Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 34
34 | MORGUNBLAÐIÐ FYLGIFISK Á GRILLIÐ Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is Pantaðu tilbúna grillpakka Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur) Lágmarkspöntun er fyrir 4 - grillpakka þarf að panta fyrirfram Pakki 1 - spjót Kryddlegið fiskispjót Fyllt kartafla Grískt salat Grillsósa 1.495 kr/manninn Pakki 2 - steik Kryddlegin laxasteik Kartöflusalat Grænmeti á grillið Grillsósa 1.695 kr/manninn É g eignaðist kolagrill fljótlega eftir að fólk fór að grilla mat hér á Íslandi. Féll fyrir þess- ari tegund matreiðslu. Mér finnst matur grillaður á kolagrilli sérstaklega bragðgóður,“ segir Steindór Jón Pétursson verktaki. „Ég grilla tvisvar til þrisvar í viku að jafnaði heima og næstum alla daga vikunnar í sveitinni. Við hjónin eignuðumst hjólhýsi fyrir um átta árum. Það koma margir að heim- sækja okkur í hjólhýsið okkar, sem við erum yfirleitt með á sumrin á Hellishólum í Fljótshlíð. Oftast býð- ur maður gestunum grillmat. Já, það sannarlega grillað í sveitinni. Vinsælasti grilllmaturinn er lambakjöt og hamborgarar. Þegar börn og barnabörn koma í heimsókn vilja krakkarnir helst hamborgara og pulsur. Fólk kemur gjarnan til að nýta golfvöllinn á Hellishólum og lít- ur svo inn hjá okkur í leiðinni – þá er grillað og drukkið kaffi – og kannski sitthvað fleira á eftir. Hjólhýsið keyptum við af því að fjölskylda konunnar var komin kaf í hjólhýsalífsstílinn og konan mín, Að- albjörg Pálsdóttir, vildi vera með sínum. Hjólhýsið okkar er 6 metra langt. Við vorum fyrst með stærstu gerðina, 7 metra. En svo endurnýj- uðum við og keyptum örlítið minna. Það dugar okkur alveg ágætlega. Þetta er þrælskemmtilegt fjöl- skylduhobbí, bæði að vera á ferða- lögum á sumrin og ekki síður að vera bara í sveitinni í hjólhýsinu, njóta náttúrunnar – og grilla,“ bætir Steindór við. Grillar þú líka þegar þið farið í ferðalög með hjólhýsið? „Já, auðvitað. Við tökum grillið með og tökum það svo út þegar við stoppum. Við höfum þá með okkur grillmat, kaupum lambakjöt eða svínakjöt sem búið er að krydda. Og stundum kryddar konan kjötið sjálf, það er ekki verra. Hún er með potta- galdur og kryddolíur og lætur þá kjötið liggja í slíkri blöndu og mar- inerast.“ Hvað með grænmeti – grillar þú það? „Það geri ég stundum. Yfirleitt er konan þá búin að undirbúa græn- metið og ég grilla það. Hún borðar grænmetið, ég er lítið fyrir slíkt.“ Grillar þú fisk? „Það kemur fyrir. Ég veiddi hér áður fyrr og þá setti maður fiskinn á grillið. Ég setti hann í álpappír og kryddaði, það var mjög gott. Ef maður nær í góðan fisk þá setur maður hann í álpappír, kryddar og bætir við smjöri. Það er fínn matur.“ Hvernig grill ertu með núna? „Ég keypti mér nýtt gasgrill síð- astliðið haust, það er stórt og veg- legt. Þannig grill þarf maður að hafa heima við. Ég er með það úti á svöl- um og grilla í hvaða veðri sem er. Ég er með þægilegar svalir til þess arna. Við grillum svona mikið heima, tvisvar til þrisvar í viku, af því að okkur finnst þetta svo fínn matur. Fjölskyldunni finnst grillmatur líka það góður að þetta er þessi virði. Grillaður humar í uppáhaldi Átt þú einhverja uppáhalds- uppskrift? „Það allra besta er að grilla humar í hvítlauk. Það er sérlega fínt og vin- sælasti maturinn. En þetta er ekki ódýr matur þannig að hann er ekki á boðstólum nema svona einu sinni í mánuði.“ Ertu alveg hættur að grilla með kolum? „Nei, það er ég ekki. Ég nota kolagrill ef aðstæður eru þannig. Ég hef líka grillað með því að grafa holu í jörðina og setja læri, vafið í álpappír, ofan í. Kolin setur maður til hliðar og ofan á kjötið. En það er langt síðan ég hef útbúið slíka hol- usteik.“ Hvað hafið þið með grillkjötinu? „Við höfum yfirleitt kartöflur og töluvert af grænmeti því konan er svo hrifin af því. Mjög oft grilla ég kartöflurnar. Kaupi stórar kartöflur, sker þær niður, krydda þær og set þær svo í álpappír á grillið.“ „Finnst þér skemmtilegra að grilla í sveitinni en á svölunum heima? „Já, ég get ekki neitað því. Mér finnst eiginlega skylda að grilla í sveitinni. Ýmislegt hefur komið fyrir í grillsögu minni. Ég hef stundum gleymt mér og komið að brunarúst- um á grillinu. Ég hef þó aldrei brennt mig – en stundum hefur komið bál upp af kolum. Eða þá að kviknað hefur í matnum og hann orðið sem sagt ónýtur.“ Hefur þú kennt krökkunum þín- um að grilla? „Þeim þykir nú bara afskaplega gott að ég sjái um að grilla. Krökk- unum þykir gott að koma í grillmat- inn og líklega á þetta grillstand sinn þátt í að sameina enn frekar fjöl- skylduna. Ekki síst finnst þeim gott að koma í hjólhýsið í sveitina. Persónulega finnst mér heppilegt að vera með hjólhýsið á föstum stað og ferðast bara mátulega mikið með það. Við höfum farið í lengri ferðir, svo sem á ættarmót og á ýmis mót, til dæmis til Siglufjarðar, en mest er maður með hjólhýsið á Hellishólum. Þar eru um tuttugu hjólhýsi sem segja má að séu í slagtogi og sel- skap, þ.e. eigendurnir. Aðstaðan þarna er góð og hrein paradís fyrir golfáhugamenn. Þarna er tveggja mínútna tölt upp á golfvöll sem er 18 holu völlur. Þarna hafa verið haldið Íslandsmót í golfi fyrir 35 ára og eldri og reyndar fyrir unglinga líka. Staðurinn er vinsæll, ekki síst vegna vallarins, golfið er orðið mjög vin- sælt hjá fólki. Á Hellishólum er fyrirmyndarað- staða, salerni, baðaðstaða og heitir pottar. Þar er líka góð aðstaða fyrir börn, leiktæki og fleira. Hjólhýsa- stílnum fylgir mikill félagsskapur. Grillslæðan liggur stundum yfir hjólhýsahverfinu Grilla margir í hjólhýsunum? „Já, það fylgir. Ég held að al- mennt séu grill notuð sérstaklega mikið þegar farið er í sveitina. Það liggur stundum grillslæðan yfir Hellishólunum þegar hjólhýsabúar eru að grilla matinn sinn. Þó aðeins séu um tuttugu hjólhýsi í „slagtog- inu“ þá koma miklu fleiri hjólhýsi á svæðið, það eru svona um hundrað hjólhýsi á Hellishólum yfir sum- artímann. Maður hittir því margt fólk og oft glatt á hjalla.“ Ferðist þið mikið með hjólhýsið? „Maður fer svona svona tvær ferð- ir á sumri og þá er þetta ekkert mál. Fólk þarf þó að vera á þokkalegum bíl til að geta dregið hjólhýsið. Við erum á jeppa sem hefur reynst vel til þessara nota. Áður en hjólhýsið kom til sögunnar fórum við með tjald með okkur. Það var á mesta ko- lagrillstímanum. Stundum leigðum við okkur tjaldvagn þegar við fórum í fjölskylduferðir með stórfjölskyld- unni. Fjölskylda konunnar er mjög ferðaglöð. Sjálfur er ég ekki alinn upp við mikil ferðalög. Frekar fór mín upp- runafjölskylda í sumarbústaði. Kannski má kalla það lífsstíl hvort sem maður dvelur í hjólhýsi eða sumarbústað.“ Farið þið út úr bænum hverja helgi sumarsins? „Já, það má segja það. Við förum líka talsvert í ferðalög út frá Hellis- hólum, í bíltúra upp í Land- mannalaugar, Þórsmörk og jafnvel út í Vestmannaeyjar. Það er svo stutt í marga æðislega staði þegar komið er þarna upp eftir í nágrenni Hvolsvallar. Ég er mikill ferða- áhugamaður og duglegur að flakka þó ég segi sjálfur frá. Í kringum eldgosin sem urðu í Eyjafjallajökli var mikið ferðast. Við vorum þar í kring næstum um hverja helgi og frá Hellishólum sást eldgosið mjög vel. Maður var í stúkusæti, ef svo má segja. Þetta var meiriháttar tími. Auðvitað eru ekki allir sammála þessu, en fyrir mér var þetta mjög eftirminnilegur tími.“ Hvernig heldur þú svo að viðri til þess að grilla í sumar? „Það viðrar alltaf vel til að grilla, maður finnur sér skjól, það er alltaf hægt að grilla, sama hvernig veðrið er.“ gudrunsg@gmail.com Grillar flesta daga sumarsins Þegar munúðarfulla lykt af grillmat lagði yfir borg og bæ í árdaga þess mat- artilbúnaðar var Steindór Jón Pétursson einn af þeim sem ganga mátti að vísum við kolagrillið sitt. Og enn stendur hann vakt- ina, grillar oft í viku allan ársins hring. Morgunblaðið/Eggert Grillmeistarinn „Ég keypti mér nýtt gasgrill síðastliðið haust, það er stórt og veglegt. Þannig grill þarf maður að hafa heima við. Ég er með það úti á svölum og grilla í hvaða veðri sem er. Við grillum svona mikið heima, tvisvar til þrisvar í viku, af því að okkur finnst þetta svo fínn matur.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.