Morgunblaðið - 31.05.2014, Side 52
LAUGARDAGUR 31. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2014
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 745 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Tekur alltaf tvö stæði
2. Datt ekki í hug að lánið erfðist
3. Magnús tekur stærsta stökkið
4. Kærasta Magga í tískuteiti
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðaustan 8-13 m/s sunnan- og vestantil og rigning. Hæg breyti-
leg átt og bjartviðri um norðan- og austanvert landið, en þykknar upp í dag með dálítilli
vætu. Hiti yfirleitt 10 til 18 stig, hlýjast norðaustantil.
Á sunnudag Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s. Rigning eða skúrir, en bjartviðri að
mestu um landið norðaustanvert. Hiti 9 til 17 stig. Á mánudag Hæg suðvestlæg eða
breytileg átt og víða skúrir, en bjart með köflum og þurrt austanlands. Hiti 8 til 15 stig.
Veðbankar keppast við að spá því að
Barcelona standi uppi sem sigurveg-
ari í Meistaradeild Evrópu í hand-
knattleik. Undanúrslitin eru leikin í
Köln í dag og sjálfur úrslitaleikurinn
fer fram á morgun, en ekkert félag
hefur oftar unnið keppnina. Morg-
unblaðið fer yfir liðin í blaðinu í dag,
en fjórir Íslendingar verða í sviðsljós-
inu þessa úrslitahelgi. »4
Flestir telja að Barce-
lona fari alla leið í Köln
Landsliðsþjálfarinn Heimir
Hallgrímsson var nokkuð
sáttur eftir 1:1 jafntefli við
Austurríki í æfingaleik ytra í
gærkvöldi. „Þeir voru betri í
fyrri hálfleik og okkar plan
gekk ekki upp, svo við
ákváðum bara að halda
áfram og gera betur. Við
vorum ánægðir með hvernig
til tókst þar,“ sagði Heimir í
ýtarlegu viðtali í Morgun-
blaðinu í dag. »1
„Planið tókst í
síðari hálfleik“
Heims- og Evrópumeistarar Spán-
verja eru líklegir til afreka á heims-
meistaramótinu í Brasilíu í sumar.
Liðið er í B-riðli ásamt Hollandi, Síle
og Ástralíu en óvíst er hvort marka-
hrókurinn Diego Costa verði klár í
fyrsta leik 13. júní. Líklega kemur það
í hlut Hollands og Síle að slást um
annað sætið.
Í íþrótta-
blaðinu í
dag er farið
vel yfir
stöðu mála
í B-riðlinum
og mögu-
leikar liðanna
skoðaðir. »2-3
Meistararnir fara langt
með eða án Diego Costa
Happdrætti Styrktarfélags lamaðra
og fatlaðra í heimabankanum þínum!
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Þó að grátt hafi verið yfir að líta í
miðbæ Reykjavíkur í gær mátti sjá
þar mikla litadýrð en þangað voru
komin börn til að taka þátt í árlegu
kassabílaralli frístundaheimila Vest-
urbæjar.
Dagskráin hófst fyrir framan
Hallgrímskirkju en þaðan fengu
börnin lögreglufylgd þar sem þau
gengu fylktu liði í skrúðgöngu sem
leið lá niður á Ingólfstorg.
Börnin létu vel í sér heyra eins og
varla hefur farið framhjá neinum
nærstöddum en hvert lið skartaði
sínum einkennislit með miklu stolti.
Þá mátti sjá marga verslunareig-
endur og miðbæjargesti gera hlé á
erindum sínum og gleðjast með
börnunum á annars gráu síðdegi.
Þegar á Ingólfstorg var komið
fengu börnin að gæða sér á safa og
kleinum. Því næst hófst keppnin en
samstundis varð ljóst að kappið var
mikið hjá börnunum. Ekki var það
þó síðra hjá starfsmönnum frí-
stundaheimilanna þar sem nokkrir
þeirra flugu á hausinn í keppni sín á
milli. Þrátt fyrir nokkur kassabílslys
til viðbótar meiddist þó enginn ef frá
eru taldar nokkrar skrámur.
Rallið er árlegur viðburður á veg-
um frístundaheimilanna Undra-
lands, Skýjaborga, Frostheima og
Selsins en hvert þeirra sendir nokk-
ur lið og bíl til keppninnar.
Nú hefur keppnin verið haldin í að
minnsta kosti tíu ár og markar hún í
sérhvert skipti lokin á vetrarstarfinu
hjá frístundaheimilunum.
Mörg verðlaun eru í boði svo sem
fyrir hraðskreiðasta bílinn og þann
fallegasta. Þá er enn fremur keppt
um ýmsa titla eins og Klakameistara
og Frostrósir en þannig er séð til
þess að allir fari heim sigri hrósandi.
Innlifun Keppnin átti allan hug barnanna þrátt fyrir leiðinlegt veður.
Morgunblaðið/Golli
Á fleygiferð Mikið kapp var lagt á að vinna verðlaun fyrir sitt lið. Allir fóru þó heim sem sigurvegarar.
Undirbúningur Spennan var mikil í gær hjá keppendum í rallinu.
Litadýrð og gleði
í kassabílaralli
Árleg keppni frístundaheimilanna