Morgunblaðið - 02.10.2014, Blaðsíða 35
Esju. Ég hætti svo hjá Hampiðj-
unni árið 2002.“
Unnur sinnir nú heimilisstörfum
en er auk þess stoð og stytta eigin-
manns síns, Odds Helgasonar ævi-
skrárritara sem fer fyrir ORG ætt-
fræðiþjónustunni. Reyndar segir
Oddur að eiginkonan sé kletturinn á
bak við sig og þar með ORG: „Ég
stæði nú líklega ekki í þessu án
hennar aðstoðar á ýmsum svið-
um…“ segir hann.
Núna segist Unnur dunda sér við
lestur og útsaum þegar heimilis-
störfunum sleppir: „Ég hef alltaf les-
ið töluvert og haft gaman af hann-
yrðum. Ég hef saumað mikið út á
undanförnum árum en hóf samt ekki
útsaum fyrir alvöru fyrr en 1989.
Þessi áhugamál okkar hjónanna,
ættfræðin og útsaumurinn, hafa
nýst okkur ágætlega til tækifæris-
gjafa til vina og vandamanna. Það er
ekki ónýtt að fá útsaum í afmælis-
gjöf, eða ættartölu frá Oddi.“
Unnur hefur verið félagi í Mál-
björg, félagi þeirra sem stama: „Ég
var einn af stofnendum félagsins og
hef ætíð haldið tryggð við það, mæti
t.d. oft á ráðstefnur þar og fundi.“
Unnur kynntist Oddi manni sínum
1989 í Reykjavík. Þau voru lengi
kunningjar en tóku saman um 1992.
Þau gengu í hjónaband þegar sr.
Björn Helgi Jónsson, prestur og
fornbókasali, gaf þau saman á heim-
ili þeirra 29.12. 1996.
Fjölskylda
Eiginmaður Unnar er Oddur
Friðrik Helgason „spekingur“, f. á
Akureyri 29.11. 1941, sjómaður og
æviskrárritari. Foreldrar hans voru
Helgi Friðrik Helgason, f. í Tungu í
Reykjavík, 22.7. 1912, d. 2.6. 1945,
fórst með e.s. Panama við austur-
strönd Englands, sjómaður í
Reykjavík, bifreiðarstjóri á Akur-
eyri, síðar sjómaður, og Sigurlína
Pálsdóttir, f. á Vatnsenda í Saur-
bæjarhreppi 29.8. 1920, d. 30.9. 1995,
verkakona á Akureyri.
Sonur Unnar er Sigurþór Dan, f. í
Reykjavík 11.1. 1972, bifreiðarstjóri
í Mosfellsbæ.
Alsystkini Unnar eru Daníel Jak-
ob Pálsson, f. 3.5. 1953, vélstjóri og
atvinnurekandi í Kópavogi, og Ólöf
Gerður Pálsdóttir, f. 2.10. 1954, hús-
freyja í Ólafsvík og síðar í Reykja-
vík.
Hálfbróðir Unnar er Þórir Ás-
valdur Roff, f. 15.3. 1940, sölustjóri í
San Jose í Kaliforníu og síðar djass-
tónlistarmaður í Reykjavík.
Foreldrar Unnar voru Páll Jakob
Daníelsson, f. í Reykjavík 16.11.
1915, d. 12.6. 2000, járnsmiður í
Reykjavík, og k.h., Þorbjörg Jakobs-
dóttir, f. á Hamri á Barðaströnd
15.2. 1931, d. 26.10. 1995, húsfreyja
og saumakona í Reykjavík.
Úr frændgarði Unnar Bjargar Pálsdóttur
Unnur
Björg
Pálsdóttir
Jóna Guðmundsdóttir
húsfr. í Krossdalsfirði og
á Hamri
Páll Guðmundsson
b. í Krossdalsfirði í
Arnarfirði og á Hamri
Ólöf Pálsdóttir
húsfr. á Hamri
Jakob Jakobsson
b. á Hamri á Barðaströnd
Þorbjörg Jakobsdóttir
húsfr. og saumakona í Rvík
Auðbjörg Magnúsdóttir
húsfr. á Bíldudal
Ólafur Jakob Jónatansson
trésmiður á Bíldudal
Björn Jón
Bragason
sagnfr. og
rithöfundur
í Rvík
Páll Jakobsson
fyrrv. b. á Hamri á
Barðaströnd
Hákonía Jóhanna
Pálsdóttir
húsfr. í Stóra-Laugardal í
Tálknafirði
Páll Guðlaugsson
vélstj. á Brekku
í Tálknafirði og
í Rvík
Ólöf Sigríður
Pálsdóttir
húsfr. á Breiðalæk
á Barðaströnd
Katrín
Arnbjörg
Magnúsd.
bókari í
Rvík
Magnús
Daníelsson
húsgagna-
smíðam.
í Rvík
Gunnhildur Gísladóttir
húsfr. á Gerðum og ráðsk. á Kambi
Sigmundur
Jóhannsson
b. á Kambi í
Flóa
Arnbjörg Sigmundsdóttir
húsfr. í Rvík
Daníel Jóhann Daníelsson
verkam. í Rvík
Páll Jakob Daníelsson
járnsmiður í Rvík
Guðrún
Hectorsdóttir
vinnuk. á
Sellátrum
Daníel Jóhann Schutsen
sjóm. í Bergen í Noregi
Ingveldur
Ámundadóttir
húsfr. í
Hraungerði,
Súluholtshjáleigu
og í Rvík
Sigmundur
Ámundason
b. á Kambi og
víðar í Flóa
Hulda
Hjörleifsdóttir
húsfr. í Rvík
Svavar Sigmunds.
íslenskufr. og
fyrrv. forstöðum.
Örnefnastofunnar
Brynjólfur
Ámundason
múrarameistari
og ættfr. í Rvík
Ámundi
Ámundason
b. á Kambi
Hjörleifur
Sveinbjörnsson
þýðandi
Árný Erla
Sveinbjörnsdóttir
jarðfræðingur
Ámundi
Sigmundsson
b. á Kambi í
Flóa
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014
85 ára
Jón Páll Halldórsson
Soffía S. Haraldsdóttir
Þórarinn Brynjar Þórðarson
80 ára
Ellen Helga
Guðmundsdóttir
75 ára
Hallgrímur Daníelsson
Jóhanna Aðalsteinsdóttir
Sesselja Jónsdóttir
Sigurður Sigurðarson
Stella Björgvinsdóttir
Valmundur Eggertsson
70 ára
Andrea Sigurðardóttir
Ármann Þórir Björnsson
Kristbjörg Kjartansdóttir
Stefán P. Sveinsson
Stella Guðrún
Bæringsdóttir
Vignir Jónsson
60 ára
Aðalheiður María
Karlsdóttir
Birgir Finnbogason
Friðgeir Börkur Hansen
Hildur Pálsdóttir
Hólmfríður I.
Guðmundsdóttir
Hrönn Ágústsdóttir
Margrét Kristinsdóttir
Ólöf Gerður Pálsdóttir
50 ára
Bozena Regina Jaskot
Cornelia Chelaru
Guðfinnur Már Árnason
Ingvar Kristjánsson
Margrét María
Sigurðardóttir
María Pálsdóttir
Miroslaw Walejko
Phillip Andrew Hunter
Þórarinn Jóhann
Kristjánsson
Þórður Þórðarson
Örn Erlingsson
40 ára
Aneta Teresa Jung
Anney Þórunn
Þorvaldsdóttir
Auður Björnsdóttir
Ásdís Gunnarsdóttir
Halldór Breiðfjörð
Jóhannsson
Herdís Anna Þorvaldsdóttir
Hólmgeir Austfjörð
Jaroslaw Drozyner
Kjartan Arnar Geirdal
Einarsson
Magnús Ingberg Gíslason
Margrét Arnardóttir
Ólafur Jens Sigurðsson
Sigrún Herdís Arndal
Smári Hrólfsson
30 ára
Eiríkur Simonsen
Halldór Guðjón Magnússon
Helga Júlía Vilhjálmsdóttir
Jurate Vilkaite Barcelos
Pétur Guðmundsson
Valur Hermannsson
Til hamingju með daginn
30 ára Flosi býr á Akra-
nesi, lauk sveinsprófi í bif-
vélavirkjun og er leið-
sögumaður hjá Discover
Iceland.
Maki: Elísabet Rut Heim-
isdóttir, f. 1984, leikskóla-
kennari.
Dætur: Agnes Mist, f.
2006, og Aníta Sif, f.
2008.
Foreldrar: Unnur Sigurð-
ardóttir, f. 1955, og Páll
Halldór Sigvaldason, f.
1959.
Flosi
Pálsson
30 ára Auður ólst upp í
Reykjavík, hefur alltaf ver-
ið þar búsett, lauk förð-
unarprófi frá No Name og
stundar nú nám á tann-
tæknabraut í Fjölbrauta-
skólanum við Ármúla.
Unnusti: Birgir Ólafur
Guðlaugsson, f. 1986,
starfsmaður hjá Sorpu.
Dóttir: Nadía Ósk, f. 2011.
Foreldrar: Ingibjörg Guð-
mundsdóttir, f. 1967, og
Vilhjálmur Páll Bjarnason,
f. 1962.
Auður
Vilhjálmsdóttir
30 ára Bjarki ólst upp á
Akranesi, býr í Reykjavík
og stundar nám við HÍ.
Maki: Þóra Björg Ingva-
dóttir, f. 1992, nemi í lyfja-
fræði við HÍ.
Foreldrar: Guðmundur
Skúlason, f. 1959, útgerð-
armaður og skipstjóri á
Akranesi, og Guðrún Ís-
leifsdóttir, f. 1958, d.
2014, húsfreyja og sjúkra-
liði.
Bjarki verður í París á af-
mælisdaginn.
Bjarki Þór
Guðmundsson
Sigurgeir Guðjónsson hefur varið dokt-
orsritgerð sína við sagnfræði- og heim-
spekideild Háskóla Íslands. Ritgerðin
ber heitið Aðbúnaður geðveikra á Ís-
landi og umbætur yfirvalda fyrir daga
geðspítala. Leiðbeinandi Sigurgeirs var
dr. Guðmundur Jónsson, prófessor í
sagnfræði. Í doktorsnefnd voru ásamt
leiðbeinanda dr. Ólöf Garðarsdóttir,
prófessor á Menntavísindasviði Há-
skóla Íslands, og dr. Óttar Guðmunds-
son, geðlæknir á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi.
Í doktorsrannsókn Sigurgeirs er
varpað ljósi á lífsskilyrði geðveiks fólks,
opinbera stefnu í geðheilbrigðismálum
og viðleitni lækna og stjórnvalda til að
bæta hag geðsjúkra.
Rannsóknin teygir sig aftur til 18.
aldar og lýkur um 1907 þegar fyrsti
geðspítalinn á Íslandi tekur til starfa. Í
rannsókninni er gerð lýðfræðileg grein-
ing á geðsjúkum, byggð á manntölum
og skyldum heimildum. Einnig eru
kannaðar hugmyndir alþýðu og lækna
um geðveiki á fyrri öldum og hvernig
reynt var að meðhöndla geðsjúkt fólk.
Efnið er skoðað út frá sjónarhóli svo-
kallaðra síðendurskoðunarsinna í geð-
heilbrigðissögu
sem leggja áherslu
á að samskipti yf-
irvalda og lækna
við aðstandendur
og nágranna þeirra
geðveiku hafi skipt
miklu þegar reynt
var að leysa vanda
viðkomandi.
Rannsóknin sýnir að umbóta-
hugmyndir í geðheilbrigðismálum komu
einatt frá Danmörku. Jafnframt er lögð
áhersla á að sýna hvernig umbæturnar
komu að „ofan“, frá yfirvöldum og emb-
ættismönnum og hvernig fyrrnefndir að-
ilar leituðu eftir samvinnu í félagslegu
umhverfi þess geðveika þegar reynt var
að meta hvað gera skyldi í málum við-
komandi. Það var einkum tvennt sem
mótaði þetta verklag. Annars vegar hug-
myndir um mannúð og skyldur sam-
félagsins til að huga að þeim sem minna
máttu sín. Hins vegar reyndu yfirvöld að
halda uppi reglufestu og sjá til þess að
þegnarnir yrðu fyrir sem minnstu ónæði
frá geðveikum og öðrum þeim sem áttu
erfitt með að lifa við reglur og almennar
venjur.
Doktor í sagnfræði
Sigurgeir Guðjónsson fæddist árið 1965. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri árið 1985, BA-prófi í sagnfræði frá Háskóla Íslands árið 1991
og MA-prófi frá sama skóla árið 1996. Sigurgeir lauk prófi í kennslufræðum til
kennsluréttinda frá Háskólanum á Akureyri árið 1999. Á árunum 1998-2009
kenndi hann félagsgreinar við Framhaldsskólann í Austur-Skaftafellssýslu á Höfn
í Hornafirði. Foreldrar Sigurgeirs eru Erla Þórhildur Sigurjónsdóttir og Guðjón
Ingvar Sigurgeirsson. Þessi misserin skrifar hann skóla-, stéttar- og atvinnu-
sögu vélstjóra á Íslandi.
Doktor
Hægt er að senda
mynd og texta af
nýjum borgara eða
brúðhjónum af slóðinni
mbl.is/islendingar
eða á netfangið
islendingar@mbl.is
Börn og
brúðhjón
HB-System
ABUS kranar í öll verk
Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.is
Stoðkranar Brúkranar
Sveiflukranar