Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 10

Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 10
10 | MORGUNBLAÐIÐ Sími 555 2992/698 7999 SKORDÝRA FÆLAN Einnig ætlað börnum Fæst í öllum apótekum - og geitungarnir leggja á flótta Sláið 3 flugur í einu höggi Fælir í burtu flugur Góður ilmur Verndar húðina Jurtavörur gera gagn! G arðyrkju- og blómasýn- ingin „Blóm í bæ“ verður haldin í Hveragerði helgina 27.-29. júní 2014. Sýningin er nú haldin í fimmta sinn og hefur vegur hennar farið vaxandi jafnt og þétt undanfarin ár. Búast má því við að í ár verði hún glæsilegri en nokkru sinni. „Blóm í bæ er stærsta sýning græna geirans á Íslandi,“ segir El- ínborg María Ólafsdóttir, verkefn- isstjóri hjá Hveragerði, en ásamt Hveragerðisbæ standa Samband garðyrkjubænda (Félag garðplöntu- framleiðenda og Félag blóma- framleiðenda), Grænn markaður, Landbúnaðarháskólinn, Félag blómaskreyta og Garðyrkjufélag Ís- lands að sýningunni. „Sýningin Blóm í bæ er samstarfsverkefni og framlag hvers og eins sem kemur að sýningunni er ómetanlegt. Þá viljum við ítreka að þetta er sýning en ekki bæjarhátíð, og hún er opin milli kl. 12.00 og 18.00. Aðgangur er að sjálf- sögðu ókeypis eins og vant er.“ Vinsæl skemmtun við veginn Blóm í bæ hefur dregið til sín tug- þúsundir gesta á öllum aldri á und- anförnum árum enda er sýning- arsvæðið í alfaraleið, eins og Elínborg bendir á, aðeins í um 30 mínútna akstursfjarlægð frá höf- uðborginni. „Að vanda verður boðið upp á fjölda viðburða á sviði garð- yrkju, umhverfismála og íslenskrar framleiðslu sem verða á sýningunni. Fræðslan er sem fyrr í öndvegi og því munum við bjóða upp á sögu- göngu um skógræktarsvæðið og fyrirlestra um garðrækt, gestir geta spreytt sig á plöntugreiningu ásamt mörgu fleiru.“ Garðasúpan verður þá á sínum stað og bíður gesta, rjúkandi heit, í nokkrum görðum bæjarbúa. „Það er ótrúlega skemmtilegt að fara um bæinn og kíkja í heimsókn til heimamanna, skoða fallega garða og fá girnilega súpu að smakka,“ bætir Elínborg við. „Íbúar taka virkan þátt í hátíð- inni, skreyta hús sín og garða og fjöldi markaða er út um allan bæ.“ Sýningin fer að mestu leiti fram á opnum svæðum eins og í Lystigarð- inum, við Breiðumörkina og á svæð- inu við íþróttahúsið Skólamörk. Regnboginn er þemað í ár Sýningin „Blóm í bæ“ er fjöl- skyldumiðuð og því ætti fólk á öllum aldri að finna eitthvað við sitt hæfi. Í Hveragerði er ágætt tjaldsvæði við Reykjamörk sem verður opið alla dagana, að því er Elínborg bendir á. „Þemað á sýningunni í ár er „Regnboginn“ þannig að það verða afar litskrúðugar blóma- skreytingar um allan bæ sem fé- lagar í Félagi blómaskreyta skapa úr hráefni sem blóma- og garð- plöntuframleiðendur leggja til,“ segir Elínborg. „Blómaskreytar mæta í bæinn nokkrum dögum fyrir sýningu og vinna að skreytingum sem verða engu öðru líkar, leyfi ég mér að fullyrða. Það hefur hingað til verið ævintýri líkast að fylgjast með hvernig listaverkin verða til og enn frekar að fylgjast með gestum sýn- ingarinnar dást að þeim,“ bætir hún við. Listaverk í náttúrunni Í ár mun svo að auki á annan tug erlendra blómaskreyta mæta og taka þátt í undirbúningi sýning- arinnar. Þeir vinna í sjálfboðavinnu að verkefni sem kallast „Landart“ en þetta eru stórbrotin listaverk sem unnin eru í náttúrunni – úr náttúrunni. Að sögn Elínborgar er tilgangur sýningarinnar að vekja athygli á garðyrkju og garðrækt í öllum sín- um fjölbreytileika. „Útivist og af- þreying í íslenskri náttúru er alltaf að aukast og á sýningunni munu fjölbreytt fyrirtæki einnig kynna allt sem eykur ánægju almennings á útivistarsvæðum. Dagana 27.-29. júní bresta svo herlegheitin á í Hveragerði og bæjarfélagið allt hlakkar til að taka á móti góðum gestum í blómstrandi bæ.“ jonagnar@mbl.is Blómlegt um að litast í Hveragerði Þeir sem gaman hafa af blóumum og grænum gró- anda ættu fyrir alla muni að leggja leið sína í Hvera- gerði dagana 27.- 29. júní þegar bærinn verður með blómlegasta móti. Skreytingar Listaverk úr hvers kyns blómaskrúði rís víðsvegar um Hveragerði meðan á sýningunni stendur. Sjón er sögu ríkari. Fjölskyldugaman Börn jafnt sem fullorðnir skemmta sér á bæjarsýn- ingunni Blóm í bæ sem haldin er árlega í Hveragerði. Blómalist „Blómaskreytar mæta í bæinn nokkrum dögum fyrir sýningu og vinna að skreytingum sem verða engu öðru líkar, leyfi ég mér að fullyrða,“ segir Elínborg um fyrirhugaðar skreytingar á bænum. ’Blóm í bæ hefurdregið til sín tugþús-undir gesta á öllum aldriá undanförnum árumenda er sýningarsvæðið í alfaraleið. Kynjaverur það er allt hægt þegar blómaskreytingar eru annars vegar og kynjaverur úr ríki garðyrkjunnar lifna þá líkast til við. Blómabær Blóm í bæ verður hald- in 27.-29.júní nk.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.