Morgunblaðið - 02.10.2014, Side 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. OKTÓBER 2014
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Palme, fjórða hljóðversskífa Ólafar
Arnalds, kom út 29. september sl.
á vegum ensku plötuútgáfunnar
One Little Indian. Plötuna gerði
Ólöf í samstarfi við tónlistarmenn-
ina Skúla Sverrisson og Gunnar
Örn Tynes og er hljóðheimurinn
töluvert frábrugðinn þeim sem ein-
kennir fyrri plötur hennar, Við og
við (2007), Inn-
undir skinni
(2009) og Sud-
den Elevation
(2013). Platan
hefur að
geyma lög eft-
ir Ólöfu frá
ýmsum tímum.
Það elsta, „Half Steady“, samdi
hún á táningsaldri.
Með tilkomu Gunnars Arnar
hefur tónlist Ólafar tekið á sig raf-
skotnari blæ. „Þetta er í fyrsta
skipti sem ég fer inn í þennan
„digital“ heim,“ segir Ólöf.
Önnur aðferð
Útsetningar laganna eru býsna
fjölbreyttar, í einu þeirra, „Def-
ining Gender“, er t.d. bossa nova
hrynjandi og í öðrum leiðir raf-
tónlistin, m.a. í „Hypnose“.
„Sum lögin eru lög sem ég er
búin að eiga mjög lengi en var ekki
búin að finna farveg fyrir þau,“
segir Ólöf, hæstánægð með að hafa
fundið þeim farveg.
– Ber platan þess keim að lögin
eru misgömul?
„Nei, ég myndi nú ekki segja að
hún gerði það frekar en aðrar plöt-
ur sem ég hef gert. Ég er alltaf að
vinna með eitthvað sem er glænýtt
í hausnum og annað sem ég er bú-
in að ganga með miklu lengur. Það
sem er skemmtilegast við þessa
plötu var hvað þetta var náið sam-
starf. Að því leytinu til er hún
plata sem mig hefur alltaf langað
til að gera og svona „intensíf“
vinna í afmarkaðan tíma. Ég hef
alltaf farið meira inn og út úr stúd-
íói, þetta var markvissara,“ segir
Ólöf.
– Þetta er í fyrsta sinn sem þú
skrifar lögin, flytur þau og hljóð-
ritar á sama tíma. Hvers vegna
valdirðu þá aðferð núna?
„Ég veit það ekki, þetta er ein-
hver spennufíkn,“ segir Ólöf og
hlær, „að setja mig í stöðu þar sem
ég er að vinna mjög hratt.“ Spurð
að því hvort slík pressa sé henni
nauðsynleg í listsköpuninni segir
Ólöf svo ekki vera. „Það er bara
mismunandi, ég var bara í þannig
stuði núna,“ segir hún.
– Þú hefur starfað áður með
Skúla og haldið fjölda tónleika með
honum. Þú hefur líka starfað með
fleiri tónlistarmönnum, m.a. Björk.
Er slíkt samstarf nauðsynlegt til
að uppgötva eitthvað nýtt?
„Það er náttúrlega ekkert gam-
an að gera hlutina einn. Í raun og
veru er þessi plata mesta sam-
starfsplata sem ég hef gert, ég er
yfirleitt mjög akkúrat og get verið
svolítið einstrengingsleg með það
hvernig allt á að vera, þarf alltaf
að ráða öllu. Í þessu ferli þurfti ég
mikið að gefa eftir þannig að það
sem virkaði best fengi að standa
upp úr,“ segir Ólöf.
Spurð að því hvort samstarfið
hafi verið átakalaust segist Ólöf
halda að það gerist sjaldan neitt
gott í listum nema einhver smá-
vægileg átök eigi sér stað. „Þá er
einhver hreyfing. Ef allir eru alltaf
sammála verður það meira miðju-
moð.“
Ólöf segir það skemmtilegt að
þau Skúli og Gunnar hafi sérhæft
sig hvert með sínum hætti í tónlist
en eigi líka margt sameiginlegt
þegar komi að ástríðunni fyrir
henni. „Í tilviki Skúla myndi ég
segja að okkar fagurfræði hafi allt-
af verið svolítið samtvinnuð, við er-
um búin að gera svo mörg verk
saman,“ segir Ólöf. Gunnar sé hið
sk. „wild card“ í þríeykinu, óvissu-
þátturinn.
Olof Palme
– Nú heitir platan Palme, líkt og
eitt lagið á plötunni. Hver er þessi
Palme?
„Palme er náttúrlega bara Olof
Palme (fyrrverandi forsætisráð-
herra Svíþjóðar sem skotinn var til
bana árið 1986, innskot blaða-
manns). Þetta er eiginlega bara
grín því ég heiti Ólöf. Ég er nú
þegar með einn nafnarugling með
honum Ólafi Arnalds, frænda mín-
um, þannig að þetta er bara húm-
or, að bæta við öðrum nafnarugl-
ingi í mixið,“ segir Ólöf.
En er þá sungið um Palme í lag-
inu „Palme“? Nei, ekki segir Ólöf.
Hún fylgi þeirri vinnureglu að láta
eitt lag á hverri plötu heita sama
nafni og platan. Hún hafi einfald-
lega gefið laginu þennan titil svo
platan gæti heitið Palme. „Mér
þótti það fyndið,“ segir Ólöf sposk.
Palme verður dreift um helstu
markaðssvæði Evrópu og Banda-
ríkjanna, að sögn Ólafar og til að
fylgja plötunni eftir lagði hún af
stað í tónleikaferð með Skúla
Sverrissyni um liðna helgi. Fyrstu
tónleikarnir fóru fram í Brighton á
Englandi á sunnudaginn var og
þeir seinustu verða haldnir 1. des-
ember í Brussel. „Ég hef ekki túr-
að mikið síðustu tvö árin og er
mjög til í að fara aftur af stað.
Þetta er mín ástríða,“ segir Ólöf.
Að lokum getur Ólöf hóp-
fjármögnunar fyrir tónleikaferðina
sem hún stendur fyrir á vefnum
Pledge Music (www.pledgemu-
sic.com/artists/olofarnalds). Þar
getur fólk keypt plötuna áritaða og
ýmsan annan varning, t.d. VIP-
tónleikamiða.
Draumaplatan Palme
Fjórða plata Ólafar Arnalds er hennar mesta samstarfsverkefni til þessa og platan sem hana hefur
alltaf langað að gera „Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer inn í þennan „digital“ heim,“ segir Ólöf
Morgunblaðið/Ómar
Nafnaruglingur „Þetta er eiginlega bara grín því ég heiti Ólöf,“ segir Ólöf um titil plötunnar sem vísar í nafn Olofs
Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Fólk á það til að ruglast á Ólöfu og frænda hennar, Ólafi Arnalds.
Heimasíða Ólafar: olofarnalds.com
„Jón Kalman – Í fótspor stráksins“
er heiti námskeiðs sem Ingi Björn
Guðnason bókmenntafræðingur
heldur í Gerðubergi á laugardag, 4.
október, kl. 13 til 17. Námskeiðið er
haldið í tengslum við væntanlegt
Ritþing um líf og feril Jóns Kalmans
25. október næstkomandi.
Námskeiðið er ætlað áhugasöm-
um lesendum en umfjöllunarefnið
verða bækurnar Himnaríki og hel-
víti, Harmur englanna og Hjarta
mannsins sem saman mynda þríleik
sem notið hefur mikillar hylli á með-
al lesenda.
Sögusvið bókanna er íslensk sjáv-
arbyggð undir lok 19. aldar á þeim
árum þegar stórtækar breytingar
áttu sér stað bæði í atvinnuháttum
og hugarheimi fólks. Á námskeiðinu
verður sjónum meðal annars beint
að sögusviði og samfélagsmynd
verkanna, ólíkum aðstæðum alþýðu
og borgarastéttar og stöðu
kynjanna. Þá verður einnig hugað að
öðrum verkum Jóns Kalmans, m.a. í
tengslum við aðalpersónu þríleiks-
ins, strákinn, og tengslum hans við
aðra stráka sem birtast í verkum
höfundarins. Fleira kann að bera á
góma svo sem frásagnarháttur, hlut-
verk sendibréfa og máttur orðanna.
Ingi Björn hefur rannsakað verk
Jóns Kalmans og skrifað um hann.
Morgunblaðið/RAX
Höfundurinn Fjallað er um verk Jóns Kalmans á Ritþingi og námskeiði.
Heldur námskeið um
þríleik Jóns Kalman