Morgunblaðið - 02.10.2014, Side 1

Morgunblaðið - 02.10.2014, Side 1
F I M M T U D A G U R 2. O K T Ó B E R 2 0 1 4 Stofnað 1913  230. tölublað  102. árgangur  HVERNIG HUGSA ÍSLENSKIR STJÓRNENDUR? ELTIST VIÐ UFSA Á HALANUM PLATAN SEM HANA HEFUR ALLTAF LANGAÐ AÐ GERA SKIPSTJÓRI ÁRSINS 12 ÓLÖF ARNALDS 38VIÐSKIPTAMOGGINN Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Sérstakur saksóknari hefur enn 96 mál til rannsóknar, þar af 39 hrun- mál sem stefnt er að að ljúka fyrir áramót. Fjöldi annarra mála er í ákærumeðferð eða til meðferðar fyrir dómi, að sögn Ólafs Þórs Haukssonar, sérstaks saksóknara. Hann segir að uppsagnir átta starfsmanna og lausn átta lög- reglumanna frá embætti í vikunni muni tvímælalaust hafa áhrif á af- köstin. „Það verður bara að segjast eins og er, að það er mjög bagalegt að fá niðurskurðinn á þeim tíma þar sem við erum að keppast við að reyna að ljúka þessu annars vegar og hins vegar þar sem við er að taka mannaflsfrek málsmeðferð fyrir dómi,“ segir Ólafur. Ólafur segir mikla vinnu liggja að baki þeim málum sem hafa end- að fyrir dómi og ekki hafi dregið úr álaginu hjá embættinu. Hann hefur verulegar áhyggjur af því að draga muni úr framleiðni og mál dragast á langinn vegna fækkunarinnar. Ólafur segir enga áætlun liggja fyrir um 2015, þar sem enn hafi engin ákvörðun verið tekin um til- högun rannsókna og saksóknar í efnahagsbrotamálum til framtíðar. Brýnt sé að þessum málum verði markaður ákveðinn farvegur. MNiðurskurðarhnífurinn … »6 96 mál enn í rannsókn  Óheppilega tímasettur niðurskurður  Stefnt á að ljúka rannsókn 39 hrun- mála fyrir áramót  Kallar eftir ákvörðun um tilhögun mála til framtíðar Sérstakur saksóknari » 637 mál hafa verið tekin til rannsóknar af embætti sér- staks saksóknara. » Alls hafa 187 mál verið send í ákærumeðferð en 330 málum hefur verið lokið með öðrum hætti. Nemendur og kennarar í Kvennaskólanum í Reykjavík brugðu á leik í tilefni af 140 ára afmæli skólans í gær og mynduðu keðju umhverfis Tjörnina, en hringurinn er 1050 metrar. Ljósmyndari Morgunblaðsins brá linsunni milli þeirra sem kræktu saman höndum öðrum megin. Mynduðu keðju í kringum Reykjavíkurtjörn Morgunblaðið/Golli Ísland mun, samhliða innleiðingu ESB-tilskipunar um eftirlit með fjár- málaþjónustu, þurfa að setja reglur um uppljóstrun. Uppljóstrarar eru starfsmenn sem tilkynna um ólög- mætt athæfi eða ámælisverða hegð- un innan fyrirtækis. ESB-tilskipunin gerir ráð fyrir að Ísland og önnur EES-ríki innleiði málsmeðferðarreglur sem gefa starfsmönnum fjármálafyrirtækja tækifæri til að greina frá ólögmætu athæfi með nafnlausum hætti. Nefnd sem falið var að yfirfara refsiheimildir í löggjöf á fjár- málamarkaði mun bráðlega skila af sér tillögum að slíkum reglum, í formi lagafrumvarps. Einn nefndarmanna segir nefnd- ina mjög áhugasama um upptöku einhvers konar uppljóstrunarkerfis, sem tryggi vernd uppljóstrara. Nefndin hafi því skoðað löggjöf nokkurra landa sem hafi tekið upp reglur um verndun uppljóstrara í löggjöf sína. »Viðskipti Unnið að gerð reglna um uppljóstrun  Íslandi gert að vernda uppljóstraraByrjað er að undirbúa yfirvofandiverkfall lækna á Landspítalanum. Meðal annars hefur verið boðað til fundar á skurðlækningasviði í næstu viku með yfirlæknum og fulltrúum mannauðsdeildar og lögfræðingum, þar sem farið verður yfir undan- þágulistann og skýrt vel út hvaða reglur gilda í verkföllum. Spítalinn verður þó rekinn á eðlilegan hátt fram á síðustu stundu. „Við munum halda áfram að kalla fólk inn til að- gerða en ef ekki semst fyrir boðaðan verkfallsdag verður fólki gerð grein fyrir því,“ segir Lilja Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri skurðlækninga- sviðs spítalans. Ólafur Baldursson framkvæmda- stjóri lækninga á LSH segir að allar deildir séu að skoða aðgerðir með einhverjum hætti og að undirbún- ingur sé að fara í gang. „Ef til verk- falls kemur mun það hafa gríðarleg áhrif á starfsemina og gera hana mjög erfiða. Það þarf að huga að öll- um þáttum starfseminnar ef til þessa kemur,“ segir Ólafur. Þorbjörn Jónsson formaður Læknafélags Íslands (LÍ) segir að ef farið verði í verkfall nái það til allra þeirra sem starfa samkvæmt kjara- samningi LÍ. Það gildi um sjúkra- hús, heilbrigðisstofnanir og heilsu- gæslu um allt land. »4 Allar deildir undirbúnar Spítali Öll starfsemi mun fara úr skorðum ef til verkfallsins kemur.  Landspítalinn rekinn eðlilega fram á síðustu stundu Ágúst Ingi Jónsson Baldur Arnarson Útflutningstekjur af kolmunna, norsk- íslenskri síld og makríl munu dragast sam- an um tæpa sjö milljarða á næsta ári, ef far- ið verður eftir nýrri veiðiráðgjöf Alþjóða- hafrannsóknaráðsins (ICES). Þetta er mat Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ). Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir þennan samdrátt munu hafa af- leiðingar fyrir þjóðarbúið og minnir á að samanlagt útflutningsverðmæti þessara þriggja tegunda í fyrra hafi verið 38 millj- arðar. Það hafi mest farið í 77 ma. 2011. „Verðum af gríðarlegum tekjum“ „Þarna er um að ræða tapaðar gjald- eyristekjur upp á sjö milljarða. Við verðum því af gríðarlegum tekjum. Heildartekjur af sjávarútveginum á síðasta ári voru tæpir 260 milljarðar. Það er því auðséð að þetta hefur veruleg áhrif. Samdrátturinn er um 10% í kolmunna og makríl og næstum því 50% í síldinni. Fyrir einstök fyrirtæki, sem eru mestmegnis í uppsjávarfiski, er þetta því stærra högg. Þetta eru grundvallar- stofnar í uppsjávarveiðum, að loðnunni og íslensku síldinni viðbættri.“ Fram kemur í nýjum tölum Hagstof- unnar að svokallað FOB-verðmæti útfluttra sjávarafurða á fyrstu átta mánuðum ársins minnkaði úr 173,8 milljörðum króna í fyrra í 153,2 milljarða í ár, eða um 11,8%. »20 Morgunblaðið/Styrmir Kári Makríll ICES leggur til minni veiðar. Tapið yrði um sjö milljarðar  Tekjur þjóðarbúsins af makríl skerðast verulega

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.