Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 23.05.2014, Blaðsíða 45
M argir eru hrifnir af reykj- arbragðinu ljúfa sem fæst þegar matur er grill- aður á kolum. Reykurinn getur þó farið í suma, ekki síst ef hann berst í augun ásamt því að hann vill setjast í fötin. Nú fæst hins vegar ný lína kolagrilla á mark- aðnum sem gera sælkerum kleift að grilla á kolum án þess að fá á sig neinn reyk að ráði. Axel Ólafsson, deildarstjóri hjá Fastus ehf., segir frá þessari áhugaverðu nýjung. Loftflæði stýrir hitanum „Það eru í reynd nokkur atriði sem að- greina Lotus-grillin frá öðrum á markaðnum,“ segir Axel, spurður út í þessa nýjung og kosti hennar. „Það er lítill batterídrifinn rafmótor í botni grillsins sem knýr viftu sem aftur býr til loftflæði sem flýtir fyrir hitun kolanna. Kolin eru sett í vír- körfu sem fer ofan í grillið, þá er kveikt undir því og svo kviknar á þessum litla mótor. Þannig fæst þessi blástur sem þú stýrir upp í gegnum kolin þannig að hægt er að stýra hitanum á kolunum í grillinu,“ útskýrir Axel. „Fyrir bragðið tekur skemmri tíma að kveikja upp í kol- unum og grillið er klárt til notkunar á fimm mínútum eða svo. Loftflæðið tryggir mjög jafna og góða hitadreif- ingu. Hröð grillun og auðveld hita- stýring eru því meðal helstu kosta Lotus-grillsins.“ Auðvelt í grillun sem og í þrifum Axel tínir þó fleira til. Þar má nefna að ytra byrði grillsins hitnar sama og ekkert. Aðalskálin utan um grillið er aðskilin frá kolakörf- unni að innan og því nær grillið ekki að hitna að utan. Það er því hægastur vandi að tylla grillinu upp á borð úti í garði á meðan grill- að er. Ef einhverra hluta vegna þarf að færa grillið úr stað eftir að kolin hafa náð hita, eða jafnvel eftir að eldun hefur hafist, er það vanda- laust því ytri skálin verður ekki heit og því er hægt að halda á grill- inu og færa það. „Að lokinni grillun er auðvelt að taka allt grillið í sundur og þvo það. Minna grillið – skálin grindin og hvaðeina – kemst meira að segja í uppþvottavélina, ef út í það er farið; það þarf bara að taka það innan út ytra byrðinu og raða í vélina.“ Axel bætir því við að grillið sé prýðilega heppilegt í ferðina, bæði þar sem það er létt, kemur í tösku og loks að grillinu má koma fyrir víða þar sem ekki þarf að hafa áhyggjur af hita frá ytri skál grillsins. „Það er því ýmislegt jákvætt í þessu fyrir kappsama grillara.“ Kol, áhöld og allt sem þarf Hjá Fastus má ennfremur fá við- arkol og með þeim er kolareykur nánast úr sögunni, að sögn Axels. „Það er eftir sem áður hægt að nota öll kol í grillið, svo því sé haldið til haga, en viðarkolin henta sérlega vel því það rýkur nánast ekkert úr þeim, sem er ótvíræður kostur.“ Minna Lotus-grillið er 32 senti- metrar í þvermál og kostar 34.218 krónur, það stærra er 45 sentimetr- ar í þvermál og kostar 50.825, og auk þeirra er hægt að fá pitsustein og ýmsa fylgihluti og áhöld fyrir grillin. jonagnar@mbl.is Meiri hiti, minni reykur Funheitt kolagrill sem reykir ekki rýkur mikið úr og helst nógu kalt ytra til að standa á borði? Morgunblaðið/Þórður Nýjung Lotus kolagrillin fela í sér marga þægilega kostur fyrir grillara, eins og Axel Ólafsson hjá Fastus segir frá. Kalt ytra byrði og reykleysi eru þar á meðal. Þægilegt Með grillunum má fá viðarkol og með er reykurinn úr sögunni. MORGUNBLAÐIÐ | 45 Vönduð vinnubrögð, áratuga reynsla og umfram allt hamingjusamir viðskiptavinir ÓÐALSTORF Ertu orðinn þreyttur á kalblettum, mosanum, túnfíflunum, skriðsóleyjum og öðrum vágestum á flötinni þinni? Er byggt á 5 sérvöldum grasfræjum sem gefur þéttleika sem er nauðsynlegur til að halda illgresinu í skefjum Áferðin á Óðalstorfinu er engu lík og endingin mun meiri en gengur og gerist. Óðalstorf gerir þig stoltan af því að eiga garð! GRASVANDAMÁL? Harðgerðar plöntur í úrvali A R G H ! Ölfusi, 816 Ölfus Símar 482 1718 & 846 9776 www.kjarr.is // kjarr@islandia.is Langi þig í lagleg trémeð laufi eða barri,reyndu hvort ei réttast séað renna við í Kjarri. Grilltaskan Handhæg taska fylgir með grillinu sem hentar vel í ferðalagið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.