Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 E-60 Bekkur Verð frá kr. 59.000 Fáanlegur í mismunandi lengdum. Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is Íslensk hönnun og framleiðsla www.facebook.com/solohusgogn E-60 Stólar Klassísk hönnun frá 1960 Hægt að velja um lit og áferð Verð frá kr. 24.300 Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) varaði við því í gær að hætta væri á nýrri efnahagslægð á evrusvæðinu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sjóðsins um horfur í alþjóðlegum efnahagsmálum. Bendir AGS sér- staklega á að fjárfestingar á evru- svæðinu, þar á meðal opinberar fjár- festingar, séu enn langt undir því sem var fyrir efnahagskreppuna. Slíkt valdi áhættu fyrir þróun efna- hagsmála á svæðinu og fyrir alþjóða- hagkerfið í heild. AGS lækkaði hagsvaxtaspá sína fyrir evrusvæðið og varaði við því að framundan gæti verið langt skeið lít- illa efnahagsumsvifa og óæskilega lítillar verðbólgu. Lækkaði AGS spá sína um hagvöxt á þessu ári úr 1,3% niður í 1,1%. Þá gerir sjóðurinn ráð fyrir því að hagvöxtur verði 1,3% á evrusvæðinu 2015 en ekki 1,5% eins og áður hafði verið spáð. Verðbólga hættulega lítil Að sögn Olivier Blanchard, yfir- hagfræðings AGS, felst helsta áhættan fyrir evrusvæðið í því að eft- irspurn dragist enn frekar saman og að lítil verðbólga þróist yfir í verð- hjöðnun. „Þetta er þó ekki grunnspá okkar, heldur teljum við að hægur undirliggjandi bati eigi sér stað um þessar mundir. Ef mál þróuðust hins vegar með þessum hætti myndi það hafa afar alvarlegar afleiðingar fyrir efnahagskerfi heimsins.“ Verðbólga í evruríkjunum er nú að meðaltali um 0,3% sem er langt und- ir 2% verðbólgumarkmiði Evrópska seðlabankans. Bankinn hefur reynt hvað hann getur að koma hjólum efnahagslífsins á skrið, meðal annars með því að lækka stýrivexti nánast niður í núll og gefa bönkum aðgang að ódýru fjármagni til þess að örva útlán. Í ljósi þess að aðgerðirnar hafa ekki skilað tilætluðum árangri hvetur AGS seðlabankann til þess að ganga enn lengra í kaupum á ríkis- skuldabréfum. Slíkt myndi hins veg- ar ganga þvert gegn vilja Þýska- lands sem er leiðandi þjóð í evrusamstarfinu. Útilokar ekki aðra kreppu á evrusvæðinu  Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn lækkar hagvaxtarspá evruríkja AFP AGS Olivier Blanchard, yfirhagfræðingur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, kynnti spá um efnahagshorfur í heiminum á ársfundi AGS í Washington í gær. Hagvöxtur á evrusvæðinu » AGS spáir einungis 1,1% hagvexti á evrusvæðinu á þessu ári. » Hagvexti á Spáni og í Þýska- landi er spáð lítilega yfir meðaltalinu. » Ekki er spáð hagvexti á Ítal- íu í ár og einungis 0,4% í Frakklandi. Í tilefni af því að Jónas Haralz hagfræðingur hefði orðið 95 ára í ár hefur Hagfræðistofnun Háskóla Íslands gefið út bók með greinum, fyrir- lestrum og við- tölum við Jónas frá árinu 2009. Það ár varð Jónas níræður, auk þess sem miklar svipt- ingar áttu sér stað í íslensku sam- félagi í kjölfar bankahrunsins árið áður. Bókin ber titilinn Í leit að stað- festu og er ritstjóri hennar Ásgeir Jónsson hagfræðingur. Í aðfarar- orðum ritar Ásgeir, að fjölmargar ræður og greinar Jónasar „sýni að hann var einn fárra samtíðarmanna sem raunverulega skildi efnahags- legt samhengi atburða þegar þeir gerðust“. Síðar skrifar Ásgeir: „Það er álit þess sem hér ritar að skrif Jónasar standist mun betur tímans tönn en margt annað sem var rætt og ritað á því róstursama ári 2009. Nú, sex árum eftir hrunið, er sérstaklega athyglisvert að lesa aðvaranir hans að Íslendingar end- urtaki mistök fortíðar og dragi sig frá umheiminum með höftum og einangrunarhyggju.“ Hagræðistofnun Háskóla Íslands ásamt Landsbankanum stendur jafnframt fyrir ráðstefnu til heið- urs Jónasi undir yfirskriftinni Leið- in úr höftunum kl. 17 í dag í Hátíð- arsal Háskóla Íslands. Rit með greinum Jónasar Kápa bókarinnar Á síðasta ári nam tap á rekstri út- gáfufélags DV ríflega 37 milljón- um króna borið saman við tap upp á 65 milljónir króna á árinu 2012. Eigið fé félagsins var jákvætt um 94,3 milljónir króna í árslok eftir að hafa verið neikvætt um 15 milljónir í ársbyrjun 2013. Hækk- aði eigið fé félagsins um tæplega 68,5 milljónir króna á árinu við þá ákvörðun stjórnar að endurmeta virði dv.is, að því er fram kemur í ársreikningi félagsins sem var ný- lega skilað inn til ársreikninga- skráar. Eignir útgáfufélags DV námu samtals 210,5 milljónum króna í árslok 2013. Er eiginfjárhlutfall fé- lagsins því liðlega 44%. Fram kemur í skýrslu stjórnar að á liðnu ári hafi verið haldið áfram endurskipulagningu á rekstri félagsins sem hófst síðari hluta árs 2012. Batnaði rekstrar- niðurstaða fyrir afskriftir og fjár- magnsliði (EBITDA) um tæpar 40 milljónir á milli ára. Gert er ráð fyrir því að sá rekstrarbati haldi áfram en á meðal hagræðingarað- gerða á síðasta ári var fækkun út- gáfadaga DV, úr þremur í tvo á viku, sem kom til framkvæmda í desember 2013. Reiknað er með að það skili sér að fullu á þessu ári í lækkun prentkostnaðar. Talsverðar breytingar hafa orðið á eignarhaldi og yfirstjórn DV á síðustu vikum. Ný stjórn var kosin á aðalfundi félagsins sem fór fram í byrjun septembermánaðar. Þor- steinn Guðnason, sem fór fyrir hópi meirihluta hluthafa í DV ehf., var þá kosinn stjórnarformaður en aðrir sem tóku sæti í stjórninni voru Lilja Skaftadóttir, Ólafur Magnússon, Jón Þorsteinn Gunn- arsson og Björgvin Þorsteinsson. Í kjölfarið var skipt um ritstjóra DV þar sem Hallgrímur Thor- steinsson tók við af Reyni Traustasyni, sem fer í dag með um 30% eignarhlut í félaginu. Tap DV nam 37 milljónum króna  Taprekstur útgáfufélags DV dróst saman um 28 milljónir á síðasta ári Morgunblaðið/Sverrir Blaðaútgáfa Tap af rekstri DV var minna í fyrra en árið á undan. ● Seðlabanki Íslands hefur gert sam- komulag vegna samninga um sparnað- arafurðir í erlendum gjaldeyri sem þýska tryggingafélagið Bayern Ver- sicherung hefur boðið viðskiptavinum sínum hér á landi eftir setningu fjár- magnshafta. Með því hefur tekist að viðhalda óbreyttu samningssambandi viðskiptavina við tryggingafélagið. Til að draga úr neikvæðum áhrifum á greiðslujöfnuð þarf Bayern að koma með erlendan gjaldeyri til mótvægis við þær iðgjaldagreiðslur sem fara úr landi á grundvelli núgildandi samninga. Bayern semur við Seðla- bankann um sparnað ● Hagnaður Samsung á þriðja ársfjórð- ungi dróst sam- an um nærri sextíu prósent frá því á sama tíma fyrir ári. Nam hagnaður félagsins 3,8 millj- örðum Bandaríkjadala. Sölutekjur minnkuðu um ríflega 20% frá fyrra ári. Í árshlutauppgjöri Samsung segir að meðalsöluverð lækkaði á fjórðungnum þar sem dregið hafi úr framleiðslu á dýrari farsímum. Varar fyrirtækið við því að það muni áfram standa frammi fyrir óvissu á næsta fjórðungi en keppi- nautur þess, Apple, kynnti nýlega iPhone 6. 20% tekjusamdráttur ● Íbúðalánasjóður hefur ákveðið að setja 400 íbúðir úr eignasafni sjóðsins í sérstakt söluferli sem hefst 17. október næstkomandi, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Verða íbúðirnar boðnar til sölu í sjö eignasöfnum, en tilboðsgjafar geta boðið í eitt eða fleiri söfn. Eru íbúðirnar staðsettar á Austurlandi, Norðurlandi, Vesturlandi, Suðurlandi, Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Fasteigna- mat þeirra er um 6,5 milljarðar króna. 400 eignir til sölu Stuttar fréttir…                                     ! "#!$ "! #$ $# $" $  #! !  %&'() '*'    +,%-%*./ ,&*'0'12% 34*'1.4 "  5# "  " #!# $  !5 "  #  !##  # "# "$ #$5 $ # !    5 !5 "$#5"$ Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.