Morgunblaðið - 08.10.2014, Síða 11
Morgunblaðið/Kristinn
Þjálfari Dagný Dís Magnúsdóttir, fitkid-þjálfari og dómari, kolféll fyrir íþróttinni fyrir fjórum árum.
Fitkid kom til Íslands með for-
manni Fitkid á Íslandi, Krisztinu
Agueda, árið 2007, en hún er ung-
versk. Í dag eru að jafnaði um 50 iðk-
endur á Íslandi eins og síðustu ár.
Hægt er að æfa fitkid á þremur stöð-
um; í Fimleikafélaginu Björk í Hafn-
arfirði, í Árbæjarþreki í Árbæ og í
Hreyfilandi á Seltjarnarnesi.
Ekki auðvelt að kynna nýja
íþróttagrein til leiks
„Það er ekki auðvelt að koma inn
með nýja íþróttagrein og það tekur
tíma að byggja hana upp.“ Dagný Dís
segist ánægð með árangurinn sem
hafi náðst. Öflugir foreldrar hafi stutt
dyggilega við félagið og sitji í stjórn
þess.
Spurð út í framtíðaráformin seg-
ir hún markmiðið vera að stækka
hægt og rólega. Þá skiptir miklu máli
að vera með vel menntaða, góða og
öfluga þjálfara. „Vonandi verðum við
á fleiri stöðum í framtíðinni þegar
fleiri kennarar hafa slegist í hópinn.“
Dagný Dís kynntist íþróttinni
árið 2010, tveimur árum seinna var
hún dómari á Evrópumótinu í Ung-
verjalandi. Hún hefur stundað íþóttir
frá barnæsku og æfði m.a. fimleika,
ballett, dans og listskauta.
Þar sem íþróttin nýtur vinsælda
í heimalandinu Ungverjalandi mætir
fjöldi ungverskra fjölmiðla til lands-
ins. Von er á 500 erlendum gestum til
landsins. Í heildina eru 240 kepp-
endur skráðir í fitkid, þar af um 11 ís-
lenskir og 25 í hópkeppni.
Keppt er í flokkum eftir aldri og
getu og er skipt niður í A-, B- og C-
flokk.
Krakkarnir velja sér búninga og
mega auk þess vera með hluti sem
þau nota í keppnina. Andlitsmálning
er einnig mikið notuð þar sem hvers
kyns fígúrur verða oftar en ekki fyrir
valinu.
Um helgina verður ekki ein-
göngu keppti í fitkit heldur verður
einnig danskeppni sem er nýr dag-
skrárliður í Evrópumótinu. Marg-
verðlaunaður dansflokkur frá Ung-
verjalandi mætir til leiks, einnig
íslenskir dansflokkar, t.d. Rebel og
frá Listdansskóla Hafnarfjarðar.
Í tengslum við Evrópumótið í
fitkid verða fjölskyldu- og heilsudag-
ar í Vondafonehöllinni 11. til 12. októ-
ber.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Brynjólfur Þorkelsson
Framkvæmdastjóri
binni@remax.is
Sylvía Walthers
Löggiltur fasteignasali
sylvia@remax.is
Vilt þú vita hvers
virði eignin þín
er í dag?
Pantaðu frítt söluverðmat
án skuldbindinga!
„...veittu mér framúrskarandi
þjónustu í alla staði,
mæli hiklaust með þeim!“
Katrín
Skeifunni 17
HRINGDU NÚNA
820 8080
Stine H. Bang Svendsen, doktor í
þverfaglegum menningarfræðum,
kynnir rannsókn á fjölmiðlaskrifum
norskra rithöfunda um hryðjuverkin,
og þá „hvítu melankólíu“ og ras-
isma sem kom í ljós í norskri sam-
félagsorðræðu strax í kjölfar hroð-
ans.
Fyrirlesturinn fer fram á ensku í
Háskóla Íslands í stofu 201 í Lög-
bergi klukkan 12 til 13 á dag.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá
Jafnréttisdaga sem haldnir eru
sjötta árið í röð í Háskóla Íslands.
Allir fyrirlestrarnir eru ókeypis en
Jafnréttisdögum lýkur 17. október.
Ræðir fjölmiðlaskrif norskra rithöfunda eftir hryðjuverkin
Ósló Norðmaðurinn Stine Bang Svendsen heldur fyrirlestur á Jafnréttisdögum.
„Hvít melankólía“ og rasismi
Foreldranámskeiðið PMT - foreldra-
færni verður á dagskrá á morgun kl.
17-19 í sal B í Menningarmiðstöðinni
í Gerðubergi. Námskeiðið er á veg-
um Þjónustumiðstöðvar Breiðholts.
PMT stendur fyrir „Parent Man-
agement Training“ og er uppeldis-
aðferð ætluð foreldrum barna á
leik- og grunnskólaaldri. Kynnt
verða helstu verkfæri PMT, s.s. skýr
fyrirmæli, hvatning, mörk, eftirlit
og tilfinningastjórn. Aðgangur
ókeypis.
Fyrir foreldra sem eiga börn á leik- og grunnskólaaldri
Morgunblaðið/Ómar
Börn Það þarf víst að ala þau upp.
Foreldranámskeið í færni