Morgunblaðið - 02.10.2014, Síða 18

Morgunblaðið - 02.10.2014, Síða 18
Heimild: Yfirvöld í sjálfstjórnarsvæðinu Hong Kong Leung Chun-ying, æðsti embættismaður Hong Kong, hefur fengið viðurnefnið 689 vegna atkvæðanna sem hann fékk þegar hann var kosinn í embættið árið 2012 Hvers vegna kalla þeir hann 689? Þar af höfðu 249.499 rétt til að kjósa alls 1.200 fulltrúa í kjörnefnd Flestir þessara kjósenda voru fulltrúar ýmissa greina atvinnulífsins eða stjórnkerfisins Hver hópur átti 300 fulltrúa í kjörnefndinni Kjörnefndin kaus... Nú kallaður 689 Árið 2012 *Með rétt til að kjósa í þann hluta þings Hong Kong sem er kjörinn í almennum og lýðræðislegum kosningum 26.828 fulltrúar Fjármál Hótel Tryggingar Flutningar Menntamál Heilbrigðismál Upplýsingatækni Lögfræði 1.050 gild atkvæði voru greidd 25. mars 2012 689 nefndarmannanna kusu Leung Stéttarfélög Trúarhópar Velferðarmál Fulltrúar pólitískra flokka og stofnana 204.399 300 300 Æðsti embættismaðurinn 300 300 17.572 700 = 100.000 = 10.000 = 10 1.200manna kjörnefnd Í Hong Kong voru 3,5 milljónir skráðra kjósenda* 1 2 Kjósendunum var skipt í fjóra misstóra hópa M.a. fulltrúa þessara greina (t.h.): 3 4 5 6 Fæddist í Hong Kong 1954 Leung Chun-ying SVIÐSLJÓS Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Mótmælendurnir sem hafa lagt und- ir sig götur í viðskiptahverfinu í mið- borg Hong Kong eru sundurleitur hópur og án óumdeilds leiðtoga. Á meðal þeirra sem hafa verið í fylkingarbrjósti í fjöldamótmæl- unum eru sautján ára námsmaður, prófessorar, baptistaprestur og fé- sýslumaður. Flestir þeirra sem hafa tekið þátt í mótmælunum eru námsmenn og fólk sem kennir sig við Occupy- hreyfinguna sem hófst í Bandaríkj- unum. „Styrkur mótmælanna er fólginn í því að valddreifingin er svo mikil í hreyfingunni, þannig að það er ekki hægt að kveða þau niður með því að handtaka leiðtoga,“ hefur The New York Times eftir Maya Wang, sem hefur fylgst með mótmælunum á vegum mannréttindasamtakanna Human Rights Watch. „Veikleiki mótmælanna felst auðvitað í því að komið gæti upp glundroði og klofn- ingur ef ástandið breytist hratt. Þetta hefur gengið óvenjuvel til þessa en það gæti breyst.“ Beiti ekki ofbeldi The Wall Street Journal hafði eft- ir heimildarmanni í stjórnkerfi Hong Kong að Leung Chun-ying, æðsti embættismaður sjálfstjórnar- svæðisins, hygðist reyna að þrauka mótmælin í von um að þau myndu fjara út, frekar en að beita valdi. Stjórnvöld í Kína hefðu sagt honum að hann gæti ekki kveðið mótmælin niður með ofbeldi og þyrfti að binda enda á þau með friðsamlegum hætti. Þúsundir mótmælenda hafa sofið á götunum í viðskiptahverfinu síð- ustu nætur og lagt sig fram um að koma í veg fyrir óeirðir eða átök við lögreglumenn. Þeir hafa þótt sér- lega agaðir og hæverskir í fram- komu, beðið vegfarendur afsökunar á óþægindunum sem mótmælin hafa valdið í viðskiptahverfinu. Þeir hafa meðal annars hreinsað allt rusl á götunum til að koma í veg fyrir að það safnist upp og jafnvel gefið sér tíma til að flokka það. Einu verjur mótmælendanna eru regnhlífar sem þeir hafa notað til að verjast rigningu, geislum sólarinnar og piparúða sem lögregla borgar- innar hefur beitt. Mótmælin hafa því verið kölluð „regnhlífabyltingin“. Hræðist ekki saksókn Á meðal þeirra sem hafa verið í fylkingarbrjósti í mótmælunum er Benny Tai, fimmtugur lagaprófessor og einn stofnenda Occupy-hreyf- ingarinnar í Hong Kong. Hann seg- ist hafa lifað mjög þægilegu fjöl- skyldulífi áður en hann hóf baráttu fyrir lýðræði en hermt er að hann hafi fengið morðhótanir að undan- förnu, að sögn The Guardian. „Ég er fullviss um að lýðræði verði einhvern tíma að veruleika í Hong Kong,“ sagði hann nýlega í viðtali. Á meðal annarra sem stofnuðu Occupy-hreyfinguna í Hong Kong fyrir einu og hálfu ári er Chan Kin- man, 55 ára fyrrverandi félagsfræði- prófessor. Chan segist hafa verið hlynntur viðræðum við yfirvöld í Hong Kong en kveðst nú vilja taka þátt í borgaralegri óhlýðni til að knýja fram lýðræðisumbætur. „Ef við verðum dregnir fyrir rétt ætlum við ekki að neita því að við höfum brotið lögin og við hyggjumst lesa upp pólitíska yfirlýsingu fyrir rétt- inum til að útskýra hugsjón okkar,“ hefur The Guardian eftir honum. Sjötugur baptistaprestur, Chu Yiu-ming, hafði beitt sér fyrir lýð- ræðisumbótum í um það bil áratug þegar hann tók þátt í stofnun Occ- upy-hreyfingarinnar. Hann stjórn- aði leynilegum aðgerðum til að hjálpa kínverskum andófsmönnum að komast hjá handtöku og saksókn. Hann skaut yfir þá öruggu skjóls- húsi í Hong Kong og hjálpaði þeim að sækja um hæli erlendis. Baptistapresturinn hóf baráttuna eftir fjöldamorðin í Peking árið 1989 þegar mótmælin á torginu við Hlið Friðsamir, agaðir og hæverskir  Ekki hægt að kveða fjöldamótmælin niður með því að handtaka leiðtoga 18 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 Suðurver | Mjódd | Glæsibær | Húsgagnahöllin | Smáratorg | Austurver www. .is Velkomin á nýjan vef Bakarameistarans Nú getur þú pantað Tertur, Brauðmeti og bakkelsi Veislu og fundarpakka og margt fleira í vefverslunni okkar . .. . .. . .. Aleqa Hammond, formaður græn- lensku landstjórnarinnar, sagði af sér sem formaður Siumut-flokks- ins í gærkvöldi. Þrír ráðherrar hafa sagt af sér eftir að Hammond óskaði eftir leyfi frá störfum í fyrradag vegna rannsóknar á ásökunum um að hún hefði notað rúmar 106.000 danskar krónur (2,2 milljónir íslenskra) af opinberu fé í eigin þágu. Frjálslyndi flokkurinn Atassut ákvað að slíta stjórnarsamstarfinu við flokk Hammond, jafnaðar- mannaflokkinn Siumut, og krafðist þess að efnt yrði til kosninga, að sögn grænlenska blaðsins Ser- mitsiaq. Landstjórnin er ekki með meirihluta á grænlenska þinginu án stuðnings Atassut. Tveir flokksbræður Hammond sögðu af sér vegna málsins, þeir Nick Nielsen menntamálaráðherra og Jens Erik Kirkegaard iðnaðar- ráðherra. Steen Lynge, sem er í Atassut, sagði af sér sem heil- brigðisráðherra áður en flokkurinn ákvað að slíta stjórnarsamstarfinu. AFP Aleqa Hammond Formaður grænlensku heimastjórnarinnar ræðir við fréttamann í Hofi á Akureyri á fundi norrænna forsætisráðherra í maí. Grænlenska land- stjórnin sprungin  Atassut sleit stjórnarsamstarfinu

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.