Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 19
hins himneska friðar voru kveðin niður. „Ég gat ekki tára bundist,“ sagði hann í viðtali við fréttaveituna Bloomberg í maí. „Ég fór með bæn: Guð, hvað getum við gert?“ Á meðal annarra í Occupy-hreyf- ingunni er stjórnandi vogunarsjóðs, Edward Chin, sem er á meðal fé- sýslumanna sem hafa tekið þátt í baráttunni fyrir lýðræði. Sautján ára skörungur Tveir námsmenn hafa einnig verið mjög áberandi í fjöldamótmælunum. Annar þeirra, Joshua Wong Chi- fung, er aðeins sautján ára og hefur vakið mikla athygli með skörulegum ræðum og beinskeyttri gagnrýni á yfirvöldin. Hann var aðeins fimmtán ára þegar hann stofnaði nemenda- hreyfingu árið 2012 til að berjast gegn áformum yfirvaldanna um að taka upp nýja og „þjóðræknislega“ námskrá í skólum Hong Kong til að styrkja tengslin við Kína. Tugir þús- unda nemenda tóku þátt í mótmæl- um hreyfingarinnar og þau urðu til þess að hætt var við námskrána. Joshua Wong hóf nýlega há- skólanám í Hong Kong. Kínversk yfirvöld hafa reynt að ófrægja hann með ásökunum um að hann sé á mála hjá leyniþjónustu Bandaríkj- anna en hann þvertekur fyrir það. Alex Chow Yong-kang, 24 ára leiðtogi samtaka námsmanna í Hong Kong, hefur verið helsti samstarfs- maður Joshua Wong í baráttunni. Chow nemur félagsfræði og bók- menntafræði við Hong Kong- háskóla og hefur einnig starfað sem blaðamaður við blað lýðræðissinna. Áður en fjöldamótmælin hófust hafði hann skipulagt mótmæli sem fólust í því að námsmenn hættu að mæta í tíma til að leggja áherslu á kröfuna um lýðræðisumbætur. Krefst afsagnar » Forystumaður í samtökum námsmanna í Hong Kong hót- aði í gær frekari mótmælaað- gerðum ef Leung Chun-ying segði ekki af sér sem æðsti embættismaður sjálfstjórnar- svæðisins ekki síðar en í dag. » Námsmannasamtökin hóta meðal annars að leggja undir sig opinberar skrifstofur. AFP Krefst lýðræðis Kona tekur þátt í fjöldamótmælum og heldur á spjaldi með áletruninni „Vegna þess að ég elska HK“ í miðborg Hong Kong í gær. FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 Dýrum jarðar hefur fækkað miklu meira en áður var talið, ef marka má nýja skýrslu Dýrafræðifélags Lund- úna (ZSL). Skýrsluhöfundarnir segja að dýrastofnar hafi minnkað um 52% á 40 árum, en ekki 30% eins og talið var í skýrslu þess fyrir tveimur árum. Félagið rekur hnign- un dýrastofnanna einkum til skógar- höggs, ofveiði og mikillar áveitu. Í skýrslunni kemur fram að fiskum í ám og vötnum hefur fækkað um 76%. Í Gana hefur ljónum fækkað um 90% á 40 árum á einu friðlýstu landsvæði. Í Vestur-Afríku hefur skógarhögg orðið til þess að búsvæði fíla er nú aðeins um 6-7% af því sem það var áður. Þá hefur tígrisdýrum fækkað úr 100.000 í aðeins 3.000 á hundrað árum. DÝRAFRÆÐIFÉLAG LUNDÚNA Fílum hefur fækkað. Telur að dýrum hafi fækkað um helming Rafveitufyrirtæki í Bandaríkjunum hafa áhyggjur af því að æ fleiri fjár- festa í sólarrafhlöðum til að verða sjálfum sér nógir um raforku. Aðeins um 0,4% af raforkunni, sem notuð er í Bandaríkjunum, koma nú úr sólarrafhlöðum en gert er ráð fyrir því hlutfallið hækki til mikilla muna á næstu árum þar sem tæknin eru orð- in ódýrari en áður. Tugir þúsunda Bandaríkjamanna hafa keypt sólar- rafhlöður til að setja þær upp á þök- um húsa sinna. Þetta hefur sett rafveitufyrirtæki í vanda vegna þess að í 43 sambandsríkjum Bandaríkj- anna hafa verið sett lög sem heimila fólki að selja alla umframorku í raf- veitunetið á smásöluverði. Tekjur rafveitna minnka Vandinn felst í því að heimilin sem nota sólarrafhlöður kaupa sífellt minni raforku en veitufyrirtækin þurfa enn að standa straum af kostn- aðinum af því að tengja heimilin við rafveitunetið, að því er fram kemur á bandaríska fréttavefnum vox.com. Nýleg rannsókn bendir til þess að ef fram heldur sem horfir lendi veitu- fyrirtækin í miklum fjárhagsvanda. Ef sólarrafhlöður á húsþökum næðu um 10% af raforkumarkaðinum á næstu tíu árum gætu tekjur veitu- fyrirtækjanna minnkað um allt að 41%. Mörg veitufyrirtækjanna hafa því beitt sér fyrir því að lögunum verði breytt, að sögn Brads Plumer, ritstjóra vox.com og sérfræðings í orku- og umhverfismálum. Reynt að finna málamiðlunarlausn Plumer segir að þetta hafi leitt til rimmu milli ólíkra hagsmunahópa. Stuðningsmenn aðgerða til að auka hlut sólarrafhlaðna í orkuframleiðsl- unni ljái ekki máls á því að breyta lög- unum. Nokkur hægrisinnuð samtök hafa á hinn bóginn beitt sér gegn hvers konar niðurgreiðslum til að auka hlut sólarrafhlaðna. Félagar í Teboðshreyfingunni svonefndu, sem berst gegn miklum ríkisumsvifum og fyrir auknu einstaklingsframtaki, eru nú farnir að verja réttinn til að fram- leiða eigin orku, að sögn Brads Plum- er. Þingmenn sambandsríkjanna hafa því reynt að finna einhvers konar málamiðlunarlausn sem feli í sér að hlutur sólarrafhlaðna geti aukist en tryggi samt um leið að nægilegir fjár- munir verði til að reka rafveitunetið. bogi@mbl.is Reyna að hindra aukna notkun sólarrafhlaðna  Sólarorkan setur bandarísk rafveitufyrirtæki í vanda AFP Sólarorka Sólarrafhlöður á þaki verslunarmiðstöðvar í Kaliforníu. Opið: mánudaga til fimmtudaga kl. 8.00-18.00, föstudaga kl. 8.00-16.30 BJB | Flatahrauni 7 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 1090 | www.bjb.is2012 Dekkjaveisla í BJB Hafnarfirði Afsláttur allt að40%

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.