Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 4

Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Við erum að byrja að skoða þetta mál en það gerist þó ekkert af viti fyrr en búið er að tryggja öryggi á vettvangi,“ segir Lúðvík Eiðsson rannsóknarlögreglumaður. Tækni- deild lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu hóf í gær rannsókn á upp- tökum eldsvoðans sem varð í Skeifunni 11 í Reykjavík síðastliðið sunnudagskvöld. Þegar Morgunblaðið náði tali af Lúðvík var hann nýkominn af vett- vangi. Sagði hann að fjarlægja þyrfti bæði þak og bita úr rústunum áður en rannsakendur gætu hafið störf af fullum krafti. „Á þessari stundu vitum við í raun ekki ná- kvæmlega hvað gerðist. Við einbeit- um okkur þó enn að því rými sem tilheyrir þvottahúsinu Fönn,“ segir Lúðvík. Aðspurður sagði hann að um- fangsmikið og flókið verkefni biði nú rannsóknarteymisins. „Það varð mikill bruni þarna og því verður erf- itt að eiga við þetta,“ segir Lúðvík en rannsóknin mun að líkindum standa út næstu viku. Björgunarsveitir eru ódýrari Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Skeifuna á sunnudagskvöld til að fylgjast með aðgerðum slökkviliðs- manna. Var mannfjöldinn slíkur að ákveðið var að óska eftir aðstoð björgunarsveita til að sinna lokun- um og gæslu á svæðinu. Snorri Magnússon, formaður Landssam- bands lögreglumanna, segir marga lögreglumenn ósátta við þessa ákvörðun. Eðlilegra hefði verið að kalla út þá sem voru á frívakt í stað þess að fá björgunarsveitir, sem hafa engar valdbeitingarheimildir, til verksins. „Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins setur út allsherjarútkall á sitt lið en lögreglumenn voru hins vegar ekki kallaðir út í þeim mæli sem hefði verið hægt. Við það eru menn mjög ósáttir,“ segir Snorri. Spurður hvort hann viti hver ástæðan sé kveður Snorri nei við. „Miðað við umræðu undanfarinna ára blasir við að þetta snúist um krónur og aura frekar en eitthvað annað. Það kost- ar jú sitt að bæta við lögreglumönn- um en það kostar embættið hins vegar ekkert að fá björgunarsveit- irnar.“ Vanir svona verkefnum Jónas Guðmundsson hjá Lands- björg segir að um sextíu björgunar- sveitarmenn hafi verið að störfum í Skeifunni vegna brunans. „Við kölluðum í fyrstu út fleiri þar sem þörfin fyrir mannskap var ekki alveg ljós en sendum þá heim aftur sem ekki þurfti. Til miðnættis voru um sextíu að störfum frá okk- ur,“ segir Jónas og bendir á að sett- ar hafi verið upp svokallaðar ytri og innri lokanir í kringum vettvanginn. Sáu björgunarsveitir um þá síðar- nefndu en lögreglumenn stóðu hins vegar vaktina við ytri lokun og stjórnuðu m.a. umferð ökutækja. „Við stóðum bara við lögreglu- borðana og gættum þess að fólk labbaði ekki inn fyrir. Okkar fólk var ekki á þeim stöðum þar sem beina þurfti frá umferð.“ Við svona verkefni segir Jónas það ekki koma að sök þótt björgunarsveitarmenn hafi engar valdbeitingarheimildir. „Yfirleitt eru aldrei meira en 200 til 300 metrar í næsta lögreglubíl og erum við undir þeirra stjórn. Ef ein- hver sýnir órólega hegðun þá bara köllum við til lögreglu enda komum við ekkert nálægt svoleiðis málum.“ Aðspurður segir Jónas verkefni björgunarsveita í Skeifubrunanum keimlík þeim sem þeir sinna á fjöl- mennum viðburðum á borð við menningarnótt eða fótboltaleiki. „Við stöndum bara og pössum að fólk fari ekki inn fyrir ákveðin mörk. Í flestum tilfellum virðir al- menningur það,“ segir hann. Rannsókn hafin á eldsupptökum  Fyrsta mál á dagskrá er að tryggja öryggi á vettvangi  Krefjandi rannsókn fyrir höndum  Lög- reglumenn á frívakt ósáttir við að hafa ekki verið kallaðir út  Björgunarsveitir sáu um innri lokun „Nú vinnum við bara að því að koma okkur aftur af stað. Skrif- stofan okkar á annarri hæð lítur bara nokkuð vel út og það er í raun ótrúlegt,“ segir Hjördís Guðmundsdóttir hjá Fönn. Sömu sögu er hins vegar ekki að segja um vinnslurými fyr- irtækisins. „Það húsnæði sem snýr að bílaleigunni [Bílaleigu Akureyrar í Skeifunni] er ónýtt en sjálft Fannarhúsið stendur þó enn,“ segir Hjördís. Aðspurð segir hún öll tæki og tól fyrir- tækisins sem geymd voru í vinnslurýminu ónýt. Sömu sögu er að segja um þvott í eigu fyr- irtækja. Þvottur fyrir ein- staklinga er geymdur annars staðar í rýminu og slapp hann að hluta til frá brunanum. Vinnslurýmið rústir einar ÞVOTTAHÚSIÐ FÖNN Morgunblaðið/Styrmir Kári Sót Búast má við því að rannsókn lögreglu taki tíma. Morgunblaðið/Styrmir Kári Eyðilegging Tveir lögreglumenn úr tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu voru á vettvangi í gær. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vaxandi eftirspurn er eftir vönduðu atvinnuhúsnæði miðsvæðis í Reykja- vík og verður að óbreyttu senn skort- ur á leigurýmum. Leiguverð er að hækka og styttist í að uppbygging nýs húsnæðis á góðum stöðum fari að verða arð- bær. Á þennan veg lýsir Garðar Hannes Frið- jónsson, forstjóri Eikar fasteigna- félags, stöðunni á fasteignamark- aðnum. Hann segir lágt vaxtastig ýta undir þessa þróun. Tilefnið er að Eik undirbýr nú breytingar á Suðurlandsbraut 8, á eftirsóttum stað á höfuðborgarsvæð- inu með útsýni yfir sundin og Esjuna. Um er að ræða áberandi atvinnu- húsnæði þar sem Fálkinn var með verslun til áratuga. Merki Fálkans ofan á húsinu var í áraraðir eitt helsta kennileiti Suðurlandsbrautar en hef- ur nú verið fjarlægt. Eins og sjá á má myndinni er húsnæðið þriggja hæða og með stórum gluggum. Ýmis rekst- ur er í húsinu. Garðar Hannes segir heimilt að hafa húsið jafnhátt og Suðurlands- braut 6, en það er sjö hæða skrif- stofuhúsnæði með minni lofthæð sem nýverið var endurbyggt. Skammt frá, á Suðurlandsbraut 12, var samskonar byggingu líka nýverið breytt mikið en þar er nú Reykjavík Lights Hotel með 105 herbergjum. Suðurlands- braut 6 er á myndinni hér fyrir ofan. Garðar Hannes segir hugmyndina þá að bjóða upp á vandað skrifstofu- húsnæði á Suðurlandsbraut 8 með aukinni lofthæð. Kostnaður við breyt- ingarnar liggur ekki fyrir. Gert ráð fyrir fleiri hæðum „Áformin snúast um að byggja of- an á húsnæðið. Það er heimilt sam- kvæmt deiliskipulagi að stækka húsið og úbúa þar mjög glæsilegt skrif- stofurými. Tímasetningin hefur ekki verið ákveðin en hugmyndir eru um að hefja framkvæmdir á næsta ári. Húsið býður upp á gríðarleg tæki- færi. Það var upprunalega teiknað miklu hærra en það er nú,“ segir Garðar Hannes sem svarar því að- spurður til að Eik hafi engin áform um að breyta húsnæðinu þannig að það henti undir hótelrekstur. Þá hafi engin ákvörðun verið tekin um að byggja ofan á millibyggingu sem tengir Suðurlandsbraut 6 og 8. „Leiguverð á atvinnuhúsnæði er farið að hækka á ákveðnum stöðum. Það er augljóslega farið að hækka í 101 Reykjavík. Þar eru nánast öll rými í útleigu sem til eru. Töluvert af skrifstofurými þar hef- ur verið breytt undir hótelrekstur. Þetta er rétt að byrja að smita út frá sér og er eftir bókinni. Miðsvæðið byrjar að hækka og síðan færist þetta smám saman í ytri hverfin,“ segir Garðar Hannes. Atvinnuhúsnæði orðið arðbærara  Forstjóri Eikar segir stutt í að arðbært verði að byggja nýtt atvinnuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík  Eik undirbýr framkvæmdir á Suðurlandsbraut  Gömlu húsi breytt í 5-6 hæða skrifstofuhúsnæði Morgunblaðið/Eggert Fram kemur í Ágripi af sögu Fálkans, afmælisriti sem gefið var út í tilefni af 100 ára af- mæli fyrirtækisins 2004, að framkvæmdir við Suðurlands- braut 8 hafi hafist á 7. ára- tugnum. Á árunum 1968-1970 hafi Fálkinn flutt alla starf- semina þangað. Vöxtur véla- deildar hafi kallað á aukið rými. Bygging frá 7. áratugnum HÚS FÁLKANS Garðar Hannes Friðjónsson Áform Suðurlandsbraut 8 er lengst til vinstri á myndinni. Byggt verður ofan á húsið og það stækkað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.