Morgunblaðið - 08.10.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Viðkvæm staða er komin upp á
vinnumarkaði sem kallar á að aðilar
vinnumarkaðarins og fulltrúar rík-
isstjórnarinnar leiti leiða til að lægja
öldurnar í aðdraganda kjarasamn-
inga. Viðræður um sérkjaraliði eru
liður í þeirri sáttaumleitan.
Þetta segir Þorsteinn Víglunds-
son, framkvæmdastjóri Samtaka at-
vinnulífsins, aðspurður hvernig sam-
tökin hyggjast bregðast við þeirri
ólgu sem upp er komin meðal aðild-
arfélaga Alþýðusambands Íslands.
„Ég held að það sé fullt tilefni til
þess að menn skoði hvernig við tök-
umst á við þessa stöðu. Því þessi
ólga getur á endanum leitt til þess að
við glutrum niður þeim mikla ávinn-
ingi sem náðst hefur. Markmið
kjarasamningsins í fyrra náðust.“
Kaupmáttur hefur aukist
„Við erum með litla verðbólgu og
mikla kaupmáttaraukningu, en engu
að síður mjög mikla ólgu innan
verkalýðshreyfingarinnar. Á þeim
vanda verður að taka án þess að
stefna stöðugleikanum í hættu. Því
horfum við til þess með hvaða hætti
við skipuleggjum okkar kjaravið-
ræður til að taka á þeim áskorunum
sem við stöndum frammi fyrir, en
um leið verjum þann árangur sem
þegar hefur náðst.“
– Hefur ákvörðun verið tekin um
að flýta viðræðum um launaliðinn?
„Nei. Við höfum hins vegar rætt
mikilvægi þess að menn setjist yfir
stóru myndina. Þrátt fyrir að margt
hafi tekist vel við gerð síðustu kjara-
samninga stöndum við einnig
frammi fyrir óánægju með launaþró-
un einstakra hópa. Það er kunnug-
legt vandamál á íslenskum vinnu-
markaði og ljóst að til að ráða þar
bót á verða aðilar á almennum og
opinberum vinnumarkaði að móta
skýrari leikreglur við gerð kjara-
samninga. Að sama skapi er afar
mikilvægt að við náum betur utan
um samspil ríkisfjármála, peninga-
stefnu og vinnumarkaðar, en þessir
þrír þættir eru hornsteinar efna-
hagslegs stöðugleika. Þetta kallar á
betra samstarf við stjórnvöld.“
Forsenda lengri samninga
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segir aðildarfélög sambandsins gera
þá kröfu að misræmi í síðustu launa-
hækkun félagsmanna ASÍ og BSRB
annars vegar og hjá öðrum hópum
hins vegar „verði leiðrétt“. Það sé
forsenda þess að hægt sé að lægja
þá miklu ólgu sem ríki innan ASÍ og
geti haft „afgerandi áhrif á viðræður
um nýja kjarasamninga“.
„Aðildarfélögin eru að undirbúa
næstu kjarasamninga. Það er ljóst
að það sem gerðist hér á vinnumark-
aði sl. vor hefur áhrif á þann undir-
búning. Fólk upplifir misskiptingu,
að menn hafi ekki staðið jafnt að
vígi.
Ef það tekst að lægja þá ólgu
verður meira svigrúm til að ræða
framtíðina undir öðrum formerkjum
en nú stefnir í að verði gert. Eftir að
ASÍ og BSRB sömdu sl. vetur var
mótuð önnur launastefna.
Það er auðvitað mikil reiði yfir því
að það hafi gerst. Þetta hófst með
kennurum og háskólamönnum hjá
ríki og sveitarfélögum og síðan sáum
við miklar hækkanir stjórnenda sl.
sumar. Ef menn vilja freista þess að
koma undirbúningi kjarasamninga í
annan farveg er nú tækifæri til að
rétta þann hlut. Á þeim grunni má
nálgast samráð um framtíðina.“
Brothætt staða á vinnumarkaði
Samtök atvinnulífsins kalla eftir sáttaumleitan til að lægja öldur innan verkalýðshreyfingarinnar
Forseti ASÍ segir „leiðréttingu“ launa hjá félagsmönnum ASÍ og BSRB forsendu lengri samninga
Þorsteinn
Víglundsson
Gylfi
Arnbjörnsson
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Seldar voru rúmlega 1.636 þúsund
gistinætur á hótelum á fyrstu átta
mánuðum ársins og er það um 11,3%
aukning milli ára. Seldum nóttum á
tímabilinu hefur fjölgað um 67% síð-
an 2009, þegar seldar nætur voru
tæplega 980 þúsund, eins og sýnt er
hér til hliðar.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
Hagstofu Íslands yfir seldar nætur á
hótelum sem eru opin allt árið.
Sé eingöngu horft til seldra gisti-
nátta til útlendinga á tímabilinu frá
janúar til ágúst kemur í ljós að þeim
hefur fjölgað úr 801,4 þúsund árið
2009 í tæplega 1.411 þúsund árið
2014, eða um 76%. Aukningin milli
áranna 2013 og 2014 er 12,9%.
Á vef Ferðamálastofu er að finna
tölfræði yfir fjölda erlendra gesta
sem fara um Keflavíkurflugvöll.
Samkvæmt þeim tölum komu
hingað rúmlega 353 þúsund ferða-
menn á fyrstu átta mánuðum ársins
2009, borið saman við 699,8 þúsund
þessa sömu mánuði í ár. Það sam-
svarar 98,2% aukningu.
Fjölgaði um 23,4%
Jafnframt fjölgaði erlendum
ferðamönnum sem komu til landsins
frá janúar til ágúst um 23,4% milli
ára, fóru úr 566,8 þús. í 699,8 þús.
Í báðum tilfellum er um að ræða
meiri aukningu en kemur fram í
seldum gistinóttum. Það er vísbend-
ing um að hluti ferðamanna sæki í
óskráða gistingu. Tekið skal fram að
hér er aðeins horft til flugfarþega.
Ætla má að hluti ferðamanna
kaupi sér gistingu á stöðum sem eru
ekki opnir allt árið en halda skrár yf-
ir viðskiptin. Slík gisting er ekki
höfð með í tölum Hagstofu Íslands.
Seldum gistinóttum fjölgar
hægar en ferðamönnum
Seldar nætur
eru 67% fleiri í ár
en árið 2009
Hér eru eingöngu hótel
sem eru opin allt árið.
0
Heimild:
Hagstofa
Íslands
1,
8
m
ill
jó
ni
r
20
09
97
8.
86
1
96
5.
99
1
1.
0
85
.4
73
1.
29
0.
0
63
1.
47
0.
4
4
5
1.
63
6.
0
20
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
*
Gistinætur á hótel-
um 2009-2014*
janúar til ágúst
Brennisteinstvíildi frá eldgosinu í
Holuhrauni berst suðvestur frá eld-
stöðinni í dag samkvæmt spá Veð-
urstofunnar. Áttin lá einnig til vest-
urs og suðvesturs í gær en ekki
mátti merkja mikinn styrk brenni-
steins í loftgæðamælistöðvum í
Reykjavík eða á Grundartanga.
Skv. upplýsingum landlæknis
hafa engin alvarleg tilfelli verið til-
kynnt til heilbrigðisyfirvalda vegna
gassins frá því gosið hófst að því er
segir á vef Almannavarna.
Gosið heldur áfram af sambæri-
legum styrk og áður. Frá miðnætti
til kl. 19 í gærkvöldi höfðu fjörutíu
jarðskjálftar mælst í öskju Bárð-
arbungu. Stærsti skjálftinn var af
stærðinni 5,5 í suðausturhluta
hennar kl. 10.22. Annar jarðskjálfti
af stærðinni 5 reið yfir í norðvest-
urhluta öskjunnar á fjórða tím-
anum í fyrrinótt.
Áfram líkur á að gas
dreifist yfir SV-land
Kort/Veðurstofa Íslands
Spá Bleika svæðið sýnir dreifingu gassins.
Stórhöfða 21 | sími 545 5500 | flis.is
Hágæða flísar frá Ítalíu
60 x 60 cm
Í hlýju veðri eins og hefur verið á landinu síðustu
tvo daga er oft gott að fá sér eitthvað létt og
ferskt í matinn. Þessir viðskiptavinir Frú Laugu
Hitastigið á að vera um 8-13 gráður í borginni
í dag. Ekki á þó að vera framhald á hlýindunum
en Veðurstofan spáir svo hægt kólnandi veðri.
í Laugarnesi voru að minnsta kosti á þeim bux-
unum og voru í óða önn að velja sér grænmeti
þegar ljósmyndara bar að garði.
Grænmetiskaup í óvæntum hausthlýindum
Morgunblaðið/Árni Sæberg