Morgunblaðið - 23.05.2014, Síða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ
• Tekur venjulegt GSM SIM kort.
• Hægt að panta mynd eða hlusta svæði.
• SMS og MMS viðvörun í síma og netf.
• Lætur vita ef rafmagn fer af og hiti breytist.
• Hægt er að tengja allt að 15 auka skynjara.
• Vöktun á heitum potti, raka, þrýstingi o.fl.
• Stýring á hita, kveikja ljós, renna í pottinn.
Eftirlitsmyndarvél fyrir sumarbústaði og heimili.
Uppl. í síma 699-6869 og rafeindir@internet.is
Velkomin á heimasíðu okkar
www.gardplontur.is
Þ
egar handritshöfunda lang-
ar að skapa afslappað og
skemmtilegt sögusvið þá
láta þeir sögupersónurnar
iðulega deila ljúffengri máltíð yfir
grillinu.
Kemur því ekki á óvart að
þekktar grill-senur eru fjölda-
margar og leika oft lykilhlutverk í
atburðarásinni. Skoðum nokkur
góð dæmi:
„Þú ert engin dama“
Ein frægasta grillveisla kvik-
myndasögunnar er veislan stóra í
upphafi Gone With the Wind.
Stúlkuhróið Scarlet O‘Hara hlakk-
ar svo til að fara í grillveisluna á
næsta bæ því þar vonast hún til
að sjá manninn sem hún er ást-
fangin af, Ashley Wilkes. Veislan
reynist örlagarík og hamingjan og
gleðin þar skapar sterkar and-
stæður við það sem koma skal í
bandaríska borgarastríðinu. Í
veislunni er tilkynnt að Wilkes er
trúlofaður og O‘Hara bregst ekki
vel við fréttunum, vægast sagt. Þá
birtist líka í veislunni örlagavald-
urinn myndarlegi Rhett Butler.
„Herra minn, þú ert enginn herra-
maður,“ segir hún í frægu rifrildi
þeirra tveggja í veislunni. „Og þú,
frú mín góð, ert engin dama,“
svarar hann að bragði.
Óvænt listaverk
Grillið var miðpunktur grínsins í
Simpsons þættinum „Mom and
Pop Art“. Þátturinn er sá nítjándi
í tíundu þáttaröðinni um gullituðu
fjölskylduna í Springfield. Dreym-
ir Hómer um, rétt eins og marga
aðra karlmenn, að smíða sér úti-
grill í garðinum. Hann hefst handa
við að blanda steypu og reyna að
raða múrsteinum og grill-ristum
eftir kúnstarinnar reglum en tekst
vægast sagt illa til. En fátt er svo
með öllu illt að ekki boði nokkuð
gott. Furðuleg hrúga Hómers af
múrsteinum og steypu slær nefni-
lega í gegn sem nútímalist og
hann tekur til við að spreyta sig á
nýjum starfsvettvangi, nú sem
undur í listheiminum.
Spegill á nútímann
Meistari Clint Eastwood hafði
ákaflega skemmtilega grillveislu-
senu í verðlaunamyndinni Gran
Torino. Þar leikur Eastwood ön-
ugan gamlan karlskarf sem kann
því ekki vel hvernig hverfið hans
er orðið fjölþjóðlegt og fullt af
vandræðagemlingum. Í fyrri hluta
myndarinar sér persóna Eastwo-
ods hvar ungir svartir táningar
eru að áreita unga stúlku af víet-
nömskum uppruna. Í þakklæt-
isskyni fyrir björgunina býður
stúlkan Eastwood í grillveislu hjá
fjölskyldu sinni. Þar má sjá gamla
skarfinn byrja að koma löturhægt
út úr skelinni, en um leið sést vel í
senunni bæði hversu margt er
ólíkt og margt líkt með „nýja“ ví-
etnamska fólkinu og gamla al-
ameríska karlskarfinum.
Síðasta grillveislan
Ekki eru allar stundir við grillið
svona friðsamlegar, né heldur list-
aukandi. Gott dæmi þar um er
hryllingsmyndin Final Destination
2. Undir lok myndarinnar virðist
sem allar söguhetjurnar hafi náð
að lifa af, hafandi rétt sloppið und-
an örlaganornunum. Fjölskylda og
vinir eru samankomin yfir safa-
ríkri steik og ekkert nema nota-
legheitin, þegar kemur upp úr
dúrnum að einn gesturinn – sá
sem mannar grillið – segist hafa
naumlega komist hjá því að verða
fyrir bíl. Og viti menn, grillið
springur í loft upp og sögupersón-
an með.
Grillveislur á hvíta tjaldinu og í sjónvarpi
Það sést vel í kvikmyndum
og sjónvarpsþáttum að
grillið er notalegur og vina-
legur samkomustaður.
Umsetin Hver getur gleymt grillveislunni í Gone With the Wind. Hamingjan er við völd en hörmungar stríðsins vofa yfir.
Sæla Vinkonurnar fjórar í eftirminnilegri grillveislu Samönthu Jones á
þaki nýju íbúðarinnar. Kokkteilar og sumarkátína út í gegn.
Klaufi Hómer reynist haf hæfileika sem lisÚff Dwayne Johnson í hlutverki sínu í Pain & Gain.