Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 22
22 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014
Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 108 • Reykjavík • Sími 560 1010www.heilsuborg.is
Í tilefni af 5 ára afmæli Heilsuborgar langar
okkur að bjóða þér á eftirtalda fyrirlestra:
Kort til áramóta - 13.450 kr.
Fimmtudagur 2. október
Heilsa og Húmor kl. 20:00-21:00
Gleðifyrirlestur með
Nobert Muller hjúkrunarfræðingi
Þriðjudagur 7. október
Sykur og sætuefni kl. 20:00-21:00
Má borða sykur?
Er einhver sykur betri en annar?
Erla Gerður Sveinsdóttir læknir segir okkur
sannleikann um sykur og sætuefni
Fimmtudaguri 9. október
Fyrirlestur um Svefnog slökun kl. 20:00-21:30
Erla Björnsdóttir sálfr. ogGréta Bjarnadóttir hjúkrunarfr.
leiða okkur inn í betri svefn og dýpri slökun
Velkomin íHeilsuborg
Afmælistilboð
Laugardaginn 11. október höldum við afmælishátíð Heilsuborgar.
Fylgstu með og vertu vinur okkar á Facebook.
Í grein í Mbl. 17/9
sl. eftir Finn Árnason,
forstj. Haga, „Bætum
hag bænda“ segir
Finnur svo um mjólk-
ursölu. „Þess ber að
minnast að þegar
Hagkaup opnaði
verslun sína í Skeif-
unni árið 1970, máttu
dagvöruverslanir
ekki selja mjólk. Það
var fyrir baráttu
Pálma Jónssonar, stofnanda Hag-
kaups, og samstarfsfólks hans, að
leyfi fyrir mjólkursölu var veitt
nokkru síðar. Sú breyting var
gæfuspor fyrir bændur og neyt-
endur.“ Þarna er ekki rétt með
farið hjá Finni, því skilja má þetta
hjá honum sem svo, að Pálmi og
hans fólk hafi verið að berjast fyr-
ir sölu mjólkur almennt í versl-
unum. Svo var alls ekki. Sú breyt-
ing varð vissulega gæfuspor fyrir
neytendur og bændur þegar
mjólkursalan var gefin frjáls
mörgum árum síðar. En það var
ekki Pálma Jónssyni og hans fólki
að þakka. Hann fékk leyfi til
mjólkursölu fyrir sína verslun og
lét þar við sitja. Frá nokkurra ára
tímabili þar á undan, jafnvel frá
1961/2, eru til bréf um þessi mál.
Alltaf af og til höfðu verið miklar
umræður um sölu mjólkur í smá-
sölu. Kaupmannasamtök Íslands
(KÍ) höfðu fyrir hönd margra fé-
laga sinna, verið í samtölum og
fundað með forráðamönnum
Bændasamtaka, Stéttarsambands-
ins, Framleiðsluráðsins og fjöl-
mörgum aðilum fleiri sem höfðu
með þessi mál að gera í kerfinu.
Hvorki gekk né rak í þessu máli.
Nokkur skriður komst á þetta
1971 í tíð Ingólfs Jónssonar sem
þá var landbúnaðarráðherra.
Fundað var með ráðherrum á
þessum árum, miklar bréfaskriftir
til þingmanna o.fl. KÍ höfðu
nokkru áður komið á „Mjólk-
ursölunefnd Kaupmannasamtak-
anna“. Í henni voru kaupmenn-
irnir Hreinn Sumarliðason sem var
form. nefndarinnar, Hreinn Hall-
dórsson, Jón Júlíusson og Sig-
urður Matthíasson. Þessi nefnd
hélt marga fundi, fór
á fundi til ráðherra og
forráðamanna innan
landbúnaðarkerfisins
o.fl. Nefndinni var
frekar en hitt sýnt
mikið tómlæti, alla-
vega í byrjun. Hinn 5.
maí 1971 fór nefndin á
fund til Ingólfs Jóns-
sonar landbúnaðar-
ráðherra í ráðuneyt-
inu. Á þessum fundi
sagði ráðherrann að
hann ætlaði að vera
hreinskilinn varðandi
þetta mál. Hann ætlaðist ekki til
þess að Mjólkursamsalan legði nið-
ur allar sínar mjólkurbúðir, sér
fyndist eðlilegt að hún ræki eitt-
hvað um 30 búðir, en ekki nærfellt
60. Þetta ætti að koma í veg fyrir
mjólkursölubann og minnti á kjöt-
bannið um 25 árum áður. Kaup-
menn gætu tekið upp á því að
stöðva sölu á mjólkurvörum. Hann
kvaðst að öðru leyti þeirrar skoð-
unar vera að þetta mætti leysa
með þróun og minnti á að 7 versl-
anir hefðu fengið mjólkursöluleyfi
á árinu og fara mætti þá leið að 5
til 10 verslanir fengju leyfi árlega.
Harðvítugar deilur höfðu orðið um
margra ára skeið á nokkrum stöð-
um úti á landi, einna mestar á
Ólafsfirði, en einnig í Neskaupstað
og víðar þar sem kaupmenn ósk-
uðu eftir því að selja mjólk í sínum
búðum. Á þessum stöðum voru það
kaupfélögin sem sáu um þá sölu í
sínum búðum. Árlega um margra
ára skeið var á aðalfundum KÍ
ályktað um þessi mál og þær
ályktanir sendar ráðherrum land-
búnaðar- og viðskiptamála og öðr-
um þeim sem með þessi mál fóru.
Fjölmargir fundir voru líka haldnir
með stjórn og forstjóra Mjólk-
ursamsölunnar, sem hér í Reykja-
vík og nágrenni sá um alla sölu
mjólkur í smásölu í sínum búðum
sem voru nálægt 60 að tölu. Á Al-
þingi, 92. löggjafarþinginu, vet-
urinn 1970/71 lagði Ellert B.
Schram ásamt Lárusi Jónssyni,
Matthíasi Bjarnasyni og Ragnhildi
Helgadóttur, sem meðflutnings-
mönnum, fram frumvarp til laga
um breytingu á lögum nr. 101/1966
um framleiðsluráð landbúnaðarins
o.fl. Þar fylgir með ítarleg grein-
argerð um sölu og dreifingu land-
búnaðarvara. Svona gekk þetta um
nokkurra ára skeið, þetta var rætt
í þingsölum árlega þessi ár og á
97. löggjafarþinginu 1975/76 voru
lögð fram nefndarálit, breyting-
artillögur og enn eitt frumvarpið
til laga um Framleiðsluráðið varð-
andi sölu mjólkurvara. Ellert B.
Schram ritar grein í Mbl. 9/11
1972; „Neytendur vilja mjólk í
verzlanir.“ Í Tímanum sama dag,
9/11 1972 eftir Elías S. Jónsson
segir um mjólkursölumálin á Al-
þingi og er vísað í Halldór E. Sig-
urðsson þá landbúnaðarráðherra.
„Núverandi skipulag mjólkursölu-
mála hefur reynst vel.“ Deginum
áður höfðu verið harðar umræður
um málið og er vísað í Ellert,
Ágúst Þorvaldsson, Stefán Val-
geirsson og Ingólf Jónsson. Að
lokum þetta, þá leystust þessi
mjólkursölumál ekki fyrr en í árs-
byrjun 1977 að kaupmenn almennt
fengu leyfi til sölu á mjólk. Hreinn
Sumarliðason sem var formaður
nefndarinnar sem skipuð var af KÍ
og getið er um hér að framan, er
einn eftir á lífi af þeim sem í
nefndinni voru. Það var fyrir harð-
fylgi þeirra sem hana skipuðu, að
þetta réttlætismál leystist farsæl-
lega, þann veg að matvöruversl-
anir almennt fóru að selja mjólk.
Hvergi á þessum langa ferli þessa
máls er Pálma Jónssonar getið,
enda kom hann hvergi nærri mál-
inu, átti engan þátt í því að leyfi
fékkst fyrir sölu mjólkur í almenn-
um verslunum kaupmanna í árs-
byrjun 1977. Hinsvegar er það rétt
að hann fékk leyfi til sölu mjólkur
í sinni verslun, Hagkaup, en átti
engan þátt í því að aðrir kaup-
menn fóru að selja mjólk . Þakka
Finni annars fyrir hans ágætu
grein.
Eftir Ólaf Steinar
Björnsson »Nokkur skriðurkomst á þetta 1971 í
tíð Ingólfs Jónssonar
sem þá var landbún-
aðarráðherra.
Ólafur Steinar
Björnsson
Höfundur er fyrrv. form. Félags mat-
vörukaupmanna og í stjórn Kaup-
mannasamtaka Íslands.
Mjólkursölumál
Telja má öruggt, að
nokkur hundruð núlif-
andi Íslendinga muni
falla fyrir MND-
sjúkdómnum. Eins og
flestir vita er MND
ólæknandi sjúkdómur,
sem veldur vöðvalöm-
un og fjölmörgum
öðrum erfiðum ein-
kennum. Í nær öllum
tilvikum hrakar
MND-sjúklingum með
tímanum og að meðaltali er ævi-
lengd MND-sjúklinga um 15 árum
styttri en annarra landsmanna.
Leitin að orsökum MND
er rétt að hefjast
Þótt MND hafi lengi verið með
mannkyni og líklega frá upphafi er
ennþá ekki vitað af hverju sjúk-
dómurinn stafar. Þetta birtist lík-
lega bezt í þeirri staðreynd, að á
heimsvísu eru 90-95% MND-tilvika
talin vera tilfallandi. Nær öll tilvik
sjúkdómsins eru því talin stafa af
óþekktum ástæðum, ekki ólíkt því
sem gilti um lúsina sem fyrir
nokkrum öldum var talin kvikna af
sjálfu sér.
Erfitt er að rannsaka sjúkdóma
sem stafa af óþekktum ástæðum og
þess vegna beinast rannsóknir á
MND að þeim 5-10% tilvika sem
talin eru stafa af arfgengum breyt-
ingum í genum sjúklinganna – vera
erfðasjúkdómar. Líffræðingar og
aðrir sem fást við þessar rann-
sóknir reyna að finna breytingar í
genum þeirra sjúklinga sem eiga
nákomna ættingja með MND og
mönnum hefur orðið nokkuð
ágengt.
Eitt atriði við MND sem lengi
hefur legið fyrir og vekur furðu er
að enginn munur greinist á sjúk-
dómseinkennum fólks með ætt-
gengt MND og tilfallandi. Þetta
kann að stafa af því, að raunveru-
lega sé um erfðasjúkdóm að ræða,
en erfðagallinn sé einungis ófund-
inn. Staðreyndin er sú, að smátt og
smátt eru menn að finna óþekkta
genagalla hjá sjúklingum sem taldir
hafa verið með tilfallandi MND.
Hlutfall ættgengra tilvika er því
smátt og smátt að aukast.
Rannsóknir á MND
eru hafnar hérlendis
Í heiminum hafa að minnsta kosti
16 gen fundist sem virðast tengjast
MND, en lengra hefur leitinni ekki
miðað. Menn eru raunverulega í
sömu sporum og fyrir 20 árum,
þegar MND var fyrst tengt breyt-
ingu í geni sem nefnt er SOD1.
Fyrir 10-15 árum voru gerðar
genarannsóknir hérlendis af Peter
Munch Andersen við háskólann í
Umeå, sem leiddu í ljós stökkbreyt-
ingu í þessu geni hjá nokkrum
MND-sjúklingum og nefnist hún
SOD1-G93S. Að auki fannst þessi
breyting hjá fólki með engin MND-
einkenni. Engar aðrar MND-
tengdar genabreytingar hafa verið
greindar hérlendis og auk Íslands
hefur SOD1-G93S einungis fundist í
Japan.
Það er til marks um áhugaleysi
stjórnvalda hér á MND-rann-
sóknum, að Svíarnir sem fundu
SOD1-G93S hafa enga hvatningu
fengið til að birta niðurstöður sínar.
Hérlendis liggja einnig ónotuð
tæki, sem gagnast gætu til að
greina SOD1-G93S. Þannig var
staða mála haustið 2013, þegar á
vegum félagsins „Alþjóðleg miðstöð
rannsókna á hreyfitaugasjúkdóm-
um“ (Miðstöðin) var
hafin rannsókn á erfða-
tengslum MND-
sjúklinga á Íslandi.
Vefsetur: http://
midstodin.blog.is/blog/
midstodin/.
Erlendis hafa menn
komist að þeirri stað-
reynd, að kynjahlutfall
fólks með MND er
mismunandi eftir því
hvort um er að ræða
tilfallandi MND eða
ættgengt. Hjá þeim
sem eru með tilfallandi
MND er kynja-hlutfallið allt að
60:40 (karlar:konur), en þegar um
er að ræða ættgengt MND er
kynjahlutfallið 50:50. Rannsókn
Miðstöðvarinnar leiddi í ljós að hér-
lendis er kynjahlutfallið nákvæm-
lega 50:50 og samkvæmt því er
MND á Íslandi arfgengur sjúkdóm-
ur.
Allir MND-sjúklingar á Íslandi
eiga sameiginlegan forföður
Rannsókn Miðstöðvarinnar leiddi
í ljós, að allir MND-sjúklingar á Ís-
landi eiga sameiginlegan forföður,
sem fæddist um 1500. Þar sem
breytingin SOD1-G93S er afar fá-
tíð, má ætla að allir þeir sem bera
breytta genið hafi fengið það í arf.
Við áframhaldandi rannsóknir
fékkst sú óvænta niðurstaða, að
báðir foreldrar nær allra
MND-sjúklinganna eru einnig af-
komendur sama ættföður.
Auk þess sem telja verður sann-
að, að MND á Íslandi er arfgengur
sjúkdómur, benda niðurstöðurnar
eindregið til þess að erfðamynstur
MND í landinu sé „víkjandi“. Þetta
er algjörlega á skjön við það sem
talið hefur verið, með hliðsjón af
niðurstöðum úr erlendum rann-
sóknum. Þessi niðurstaða hefur af-
gerandi áhrif við leit að MND-
genum. Jafnframt liggur fyrir að á
Íslandi eru einstakar aðstæður til
rannsókna á MND.
Leitað er eftir stuðningi lands-
manna við MND-rannsóknir
„Alþjóðleg miðstöð rannsókna á
hreyfitaugasjúkdómum“ er hug-
sjónafélag sem stofnað var 8. nóv-
ember 2012. Fram að þessu hafa
rannsóknir félagsins verið fjár-
magnaðar með framlögum ein-
staklinga, en bæði ríkisvaldið og
stærstu fyrirtæki landsins hafa
haldið að sér höndum. Framundan
eru kostnaðarsamar rannsóknir
sem ekki verður unnt að fjármagna
nema með öflugu átaki allra lands-
manna.
Víða um heim hefur „ískalt
sturtubað“ reynst fólki öflugur
hvati til að styðja MND-rannsóknir.
Við erum ekki á móti „ísköldu
sturtubaði“, en hvaða þvottavenjur
sem menn hafa tamið sér, treystum
við á stuðning landsmanna. Söfn-
unarreikningur MND-rannsókna
er: 0515-14-409909-561112.0960.
Rannsóknir sýna að
MND á Íslandi er arf-
gengur sjúkdómur
Eftir Loft Altice
Þorsteinsson
Loftur Altice
Þorsteinsson
» Auk þess sem telja
verður sannað, að
MND á Íslandi er arf-
gengur sjúkdómur,
benda niðurstöðurnar til
þess að erfðamynstur
MND í landinu sé „víkj-
andi“.
Höfundur er verkfræðingur og
stjórnarformaður Miðstöðvar MND-
rannsókna.
Aukablað
alla þriðjudaga