Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 22
22 | MORGUNBLAÐIÐ Gufunesi · 112 Reykjavík · Sími 559 2200 · efnamottakan.is Ertu að taka til í … …garðinum … geymslunni Komdu spilliefnunum og raftækjunum á söfnunarstöðina næst þér … … við sjáum um framhaldið! T il að njóta útiverunnar í garðinum þarf að eiga réttu garðhúsgögnin. Gott borð og stóla þarf fyrir grillveisl- urnar, sólbekk fyrir afslappaðar stundir á stuttbuxunum, og jafnvel að vanti lítið sófasett fyrir huggu- legan hitting á pallinum. Ekki þarf bara að huga að útlitinu á garðhúsgögnunum, svo þau fegri heimilið, heldur verður líka að gæta að endingu húsgagnanna enda mæða á þeim veður og vindar allan ársins hring. Endingargott undraefni Ívar Þórður Ívarsson er versl- unarstjóri hjá Rúmfatalagernum á Korputorgi. Hann segir vinsælast í dag að velja garðhúsgögn sem gerð eru úr fléttuðu plastefni, polyrattan. „Undirstaðan er þá sterkbyggð grind og polyrattan-plastið fléttað og vafið utanum líkt og ef um væri að ræða basthúsgagn. Þetta efni er mjög sterkt og endingargott en um leið þægilegt að sitja á. Má fá garð- húsgögn af þessu tagi í fjölda lita og margir velja grá húsgögn, svört eða hvít,“ segir hann. Polyrattan lætur ekki á sjá þó að húsgögnin standi úti í mánuði og ár. „Og það þarf í mesta lagi raka tusku til að strjúka af þeim ef einhver óhreinindi hafa safnast upp yfir vet- urinn.“ Polyrattan-efni eru líka að koma sterk inn í garðborðunum „Eru þá fætur og undirstöður borðsins ofnar með polyrattan en sjálf platan úr efni sem kallast Art Wood. Má lýsa því sem nk. plastviði sem þolir vel sól og hita eða snjó og kulda og sömuleiðis heita matardiska og rauðvínsslettur. Umgengnin við þetta efni er svo auðveld að sumir láta einfaldlega duga að spúla borðið með garðslöngunni ef það óhreink- ast, og þá er allt orði hreint og fínt.“ Viðarhúsgögn seljast enn, þó í minna mæli. Segir Ívar viðarhús- gögn hafa sinn sjarma en þau kalli yfirleitt á meira viðhald af hálfu eig- andans. „En það eru sumir sem ein- faldlega hafa yndi af því að nostra við garðhúsgögnin sín og þykir fátt skemmtilegra en að bera á viðinn tvisvar eða þrisvar yfir sumarið.“ Hirsla, borð og bekkur Ekki má heldur gleyma sessum og púðum sem setja punktinn yfir i-ið. Þar segir Ívar að einlitu púðarnir seljist fyrst, en einnig eitthvað af marglitum púðum með skraut- mynstri. „Mjög algengt er að fólk kaupi svokallað sessubox ef það kaupir sessur á annað borð. Er það þá vind- og rakaheld kista þar sem geyma má sessur og púða yfir veturinn. Boxið getur líka rúmað t.d. útileikföng barnanna eða garðáhöld og nýtist sem bekkur eða borð þess á milli.“ Að sögn Ívars er allur gangur á því hvort fólk vill garðhúsgögn sem hafa rómantískt og klassískt útlit eða nýstárlegt og stílhreint. „Yngra fólkið sýnist mér vera opnara fyrir því að kaupa garðsófasett en yfir lín- una eru það borð og stólar sem mest selst af.“ Þegar líða tekur á sumarið fara svo sólhlífarnar að seljast. „Það get- ur verið ágætt að hafa sólhlíf, ekki bara til að halda rigningarúða í skefjum heldur líka til að lengja notkunartíma garðsins. Ef heitt er úti en smá úði eða létt skúr getur sólhlífin þýtt að hægt er að sitja áfram í rólegheitum úti á palli. Sól- hlífin hefur líka þann eiginleika að skorða borðið betur af, en vaninn er að hlífin fer í gegnum gat á miðju borðinu og er skorðuð við 40 kg marmarastein sem settur er undir. Saman mynda því borð og sólhlíf eina heild sem stenst vel kröftugan vind.“ ai@mbl.is Sessuboxin eru mikið þarfaþing Ívar í Rúmfatalagernum segir að ef fólk kaupi á annað borð sessur og púða á garðhúsgögnin verði endilega líka að kaupa sessubox. Húsgögn ofin úr polyrattan-plastefn- inu eru vinsælust enda bæði falleg og endingargóð. Samvera „Yngra fólkið sýnist mér vera opnara fyrir því að kaupa garðsófasett en yfir línuna eru það borð og stólar se Hagkvæmt Fallegt sófasett úr vinsæla plastefninu sem ofið er eins og bast. Sígilt Viðarhúsgögnin eiga sína aðdáendur en kalla á meira viðhald.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.