Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 38
38 | MORGUNBLAÐIÐ G arðurinn að Vogalandi 16 í Reykjavík er garð- yrkjuunnendum vel kunnur og hefur orðið erlendum garðyrkjumönnum að umfjöllunar- efni. Steinunn Ólafsdóttir hjúkr- unarfræðingur á þennan garð, sem er í bókstaflegri merkingu þakinn blómum, runnum og trjám. Margar tegundirnar eru mjög sjaldgæfar í íslenskum görðum. „Ég var lengi vel ein með börnin mín á sumrin meðan maðurinn minn, Þorleifur Einarssonar jarðfræð- ingur, var í sumarstörfum úti á landi. Ég fór þá að fikta í garðinum að Langholtsvegi 138, þar sem við bjuggum í húsi sem tengdaforeldrar mínir byggðu og við keyptum síðar að tengdaföður mínum látnum. Smátt og smátt fór mér að finnast garðyrkjan æ skemmtilegri,“ sagði Steinunn Ólafsdóttir þegar hún var spurð um ástæður þess að henni varð garðyrkjan svona hugleikin. En var hún alin upp við garðyrkjustörf? Blómareitur á Bíldudal „Faðir minn, Ólafur Páll Jónsson læknir, hafði gaman af garðyrkju. Hann hafði verið í Danmörku, var læknir í Skotsborg. Seinna varð hann héraðslæknir á Bíldudal og fyrsti maðurinn sem ræktaði jarð- arber þar. Á Bíldudal lét pabbi okk- ur systurnar hafa lítinn reit í garð- inum og gaf okkur svo sumarblóm. Við áttum að sinna um þetta og feng- um áhuga á garðrækt. Ég man eftir einum garði á Bíldudal þar sem var mikið af blómum og beðin voru skeytt með kúskeljum. Konan sem átti garðinn var svo mikið úti á kvöldin að dunda í garðinum. En aftur að garðinum mínum á Langholtsveginum. Þorleifur mað- urinn minn tók að sér starf fyrir skógræktina, í staðinn komu menn þaðan með heilmikið af trjám til okk- ar, þar á meðal lifandis býsn af ösp- um. Ég setti þetta allt niður og þetta óx og óx. Loks tók ég það til bragðs, þegar Þorleifur var ekki heima, að höggva niður annað hvert tré. Hann tók ekkert eftir því nema ég segði honum það. Garðyrkjan varð smátt og smátt ástríða hjá mér og loks spurði ég Þorleif: „Veistu hvort hér er starf- andi eitthvert garðyrkjufélag?“ „Ég skal nú bara kynna mér það,“ sagði hann. Það kom í ljós að slíkt félag var til og ég gekk í það. Á fyrsta fundinum sem ég sótti voru mest- megnis karlar. Síðar fjölgaði kon- unum, og smám saman kynntist ég fólkinu. Ég fór ekki aðeins að rækta meira, ég eignaðist marga félaga meðal fólks sem hafði sömu áhuga- mál og ég. Svo gekk ég í Dalíuklúbb- inn. Síðar var stofnaður rósaklúbbur og ég gekk líka í hann. Mér þykir öll garðyrkja skemmti- leg. Ég var 35 ára þegar við Þorleif- ur fórum til Cambridge í Englandi, þar sem hann stundaði framhalds- nám. Við bjuggum í stúdentaíbúðum og þar var enginn garður. Krakk- arnir voru strax sendir í skóla og ég var mikið ein og rásaði þá um allt að skoða garða. Hrifnust var ég af Cot- tage-görðunum, þeir eru svo nátt- úrulegir. Ég var þá ekki orðin eins hrifin af rósum og ég er nú – samt var ég nú alin upp við nokkra rósarækt. Mamma mín, Ásta Guðmundsdóttir, ræktaði innirósir og hún var svo lag- in við þessa ræktun að hún seldi sem ung stúlka stundum afskornar rósir. Fólk sá rósirnir í glugganum hjá henni, bankaði upp á og spurði hvort það mætti kaupa, kannski fyrir elsk- una sína. Þá var ekki mikið um rósa- rækt í Reykjavík. Ég man sér- staklega eftir Lawrans-rósinni hennar mömmu. Hún er rauðbleik og enn í dag finnst mér hún ein- staklega falleg. Í Bretlandi gekk ég talsvert um í skógunum. Vinur okkar, prófessor, fór með okkur í leynilegan skóg, sem hét Haylay Wood – þar var skóg- arbotninn þakinn hvítum anemón- um, bláklukkulauk og gulum prímúl- um. Þvílíkt blómahaf. Svo sneru þeir félagar einu sinni bakinu í mig, þá potaðist ég til að ná mér í einn blá- klukkulauk, eina hvíta anemónu og gula prímúlu. Þessar plöntur lifðu nú heldur betur. Ég flutti þær heim á Langholtsveginn og þar mynduðu þær fljótlega blómahaf, dreifðu sér út um allt. Ég hef gefið mörgum þessi blóm og þau hafa fylgt mér fram á þennan dag. Þetta eru mjög falleg blóm í skógarbotni. Svo kom þessi prófessor í heimsókn nokkrum árum seinna. Ég sagði við hann: „Nú skaltu koma með mér út í skóg, ég ætla að sýna þér svolítið.“ Honum fannst ég vera kominn með eins kon- ar Haylay Wood heima hér mér á Ís- landi. Hann trúði því varla að þetta væri hægt. Hann var mjög hrifinn. Fann alltaf tíma fyrir garðinn Við Þorleifur bjuggum fyrst í Þýskalandi, meðan hann tók dokt- orinn. Eftir heimkomuna þaðan fluttum við á Langholtsveginn. Síðar var Þorleifur í frjókornarann- sóknum í Noregi. Í framhaldi af því fórum við til Bretlands, þar dvöldum við tvisvar með tíu ára millibili.“ -Voruð þið Þorleifur samstiga í garðyrkjunni? „Fyrst sagði hann mér heilmikið, kynnti til dæmis fyrir mér ýmsar trjátegundir í Þýskalandi. Svo fór ég að stúdera og var á endanum komin langtum framar honum í garðyrkj- unni. Hann hjálpaði mér að sækja mold og sand og skít og grjót, en ég plantaði og réð yfir garðinum. Ég var búin að læra hjúkrun þeg- ar ég giftist Þorleifi og tók alltaf vaktir þegar ég gat. Ég fann samt alltaf stundir til að vera í garðinum. Fyrstu árin hafði ég enga aðstöðu til að gera neitt á veturna í ræktuninni, en þegar ég eignaðist svolítinn pen- ing fékk ég bróður minn til að byggja fyrir mig lítið gróðurhús. Mig var lengi búið að langa í það. Þá fór ég að sá og rækta og var öllum stundum í gróðurhúsinu. Ég fór í ýmis ferðalög til útlanda til að skoða gróður – og get ekki neitað því að ég stakk gjarnan á mig einni og einni plöntu til að fara með heim. Ég lærði mikið á þessum ferð- um og sá margt spennandi. Ég hef komið inn í ansi margar hallir, garð- ar þeirra eru oft mjög glæsilegir. Veturna notaði ég til að lesa mér til. Ég átti heilmargar garðyrkjubækur. Þeir sem eiga góðan garð verða aldr- ei einmana. Eftir að hafa búið á Langholtsveg- inum í 32 ár flutti ég upp í Efstaland. Þar átti ég bara lítinn garð, en mér tókst að koma afskaplega mörgum plöntum fyrir í honum. Ég tók með mér þær plöntur af Langholtsveg- inum sem mér þótti vænst um. Hér í Vogalandi hef ég búið í tólf ár. Fólk- ið sem býr á efri hæðinni hefur eft- irlátið mér garðinn að mestu. Ég sýndi því teikningu eins og ég vildi hafa garðinn og tók þar mið af sól- argeislunum. Ég lét svo taka allt gras, fékk stóra hrossaskítshrúgu, stóra sandhrúgu og unga stráka úr Iðnskólanum í Hafnarfirði og son minn líka til þess að hjálpa mér að flytja allar plönturnar úr garðinum í Efstalandi hingað – það var gert með góðu samþykki hins nýja eig- anda íbúarinnar, sem ætlaði að byggja sólpall yfir allan garðinn. Ég og strákarnir vorum allan veturinn að potast við að koma plöntunum fyrir. Ég tapaði að vísu nokkru af Rómantískur rósaræktandi Morgunblaðið/Þórður Stolt Steinunn Ólafsdóttir við Viburnum botnantense, runna sem er náskyldur Keisararunna og blómstra rauðbleikum og ilmandi blómum. Leitun er að garði hér í borg sem skartar öðru eins úrvali fallegra rósa. Hin rauða Hope of Humanity. Harrison’s Yellow, einnig nefnd Yellow Rose of Texas. Fáir ef einhverjir standa Steinunni Ólafsdóttur á sporði þegar kemur að rósarækt, eins og garður hennar við Vogalandið er til vitnis um. GÆÐI - ENDING - ÁNÆGJA www.weber.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.