Morgunblaðið - 09.07.2014, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 09.07.2014, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 VERÐ FRÁ EINUNGIS 2.190.000KR. - GERÐU VERÐSAMANBURÐ . Mazda2 er sparneytinn, ótrúlega lipur og hagkvæmur í rekstri. Hann er búinn öflugri 1,3 lítra bensínvél sem þó eyðir einungis frá 4,3 l/100 km og fær frítt í stæði. Mazda2 er áreiðanlegur, öruggur, vel búinn og frábær í endursölu. Taktu snúning á Mazda2, gerðu góð kaup og lækkaðu rekstrarkostnaðinn. MAZDA. DEFY CONVENTION. Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga frá kl. 9-17. Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 I mazda.is zo om - z oo m lipur og MAZDA2 Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu. sparneytinn * Mazda2 eyðir 4,3 l/100 km í langkeyrslu og fær frítt í stæði í miðborg Reykjavíkur í 90mínútur í senn. 5 stjörnuöryggi! Með breytilegu framlagi í sjóðina er hægt að stýra arðgreiðslum og skattgreiðslum. Hjá venjulegu fyrir- tæki hækka arðgreiðslur ef tekj- urnar eru umfram gjöld. Þarna hafa menn tæki til þess að fela hagnað og mynda eins konar stuðpúða fyrir reksturinn. Þegar vel árar er drjúgt látið renna í sjóðina. Fyrir vikið virðist afkoman ekki eins góð. Svo þegar hallar á félögin – eins og þeg- ar Llyod’s kom tímabundið inn á markaðinn – er hægt að dæla úr sjóðunum inn í félögin, tímabundið, og sýna þá fjárfestum og öðrum markaðsaðilum að staðan sé já- kvæð.“ Í nýja FÍB blaðinu eru trygginga- félögin sökuð um „fjárplógsstarf- semi“ í bílatryggingum. Spurður út í þessi skrif segir Runólfur að spor íslensku tryggingafélaganna hræði. „Þegar við fórum af stað með út- boð á tryggingum félagsmanna á sínum tíma töluðu tryggingafélögin á markaðnum einum rómi um að hér væri markaðurinn þannig að það væri ekki hægt að bjóða betri kjör, að afkoman væri svo slæm. Síðan kemur Lloyd’s inn á mark- aðinn og það tók ekki nema viku að lækka iðgjöld til almennings um 25% til 30%. Það liggur fyrir að árið 2000 fer Lloyd’s af markaðnum og þá byrja bótasjóðirnir að bólgna aftur. Tryggingafélögin snarhækkuðu ið- gjöld um leið og samkeppnin hvarf, þrátt fyrir að engin þörf væri á því, og földu hækkunina í sjóðunum. Þótt eini eiginlegi tilgangur sjóð- anna sé að tryggja að til séu pen- ingar til að bæta fólki það tjón sem það verður fyrir voru þeir nýttir í óskyldar fjárfestingar fyrir hrun, til dæmis til að kaupa turna á Makaó. Við hjá FÍB viljum vekja athygli á því að það virðist vera að byggjast upp sama landslag hjá bótasjóð- unum og áður. Þá er gott að halda vöku sinni.“ Spurður hvort FÍB hafi kannað áhuga erlendra tryggingafélaga á að bjóða bílatryggingar á Íslandi segir Runólfur að höftin hafi því miður reynst draga úr áhuganum. „Við lítum á útboð til erlendra fé- laga sem möguleika. Systurfélög FÍB í nágrannalöndunum hafa hasl- að sér völl á vátryggingamarkaði. Við höfum fengið fyrirspurnir þaðan um íslenska markaðinn. Auðvitað er íslenska efnahagsumhverfið í viðj- um hafta, þannig að erlendum að- ilum finnst þetta ekki mjög spenn- andi í augnablikinu. Það er því erfiðara en oft áður að hvetja til samkeppni frá útlöndum.“ Segir bótasjóðina misnotaða  Framkvæmdastjóri FÍB telur vísbendingar um að sjóðir séu notaðir til að halda iðgjöldum of háum  Misnotkunin kosti íslensk heimili tugi þúsunda á ári  Segir höftin fæla erlend tryggingafélög frá Morgunblaðið/Ómar Á Miklubraut Framkvæmdastjóri FÍB gagnrýnir tryggingafélögin. Guðjón Rúnarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka fjármálafyrirtækja, segir grannt fylgst með starfsemi tryggingafélaga. „Þetta eru alvarlegar ásakanir gagnvart tryggingafélögunum, endurskoðendum þeirra og ekki síður Fjármálaeftirlitinu, en öll fé- lögin eru starfsleyfisskyld og lúta eftirliti þess. Einnig er rétt að taka fram að þau tryggingafélög sem eru skráð í Kauphöll Íslands þurfa að standa við mikla upplýsinga- skyldu gagnvart hluthöfum, sem síðan fylgjast grannt með stjórnun félaganna. Tjónaskuldin tekur mið af tjóna- þróun hverju sinni. Tjónaskuldin er í stöðugri endurskoðun, óháð rekstrarárangri á öðrum sviðum. Eðli málsins samkvæmt geta upp- gjör slysamála vegna ökutækja- tjóna og umferðarslysa tekið mörg ár. Það að setja stóran hluta af ið- gjöldum ökutækjatrygginga í tjónaskuld er gert með hagsmuni tjónþolans í huga, þar sem öllu máli skiptir að búið sé að áætla og taka frá fjármagn þannig að við- skiptavinir fái tjón sitt bætt. Til að tryggja þetta láta tryggingafélögin sérfræðinga meta framtíðar- skuldbindingar sínar. Mikil áhersla er á að það sé unnið faglega. Fjár- málaeftirlitið gætir þess einnig að svo sé. Það ætti engum að dyljast, þar með talið FÍB, hversu mikil samkeppnin á ökutækja- tryggingamarkaði hefur verið undanfarin ár,“ segir Guðjón. „Alvarlegar ásakanir“ VIÐBRÖGÐ SAMTAKA FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJAVIÐTAL Baldur Arnarson baldura@mbl.is Vísbendingar eru um að trygginga- félögin séu aftur farin að nota bóta- sjóði til að halda iðgjöldum af bíla- tryggingum of háum miðað við raunverulega áhættu. Þessu er haldið fram í grein í nýj- asta FÍB blaðinu. Runólfur Ólafsson, fram- kvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda (FÍB), telur þessa við- skiptahætti geta kostað íslensk heimili tugi þús- unda í ofgreidd iðgjöld á ári. „Við höfum ástæðu til að ætla að tryggingafélögin séu ekki að keppa sem skyldi á grundvelli iðgjalda og sjái sér ákveðinn sameiginlegan hag í því að láta þetta vera í þessum far- vegi. Það er ótrúleg einsleitni í framboði á tryggingamarkaði miðað við það sem við þekkjum frá ná- grannalöndum okkar.“ Sjóðirnir misnotaðir Runólfur segir tryggingafélögin nota bótasjóðina sem tæki til að fela hagnað þegar vel ári en fegra stöð- ina þegar harðni á dalnum. Fé hafi verið sótt í sjóðina þegar breski tryggingarisinn Lloyd’s kom inn á markaðinn í ársbyrjun 1997, eftir að FÍB fór í útboð á bílatryggingum fyrir hönd félagsmanna sinna. „Flæðið inn í sjóðina virðist óháð því sem er að gerast á markaði. Runólfur Ólafsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.