Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.07.2014, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.7. 2014
HEIMURINN
ÍS
EM tir til svæÍsrae
millirael frá Gaza. Spenna Ísrae g Pales
var rænt og þeir myrtir. Í kjölfarr að þremur unglingum frá Ísraelrt efti
að hafi verið gert í hefndarskyni.glingur drepinn og er talið að þskuva r un
ur beðið fólk um að taka lögin ekkihu, forsætisráðherra Ísraels, hefNetanya í
r h ns vegar hótað hefndum.as samtökin í Palestínu hafa hidur. Ham
iu egja
sr
n
rfin
KÓRUR-Ð
L óðLei togar Suður-
umhafa sammælst
é að eyða
inni sem stafi
reu. Park Geun-
Suður-Kóreu, og
n Xi Jinping ru mjögnfítre
rinnunu
BANDARÍKIN
LOS ANGELES
Lindsay Lohan
hefur lagt fram
kæru á hendur
framleiðanda
tölvuleiksins
Grand The
tölvuleikjaf
andlit henn e
persónu le
upphæðir
nota eftirm
persónu í
Nafn Ibrahims al-Asiris er oft-
ast nefnt þegar fjallað er um
tilraunir al-Qaeda til að búa til
sprengjur, sem koma má óséð-
um fram hjá eftirliti á flug-
völlum. Talið er að hann sé í
felum meðal liðsmanna al-
Qaeda á Arabíuskaga í suður-
héruðum Jem-
ens.
Hann er
fyrrverandi
efnafræðinemi,
er eftirlýstur
víða og hefur
lifað af nokkrar tilraunir
Bandaríkjamanna til að ráða
hann af dögum með flygildum.
Hann er talinn höfuðpaur í
nokkrum tilræðum. „Hættan
við Asiri er að hann reynir
aldrei sömu aðferðina tvisvar,“
segir Christophe Naudin, sér-
fræðingur um glæpi og flug-
öryggi, í viðtali við AFP.
B
iðraðir á flugvöllum
vegna öryggiseftirlits
voru ein af afleið-
ingum hryðjuverkanna
11. september 2001.
Nú eru komnar kröfur frá
Bandaríkjamönnum um að bæta
enn í á flugleiðum til Bandaríkj-
anna vegna nýrra ógna og til-
kynntu Frakkar á föstudag að
eftirlit yrði hert á frönskum flug-
völlum. Áður höfðu Bretar gefið
út sams konar yfirlýsingu.
Þessar aðgerðir hafa áhrif á
tveimur helstu flugvöllum Evrópu,
Heathrow í London og Charles
de Gaulle í París þar sem 2,5
milljónir farþega fara samanlagt
um daglega. Í báðum löndum
voru ferðamenn hvattir til að
vera fyrr á ferðinni en ella
vegna lengri biðraða.
Aukin hætta á ferðum
Bandaríkjamenn fóru fram á það
á miðvikudag að öryggi yrði hert
á flugvöllum í Evrópu og Mið-
Austurlöndum þaðan sem flogið
er til Bandaríkjanna. Ekki kom
fram hvort talið væri að almennt
hefði hætta á hryðjuverkum auk-
ist eða grunur léki á um tiltekna
aðgerð eða aðgerðir hryðjuverka-
manna.
Á fimmtudag varaði sendiráð
Bandaríkjanna í Úganda síðan við
því að verið gæti að framið yrði
hryðjuverk á Entebbe-flugvelli í
Kampala, höfuðborg landsins, síð-
ar um daginn. Ekkert gerðist
hins vegar.
Fréttastofan AFP ræddi við
Jeff Price, sérfræðing um flug-
mál, um nýja kynslóð sprengja,
sem óttast væri að yrði laumað
um borð í flugvélar. Hann sagði
að ekki væri um tiltekna aðgerð
að ræða, heldur væri talið að al-
Qaeda hefði verið að vinna að
því að búa til nýjar sprengjur,
sem erfiðara væri að finna við
leit.
Búnaður sem sést ekki?
„Þeir hafa sennilega upplýsingar
um að tæknin sé til og hægt sé
að beita henni þannig að nú
þurfi að vera vakandi fyrir
henni,“ sagði Price. „Þetta hefur
verið til í nokkur ár. Al-Qaeda
hefur verið að reyna að gera
búnað, sem sést ekki, og er einn-
ig aulaheldur. Það var vandi
fyrsta hryðjuverkamannsins með
sprengju í nærfötunum. Það var
of flókið að sprengja sprengjuna.“
Það var á jóladag árið 2009.
Umar Farouk Abdulmutallab frá
Nígeríu var með sprengjuna inn-
an klæða, tókst ekki að sprengja
hana og var yfirbugaður af öðr-
um farþega í vélinni. Hann situr
nú í lífstíðarfangelsi í Bandaríkj-
unum.
Price sagði að reynt væri að
hafa sprengjurnar eins einfaldar
og unnt væri, til dæmis með því
að nota efni, sem hægt væri að
blanda saman með hraði, og þeg-
ar búið væri að blanda þeim
saman yrði efnahvarf, sem ylli
sprengingunni. „Það er mun ein-
faldara en að vera með búnt af
vírum,“ sagði hann. „Mikið af
þessu gæti virst fullkomlega eðli-
legt í gegnumlýsingarvélum eða
sést kannski alls ekki.“
Með evrópsk vegabréf
Price kvaðst ætla að reynt væri
að hafa sem minnst af málmi og
líklegast væru notaðir vökvar.
Ekki þyrfti mikið til að valda
tjóni.
„Vegna þrýstingsins í vélinni
þarf í raun minna sprengiefni til
að valda eyðileggingu í háloft-
unum en á jörðu niðri,“ sagði
hann. „Þess vegna er jafnvel
mikilvægara að stöðva ráðabrugg-
ið fyrir flugtak.“
Vestrænar leyniþjónustur hafa
áhyggjur af að mörg hundruð
róttækir íslamistar, sem farið
hafa frá Evrópu til að berjast í
Mið-Austurlöndum, muni ógna ör-
yggi þegar þeir snúa aftur. Þeir
sem eru með evrópsk vegabréf
þurfa ekki vegabréfsáritun þegar
þeir ferðast til Bandaríkjanna.
Al-Qaeda er nokkurs konar net
samtaka og hafa leyniþjónustu-
menn sérstakar áhyggjur af sam-
tökum sem nefnast al-Qaeda á
Arabíuskaga.
Einnig er óttast að uppgangur
skæruliðasamtakanna Ríkis íslams
í Sýrlandi og Írak, ISIS, geti
orðið til þess að liðsmenn al-
Qaeda láti að sér kveða. ISIS
hefur náð olíulindum í Sýrlandi á
sitt vald og sölsað undir sig
hluta Íraks. Al-Qaeda hefur gagn-
rýnt samtökin fyrir ofbeldisverk
og sagt ótímabært að slík samtök
stofni eigið ríki. AFP hefur eftir
sérfræðingum að al-Qaeda kunni
að láta til skarar skríða til að
láta ISIS ekki yfirskyggja sig.
Nýjar að-
ferðir kalla á
aukið öryggi
BANDARÍKJAMENN HAFA SETT FRAM KRÖFU UM AÐ ÖR-
YGGI VERÐI HERT Á FLUGVÖLLUM, SEM FLOGIÐ ER FRÁ TIL
BANDARÍKJANNA. ÓTTAST ER AÐ HRYÐJUVERKAMENN BÚI
YFIR SPRENGJUM, SEM VART MEGI GREINA.
Öryggisvörður með alvæpni gengur um alþjóðlega flugvöllinn í Toulouse í Frakklandi. Bandaríkjamenn segja aukna
hættu stafa af hryðjuverkamönnum um þessar mundir og hafa farið fram á að öryggi verði hert á flugvöllum.
AFP
SPRENGJUSMIÐUR
Ibrahim al-Asiri
*Öryggi almennings á ferðalögum verður að ganga fyrir – við megum ekki taka neina áhættu.David Cameron, forsætisráðherra Bretlands,
um hertar öryggisráðstafanir á flugvöllum.
Alþjóðamál
KARL BLÖNDAL
kbl@mbl.is