Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 33

Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ | 33 ALLT UM RÆKTUN VÆNT ANLEG Í MAÍ A llir vita að hundar eiga heima inni í húsum hjá fjölskyldunni. Sú tíð er löngu liðin að hundar séu geymdir í kofa úti í garði, og kemur vitaskuld alls ekki til greina í köldu landi eins og Íslandi. Þvert á móti á voffi að fá að kúra uppi í sófa í makindum og hlýju, og helst af öllu að fá að sofa milli fóta uppi í rúmi á nóttunni. En að þessu sögðu þá er heldur ekki leiðinlegt að eiga fallegan hundakofa úti í garði. Kofinn getur einfaldlega verið skemmtilegur skrautmunur í garðinum eða kannski að seppa finnist notalegt að fá sér þar blund í öryggi og næði á sól- ríkum sumardögum. Að smíða hundakofa þarf ekki að vera erfitt verkefni. Það þarf bara rétta efnivið- inn, góða málningu, réttu tækin og svo teikningar og skapa má mjög notalegar vist- arverur fyrir fjórfætta vininn. Sumir nota hundakofann til að fá útrás fyrir sköp- unargleðina og gera kofa sem minna helst á nútímalistaverk. Öðrum þykir fyndið ef hundakof- inn er eins og smækkuð útgáfa af húsi fjölskyld- unnar. Þeir sem eru að leita að skemmtilegum hundakofa ættu að kíkja á slóðina Lapetitemaison.com. Þar er á ferðinni smíðaverkstæði sem sérhæfir sig í litlum leikjahúsum fyrir börnin og listilega smíðuðum hundakofum. Eins og myndirnar sýna er t.d. hægt að fá hunda- kofa í svissneskum stíl sem fer sérlega vel með sviss- neskum hundategundum á borð við Bernese- fjallahundinn. Eða kannski langar litla Chi- huahua-hundinn á heimilinu í lítið óðal í mexíkóskum stíl, til að minna hann á upprunalandið. Svo er vitaskuld til úrval húsa sem eru ýmist sæt og rómantísk eða rúmgóð og stór- glæsileg hunda-setur. Nostrað er við húsin bæði að innan og utan og t.d. gert ráð fyrir lýsingu í kofanum. Á heimasíðu sinni tilgreina La Petite Maison að húsin séu sér- smíðuð á staðnum, eða send í heilu lagi. Einnig sé hægt að fá teikningar ef fólk vill smíða hundakofann sjálft. ai@mbl.is Hefðarkofi Klassískur stíll fer beagle vel. Siesta Mexíkóski stíllinn fyrir chihuahua. Lítið óðal fyrir besta vininn Smíði Nostrað er við hvert minnsta smáatriði frá gluggakvistum til þakplata. Kátur Bernaise hundur við hús í svissneskum stíl.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.