Morgunblaðið - Sunnudagur - 06.07.2014, Blaðsíða 8
Lopapeysan við Akraneshöfn
Fjölskyldu- og menningarhátíðin
Írskir dagar fer fram á Akranesi
dagana 3. til 6. júlí en hátíðin er fyr-
ir löngu orðin árlegur viðburður
sem laðar til sín fjölda fólks enda
Skagamenn þekktir fyrir það að
skemmta sjálfum sér og öðrum vel.
Hátíðin er tilvísun í írskan upp-
runa Skagamanna en Írar námu
land á Skaganum á fyrstu árum Ís-
landsbyggðar en bærinn fékk þó
nafnið Akranes miklu síðar og er
dregið af kornrækt og akuryrkju
sem þótti heppileg í landi Akraness.
Á síðustu áratugum hafa Skaga-
menn þó verið þekktastir fyrir sjó-
mennsku og knattspyrnu en þetta
litla en fallega bæjarfélag hefur al-
ið af sér hverja knattspyrnuhetjuna
á fætur annarri og unnið 18 Ís-
landsmeistaratitla í knattspyrnu.
Lopapeysan er á sínum stað en
það er árlegt ball sem haldið er við
Akraneshöfn í sementsskemmu og
koma m.a. Pálmi Gunnarsson, Erp-
ur og Páll Óskar fram.
Akurnesingar eru góðir gestgjafar og ætti enginn að láta Írska daga fram hjá
sér fara um helgina, eða lopapeysuballið við Akraneshöfn.
Morgunblaðið/RAX
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6.7. 2014
Unga fólkinu er gjarnan att fram í um-ræðunni um skipulag Reykjavíkur.„Unga fólkið vill búa í miðborginni.“ Til
stuðnings þessari fullyrðingu er vísað til skoð-
anakönnunar Capacent frá 2013 sem sýnir að
fólk á aldrinum 18-34 ára vill búa í póstnúm-
erum 101, 105 og 107 og þá sérstaklega fólk á
aldrinum 18-24 ára þar sem 85% nefna þessi
póstnúmer.
Ef marka má könnun Capacent vilja um 20%
fleiri búa í Reykjavík en búa þar nú. Hins vegar
eru um 74% fleiri sem segjast vilja búa í Mos-
fellsbæ en búa þar í dag. Mesta umframeft-
irspurnin er þannig í Mosfellsbæ, ekki Reykja-
vík, samkvæmt þessari könnun.
Áhugi á miðborginni kemur í sjálfu sér ekki á
óvart enda stærstu háskólar landsins og nánast
allar helstu félagsmiðstöðvar ungs fólks í mið-
bænum. Í þessu samhengi hefur furðu lítið verið
minnst á þá ákvörðun að koma Háskólanum í
Reykjavík fyrir í vesturborginni og að þá
ákvörðun tóku meðal annars þeir sem hafa haft
miklar áhyggjur af því að fólk þurfi að ferðast
borgarenda á milli í vinnu og skóla.
Nú vandast hins vegar málið því miðsvæðis
eru dýrustu lóðir landsins, hæsti rekstrar-
kostnaður fasteigna og síðasta vinstri stjórn
hækkaði verulega byggingarkostnað á litlum
íbúðum með nýrri byggingareglugerð eða öllu
heldur reglugerð um hvað fólk vill hafa heima
hjá sér.
Að jafnaði er yngsti hópurinn, þessi sem vill
helst búa á dýrasta svæðinu, sá tekjulægsti eðli
málsins samkvæmt. Þess vegna hafa verið hafð-
ar uppi kröfur um að borgaryfirvöld tryggi með
einhverjum hætti ódýrar íbúðir á þessu svæði,
til að mynda með byggingu fasteigna sem minna
er lagt í, til að mynda með „námsmanna-
íbúðum“.
Það fylgir hins vegar sjaldnast þessari sögu
að miðbærinn fer úr 85% niður í 30% „fylgi“ í
þessari könnun þegar komið er í aldurshópinn
45-54 ára. Hvað þá? Hvert á þá fyrrverandi
unga fólkið að fara? Þessi könnun bendir til að
áhuginn á lítilli íbúð í miðbænum minnki hratt
með aldri, tekjum og fjölskyldustærð.
Gallinn við skoðanakannanir sem þessar er að
þær varpa litlu ljósi á ástæðurnar að baki nið-
urstöðunni. Er ekki líklegt að svör manna ráðist
meðal annars af núverandi einkennum hverfa
miðborgarinnar? Og gætu þessi einkenni ekki
einmitt breyst mjög ef skipulagsyfirvöld tækju
könnun sem þessa of hátíðlega?
Unga fólkið vill …
* Mesta umfram-eftirspurnin eftirhúsnæði virðist vera í
Mosfellsbæ samkvæmt
skoðanakönnun.
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
Fegrunaraðgerðir geta verið bölvað
vesen, sérstaklega ef um er að ræða
erfið efni í slíkar aðgerðir eins og
t.d. naglalakk. Söngfuglinn Sigríður
Thorlacius lenti
einmitt í því
skemmtilega atviki
er hún lakkaði á
sér neglurnar. „Ok
jess – ég hristi af
töluverðri ákefð fagurbrúna nagla-
lakkið. Lokið var ekki skrúfað á. Þið
skiljið.“ Og bætti hún við: „Jájá –
gassagangurinn kemur reglulega í
bakið á manni. En sem betur fer er
nóg til af acetoni. Blessi blessað ace-
tonið.“
Margir reyna að líta á björtu hlið-
arnar þrátt fyrir að votviðrið sé far-
ið að þreyta ansi marga enda síður
skemmtilegt að sumar á Íslandi líkist
æ meir þessu týpíska og leiðinlega
haustveðri. Baggalúturinn og sjón-
varpsmaðurinn
Bragi Valdimar
Skúlason lét í sér
heyra á Facebook í
vikunni: „Það að
segja þetta veður
„gott fyrir gróðurinn“ er ekkert
annað en bullsjóðandi meðvirkni
með fárveikum drykkjusjúklingi.“
Og hananú!
Sex ára aldurinn er skemmtilegur
aldur og sniðugur. Gerður
Kristný skáldkona lýsti skondnu at-
viki með syni sínum Hjalta í vikunni
á Facebook:
„Útvarpið: Eru til dýr sem eru
ekki með hryggsúlur?
Hjalti, 6 ára: Já!
Útvarpið: Svarið er já.
Mamman: Sko þig!
Hjalti: Já, ég vissi það. Ég hef nefni-
lega aldrei séð dýr með ryksugu!“
Grínistinn með
meiru Ari Eld-
járn setti inn aug-
lýsingu á facebook-
vegginn sinn:
„Óska eftir að
kynnast miðaldra
karlmanni í þvottahúsi. Áhugamál:
húðflúr og Gevalia-kaffi.“ Lesa má
ýmislegt út úr þessari auglýsingu en
líklegt þykir að Ara vanti spjallfélaga
þegar heimilisskyldurnar kalla.
AF NETINU
Flóamarkaður Bíós Paradísar hefst í dag. Um er að ræða reglulegan flóa-
markað í sumar, líkt og síðasta sumar, en þá sló markaðurinn í gegn og því
rækileg ástæða til að halda hann að nýju í ár. Markaðurinn verður einnig
haldinn dagana 19.-20. júlí og 9.-10. ágúst og er afgreiðslutíminn frá 11:00-
17:00. Kíkið á flóamarkaðinn og gerið góð kaup á notuðum fötum, vínyl-
plötum, leikföngum, bókum og öðrum gersemum.
Í Bíó Paradís fer fram annað árið í röð flóamarkaður. Hann verður haldinn
nokkrar helgar í sumar líkt og í fyrra en þá var hann vel sóttur.
Morgunblaðið/Golli
Vínylplötur og notuð föt
Vettvangur