Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 20

Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 20
20 | MORGUNBLAÐIÐ Klapparstíg 44 Sími 562 3614 Nýkomið SJARMERANDI LAUTARKÖRFUR ÚR BASTI 4 manna karfa með leirtaui og hnífapörum TWEEDMILL ÚTIVISTARTEPPI 137X137 cm. vatnsheld. Verð kr. 22.000 Verð kr. 8.900 Þ að er svo sem ekkert sér- stakt grilltímabil hjá mér, frekar en öðrum Íslend- ingum,“ segir Óli Gísli að- spurður og rímar það við grillviðhorf landans; hvorki slydda, snjór né snarvitlaust hagl fá Íslendinga í grillhug ofan af því að kveikja upp. „Ég útiloka ekki grill í janúar, og ef mann langar í grillmat þá grillar maður bara. Enda finnur maður stundum grilllykt á förnum vegi yfir háveturinn. Gott veður togar mann hins vegar óneitanlega frekar út á pall, það verður bara að segjast eins og er. En betri aðbúnaður á pöllum, skýli og hitarar, betri grill og svo framvegis hafa lengt í grill- tímabilinu, það er á hreinu.“ Lax, hlýri, blálanga Óli Gísli hefur grillað allt mögu- legt um sína daga, eins og gefur að skilja og því hafsjór af fróðleik þegar kemur að grilli. Skyldi vera einhver matur, eitthvert hráefni sem honum finnst einfaldlega njóta sín best grillað? Hann er fljótur til svars. „Fiskur. Það er eitthvað sem ger- ist þegar fiskur er grillaður, sem er svolítið erfitt að færa í orð, eitthvað pínulítið extra sem gerist. Þessi óskilgreindi herslumunur sem grillið gefur fiskinum. Ef þetta er rétt gert þá jafnast fátt á við grillaðan fisk.“ Þegar Óli Gísli er inntur eftir því Grillarar hafi H-in fjögur í huga Morgunblaðið/Eggert Ólafur Gísli Sveinbjörnsson, eða Óli Gísli, er lands- mönnum að góðu kunnur fyrir meistaramatseld sína enda hefur hann galdrað fram krásir á sjónvarps- skjánum um langt árabil, nú síðast á sjónvarpsstöð- inni Miklagarði. Óli Gísli grillar af kunnáttu og list og því gráupplagt að fá frá honum hollráð fyrir sumarið sem er framundan. Grillarinn „Þegar ég grilla þá er grillið búið að vera í gangi í 15-20 mínútur áður en ég set nokkurn skapaðan hlut á það. Það er lykilatriði þegar maður er að grilla og ekki síst þegar um fisk er að ræða,“ segir Óli Gísli. FYRIR FJÓRA Grillaður kjúklingur 1 heill ferskur kjúklingur, úrbeinaður, skorinn í 8-10 hluta 250 ml Caj P original grillmarinering 1 tsk chilimauk (blue dragon), eða ½ ferskur chili saxaður 2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir Úbeinið kjúklinginn. Hrærið saman marineringunni , hvítlauk og chili. Hellið yfir kjúklinginn og passið að marineringin sé á öllum kjúklingnum. Gott að velta kjúklingnum nokkrum sinnum í marineringunni. Látið standa í 4-6 klst. Grillið við mikinn hita, fyrst neðst á grillinu og færið svo upp á efri grind til að klára. Tekur um 20-40 mín fer eftir hitastigi og þykkt kjúklingsins. Athug- ið t.d. á legg eða læri hvort hann sé eldaður inn að beini og þá er hann tilbúinn. Cous cous 250 gr cous cous 300 ml vatn 1 tsk chilimauk (blue dragon) 1 tsk hvítlauksmauk eða ferskur sax- aður hvítlaukur 1 tsk turmeric 1 tsk cumin 1-2 tsk grænmetiskraftur 1 msk söxuð fersk steinselja 1 msk söxuð fersk mynta 2 – 3 msk olífuolía safi úr ½ sítrónu eða lime Setjið cous cous í skál, blandið olí- unni saman ásamt chilimaukinu og hvítlauknum. Setjið vatn í pott ásamt grænmetiskraftinum og þurrkrydd- unum. Látið suðuna koma upp og hell- ið svo sjóðheitu yfir cous cous-ið. Hrærið vel saman við og setjið lok á skálina eða þétta pastfilmu. Látið standa í 20-30 mín. Rétt áður en þetta er borið fram þá hrærið saman við fersku kryddunum og setjið að end- ingu sítrónusafann yfir. Grillað grænmeti 2-3 paprikur - rauð, gul eða græn. 1 kúrbítur (zucchini) 1 eggaldin 1 búnt vorlaukur (einnig gott að grilla rauðlauk og sveppi) Skerið grænmetið niður í hæfilega bita og penslið með ólífuolíu. Grillið við mikinn hita. Paprikan tekur mestan tíma og gott er ef hún fær að brenna Grillaður kjúkling- ur í Caj Ṕs original með hvítlauk og chili

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.