Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 32
32 | MORGUNBLAÐIÐ Hágæða sláttutæki Askalind 4 • Kópavogi • Sími 564 1864 Stiga Collector 46S sláttuvél með drifi 4 hestafla B&S mótor 55 ltr grashirðikassi Stiga Pro 50S sláttuvél með drifi 7 hestafla B&S mótor 70 ltr. grasirðikassi Stiga Estate 5102 sláttutraktór 18 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 260 ltr. grashirðikassi Stiga Estate Master 3084 sláttutraktór 13,5 hestafla, sjálfskiptur B&S mótor 240 ltr. grashirðikassi Ó lafur Sturla Njálsson reiknar með því að svo- kallaður „snjóboltarunni“ muni slá í gegn hjá Íslend- ingum. „Um er að ræða nýliða í ís- lenska garðplöntuúrvalinu og kem- ur hingað til lands frá Finnlandi. Þar er plantan afskaplega vinsæl og ætti að henta íslenskum aðstæðum enda eru þær ekki ósvipaðar veð- urskilyrðum í Finnlandi,“ segir hann. „Plantan er af tegundi Vib- urnum opulus á latínu en yrkið heit- ir Pohjan Neito og skartar hvítum blómum sem eru ögn stærri en golfkúlur, allt að sjö cm í þvermál. Ég hef verið að prófa ræktun á þessari plöntu hér hjá mér síðast- liðin sjö ár og hef komist að því að snjóboltarunninn er þræl- harðgerður.“ Alíslensk ávaxtatré Ólafur á og rekur garðplöntu- stöðina Nátthaga rétt fyrir utan Hveragerði. Sérsvið Ólafs er tré og runnar. „Ég á mikið úrval af trjám, bæði stórum og smáum, einnig hell- ing af alparósum, öðru nafni lyng- rósir, klifurplöntum og berj- arunnum af mismunandi sortum.“ Hefur Ólafur ræktað upp mynd- arlega stofna og selur í dag nær einvörðungu plöntur sem ræktaðar eru á Íslandi. „Fyrstu alíslensku ávaxtatrén mín fara í sölu núna í vor og ágætt að geta hætt innflutn- ingnum enda fylgir innfluttum trjám alltaf einhver hætta á smit- sjúkdómum.“ Undanfarin ár hefur Ólafur verið réttur maður á réttum tíma því ávaxtatré hafa notið vaxandi vin- sælda. Segist hann hafa gert til- raunir með um 140 sortir af ávaxta- trjám á landareign sinni. Hann segist ekki vera frá því að þær fréttir hafi lagst vel í íslensku þjóð- arsálina, að hægt væri að rækta hér á landi tré sem bera ýmiss konar ávexti. „Hér áður fyrr hefði það þótt algjör fjarstæða að það væri t.d. hægt að láta eplatré bera ávöxt í garði í Reykjavík en svo fóru þessi tré að sýna hvað í þeim býr nokkru fyrir hrun. Ég held að það hafi gefið fólki ákveðna bjartsýni á ný. Ef hægt væri að rækta sömu tré á Ís- landi og þrífast sunnar á hnettinum, þá væri ekki öll von úti enn fyrir landið.“ Verða að vera í skjóli Hann segir ávaxtatré fyrst og fremst þurfa á góðu skjóli að halda. „Þessi tré taka út fyrir að þurfa að standa í kulda og roki og ef þeim er ekki valinn hentugur staður, sól- ríkur og skjólsæll, þá geta þau smám saman koðnað niður. Jarð- vegurinn verður líka að vera góður og næringarríkur svo ávaxtatrén dafni vel.“ Ávaxtaplönturnar eru ekki bara skemmtilegar fyrir þær sakir að þær skuli bera æta og sæta ávexti, heldur geta þær verið mjög falleg viðbót við garðinn. „Oft taka ávaxtatré á sig mjög fallega haust- liti og perutré þykja mér oft sér- staklega falleg. Kirsuberjatré eru líka heimsfræg fyrir falleg blóm og haustliti. Af þessum ávaxtatrjám sem best þrífast hér á landi eru það kannski plómutrén sem eru síst fyr- ir augað, að mínu mati.“ Ólafur minnir á að garðræktendur verði að sýna ávaxtatrjánum þol- inmæði. Ef aðstæður eru ekki nógu góðar eitt árið geti það gerst að plantan beri ekki ávöxt. „Á rign- ingasumri eins og í fyrra var lítið um ávaxtauppskeru í íslenskum görðum en á hlýju og þurru sumri má búast við að þessi tré geti gefið töluvert af sér.“ Þarf að klippa rétt Þegar ávaxtatré er komið fyrir þarf að velja góðan jarðveg, passa að moldin sé vel unnin og blönduð kalki. „Síðan gefurðu plöntunni áburð árlega því ef hún fær ekki nóg að éta gefur hún ekki af sér aldin. Einnig geta sum af þessum trjám kallað á sérstök handtök við klippingu og snyrtingu. Vill t.d. stundum myndast skuggi í krón- unni, sérstaklega á perutrjám og eplatrjám, og ákveðnar klipping- araðferðir notaðar til að hleypa birtu betur inn að miðju. Ef klippt er of mikið getur tréð vaxið of hratt en ef klippt er miðlungs þá fer plantan betur yfir í ávaxtafasann.“ Trén þarf líka að frjóvga ef þau eiga að bera ávöxt. Segir Ólafur hægt að fá lítið býflugnabú yfir sumarið til að sinna þessu verki eða frjóvga handvirkt og bera frjóið á pensli á milli blóma. „En við eigum líka þrjá Íslendinga í flugnaheim- inum sem frjóvga þessar plöntur. Ættu ræktendur ávaxtatrjáa að gleðjast yfir því að sjá humlur, geit- unga og blómasveifflugur á sveimi í kringum ávaxtatrén.“ ai@mbl.is Býst við að fallegi finnski snjóbolta- runninn verði vinsæll hérlendis Morgunblaðið/Sigmundur Sigurgeirsson Aðstæðurnar „Á rigningasumri eins og í fyrra var lítið um ávaxtauppskeru í íslenskum görðum en á hlýju og þurru sumri má búast við að þessi tré geti gefið töluvert af sér,“ segir Ólafur Sturla Njálsson í Nátthaga. Vinsælt finnskt yrki með stórum hvítum blómum gæti hentað mjög vel á Ís- landi. Segir að sýna þurfi ávaxtatrjám þolinmæði og gefa þeim góða næringu. Ljósmynd/Wikipedia – Abrahami (CC) Kúlur Snjóboltarunninn svokall- aði hefur skemmtilegt útlit. Ólafur segir ekki þurfa að vera erfitt að hirða vel um berjarunna og upp- skeran af þeim geti verið mun meiri og reglulegri en af ávaxtatrjám. Úr- valið er mikið af runnum sem bera ber í ýmsum litum og með ólíka bragðeiginleika og fátt heimilislegra en að eiga í búrinu margar krukkur af heimagerðri sultu til að nota með steikinni, á brauðsneiðina eða út í grautinn. „Berjarunnana verður þó að hafa í skjóli fyrir vindum og líka vissara að hafa gætur á að smáfuglarnir gerist ekki of nærgöngulir. Sumir fuglarnir hafa áttað sig á að á berjarunnunum er oft að finna æti og ef fólk hefur úti fuglafóður yfir veturinn og laðar fuglana til sín getur það gerst næsta haust að berin láti ekki sjá sig, því fuglarnir átu brumið á runnunum.“ Gott er að fylgjast einnig vel með ástandi plöntunnar m.t.t. hvort skordýr séu byrjuð að narta í lauf- blöðin. Ef að lítil göt sjást í blöð- unum á rifs-, sólberja og stikilsberjarunnum, þá er lítil lirfa, rifsþéla, farin að narta í en hún getur verið nærri ósýnileg berum augum í byrjun. „Þá verður að úða með varn- arlyfi, til dæmis Permasect og fylgj- ast með hvort fleiri göt birtast, og úða aftur ef þörf krefur. Það er mik- ilvægt að runnarnir haldi blöðunum svo að nóg af blómum myndist aftur fyrir næsta ár.“ Smáfuglarnir leita í brumið

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.