Morgunblaðið - 02.10.2014, Page 17

Morgunblaðið - 02.10.2014, Page 17
sækja Kerlingarfjöll heim eru frá löndunum í Mið-Evrópu. Þetta er fólk sem ferðast á eigin vegum á bílaleigubílum og leitar að áhuga- verðum viðkomustöðum, meðal ann- ars á hálendinu. Íslendingar eru ekki stór hluti þeirra sem sækja fjöllin heim þessi árin. Margir eiga góðar minningar um þennan stað frá tímum skíðaskólans og því umhverfi sem þá var hér, en Kerlingarfjöll eru bara svo miklu, miklu meira,“ segir Páll Gíslason að síðustu. Hveradalir Við hverina eru jarðmyndanir í öllum litum regnbogans. Þegar gufumóða leggjst yfir dalverpin má rifja upp máltækið að margt býr í þokunni. Morgunblaðið/Þorkell „Þetta er mjög spennandi. Við erum í þessu verkefni vegna þess að við höfum fulla trú á því,“ segir Ásgeir E. Guðnason, framkvæmdastjóri Sæbýlis ehf. Fyrirtækið hefur í nokkur ár stundað umfangsmikið tilrauna- eldi með japönsk sæeyru á Eyrarbakka. Er það nú komið í 300 fermetra húsnæði á staðn- um. Vonast Ásgeir til þess að hægt verði að hefja útflutning árið 2016. Gangi áformin eftir gæti útflutningur á fleiri botnlægum sjávardýrum, svo sem sæbjúgum og ígulkerj- um, fylgt í kjölfarið. Tveir starfsmenn vinna nú hjá Sæbýli sem hlotið hefur ýmsa styrki til þró- unar verkefnisins. Haft hefur verið samstarf við Nýsköpunar- miðstöðina, Matís og Atvinnu- þróunarfélag Suður- lands. Sæeyru eru stór- vaxnir, ætir sæsniglar. Sterk hefð er fyrir neyslu þeirra í Asíu, einkum Japan. Þá er einnig talinn vænlegur markaður fyrir sæeyru í Evrópu og Bandaríkjunum. gudmundur@mbl.is Nýsköpunarstarf Sæbýlis á Eyrarbakka Undirbúa útflutn- ing á sæeyrum Morgunblaðið/Ásdís Fiskeldi Sæeyra er álitið lostæti í Asíulöndum. Er sagt auka kynorku. Eyrarbakki Atvinna gæti eflst. Kerlingarfjöll setja sterkan svip á landið þegar ekið er yfir hálendið um Kjalveg. Fjallaklasinn er ekki langt suðvestur af Hofsjökli og er lýst sem „hvirfingu af strókmynd- uðum tindum og eggjum af ýms- um gerðum, þeir hæstu nálægt 1.500 m, með snarbröttum skrið- um. Í dalkvosum, skörðum og gilj- um eru víða jökulsporðar og fann- ir en upp úr þeim gnæfa tindarnir sem blasa við úr öllum áttum,“ segir í Árbók Ferðafélags Íslands 1996. Frá Skagafirði til Vestmannaeyja Segja má að Kerlingarfjöll séu klofin í tvennt. Ásgarðsá og Kisa mynda mikil árskörð í gegnum fjöllin og skipta þeim í austur- og vesturfjöll. Austurfjöll eru svip- mesti hluti fjallaklasans og þar eru hæstu tindarnir, svo sem Snæ- kollur sem er 1.477 metrar yfir sjó og Loðmundur sem er litlu lægri. Ónefnd eru þá fjöll eins og Fannborg, Höttur og Ögmundur og fleiri. Af hæstu tindunum sést í góðu skyggni vítt og breitt yfir landið, það er allt norður í Skaga- fjörð og jafnvel er hægt að greina fjöll á Ströndum. Til suðurs sér allt til Vestmannaeyja. Grágrýtis- og móbergsfjöll eru áberandi þegar farið er um Kjal- veg. Kerlingarfjöll eru hins vegar undantekning. Þau eru að mestu leyti úr ljósbrúnu líparíti. Svo er bullandi jarðhiti á svæðinu meðal, annars í Hveradölum en þangað er stutt ganga frá vegi sem Fann- borgarmenn lögðu á sínum tíma vegna reksturs skíðaskólans. Þar eru gil, skörð og slakkar og niðri í hvilftum renna ár nærri kraum- andi hverum. Allt myndar þetta einstæða litasinfóníu í viðkvæmri náttúru. Brýr, stígar og tröppur Æ fleiri leggja leið sína um þetta svæði sem nú þykir nauð- synlegt að verja álagi. Vegna þess voru í sumar markaðir göngustíg- ar í Hveradölum, settar brýr yfir læki og tröppur lagðar í bröttustu brekkum, en landið er mjög leir- kennt og rokgjarnt og því geta fótspor markað áberandi för í landslagið. Erlendir sjálfboða- liðar á vegum samtakanna SEEDS komu að þessu verkefni, sem var fjármagnað með 10,5 milljóna króna tilstyrk úr Fram- kvæmdasjóði ferðamannastaða. Kerlingarfjallaklasinn blasir við af Kjalvegi Hveradalir Tröppur og stígar hafa verið lagðir um líparítgula hjalla. Fjöll Horft til hins foldgnáa Loð- mundar af veginum yfir Kjöl. Lita- sinfónía VITINN 2014 Undir yfirskriftinni Vitinn 2014 verður í hringferðinni leitað að áhugaverðum vaxtarbroddum í atvinnu­ lífinu um land allt. Lesendur eru hvattir til að senda blaðinu ábendingar á netfangið vitinn@mbl.is. Undirþrýstingur í miðeyra með vökva. Eftir þrýstingsjöfnunmeðOtoventblöðru, miðeyrað opið og engin vökvi. Otovent meðferðin er til að létta á undirþrýsting í miðeyra. Getur fyrirbyggt og unnið á eyrnabólgu og vanlíðan með því að tryggja að loftflæði og vökvi eigi greiða leið frá miðeyra. Meðferð getur dregið úr eyrnabólgum, sýklalyfjanotkun, ástungumog rörísetningum. Læknar mæla með Otovent. Klínískar rannsóknir sýna gagnsemi við lokun í miðeyra, skertri heyrn eftir eyrnabólgur, óþægindum í eyrum við flug, sundferðir eða köfun. Otovent er einfalt og þægilegt fyrir börn og fullorðna. Rannsóknir sýna góðan árangur. CE merkt. Fæst í apótekum Fyrsta hjálp til að laga og fyrirbyggja eyrnabólgur Viðurkennd meðferð Umboð Celsus ehf MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.