Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 6
6 | MORGUNBLAÐIÐ Verndum náttúruna - notum undra UNDRI GARÐA hreinsir Góður í garðinn, á grillið, pottinn og pallinn Hreinsar mosa og græna sliku Þ að er notalegt sólskin í garð- inum hennar Þóru Ein- arsdóttur söngkonu þegar ég heimsæki hana einn góð- an veðurdag þar sem hún er önnum kafin við að klippa rósarunna. Jón Björnsson, yngri sonur hennar, situr fyrir miðju borði með símann henn- ar mömmu sinnar, í svo skemmti- legum leik að hann rétt lítur upp til að heilsa. Frú Þóra tekur af sér garðhansk- ana og gefur mér bolla af jurtatei með svolitlu anísbragði um leið og hún býður mér sæti í nýreistum lauf- skála hússins. „Við keyptum neðri hæðina hér við Auðarstræti fyrir nærri þremur árum. Það er mikið búið að gerast í garðinum síðan,“ segir Þóra. „Garðurinn var flottur fyrir, vel skipulagður og mikið af skemmti- legum plöntum hér. Markmiðið hef- ur verið búa til alhliða garð og halda sem mest í það sem fyrir var og bæta svo við eftir föngum. Björn maðurinn minn hlóð veglegt kolag- rill fyrsta sumarið og smíðaði meira að segja sjálfa grillgrindina úr járn- stöngum. Við grillum allt mögulegt, nýjasta æðið er að grilla spergil með púrrulauk. Við ákváðum, í samráði við Eddu V. Sigurðardóttur sem er grafískur hönnuður og á efri hæðina, að fella nokkur tré til að fá meiri birtu og leyfa hinum trjánum að njóta sín. Edda hefur mjög gott auga, yfirsýn, enda rekur hún fyrirtækið PORT hönnun. Jæja, Björn hjó svo hin felldu tré í eldivið fyrir grillið. Það leiddi til þess að eldiviðargeymsla var gerð rétt við grillið. Björn vann hjá Vatnsveitunni með skóla og þar var mikið verið að skipuleggja og planta. Sú reynsla hans hefur nýst vel núna. Einnig hefur vinur okkar Stefán Bogi Stefánsson gullsmiður hjálpað okkur mjög mikið. Nákvæmari og meiri fagmann er varla hægt að fá. Ég hef hinsvegar verið meira í gróðri og plöntum.“ Klifurrósir í Pergola Þeir félagar reistu sem sagt þenn- an laufskála, eða Pergola, eins og Þóra kallar hann. „Þetta eru tré- grindur sem gróður vefst svo um og myndar skjól með laufum sínum. Við erum búin að planta klifurrós- arunnum, svo sem pólstjörnu og flammentanz sem eiga að mynda laufskálann, ásamt fleiri plöntum, svo sem ígulrósunum hjóna- og meyjarrós, þær blómstra fallega en stutt og mynda svo fallega belgi. Ekki má gleyma gömlum sólberj- arunna sem teygir sig til lofts. Ég er að hugsa um að binda greinarnar upp, hann gefur stór og góð ber. Í raun hefur endurnýjun garðsins verið einskonar spuni, við höfum öll skoðað hvað er í garðinum, reynt að nýta það vel og skoða svo hvað er hægt að gera næst. Við höfum kurl- að niður við sem ekki er ætlaður sem eldiviður. Kurlið settum við í beðin fyrir framan húsið. Búið var að helluleggja nokkuð af garðinum og einnig voru hér gamlar hellur sem nánast voru grafnar upp þegar farið var að undirbúa smíði palls utan um stóran, gamlan hlyn. Fyrri eigandi fékk þessar hellur víst gefins frá Reykjavíkurborg. Margt er því upp- runalegt í garðinum.“ Góð eplauppskera Þið hjónin bjugguð um árabil í Þýskalandi, voruð þið með garð þar? „Nei, en ég var bara með krydd- plöntur inni. Ekki var heldur garður þar sem ég ólst upp. Þetta er í fyrsta sinn sem ég hef garð og mér finnst það afskaplega gaman. Ég átti mér raunar þann draum þegar ég var yngri að verða grasafræðingur. Við erum með lítið matjurtahorn í garð- inum hér, þar ræktum við salat, spí- nat, rabarbara, kartöflur og jarð- arber. Hér voru tvær tegundir af rifsberjarunnum, sumir gamlir og dálítið úr sér vaxnir. Þá höfum við verið að endurnýja með klippingu, það ferli tekur víst ein fjögur ár. Við erum líka með hindber og plómutré. Þar sem gamli olíutankurinn var, þegar kynt var hér með olíu, er núna upphlaðinn kryddjurtareitur. Maður gengur bara út eins og fín frú og klippir af þeim kryddjurtum það sem þarf hverju sinni í matinn – án þess að beygja sig.“ Hundur heimilisins, Kvistur að nafni, lætur mjög til sín taka meðan á viðtalinu stendur. „Hann er búinn að finna sér stað, fyrir framan kirsu- berjatréð sem við gróðursettum,“ segir Þóra. „Við settum líka niður eplatré. Það er danskt fjölskyldutré, samansett úr þremur tegundum. Við fengum 60 epla uppskeru síðasta haust, þau eru dálítið súr en góð. Strákarnir höfðu þau í skólanesti fram eftir hausti.“ Þóra hefur mikinn áhuga á rósum. „Við erum komin með einar tíu mis- munandi tegundir,“ segir hún og bendir á rósir sem blómstruðu víst fagurlega síðasta sumar. Í einu horninu er svo gömul bóndarós. „Henni líður rosalega vel, koma óskaplega falleg blóm á hana,“ segir Þóra og horfir allt að því móðurlega á viðkomandi plöntu. Þóra bætir við að skemmtilegt hafi verið fyrir fjölskylduna að vinna að þessu garðverkefni saman. Syn- irnir Einar 12 ára og Jón 8 ára hafa sýnt garðinum talsverðan áhuga. „Þeir hafa allavega mjög gaman af að sýna garðinn vinum sínum og vin- sælt er að halda grillveislur.“ Að sögn hennar hefur verið sett töluvert af nýrri mold í garðinn og borinn á lífrænn áburður. „Eftir bókinni,“ segir Þóra og brosir. En hvað stendur til í sumar? „Að ganga frá beði sem er nálægt götunni. En það verður ekki byggt meira í bili. Við höfum þó áhuga á að reisa verkfæraskúr síðar. Okkur langar til að klæða bílskúrsvegg sem snýr inn í garðinn okkar með berg- fléttu. Það tekur auðvitað tíma. Við erum ekki í neinu stressi við þessa garðvinnu, síður en svo. Þetta á bara að vera garður sem gaman er að vera í og njóta. Garðvinnan er mín slökun.“ gudrunsg@gmail.com Garðvinnan er slökun Morgunblaðið/Þórður Fjölskyldan Þóra segir að skemmtilegt hafi verið fyrir fjölskylduna að vinna að þessu garðverkefni saman. Synirnir Einar 12 ára og Jón 8 ára hafa sýnt garðinum talsverðan áhuga. „Þeir hafa allavega mjög gaman af að sýna garðinn vinum sínum og vinsælt er að halda grillveislur.“ Hnossgæti „Maður gengur bara út eins og fín frú og klippir af þeim kryddjurtum það sem þarf í matinn – án þess að beygja sig.“ Kvistur „Hann er búinn að finna sér stað, fyrir framan kirsuberjatréð sem við gróðursettum,“ segir Þóra um heimilishundinn. Við Auðarstræti, í tveggja hæða húsi, búa á neðri hæðinni hjónin Þóra Ein- arsdóttir söngkona og Björn Jónsson söngvari ásamt sonum sínum tveimur. Þau hafa í félagi við Eddu V. Sigurðardóttur, eiganda efri hæðarinnar, verið að endurnýja garðinn í kringum húsið. ’Í raun hefur end-urnýjun garðsinsverið einskonar spuni,við höfum öll skoðaðhvað er í garðinum, reynt að nýta það vel og skoða svo hvað er hægt að gera næst. Jarðarber Undir hlíf dafna blómin og jarðarberin koma í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.