Morgunblaðið - 09.07.2014, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 9. JÚLÍ 190. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. „Fólk er skelkað yfir þessu“
2. Pilturinn sem lést var íslenskur
3. Fóru með drengi eins og kjötstykki
4. Komu limlestar til Svíþjóðar
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
_ Tvennir upphitunartónleikar fyrir
tónlistarhátíðina Eistnaflug, sem
hefst á morgun og stendur til og með
12. júlí, verða haldnir í kvöld í Egils-
búð í Neskaupstað. Þeir fyrri, með
hljómsveitunum Brain Police, Sev-
ered og Skálmöld, hefjast kl. 19 og
eru fyrir alla aldurshópa. Þeim lýkur
kl. 22 og klukkustund síðar halda
Sólstafir tónleika fyrir fullorðna og
frumflytja m.a. lög af væntanlegri
breiðskífu sinni, Óttu. 42 hljómsveitir
koma fram á Eistnaflugi í ár og er-
lendar hljómsveitir sem leika beljandi
þungarokk eru At the Gates, Havok,
Zatokrev, Bölzer og The Monolith
Deathcult. Á myndinni sést sviss-
neska tvíeykið Bölzer. Fyrsta Eistna-
flugs-hátíðin var haldin árið 2005 og
er hátíðin í ár því sú tíunda í röðinni.
Hitað upp fyrir
Eistnaflug í kvöld
_ Skipuleggjendur tónlistarhátíð-
arinnar All Tomorrow’s Parties til-
kynntu í gær að hljómsveitin
Swans myndi ekki leika á hátíðinni,
eins og til stóð, þar sem söngvara
hennar, Michael Gira, hefði verið
ráðlagt af læknum að ferðast ekki
næsta mánuðinn vegna skyndilegra
veikinda. Hljómsveitin átti að leika
á hátíðinni á morgun.
Swans mun hins veg-
ar leika á hátíðinni
að ári. Hvaða hljóm-
sveitir fyllir skarð
Swans verður til-
kynnt fljótlega.
Hljómsveitin Swans
leikur ekki á ATP
Á fimmtudag Hægt vaxandi austan- og suðaustanátt, 8-15 m/s
um kvöldið en mun hægari NA-til. Rigning eða súld V-til en bjart
með köflum um landið NA-vert. Talsverð rigning S- og V-lands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðaustanátt, þykknar upp, 5-13
m/s og víða rigning fyrir hádegi, en hægari og léttskýjað NA-til.
Hiti 8 til 19 stig, hlýjast fyrir austan.
VEÐUR
Áttundu umferð Pepsi-
deildar kvenna lauk í gær
með fjórum leikjum. Þór/
KA gerði jafntefli við Fylki
á Akureyri þar sem Rox-
anne Barker varði víti í
uppbótartíma og tryggði
heimaliðinu stig. Sömuleið-
is var dramatík í jafntefli
Selfoss og FH þar sem
jöfnunarmark kom í upp-
bótartíma, en Valur og
Breiðablik unnu sína leiki.
»2
Fylkir klúðraði víti
í uppbótartíma
Þó að við sjáum ekki menn eins og
Cristiano Ronaldo, Neymar, Luis
Suárez, Andres Iniesta og James
Rodríguez spila meira á HM fáum við
í það minnsta að sjá snillingana
Lionel Messi og Arjen
Robben eigast við í
síðari undanúrslita-
leik HM í knatt-
spyrnu í kvöld þeg-
ar Holland og
Argentína leiða
saman
hesta sína
í Brasilíu.
»4
Hvort fer Messi eða
Robben í úrslit á HM?
Sú ákvörðun Alþjóðahandknatt-
leikssambandsins, IHF, að bjóða
Þjóðverjum keppnisrétt á HM karla
á næsta ári kom á óvart, ekki síst
þar sem enga stoð fyrir ákvörð-
uninni er að finna í reglum IHF.
Einar Þorvarðarson, fram-
kvæmdastjóri HSÍ, segir málinu
verða fylgt eftir en Ísland sé fyrsta
varaþjóð frá Evrópu á HM. »1
Engin stoð virðist vera
fyrir ákvörðun IHF
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingileif Friðriksdóttir
if@mbl.is
Götuhátíð jafningjafræðslu Hins
hússins fór fram í gær í Hafnarstræti
í miðbæ Reykjavíkur. Mikil stemning
var á staðnum, en portinu á bak við
Hitt húsið var breytt í tónleikasvæði
og komu ýmsir listamenn fram. Með-
al þeirra voru Friðrik Dór, Reykja-
víkurdætur, Benni B-Ruff, 12:00,
Harmónía Sjarmónía og Munstur.
Einnig var þar að finna fatamarkað,
klifurvegg og lifandi bókasafn. Gestir
hátíðarinnar fóru ekki svangir burt,
þar sem boðið var upp á pylsur,
kandífloss, prins póló og gos. Eins
konar karnivalbragur var á hátíðinni
og ríkti þar mikil gleði.
Samkvæmt upplýsingum frá jafn-
ingjafræðslunni er hátíðin ein
stærsta vímuefnalausa hátíð Reykja-
víkurborgar.
Uppgjör á sumrinu
Jórunn María Þorsteinsdóttir og
Tryggvi Björnsson, tveir jafningja-
fræðaranna, sögðu hátíðina eins kon-
ar uppgjör á sumrinu. „Við erum bú-
in að vera að fræða í allt sumar og svo
skipuleggja þessa hátíð inn á milli og
það hefur gengið mjög vel,“ segir
Jórunn. „Jafningjafræðslan saman-
stendur af ellefu krökkum úr Reykja-
vík, þremur úr Kópavogi og tveimur
af Seltjarnarnesi á aldrinum 17-19
ára og við fræðum ásamt því að sjá
um þennan dag.“
Tryggvi segir starfið hafa gengið
vel. „Fólk er búið að taka mjög vel í
þetta. Við reynum að lifa eftir nafn-
inu og vera eins miklir jafningjar og
við getum. Fólkið sem við tölum við
er á svipuðum aldri og við,“ segir
hann, en markmið Jafningjafræðsl-
unnar er einmitt að „ungur fræði
ungan“. Í þeim tilgangi hafa jafn-
ingjafræðararnir flakkað á milli
vinnuskóla í sumar og unnið
forvarnastarf. Áhersla er lögð á
sjálfsmynd ungs fólks með
fræðslunni og leitast við að styrkja
hana og efla. „Þetta er eiginlega
skemmtilegasta vinna sem hægt er
að hugsa sér,“ segir Jórunn.
Lifandi bókasafn
Fyrirbærið lifandi bókasafn var
fróðleg afþreying sem gestir hátíðar-
innar gátu upplifað, en þar var um að
ræða aðila frá ólíkum félögum sem
svöruðu spurningum sem kunnu að
brenna á fólki. „Þetta eru flest félög
minnihlutahópa eins og Femínista-
félag Íslands, Trans Ísland og Sam-
tökin 78. Auk þess eru Sigga Dögg
kynjafræðingur og fulltrúi frá jafn-
ingjafræðslunni á staðnum og hægt
er að koma og fá svör við ýmsum
spurningum,“ segir Tryggvi að lok-
um.
Kynjafræðsla og kandífloss
- Götuhátíð jafn-
ingjafræðslunnar
fór fram í gær
Morgunblaðið/Þórður
Götuhátíð Jafningjafræðslan hélt í gær götuhátíð og var portinu á bak við Hitt húsið breytt í tónleikasvæði. Eins
konar karnivalstemning var á hátíðinni, sem er ein stærsta vímuefnalausa hátíð Reykjavíkurborgar.
Morgunblaðið/Þórður
Gleði Mikil gleði ríkti á hátíðinni, sem haldin var í Hafnarstræti, en þar var
meðal annars að finna fatamarkað, klifurvegg og lifandi bókasafn.