Morgunblaðið - 23.05.2014, Qupperneq 42
42 | MORGUNBLAÐIÐ
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 30 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Þ
að er fullkomlega eðlilegt að
líta á garðyrkju og tölvuleiki
sem algjörar andstæður.
Annað felur í sér útiveru, að
róta í moldinni, vökva og reyta arfa,
og finna heita geisla sólarinnar á
hálsinum. Hitt felur í sér að grúfa
sig yfir tölvuskjáinn innandyra, með
bláan bjarmann í andlitinu og putt-
ann á músinni.
Þess vegna ætti að koma les-
endum á óvart hversu mikill fjöldi er
til af tölvuleikjum sem snúast um
garðyrkju. Sumir þeirra eru alls
ekkert slor og hafa jafnvel slegið
rækilega í gegn.
Er hægt að fá útrás fyrir garð-
yrkjuhneigðina á fartölvunni uppi í
sófa, án þess að þurfa að klæða sig í
garðvinnufötin eða hætta á að rekast
á iðandi orma ofan í moldinni. Í
tölvuleikjunum er hægt að hanna
hina fallegustu garða, vökva plönt-
urnar, slá flötina og tína ávexti.
Sim-garðyrkja
Fyrst má nefna líf-herminn The
Sims 3. Er um að ræða ákaflega
ávanabindandi og bráðskemmti-
legan leik sem virkar ekki ósvipað
því og leika með dúkkulísur. Spil-
arinn ræður lífi persónu í leiknum,
smíðar handa henni hús og inn-
réttar, lætur hana þjálfa sig í ýmsum
hæfileikum sem koma sér vel fag-
lega og persónulega, og klífa upp
metorðastigann í atvinnulífinu.
Garðurinn getur leikið stórt hlut-
verk í leiknum. Er hægt að rækta
ákaflega fjölbreyttan og metn-
aðarfullan garð og um leið gefa
tölvu-dúkkulísunni gagnlega þjálf-
un. Gefur leikurinn viðurkenningar
ef ákveðnum áföngum er náð í garð-
inum, s.s. ef tekst að rækta 19 mis-
munandi plöntutegundir, rækta 75
„fullkomna“ ávexti eða afla 650
stykkja af grænmeti og ávöxtum.
Plönturnar í leiknum eru sumar
mjög kunnuglegar, eins og ban-
anatré, gulrætur, jarðarberjarunnar
og ginseng-rætur. Aðrar eru meira
gerðar til að gera leikinn skondnari
eins og steikarplantan og tréð sem á
vex „forboðni ávöxturinn“.
Uppskeruna er svo hægt að elda
til að fígúrurnar í leiknum svelti
ekki, og sumar jurtirnar hjálpa þeim
að eignast vini. Með kanilplöntu
verður t.d. auðveldara að ganga í
augun á öðrum fígúrum í leiknum og
með því að borða mikið af salati létt-
ist söguhetjan.
Facebook-bændurnir
Annar vinsæll garðyrkjuleikur er
FarmVille. Reyndar snýst leikurinn,
eins og nafnið gefur til kynna, um að
reka lítið bóndabýli, en plönturækt
er stór hluti af leiknum. Leikurinn
breiddist hratt út á samfélags-
vefnum Facebook enda byggist
hann að töluverðu leyti á því að
skiptast á uppskeru við nágrannana
á „næstu bæjum“. Alls konar
plöntur má finna í leiknum, rækta
tré og matjurtir, jafnvel skrautjurt-
ir. Skreyta má garðinn, eða plant-
ekruna öllu heldur, með garðálfum,
fánum, girðingu og ýmsu fleiru.
FarmVille hefur dalað töluvert í
vinsældum síðan hann tröllreið Fa-
cebook á sínum tíma. Þegar best lét
var FarmVille langvinsælasti Fa-
cebook leikurinn, en hann var kom-
inn í 4. sætið vorið 2012 og var í jan-
úar á þessu ári í 44. sæti.
Garðhermirinn alræmdi
Í grein af þessu tagi verður síðan
að segja frá leiknum Garden Simula-
tor. Þessi garðhermir, frá árinu
2012, er ekki svipaður og flugherm-
arnir sem svo margir flugdellumenn
hafa gaman af að spila á PC tölvunni
sinni nema hvað hér er leikmaðurinn
að dunda sér við að rækta fallegan
garð.
Leikurinn er þróaður af fyrirtæk-
inu Extra Play og hefur ekki fengið
neitt sérstaklega góða dóma. Leik-
maðurinn hefur 40 verkfæri og garð-
tæki til afnota og ógrynni blóma og
trjáa. Hann getur þurft að glíma við
moldvörpur og ágenga garðsnigla og
hann þarf að huga að veðurskil-
yrðum ef ske kynni að plönturnar fái
ekki nægan vökva og birtu. Leik-
urinn þykir hálfgerð grínvara því
spilunin er ekki mjög notendavæn
og grafíkin ekkert til að hrópa húrra
yfir. Hafa ófáir tölvuleikjanördar
sett myndskeið á YouTube þar sem
þeir skemmta sér konunglega við að
eiga í hinu mesta basli með að njóta
leiksins.
ai@mbl.is
Tölvuleikir garðyrkjumannsins
Þeir sem vilja hafa græna
fingur en nenna ekki út úr
húsi geta fengið útrás fyrir
ræktunarhvötina í tölvunni
Sældarlíf Lífs-hermirinn The Sims 3 leyfir spilaranum meðal annars að rækta metnaðarfullan garð með alls kyns plöntum.
Undarlegur Garðyrkjuhermirinn Garden Simulator þykir hálfgert grín í
leikjaheiminum. Skoða má skondin myndskeið úr leiknum á Youtube.
Ávanabindandi Fésbókarleikurinn Farmville sló í gegn á sínum tíma en hefur dalað í vinsældum.