Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 37

Morgunblaðið - 23.05.2014, Side 37
Á mörgum heimilum er það nánast heilög stund þegar kveikt er upp í grillinu. Til að gera þessar hálf-helgu stundir við grillið enn hátíðlegri er ekki úr vegi að eiga rétta klæðnaðinn fyrir tilefnið. Skemmtileg svunta getur gert mikið fyrir grillveisluna og aukið á upp- lifun bæði gesta og grillmeistara. Hvað á þá betur við sem svuntu- mótíf en búningar ofurhetja úr vinsælum kvikmyndum og þáttum. Nördabúðin á netinu, ThinkGeek.com, býður upp á úrval slíkra svuntna og ætti þar að vera hægt að finna réttu svuntuna fyrir flesta grill-nörda. Fyrst má nefna Darth Va- der svuntuna, svarta og drungalega, innblásna af ógleymanlegum einkennisbún- ingi Loga geimgengils. Með þessa svuntu reyrða um mittið er næsta víst að mátturinn verður með grillaranum. Svo má gera endalausa brandara um að kjötið sé komið til „dökku hlið- arinnar“ ef gleymist að snúa steikunum nógu oft. Batman er í uppáhaldi hjá mörgum og fer vel á svuntu. ThinkGeek er með eina slíka, innblásna af klassíska Bat- man-búningnum úr sjón- varpsþáttunum. Dökkblá sundskýla yfir gráum sam- festingi og gult tækjabeltið, – allt eins og það á að vera. Batman-merkið vitaskuld á brjóstinu. Þetta er svunta sem fer mjög vel með góðu vopnabúri af grillspöðum og töng- um enda er Batman alltaf tilbúinn með flottar græjur til að leysa allan vanda. Járnmaðurinn, Iron Man, höfðar kannski sterkast til yngri kynslóðar grillara. Það er fátt sem bítur á millj- arðamæringinn Tony Stark þegar hann er kominn í Iron Man-brynjuna sína og á sama hátt er ekkert sem getur sullast á grillarann og sett blett í buxurnar eða skyrtuna þegar svuntan a tarna er á sínum stað. Með þessari svuntu er ekki galið að hafa einhver hátækni- grilláhöld sem aukahluti, eins og til dæmis stafrænan og háþróaðan hita- mæli til að vakta kjarnhitann í grill- steikinni. Vinsældir Doctor Who eru smám saman að aukast hér á landi og ef- laust margir sem hefðu gaman af að eignast svuntu innblásna af breska tímaflakkaranum. Hér er það Tardis-farartækið sem prýð- ir framhlið svuntunnar. Hver veit svo nema að grillsteikurnar verði svo góðar að veislugestir geti alltaf ferðast til baka í tíma í huga sínum, með því að rifja upp minningarnar af sérlega vel heppnaðri grillveislu. Það vill vera ríkt í grillurum, sérstaklega karl-grillurum, að vilja hafa sem flest tól og tæki við höndina. Þar kemur þessi „tactical“ svunta sterklega til skoðunar. Svuntan er inn- blásin af klæðnaði hermanna og sérsveita, þar sem finna má lykkjur og vasa fyrir alla möguleg hluti. Á þessa svuntu má hengja grillspaða og tang- ir eins og ekkert sé eða setja kryddublöndur í vasana. ai@mbl.is Svuntur sem gefa rétta tóninn MORGUNBLAÐIÐ | 37 Það er komið sumar! Fallegar, gróskumiklar plöntur Tré, sumarblóm, skrautrunnar, berjarunnar, limgerðisplöntur, rósir, fjölærar plöntur, grænmetisplöntur og kryddjurtir. Mikið úrval af hengiplöntum. Fagleg ráðgjöf um val á plöntum! Annað nauðsynlegt í garðinn Hengikörfur, ker, pottar, mold, áburður, smáverkfæri o.fl. A R G U S 06 -0 30 6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.