Morgunblaðið - 02.10.2014, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 02.10.2014, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Íliðinni vikuurðu þauánægjulegu tíðindi að íslenska ríkið gekk frá fjár- festingarsamningi við Silicor Mater- ials um byggingu sólarkís- ilverksmiðju á Grundartanga. Vilji Silicor til að hefja starf- semi hér er jákvætt merki um að fjárfestar horfi í meira mæli og af aukinni alvöru til Íslands og að hjólin geti farið að snúast af auknum krafti í atvinnulífinu hér á landi. Ekki veitir af, því að merkin um efnahagsbatann eru misvísandi og full þörf á aukn- um fjárfestingum, erlendum sem innlendum, í atvinnulífinu. Í þessu sambandi er umhugs- unarvert að í fimmtu grein fjár- festingarsamningsins, þar sem fjallað er um skatta, kemur fram að nýja fyrirtækið skuli greiða tekjuskatt upp á 15% en ekki 20% eins og önnur fyr- irtæki í landinu. Nú er vissulega skiljanlegt þegar rekstrarumhverfi fyr- irtækja af hálfu hins opinbera er ekki nægilega gott að reynt sé að liðka til með slíkum und- anþágum. Mun heppilegra er hins vegar þegar rekstar- umhverfið er það hagstætt að fjárfestar sækist eftir að stofna fyrirtæki í landinu eða telji um- hverfið í það minnsta ekki svo slæmt að fara þurfi fram á und- anþágur. Tekjuskattur á fyrirtæki er einn þeirra á annað hundrað skatta sem vinstri stjórnin hækkaði, en áður en hún tók við var tekjuskattur fyrirtækja 18% og með það skatthlutfall eru minni líkur á að veita hefði þurft und- anþágu, þó að 15% almennt hlutfall, eins og undanþágan hljóðar upp á, væri enn ákjós- anlegra. Reynslan frá árunum áður en vinstri stjórnin hóf skattahækk- unarherferð sína gefur skýra vísbendingu um kosti lægri skatta fyrir slíkar fjárfestingar. Sem dæmi má nefna að Alcoa Fjarðaál fékk ekki slíkan afslátt í sínum fjárfestingarsamningi og að Alcan óskaði eftir því skömmu eftir aldamót, þegar skattaumhverfið hafði verið lag- að hér á landi og áður en vinstri stjórnin fór höndum um það, að fallið yrði frá skattaákvæðum fjárfestingarsamnings fyr- irtækisins, enda var hið al- menna umhverfi orðið hag- stætt. Vonandi verður fjárfesting- arsamningurinn við Silicor til þess að minna núverandi stjórn- völd á að enn er mikið verk óunnið við að hreinsa út skatta- hækkanir vinstri stjórnarinnar og stuðla þannig að aukinni fjárfestingu í landinu og öflugra atvinnulífi. Fjárfestingarsamn- ingur Silicor er ágæt áminning til núver- andi stjórnvalda} Skattar þurfa að lækka Bandaríkja-forseti er í vörn vegna upp- gangs liðsmanna „Ríkis íslams,“ bæði í Írak og norðausturhluta Sýrlands. Í sjónvarpsviðtali um síðustu helgi leitaðist forsetinn við að koma ábyrgðinni á því, hve illa væri komið, yfir á leyniþjónustustofnanir lands- ins. Þær brugðust hart við, en auðvitað með sínum sérstaka hætti. Fréttum var lekið um það, hvernig Obama hefur daglega, í tæp tvö ár, verið varaður við vaxandi hættu sem stafaði frá þessum hryðjuverkasamtökum. Og hinir móðguðu leyniþjón- ustumenn hafa látið það fljóta með lekum sínum að forsetinn hafi hins vegar í meirihluta til- vika beðist undan því að fá leyniskýrslur dagsins. Forset- inn hafi raunar varið lengri tíma á golfvöllum en þeim sem hann þóttist ekki hafa til að fá nýjustu njósnaskýrslur um hið alvarlega ástand. Andstæðingar forsetans í þinginu voru fljótir að fylgja þessum lekum eftir. Það er að- eins rétt rúmur mánuður í þingkosningar og litar það allar umræður. Repú- blikanar, sem hafa meirihluta í full- trúadeild þingsins, vonast til að fjölga sínum mönnum þar. Í nóvember verður einnig kosið um þriðj- ung sæta í öldungadeildinni og Repúblikana klæjar í að ná jafnframt meirihluta þar, en kannanir benda til þess, að þeir kunni að eiga raunhæfan kost á því. Óumdeilt er að Obama for- seti hefði mátt halda betur á þessum málum. En á móti kem- ur að hann á engan góðan kost í vondri stöðu. Forsetinn vill alls ekki senda landherinn inn í Írak á nýjan leik, en hæpið er að loftárásir, án eftirfylgni hers á jörðu niðri, dugi til að vinna sigur á liðsmönnum „Ríkis ísl- ams.“ Þótt andstæðingar forsetans spari sig hvergi í gagnrýni á hik og úrræðaleysi hans, gera þeir ekki kröfu um að land- herinn verði ræstur út til að brjóta hryðjuverkasveitirnar á bak aftur. Þeir vita að slík krafa myndi sennilega spilla fyrir þeim í þingkosningunum. Því þykir ýmsum sem heilindi skorti hjá gagnrýniskórnum. Obama er í vörn vegna framgangs hryðjuverkamanna í Írak og Sýrlandi} Kosningar lita flókna stöðu F jölmenn trúarhátið var haldin um síðustu helgi í Hörpu undir yf- irskriftinni Kristsdagur. Í bæna- skjali hátíðarinnar var að finna bænir um hin ýmsu efni, eins og til dæmis bæn fyrir kvótakerfinu – en það eitt og sér gerir bænaskrána æði undarlega og reyndar fremur skondna. Einnig var talið æskilegt að biðja fyrir breyttu viðhorfi til fóst- ureyðinga en ekkert er skondið við það. Fjöl- miðlar nenntu ekki að leita skýringa á því hvers vegna nauðsynlega þyrfti að biðja fyrir kvótakerfinu en bænir vegna fóstureyðinga rötuðu í fjölmiðla og einhverjir hafa furðað sig á því. Einn af skipuleggjendum hátíðarinnar, kona, sagðist til dæmis harma að frétta- umfjöllun um hátíðina hefði snúist um þessa tilteknu bæn. Fyrrverandi ráðherra Sjálf- stæðisflokksins sagði fréttastofu Ríkisútvarpsins draga upp neikvæða mynd af framtakinu og dómkirkjuprestur sagði fréttastofuna á leið með að verða afbrigðileg. Þetta eru furðulegar yfirlýsingar um fréttastofu sem nýtur mikils og maklegs trausts. Fréttastofan, og aðrir fréttamiðlar, sem vöktu athygli á umræddri bæn, voru einmitt að vinna vinnuna sína. Það er fréttnæmt þegar sýndir eru tilburðir til að gagnrýna mannréttindi kvenna og gefið sterklega í skyn að rétt sé að afnema þau. Það er grundvallaratriði í kvenfrelsisbaráttu að konur ráði sjálfar yfir líkama sínum. Það á ekki að þvinga nokkra konu til að eignast barn. Hún á að ráða því sjálf hvenær og hvort hún vill verða móðir. Þetta er ósköp einfalt atriði, sem mörgum virðist þó ganga illa að skilja. Þegar kristnir menn eru beðnir um það á hátíð að nota bænina í bar- áttu gegn réttindum og frelsi kvenna þá er sannarlega ástæða til að bregðast harkalega við. Það hafa allmargir prestar blessunarlega þegar gert og eru kvenprestar þar áberandi. Þessir prestar vita að ef kristin kirkja ætlar að samþykkja að gengið sé gegn réttindum kvenna þá er um leið verið að segja konum að trúin sé ekki fyrir þær, þær verði að afsala sér ákveðnum réttindum vilji þær komast í guðs hús Alls kyns kristnir söfnuðir eru í landinu og boðskapur þeirra allra er greinilega ekki góð- ur því þarna finnst fólk sem veifar Biblíunni, sem það túlkar bókstaflega, og upphefur bænakvak og segir öðrum, í nafni harðlínu-trúarsetn- ingar, hvað þeir megi og hvað þeir megi ekki gera. Við vitum hvaða viðhorf þetta fólk hefur til samkynhneigðra og nú vitum við hvaða skoðanir það hefur á sjálfsákvörð- unarrétti kvenna. Vissulega er þessu fólki frjálst að viðra skoðanir sínar, jafn hættulegar sem þær eru, en þeir hin- ir sömu geta ekki búist við að íslenskur almenningur breiði fagnandi út faðminn og segi: Hallelúja. Sagt er að kvenréttindabaráttunni ljúki aldrei. Þegar horft er til Kristsdags og bænar sem beindist gegn kven- frelsi þá er manni ljóst hvað átt er við. kolbrun@mbl.is Kolbrún Bergþórsdóttir Pistill Bæn gegn kvenfrelsi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Ekki er líklegt að sam-dráttur í veiðiráðgjöf, einsog kynnt var í fyrradag,auðveldi samkomulag í makríldeilunni. Fyrsti fundur haustsins um makrílveiðar næsta árs verður í London á mánudag er for- menn samninganefnda hittast ásamt minni hópum. Á fundinum verða fulltrúar Íslands, Noregs, Færeyja og Evrópusambandsins, þá hefur fulltrúum Grænlendinga og Rússa verið boðið til fundarins. Venjubund- inn strandríkjafundur hefst síðan 21. október og er Sigurgeir Þorgeirsson, formaður íslensku nefndarinnar. Eftir marga fundi síðasta vetur um samkomulag strandríkjanna lauk viðræðum þannig að Evrópusam- bandið, Noregur og Færeyjar gerðu með sér samkomulag um veiðarnar en Ísland var enn án samnings. Lengst af í samningalotunni voru bundnar vonir við að Ísland yrði aðili að samkomulagi með tæplega 12% af heildaraflamarki. Á síðustu stundu varð breyting á og ESB, Noregur og Færeyjar sömdu sín á milli. Á næsta ári er ráðlagður heildar- afli um 900 þúsund tonn, sem er um 100 þúsund tonnum undir ráðgjöf þessa árs. Hins vegar er útlit fyrir að heildarafli á makríl í NA-Atlantshafi í ár verði um 1400 þúsund tonn. Norðmenn gagnrýndir Hérlendis voru Norðmenn gagn- rýndir fyrir afstöðu sína og fram- göngu í makríldeilunni síðasta vetur og skrifaði Sigurður Ingi Jóhannsson sjávarútvegsráðherra meðal annars eftirfarandi: „Í samningalotum vetrarins hefur stærsta verkefni samninganefndar okkar verið að tryggja samkomulag sem ekki byggðist á verulegri ofveiði. Þar hefur verið við ramman reip að draga undir stífri kröfu Norðmanna um veiðar umfram ráðgjöf, og gagn- vart sinnuleysi Færeyinga þegar kemur að sjónarmiðum sjálfbærrar nýtingar. Þessum aðilum var fullljóst þetta sjónarmið Íslands. Ég get enga aðra ályktun dregið af lyktum mála en þá að þessi þrjú ríki hafi gefist upp á viðræðum á ábyrgum grundvelli, eins og krafa var um af okkar hálfu. Þegar ljóst var að ESB var tilbúið að víkja frá því samkomulagi sem það hafði gert við Ísland, og víkja frá sjálfbærum nýtingarsjónarmiðum, ákvað sambandið að freista þess að ná þríhliða samningi utan formlegs strandríkjafundar. Það gefur auga leið að það þurfti ekki miklar við- ræður milli Noregs og ESB um að auka sínar heimildir frá fyrri árum og bjóða Færeyingum far til viðbótar eins og niðurstaðan er.“ Hranalegt orðalag Elisabeth Aspaker, sjávarútvegs- ráðherra Noregs, svaraði þessari grein Sigurðar Inga og þau hafa hist tvívegis í sumar. Ekki er þó talið að miklar þreifingar hafi verið bak við tjöldin á hinu pólitíska sviði síðustu mánuði. Ætla má að afstaða ESB og Færeyja liggi fyrir, en frekar sé spurning hver afstaða Norðmanna verði á fundum haustsins. Í svari sínu við grein Sigurðar Inga sagði Aspa- ker meðal annars: „Ég er einnig hissa á því að Sig- urður Ingi Jóhannsson skuli heldur ekki minnast á það að Íslendingar vildu einir samningsaðila ekki sætta sig við takmarkanir á fiskveiðum ís- lenskra fiskiskipa í lögsögu annarra ríkja, svo sem við Grænland. Þetta er ein mikilvægasta ástæða þess að samkomulag allra ríkjanna náðist ekki. Norðmenn leggja á það mikla áherslu að aðilar að samningum strandríkja geti ekki bæði veitt „innan“ og „utan“ samningsins og þannig í raun úthlutað sjálfum sér stærri kvóta en samningar gera ráð fyrir. Þessi staðreynd varpar einnig einkennilegu ljósi á áhyggjur Ís- lendinga af of stórum heild- arkvótum … Ég er líka nokkuð undrandi á því hranalega orðalagi sem íslensk yf- irvöld nú nota um Norðmenn, orða- lag sem ég sé engin rök fyrir…“ Ný lota makrílvið- ræðna að hefjast Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Verðmæti Heimaey kemur til löndunar á Þórshöfn. Makríll hefur skapað aukna atvinnu víða um land á síðustu árum og þjóðarbúinu mikil verðmæti. Grænlendingar tóku sér í ár um 100 þúsund tonna makrílkvóta til svo- kallaðra tilraunaveiða og er það meira en áður. Hér á landi hafði um miðja síðustu viku verið landað 46 þúsund tonnum úr grænlenskri lög- sögu. Grænlensk skip höfðu landað 33,6 þúsund tonnum og íslensk skip rúmum 12 þúsund tonnum. Ekki liggur fyrir hvort Grænlendingar hyggist óska eftir að koma að samningaborðinu sem strandríki í makrílveiðum eða halda áfram til- raunaveiðum eins og þeir hafa gert. Ef það verður forsenda samnings við Íslendinga að þeir banni eða takmarki landanir grænlenskra skipa hér á landi og veiðar íslenskra skipa við Grænland versnar staða Græn- lendinga mjög eins og sjá má af fyrrnefndum löndunartölum. Strandríki eða tilraunir? AUKNING Á MAKRÍLVEIÐUM VIÐ GRÆNLAND

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.