilegri angurværð þriggja Intermezzóa Brahms (Op. 117,1, 117,2 & 118,2 í Es, b & A) sem í þríþættri litadýrð Gaspard de la Nuit eftir Ravel er endaði með stólpabravúr á síþyrlaða hvirfilbylnum Scarbo. Ekki tók verra við eftir hlé þegar hið margræða Scherzo Chopins nr. 2 í b Op. 31 breiddi út faðm sinn í afburðatúlkun. Eftirköst fyrri heimsstyrjaldar fengu síðan það duglega „á’ann“ í La valse Ravels að vænta mátti aðkallandi uppklöss- unar á flyglinum að hildarleiknum loknum. En þó ekkert væri þar gef- ið eftir, vantaði né heldur fjöl- breytta og sannfærandi meðferð á þessari Hrunadanskveðju Fagra skeiðsins er Katja skilaði með leiftr- andi og lýtalausri tækni svo eftir sat. Flest ættu trompin þá að vera uppurin, skyldi maður halda. En ekki aldeilis. Í þrem þáttum úr pí- anóútsetningu Stravinskíjs á Pet- rúsjku fyrir Arthur Rubinstein sóp- aði svo af gáskafulla píanóleiknum að engu var líkt. Og sjaldan ef nokk- urn tíma hef ég heyrt jafn hárná- kvæm „reiðiköst“ á hvítum nótum og svörtum og í niðurlagskaflanum. Þar var sannarlega af setningi sleg- ið. Ljósmynd/Esther Haase Lýtalaust „Eiginlega var hvergi dauðan punkt að finna í gjörvallri dag- skránni. Buniatishvili hélt hlustendum sínum á stöðugum nálum frá byrjun til enda … Og sjaldan ef nokkurn tíma hef ég heyrt jafn hárnákvæm „reiði- köst“ á hvítum nótum og svörtum og í niðurlagskaflanum.“ Blíðuhót og bylmingshögg Eldborg í Hörpu Píanótónleikarbbbbm Verk eftir Brahms, Ravel, Chopin og Stravinskíj. Khatia Buniatishvili píanó. Fimmtudaginn 29.5. kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is Furðulegt háttalag –★★★★★ – BL, pressan.is Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið) Lau 31/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas Síðustu sýningar BLAM (Stóra sviðið) Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Lau 21/6 kl. 20:00 aukas Fös 20/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar! Ferjan (Litla sviðið) Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas Fim 12/6 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k Fös 13/6 kl. 20:00 Þri 3/6 kl. 20:00 34.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k Mið 11/6 kl. 20:00 38.k Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar , ★★★★ – SGV, Mblamlet Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is Á nærfötunum: Hin hliðin á íslenskum stjórnmálum (Kaffihús) Þri 10/6 kl. 12:00 Tónleikar með LAFIDKI og Sad Owl Brothers (Aðalsalur) Lau 28/6 kl. 20:00 Sumartónleikar Bartóna (Aðalsalur) Fim 12/6 kl. 20:00 Skráðu þig í iPad-áskrift á www.mbl.is/mogginn/ipad/ Nú geta allir fengið iPad-áskrift Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.