Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 33

Morgunblaðið - 09.07.2014, Side 33
fær í hendur dularfullt mál, þarf að rannsaka nokkra óútskýr- anlegra og dularfulla glæpi og leit- ar hjálpar prests nokkurs, Men- doza, sem er jafnframt særingamaður. Fljótlega liggur fyrir að djöfulleg öfl herja á New York og Sarchie þarf að endur- skoða hugmyndir sínar um lífið og tilveruna og vernda fjölskyldu sína fyrir óværunni. Leikstjóri er Scott Derrickson og með aðalhlutverk fara Eric Bana, Edgar Ramírez og Olivia Munn. Metacritic: 41/100 Rotten Tomatoes: 32% Kjánagangur Úr gamanmyndinni Tammy. Melissa McCarthy fer með hlut- verk konu sem missir vinnuna, kemst að framhjáhaldi eiginmanns síns og heldur í ferðalag með ömmu sinni. Hér sést Tammy ræna skyndibitastað. MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 2014 Þegar þú kaupir bökunardropa frá Kötlu, styður þú fjölfötluð börn til náms. Sunnusjóður hefur í meira en 30 ár aukið námsmöguleika fjölfatlaðra barna. Katla er helsti bakhjarl sjóðsins. DROPAR SEM LOFA GÓÐU www.sunnusjodur.is www.katla.is/dropar L L 16 16 12 ★ ★ ★ ★ ★ ÍSL. TAL „Besta íslenska kvikmynd sögunnar!” Lilja Katrín Gunnarsdóttir, Fréttablaðið Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is Miðasala og nánari upplýsingar LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar EARTH TO ECHO Sýnd kl. 4 - 6 - 8 DELIVER US FROM EVIL Sýnd kl. 10 AÐ TEMJA DREKANN 2D Sýnd kl. 5 22 JUMP STREET Sýnd kl. 8 - 10:20 MILLION WAYS TO DIE Sýnd kl. 10:10 VONARSTRÆTI Sýnd kl. 4:30 - 7:30 14"Þú sérð ekki fyndnari mynd í sumar!" -T.V., Biovefurinn.is "Ég hló svo mikið að ég skammaðist mín”!" -Guardian Einleikjahátíðin Act alone verður haldin í 11. sinn dagana 6.-10. ágúst í sjávarþorpinu Suðureyri. „Act alone er helguð einleikjalistinni og er því alveg einstök í hinni fjöl- breyttu hátíðarflóru landsins. Ekki nóg með einleikinn heldur er frítt inn á alla viðburði hátíðarinnar,“ segir Elfar Logi Hannesson sem heldur utan um skipulagningu há- tíðarinnar í ár. Segir hann dagskrána vera mjög fjölbreytta þannig að allir aldurs- hópar eigi að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. „Að vanda eru ein- leikir aðaluppistaða hátíðarinnar og er óhætt að segja að nú sé boðið upp á rjómann af því nýjasta í ein- leikjaflóru landsins. Meðal leiksýn- inga má nefna Sveinsstykki eftir Þorvald Þorsteinsson með Arnari Jónssyni, Eldklerkinn eftir Pétur Eggerz í flutningi höfundar og Djúpið eftir Jón Atla Jónasson sem Stefán Hallur Stefánsson leikur á ensku. Yngsta kynslóðin fær einnig sitt og má þar nefna brúðumeist- arann Bernd Ogrodnik sem sýnir barnaleikritið Pétur og úlfurinn,“ segir Elfar Logi. Að vanda fær tónlistin sinn sess á hátíðinni. „Gít- arsnillingurinn Björn Thorodd- sen leikur eins og honum einum er lagið, Stuðmað- urinn Egill Ólafs- son gerir upp ferilinn í tali og tónum og Vest- firðingurinn Bjarni Arason verður með einstaka tónleika í hátíðarlok,“ segir Elfar Logi. Tekur hann fram að dansinn fái einnig sinn skerf, því Saga Sigurðardóttir frumsýnir nýtt dansverk og Anna Richardsdóttir verður með sérstæðan þrifagjörn- ing í hjarta Suðureyrar. „Ritlistin á einnig sína fulltrúa á Act alone með þeim Eiríki Erni Norðdahl og Ólínu Þorvarðardóttur. Síðast en ekki síst verður opnuð myndlistarsýning með verkum Eddu Heiðrúnar Back- man sem mun standa alla hátíðína,“ segir Elfar Logi og tekur fram að margt fleira verði í boði, en allar nánari upplýsingar um hátíðina má má finna á actalone.net. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sveinsstykki Arnar Jónsson leikari í hlutverki Sveins Kristinssonar. Act alone haldin í 11. sinn í ágúst  Frítt inn á alla viðburði hátíðarinnar Elfar Logi Hannesson Útvarpsþátturinn Party Zone, í um- sjón Helga Más Bjarnasonar og Kristjáns Helga Stefánssonar, sem var á X-inu á árunum 1993-8 og fór þaðan á Rás 2, er snúinn aftur á X- ið og verður sendur út á laugar- dögum kl. 22. Í þættinum er leikin danstónlist ný af nálinni og sú besta, að mati Helga og Kristjáns sem hófu þáttagerðina á framhalds- skólastöðinni Útrás haustið 1990. Á X-ið Party Zone-menn, Kristján Helgi Stefánsson og Helgi Már Bjarnason. Party Zone snýr aft- ur heim á X-ið Uppfærsla Vesturports á Ham- skiptunum snýr aftur í Þjóðleik- húsið í september. Hamskiptin voru frumsýnd í Lyric Hammersmith leikhúsinu í London árið 2006, en endurfrumsýnd í Þjóðleikhúsinu haustið 2007 og hlaut í framhaldinu Grímuna sem leiksýning ársins. Þau Gísli Örn Garðarsson, David Farr, Ingvar E. Sigurðsson og Nína Dögg Filippusdóttir eiga heiðurinn af leikgerð og leikstjórn verksins. Leikmyndina hannaði Börkur Jóns- sonar og tónlistina sömdu Nick Cave og Warren Ellis. Sýningin er byggð á skáldsög- unni Hamskiptunum eftir Franz Kafka og segir frá sölumanninum Gregor Samsa, sem morgunn einn vaknar upp í líki risavaxinnar bjöllu með afdrifaríkum afleið- ingum. Sýningin hefur á sl. átta árum verið sýnd í fjölda leikhúsa víða um heim á ensku, þýsku, sænsku og norsku sem og á leiklistarhátíðum. Hún hefur unnið til ýmissa verð- launa og viðurkenninga, og var m.a. valin besta gestasýning ársins í Boston og Calgary. Aðeins eru fyrirhugaðar níu sýningar á verk- inu hérlendis í haust. Driffjöður Gísli Örn Garðarsson fer með hlutverk Gregors Samsa í sýningunni. Hamskiptin aftur á svið Þjóðleikhússins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.