Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 16

Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ FréttastofaRíkisút-varpsins hefur síðustu mán- uði lagt sig einarð- lega fram við að sýna fram á að ekk- ert hafi breyst við að Óðinn Jónsson færði sig á milli herbergja í Út- varpshúsinu og Rakel Þorbergs- dóttir skipti um koll. Sú viðleitni gerir ekkert til en er óþörf. Það fer ekki framhjá neinum. Hlut- drægni og sérkennilegar áherslur og óvenjuleg vinnu- brögð hafa bersýnilega staðið af sér þessar breytingar, enda voru þær efnislitlar. Í hádegisfréttum „RÚV“ í gær voru að minnsta kosti tvær frétt- ir af gamla skólanum og hefðu báðar farið vel í Spegli Gunnars Gunnarssonar, fyrrverandi fréttamanns. Sú fyrri fjallaði um nefnd sem skipuð hefur verið til að meta hæfi þeirra sem sótt hafa um starf bankastjóra í Seðlabankanum. Kári Gylfason kallaði til viðmælanda sem virð- ist mjög nærtækur þessari fréttastofu, Guðrúnu Johnsen, lektor og greinanda hjá Arion banka. Hún sagðist beinlínis óttaslegin yfir skipun nefnd- arinnar sem meta ætti hæfið. (Már var farinn að ræða sín launamál á meðan einhverjir héldu sig vera að meta hæfi.) Guðrún Johnsen taldi að nauð- synlegt hefði verið að fá erlenda menn til verksins, t.d. þá sem komu að mati á ráðningu á Seðlabankastjóra Englands og Svíþjóðar. Fréttamaðurinn, í hlutverki spyrjanda, gerði enga at- hugasemd við þetta og hefur sjálfsagt ekkert þekkt til. Ráðn- ing á seðlabankastjóra Bret- lands er kunn. Starfið var ekki auglýst þar frekar en annars staðar er gert um slík embætti. Þess vegna sótti enginn um. Og enginn var því að meta hæfi á milli manna. Miklar vangaveltur voru í Bretlandi um hvern George Osborne fjármálaráð- herra myndi velja. Hann valdi Mark Carney, sem er formaður í sex manna bankastjórn Eng- landsbanka. Orð Guðrúnar Johnsen verða ekki skilin öðru- vísi en svo að hún vilji fá fjár- málaráðherra Bretlands til að velja seðlabankastjóra Íslands. Guðrún hafði einnig áhyggjur af því að einn af umsækjendum um bankastjórastarfið sæti í nefnd til að huga að breyttum lögum um SÍ. Því þá gæti sá, yrði hann valinn, haft áhrif á hversu mikil eða lítil völd hann kynni að hafa. Er ekki líklegt að sá myndi þá einfaldlega segja sig úr þeirri nefnd eða ráðherra skipa annan í hans stað? Þá hafði Guðrún Johnsen áhyggjur af því að Ólöf Nordal, formaður bankaráðs, sem sæti á í umsagnarhópnum, væri líka í nefndinni sem undirbyggi endurskoðun á lög- unum. Því „þá hefði hún aðstöðu til að skrifa lög um þann sem yrði valinn og um sjálfa sig“. Hvert er vanda- málið með fyrra at- riðið? Eða þá um hitt? Lög gilda lengi en nefndar- formenn sitja stutt. Svo er það raunar þannig, eins og allir vita nema „fagmenn“ fréttastof- unnar, að nefnd skilar textum til ráðuneytis. Þar er þeim breytt að vild. Þeim er enn iðulega breytt í ríkisstjórn. Þeir fara fyrir þingflokka og er enn breytt þar. Svo fyrir þingnefndir, sem oftast nær gera tugi ef ekki hundruð breytinga á efni og orðalagi. (Nema á því sem kem- ur frá ESB. Því er öllu kyngt án þess að lesa það.) Loks afgreiðir þingið frumvarpstextann eða hafnar honum. Það vita því allir sem gluggað hafa í Lagasafn Ís- lands að það á enginn höfundar- rétt að lögum nema Alþingi sjálft. Þetta viðtal við Guðrúnu Johnsen stóðst engar vitrænar eða upplýsandi kröfur en þó sló það ekki út furðuviðtölin sem Egill Helgason og Gunnar Gunnarsson áttu við fræði- manninn. Það síðastnefnda var um aðkomu SÍ í aðdraganda at- burðanna 2008. Það væri gagn- legt fyrir fréttastofu sem tekur sig alvarlega að láta alvöru „fag- menn“ fara yfir það viðtal til að átta sig á niður á hvers konar plan fréttastofan hrekkur svo oft. Næst í sama fréttatíma réð fréttastofan ekki við sig vegna þess að Hannesi H. Gissurarsyni hafði verið falið að fara yfir áhrif erlendrar þróunar á íslenska at- burðarás fyrrnefndra ára. Hann- es hefur þegar sökkt sér niður í þá þætti og meðal annars átt langt persónulegt viðtal við Al- istair Darling, sem var fjár- málaráðherra Breta þá. Ekki gat fréttastofan efast um hæfni Hannesar og því var ekki auðvelt að átta sig á hvað var á bak við þetta upphlaup. Helst virtist vera að fréttamaðurinn hefði grunsemdir um að Hannes væri ekki hallur undir Samfylk- inguna. Það líta raunar ekki allir í þjóðfélaginu á það sem glæp. Nú voru starfsbræður Hann- esar í Félagsvísindadeild sumir mjög virkir í störfum fyrir Jóhönnustjórnina. Þótt þeir hafi vissulega ekki allir jafn hátt skrifaðan vísindalegan grundvöll og dr. Hannes er ekki ástæða til að ætla að þeir hafi ekki unnið störf sín vel. En spurningin er sú hvers vegna þessi fréttastofa, sem almenningur er píndur til að standa fjárhagslega undir, gerði aldrei veður út af því þegar þeir voru settir til verka aftur og aft- ur. Svarið er auðvitað augljóst. En væri ekki rétt að gera „fag- lega“ úttekt á málinu? Óskiljanlegt er að fréttastofa „RÚV“ telji nauðsynlegt að sanna að hún hafi ekkert skánað} Heygarðshornið samt Á síðustu áratugum 19. aldarinnar gerðist það víða um land að bændur tóku sig saman og mynduðu kaupfélög, lögðu sam- an í púkk til þess að tryggja sjálfum sér hagstæðari kjör í inn- og útflutn- ingi. Mjór er mikils vísir og þessi kaupfélög urðu fljótt að öflugum verslunarfélögum og samvinnuhreyfingin varð hér að miklu versl- unarveldi. Að ekki sé minnst á þann stuðning sem flokkur bænda á Alþingi fékk frá sam- vinnuhreyfingunni og öfugt. Viðskiptalíkan bandarísku verslunarkeðj- unnar Costco, þar sem viðskiptavinir kaupa sér áskrift eða meðlimakort og fá á móti að- gang að vöru á lægra verði en ella, er kannski ekki alveg eins og það sem gömlu kaup- félögin höfðu, en er þó nægilega líkt til þess að hægt sé að velta vöngum yfir því hvort hér sé ekki hreinlega um samvinnufélag 21. aldarinnar að ræða. En svo virðist sem vissir aðilar séu efins um ágæti hins nýja samvinnumódels, einkum og sér í lagi vegna þess að Costco vill fá að flytja inn og selja erlent kjöt, áfengi og lyf í búðum sínum, líkt og þeir gera heima hjá sér. Talað er um undanþágur í því samhengi, en það hlýtur að vera ljóst að ekki gengi upp til lengdar að einn aðili fengi und- anþágur sem aðrir hafa ekki fengið til þessa. Allir verða að sitja við sama borð og því kallar hugsanleg koma Costco á ýmsar lagabreytingar, sem að mínu mati eru fyrir löngu tímabærar. Sigrún Magnúsdóttir, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, virðist sérstaklega ef- ins, á þeim grundvelli að hér gæti fólk liðið heilsuskort síðar á ævinni ef það fær ekki ís- lenska matvöru. „Eigum við ekki að leyfa ís- lenskum neytendum að dæma um það,“ spurði fréttamaður Stöðvar 2, og eftir nokkurt hik kom svarið. Nei, sagði Sigrún, en útskýrði svo að íslenskur matur væri vottaður hérlendis og erlendis sem gæðavara og því þyrfti að standa vörð um þá gæðavöru. Sigrún ritaði einnig hér grein í fyrradag, þar sem hún útskýrði nánar að það þyrfti að eiga sér stað vitræn umræða um kosti og galla þess að Costco kæmi hingað. Sjálf nefnir hún aukna samkeppni í matvöru-, lyfjavöru- og olíumarkaði sem hugsanlega kosti. Ég er hins vegar stórkostlega efins um að umræðan um Costco geti farið fram á þeim grundvelli að heilsufar þjóðarinnar krefjist þess að hér verði aldrei neitt flutt inn sem ekki henti íslenskum landbúnaði. Ef íslenskur matur er svona miklu hollari en erlenda mat- varan, hvað hefur fólk þá að óttast? Gæðavaran hlýtur að geta þolað samkeppni að utan og íslenskir neytendur hljóta að vera færir um að dæma um það sjálfir hvað sé best fyrir þá. Það er alveg rétt hjá Sigrúnu að svara þarf ýmsum spurningum áður en innflutningur á hráu kjöti er leyfður. Af hverju fæ ég samt á tilfinninguna að það sé ekkert sérstaklega vel séð að spyrja þeirra spurninga til að byrja með? sgs@mbl.is Stefán Gunn- ar Sveinsson Pistill Kaupfélög gömul og ný STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Bráðnun jökla af völdumryklags sem sest á þá erþekkt fyrirbæri hér álandi og hafa vísindamenn við Háskóla Íslands meðal annars rannsakað það. Á Íslandi er það að- allega sandfok og gjóska frá eld- gosum sem sest á jöklana en á norð- urskautinu veldur mengun af mannavöldum því að ísinn bráðnar hraðar en ella. Það eykur aftur enn á þá hlýnun jarðarinnar sem á sér stað af völdum gróðurhúsaáhrifa. Talið er að örsmáar agnir af sóti sem kemur meðal annars frá iðnaði og dísilbruna auki bráðnun íss og snjós á norðurskautinu um milljarða tonna og muni auka enn hækkun yf- irborðs sjávar á þessari öld. Bráðnunin þrefaldaðist Að sögn Helga Björnssonar, prófessors emeritus við Jarðvís- indastofnun HÍ, kemur mikill hluti þeirrar orku sem jöklar fá frá geislum sólarinnar. Vegna þess að þeir eru hvítir endurvarpa þeir hins vegar allt frá 70-90% sólarljóssins aftur út í geiminn. Endurvarpsstuð- ullinn breytist hins vegar þegar ís- inn verður skítugur, eins og þekkt er hér á landi. „Þegar líður á sumarið verða jöklarnir hér skítugir og þá fá þeir miklu meiri sólgeislun en þegar þeir eru hreinir. Þetta er vissulega áhrifamikið hér á landi en það er ekki af mengun frá kolareyk, verk- smiðjum eða öðru slíku. Við höfum hins vegar stöðuga uppsprettu af sandryki frá hálendinu sem hefur þessi áhrif,“ segir hann. Verst er þó þegar eldgos verða og gosefni úr þeim setjast á jöklana því þau stórauka rýrnun þeirra. Þannig nefnir Helgi til dæmis að sumarið eftir gosið í Eyjafjallajökli árið 2010 hafi bráðnun Langjökuls þrefaldast á við venjulegt árferði. Þau áhrif vari þó aðeins í eitt til tvö ár því svo fennir yfir gjóskulagið. Sér ekki á svörtu Kolefnismengun af völdum manna hefur hins vegar ekki eins mikil áhrif á íslenska jökla vegna þess að þeir eru einfaldlega það dökkir fyrir. „Það sér ekki á svörtu eins og menn segja við börnin þegar þau koma skítug inn,“ segir Tómas Jóhannesson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Aftur á móti hafa kolefnisagnir úr sóti frá iðnaði og umferð meiri áhrif á norðlægari slóðum, á Græn- landsjökli og norðurskautsísnum. „Snjór og ís í mikilli fjarlægð frá fokstöðum eins og söndunum hér er yfirleitt mjög hreinn og er þá með mjög háan endurkastsstuðul. Þessi þunna dreif af kolefnisögnum sem koma úr umferð, iðnaði og öðrum mannlegum uppsprettum er talin hafa mikil áhrif á geislunarjafnvægi á heimskautasvæðunum og vera ein af mikilvægustu orsökum þessarar miklu aukningar á leysingu og minnkandi snjóhulu og hafís sem menn hafa séð á undanförnum árum og áratugum,“ segir hann. Helgi Björnsson segir að menn hafi alltaf vitað af áhrifum rykslikj- unnar en athygli vísindamanna bein- ist æ meir að þeim. Hverfi ísinn á norðurskautinu og sjór komi í staðinn þá drekki hann í sig geisla sólarinnar sem ísinn varpaði áður frá jörð- inni. Þannig hitni hafið og það bæti enn við þær loftslagsbreyt- ingar sem eru að eiga sér stað á jörð- inni af völd- um manna. Athyglin beinist æ meira að dökkum ís Morgunblaðið/RAX Skaftafellsjökull Sandfok frá hálendinu og gjóska úr eldgosum sem leggst á íslenska jökla valda því að ísinn bráðnar hraðar en ella. Aukning bara dropi í hafið BRÁÐNUN HAFÍSSINS Þrátt fyrir að hafís á norður- skautinu og jöklar um allan heim séu að hverfa vegna hlýnunar jarðar hefur ísinn við Suður- skautslandið verið að breiða úr sér. Hafa ýmsir efasemdamenn um loftslagsbreytingar meðal annars stokkið á þá staðreynd máli sínu til stuðnings. Aukningin við suðurskautið er hins vegar aðeins dropi í hafið miðað við þann ís sem bráðnar. Hafís við Suðurskautslandið hef- ur aukist um 7% frá árinu 1992 samkvæmt nýlegri rannsókn. Hafísinn á norðurskautinu hefur hins vegar rýrnað um 75% frá árinu 1980. Á meðan um 30 rúmkílómetrar af ís hafa bæst við á ári á suður- skautinu hafa um 300 rúmkílómetrar bráðnað á ári á norður- skautinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.