Morgunblaðið - 02.10.2014, Page 15

Morgunblaðið - 02.10.2014, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 Blómabúðadagar 2.-5. október 2014 Líttu við í næstu blómabúð. Fjölbreytt úrval talandi blóma á frábæru verði. Breytingar á deiliskipulagi vegna uppbyggingar á aðstöðu fyrir ferðamenn við Dyrhólaey þarf ekki að fara í gegnum umhverfismat samkvæmt ákvörðun Skipulags- stofnunar. Náttúruverndarsamtök Suður- lands óskuðu eftir því að stofnunin ákveddi hvort deiliskipulagsbreyt- ingin væri háð ákvæðum laga um umhverfismat áætlana. Í breytingu á deiliskipulaginu felst að bílastæði á Lágeynni verði fært og stækkað og allt að hundrað fermetra hús með salernisaðstöðu rísi við það. Borað verður fyrir köldu vatni fyrir salernin og rotþró komið fyrir. Skipulagsstofnun komst að þeirri niðurstöðu að uppbyggingin falli ekki undir skilgreiningu laga um umhverfismat hvað varðar umfang og eðli. Hægt er að kæra ákvörðun- in til umhverfis- og auðlindaráð- herra og rennur frestur til þess út 2. nóvember. Ekki talin þörf á um- hverfismati  Byggja upp að- stöðu við Dyrhólaey Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Við Dyrhólaey Til stendur að bæta aðstöðu ferðamanna við eyna. Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Áfram er spáð gasmengun frá eld- gosinu í Holuhrauni í Mývatnssveit í dag en mikið magn brennisteins- tvíildis mældist í lofti þar í fyrrinótt og gærmorgun. Hæsti styrkur sem mældist á tíu mínútna tímabili var vel yfir hættumörkum, um 5.800 míkrógrömm á rúmmetra. Að sögn Gunnars Atla Fríðusonar, fram- kvæmdastjóra Jarðbaðanna við Mý- vatn, fundu menn sem unnu að við- haldi og öðrum framkvæmdum í böðunum í gær fyrir gasinu. „Mínir menn sem voru að vinna hérna í [gær] voru að tala um að það hafi ekki alltaf verið gott að draga djúpt andann í [gærmorgun] þegar þetta var hvað mest,“ segir hann en jarðböðin voru lokuð í gær og áfram í dag vegna framkvæmdanna. Gunnar Atli segist ekki hafa merkt það að gasmengun frá gosinu hafi haft áhrif á aðsókn í jarðböðin. Grannt sé fylgst með mælum í ná- grenninu og verði böðunum lokað ef styrkur eiturgass verði of hár. Enn hafi þó ekki komið til þess. Áfram búist við gasmengun frá gosinu í Mývatnssveit Morgunblaðið/Birkir Fanndal Gasmengun Mengunarmælir er við Reykjahlíðarskóla í Mývatnssveit.  Fylgjast vel með mælingum á styrk brennisteinstvíildis Fulltrúar starfs- mannafélags Kópavogsbæjar og fulltrúar sam- bands íslenskra sveitarfélaga funduðu hjá ríkis- sáttasemjara í gær án árangurs. Næsti fundur hefur verið boð- aður á mánudag- inn. „Það er verið að reyna að finna lausn á deilunni en mér sýnist hún ekki vera í sjónmáli,“ segir Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, formaður Starfsmannafélags Kópavogsbæjar í samtali við mbl.is. Starfsmannafélagið hefur sam- þykkt verkfallsboðun. Náist ekki samningar leggja félagsmenn niður störf dagana 14., 15., 21. og 22. októ- ber. Þá hefst ótímabundið verkfall 1. nóvember. Jófríður telur að rúm- lega 700 manns myndu leggja niður störf ef til verkfalls kemur. Engin lausn í sjónmáli í kjaradeilunni Kópavogur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.