Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 17

Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Snemma beygist krókurinn Flestir Íslendingar fara í flugferð á lífsleiðinni og börn í leikskólanum Baugi í Kópavogi heimsóttu flugklúbbinn Þyt í gær og fræddust um flugvélar. Þórður Byggðastefnan sem fylgt hefur verið síð- ustu áratugi er gott dæmi um hvernig leið- in til glötunar er vörð- uð góðum ásetningi. Allir stjórnmálaflokkar hafa lagt áherslu á að styrkja dreifðar byggðir en eins og oft áður hafa stjórn- málamönnum verið mislagðar hendur. Flestir fara fram með góðum ásetningi, flytja tillögur og ákveða að veita mikla fjármuni úr sameiginlegum sjóði til að styrkja byggðir, en fylgja svo pólitískri stefnu sem grefur undan mögu- leikum landsbyggðarinnar til að standa á eigin fótum. Því miður virðist sem meirihluti stjórnmálastéttarinnar sé á því að ríkið þurfi og eigi að leika lykilhlut- verk við að efla dreifðar byggðir. Opinberum fjármunum er ráðstafað í byggðastyrki hvers konar. Fjár- munir eru veittir í fyrirtæki í formi lána eða hlutafjár, byggðakvótum komið á koppinn og bændum er haldið í fjötrum hafta. Listinn er langur. Allt er þetta dæmt til að misheppn- ast. Um góðan ásetning verður ekki efast en árangurinn verður ekki sá sem að er stefnt. Reynslan hefur kennt okkur Íslendingum harða lexíu í þessum efnum, en engu að síður er haldið áfram á sömu braut. Sameiginlegum fjármunum er enn sóað í gegnum sjóði sem leggja fram áhættufé í fyrirtæki – ekki á grunni arðsemi heldur í nafni byggðasjón- armiða. Afleiðingin er sú að ráðist er í óhagkvæman rekstur og íbúar fá- mennra byggða festast enn frekar í gildru úreltrar stefnu. Byggðakvótar draga úr hag- kvæmni sjávarútvegsins í heild sinni og kostnaðurinn er greiddur af íbúum sveitarfélaga þar sem rekin er hagkvæm og öflugt útgerð og vinnsla. Með öðrum orðum: Byggðakvótar eru ekki annað en færsla milli byggð- arlaga á landsbyggð- inni. Verðum að breyta um stefnu Þegar allt annað bregst er svo gripið til þess úrræðis að flytja heilu ríkisstofnanirnar út á land. Að skera upp ríkisreksturinn, bjóða út einstaka þætti í rekstri stofnana, minnka yfirbygginguna og lækka álögur á landsmenn, er ekki rætt. Afleiðing alls þessa er að á síðustu áratugum hefur verið rekin byggða- stefna sem fremur festir fólk í gildru en að fjölga tækifærum allra óháð búsetu og gefa fólki raunverulegt val um hvar það vill eiga heima. Það er kominn tími til að gjör- breyta um stefnu – draga úr af- skiptum ríkisvaldsins en veita op- inbera fjármuni í verkefni sem sannarlega eiga að vera í verkahring hins opinbera. Hin nýja byggðastefna felst í því að fjárfesta í innviðum samfélagsins; í góðum samgöngum, öflugu fjar- skiptakerfi og háhraðaneti, að tryggja öfluga heilbrigðisþjónustu, góða menntun og sterka löggæslu. Ný byggðastefna verður ekki mörkuð án þess að hafa það að leið- arljósi að ein meginforsenda lífvæn- legrar byggðar er arðsamur sjávar- útvegur og skilvirkur og frjáls landbúnaður. Þannig getur ný byggðastefna ekki falist í ofurskatt- heimtu á sjávarútveg og opinberri ofstjórn og miðstýringu í landbún- aði, þar sem dugmiklum bændum er haldið niðri. Hófsemd og einfalt regluverk Skynsamleg byggðastefna fram- tíðarinnar felur í sér viðurkenningu á því að fámenn þjóð hefur ekki efni á því að reka flókið og dýrt stjórn- kerfi. Með því að fylgja hófsemd í skattamálum og einfalda regluverk atvinnulífsins er ekki aðeins ýtt undir lítil og meðalstór fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, heldur ekki síður á landsbyggðinni. Um leið þarf að tryggja að höfuðborg- arsvæðið sogi ekki til sín fjármagn af landsbyggðinni til þess eins að stjórnmála- og embættismenn skammti síðan úr hnefa til misvit- urlegra verkefna. Það á að hleypa súrefni í byggðir landsins og það súrefni fæst ekki með því að flytja opinberar stofn- anir. Súrefnið fæst með auknu at- hafnafrelsi, aukinni samkeppni og nýjum og arðbærum störfum. Út- hýsing og útboð opinberra verkefna er skynsamleg leið til að ýta undir öflugt atvinnulíf um allt land. Dæmin eru til staðar: Þegar Vegagerðin hóf að bjóða út verk, fyrir nokkrum áratugum, var stoð- um skotið undir öflug verktakafyr- irtæki úti um allt land. Uppskurður í stjórnkerfinu og stofnunum ríkisins þar sem verk- efnum er úthýst til einkaaðila er því vænleg leið til að styrkja lands- byggðina. En forsenda þess að dreifðar byggðir standi jafnfætis í samkeppninni um verkefnin eru tryggar samgöngur og öflug há- hraðatenging um allt land. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks á ekki að standa í pólitískum deilum um hvort rétt sé að flytja hina eða þessa stofnunina út á land heldur varða veginn í átt að nýju skipulagi hins opinbera kerfis. Byggðastefna lista og menningar Fátt auðgar mannlífið meira en öflugt lista- og menningarlíf. Hin nýja byggðastefna getur falist í því að lofa skattgreiðendum sjálfum að taka ákvörðun um hvaða listir og listamenn þeir vilja styrkja. Þannig geta íbúar fámennra byggða tekið sig saman og eflt lista- og menning- arlíf í sinni heimabyggð í stað þess að þurfa að sæta því að nokkrir nefndarmenn taki ákvörðun um hverjir eru svo lánsamir að fá op- inberan stuðning til listsköpunar og hverjir ekki. Á liðnu ári runnu rúmlega 480 milljónir króna til listamannalauna. Fréttatíminn gerði forvitnilega út- tekt á því hvernig þessum fjár- munum var skipt. Listamenn sem búa í 101 Reykjavík fengu um 200 milljónir króna úr ríkissjóði og lista- menn sem búa í 105 og 107 fengu samtals um 100 milljónir. Listamenn á landsbyggðinni fengu aðeins 30 milljónir króna. Með rökum má halda því fram að listamannalaun séu byggðastyrkur til ákveðinna póstnúmera á höfuðborgarsvæðinu. Ef hlutur landbyggðarinnar hefði miðast við höfðatölu hefðu um 178 milljónir króna átt að koma í hlut listamanna í dreifbýli eða 5,7- sinnum hærri fjárhæð en raun varð á. Það er því rétt og skynsamlegt að færa ákvörðun um hvernig skattfé er varið til að styðja við listir og menningu, til skattgreiðenda sjálfra. Þetta er hægt með einföldum hætti og skýrum reglum að gera á skatt- framtali hvers árs. Með þessum ein- falda og sanngjarna hætti verður lista- og menningarlíf á landsbyggð- inni styrkt. Uppskurður á rekstri Rík- isútvarpsins getur einnig verið hluti af byggðastefnu nýrra tíma. Í ít- arlegri grein sem birtist í vorhefti Þjómála árið 2010 lagði ég til að Rík- isútvarpið yrði lagt niður í núverandi mynd og að stofnunin hætti allri dagskrárgerð, en ræki þó áfram fréttastofu. Allt annað dagskrárefni yrði boðið út. Þannig gæti Rík- isútvarpið keypt efni af innlendum kvikmynda-, dagskrárgerðar- og listamönnum fyrir nær 2.300-2.400 milljónir króna á ári. Með þessu opn- ast ótrúlegir möguleikar fyrir hæfi- leikaríkt fólk, ekki síst úti á landi, til að hasla sér völl á sviði þáttagerðar í útvarpi og sjónvarpi. Ójöfnuður er ekki byggðastefna Byggðastefna framtíðarinnar fel- ur fyrst og síðast í sér að dregið sé úr opinberum afskiptum og áhrifum stjórnmálamanna á daglegt líf al- mennings. Um leið er hægt að stíga skref til að leiðrétta óréttlæti sem felst í misvægi atkvæða enda á ójöfnuður ekkert skylt við byggða- stefnu. Lífsgæði Skagfirðings aukast ekkert þótt atkvæði hans í alþing- iskosningum vegi tvöfalt þyngra en frænda hans í Garðabænum. Lífs- gæðin felast í því að báðir séu jafn- settir, eigi sömu tækifæri og fái að ráðstafa sínu sjálfsaflafé sem mest sjálfir. Grunnur nýrrar byggðastefnu er að færa ákvörðun frá embætt- ismönnum og stjórnmálamönnum við Austurvöll til einstaklinganna sjálfra. Og landsbyggðin mun blómstra og eflast með því að íbú- arnir skapa sín eigin tækifæri. Eftir Óli Björn Kárason »Ríkisstjórnin á ekki að standa í deilum um hvort flytja eigi stofnanir út á land held- ur varða veginn í átt að nýju skipulagi hins op- inbera kerfis. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokks. Byggðastefna framtíðarinnar felst í uppskurði ríkiskerfisins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.