Morgunblaðið - 08.10.2014, Page 13
Flugslysaæfing fór fram á Bíldudalsflugvelli sl. laugardag og voru allir við-
bragðsaðilar á Bíldudal, Tálknafirði og Patreksfirði boðaðir til aðgerða. Í
nágrenni vallarins var búinn til slysavettvangur þar sem æfð voru viðbrögð
við flugslysi, þátttakendum sem léku slasaða var dreift um svæðið og verk-
efni slökkviliðs, björgunarsveita, Rauðakrossfólks, lögreglu og heilbrigðis-
fólks var að bjarga fólki. Alls komu hátt í 100 manns að æfingunni.
Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson
Æfðu viðbrögðin
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Ekki er ástæða til þess að leggjast
gegn fyrirætlunum um vegagerð um
Teigsskóg í Þorskafirði. Aðeins um
1% skógarins fer undir veg sam-
kvæmt nýrri tillögu um vegstæði
sem Vegagerðin hefur lagt fram.
Skaði er því óverulegur. Þetta segir í
ályktun sem Skógræktarfélag Ís-
lands og skógræktarfélög á Vest-
fjörðum sendu frá sér nýlega.
Segja má að þar kveði við nýjan
tón í umræðu um Teigsskóg. fyrir-
hugaðar framkvæmdir þar hafa
lengi verið á dagskrá en hafa hvorki
fengið grænt ljós hjá skipulags-
yfirvöldum né dómstólum. Þá hafa
umhverfissamtök verið á móti.
„Álit skógræktarmanna styður
okkar sjónarmið. Nýlega kynntum
við hugmyndir um nýja veglínu um
Teigsskóg þar sem tekið er eins mik-
ið tillit til skógarins og er unnt. Til-
lagan á að okkar mati að brúa ólík
sjónarmið. Skipulagsstofnun hefur
hafnað því að veglínan fari í mat á
umhverfisáhrifum ólíkt því sem á við
um aðrar veglínur sem við höfum
lagt fram. Sú niðurstaða Skipulags-
stofnunar verður kærð til úrskurð-
arnefndar og fleiri leiðir til lausna
einnig skoðaðar. Við höfum vænt-
ingar um að með þessari veglínu
skapist grundvöllur til þess að þoka
málinu áfram,“ segir G. Pétur Matt-
híasson, upplýsingafulltrúi Vega-
gerðarinnar.
„Skipulagsstofnun telur að um
sömu framkvæmd sé að ræða en við
metum það svo að breyting veg-
línunnar um Teigsskóg sé ný fram-
kvæmd sem eigi að fara í mat á um-
hverfisáhrifum.“
Jafnstórt svæði ræktað upp
Í ályktun skógræktarfélaganna
segir að skerðingu birkis í Teigs-
skógi fylgi að rækta verði á nær-
liggjandi svæðum jafnstóran skóg.
Þá er bent á að unnið hafi verið að
vegabótum í Barðastrandarsýslum
að undanförnu. Vegna þeirra hafi
þurft að ryðja út 5 hektara skóg-
lendi, litlu minna en gera þurfi í
Teigsskógi. Engin rök hnígi því til
þess að fáeinir hektarar af birki í
Teigsskógi skuli vera farartálmi
nauðsynlegum vegabótum.
Birkið ekki talið
vera farartálmi
Vegur um Teigsskóg er talinn í lagi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Slóði Þrýst er á um að leggja góðan veg um Teigsskóg vestra.