Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 17

Morgunblaðið - 08.10.2014, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Yfirvöld á Spáni hófu í gær rann- sókn á því hvers vegna hjúkr- unarfræðingur á sjúkrahúsi í Madr- íd smitaðist af ebóluveirunni. Þetta er fyrsta ebólusmitið utan Afríku. Hjúkrunarfræðingurinn, fertug kona, hafði tekið þátt í umönnun tveggja trúboða sem voru í sóttkví á sjúkrahúsinu eftir að hafa smitast af ebóluveirunni í Vestur-Afríku og verið fluttir til Spánar. Þeir dóu báð- ir af völdum sjúkdómsins. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins krafðist skýringa frá heil- brigðisráðuneyti Spánar á því hvernig hjúkrunarkonan smitaðist og mál hennar kynti undir ótta manna við að sjúkdómurinn gæti breiðst út í Evrópu. Það varð til þess að gengi hlutabréfa í spænskum fyrirtækjum lækkaði í kauphöllinni í Madríd, einkum í fyrirtækjum í ferðaþjónustu. Gengi hlutabréfa í IAG, eiganda spænska flugfélagsins Iberia, lækkaði um 6%. Hundruð lækna og hjúkrunar- fræðinga hafa dáið af völdum ebólu- faraldursins í Vestur-Afríku en yfir- völd í Bandaríkjunum og Evrópu- löndum hafa sagt að ef faraldurinn berist þangað sé heilbrigðiskerfi þeirra nógu öflugt til að geta komið í veg fyrir að starfsfólk sjúkrahúsa smitist og veiran breiðist út. „Fólk veit ekki sitt rjúkandi ráð,“ sagði læknir á sjúkrahúsinu í Ma- drid þar sem hjúkrunarfræðing- urinn starfar. „Við skiljum ekki hvernig starfsmaður gat smitast, þótt hann væri í tvöföldum hlífðarbúnaði og með tvö pör af hönskum.“ Jonathan Ball, prófessor í veirufræði við Nott- ingham-háskóla, segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir að starfsfólk sjúkrahússins í Madríd smitaðist af veirunni. Þótt alltaf sé hætta á að slíkt gerist sé hún lítil og hægt sé að af- stýra henni ef ýtrustu var- úðar er gætt. „Hefðu viðeigandi varúðarráð- stafanir verið gerðar hefði þetta ekki getað gerst,“ hefur fréttaveitan AFP eftir Ball. „Það er bráðnauð- synlegt að komast að því hvað fór úr- skeiðis í þessu tilviki svo hægt verði að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að hindra að þetta gerist aftur.“ Þjálfun ábótavant? Hjúkrunarkonan hafði tekið þátt í ummönnun spænsku prestanna Miguels Pajares og Manuels Garcia Viejo sem smituðust af ebóluveir- unni í Afríku. Pajares dó 12. ágúst og Garcia Viejo 25. september eftir að hafa verið fluttir á sjúkrahúsið. Hjúkrunarkonan er talin hafa fengið veiruna í herbergi Garcia Viejo á sjúkrahúsinu. Hún fór tvisv- ar í herbergið, í fyrra skiptið til að þvo sjúklingnum og síðan til að sækja áhöld eftir að hann dó. Hjúkrunarkonan fór í frí daginn eftir að presturinn dó og hún veiktist 30. september þegar hún var á ferðalagi, en ekki hefur verið greint frá því hvar hún var. Konan var flutt á sjúkrahúsið á sunnudaginn var. Hún er með sótthita en ekki talin í lífshættu. Eiginmaður hennar er sagður í „mikilli hættu“ og hefur verið settur í sóttkví á sjúkrahúsinu. Önnur hjúkrunarkona á sjúkrahúsinu er einnig undir eftirliti lækna vegna gruns um að hún hafi smitast. Elena Moral, formaður samtaka spænskra ríkisstarfsmanna, gagn- rýndi í gær heilbrigðisyfirvöld fyrir að tryggja ekki öryggi starfsmanna sjúkrahússins. „Ekki var gripið til þeirra varúðarráðstafana sem þurfti. Starfsfólkið fékk ekki næga þjálfun og við þurfum að fá að vita hver ber ábyrgð á því.“ Spænsk stjórnvöld hafa einnig verið gagnrýnd fyrir að hafa látið flytja prestana til Spánar eftir að þeir smituðust án þess að tryggja að veiran gæti ekki breiðst út. Ana Mato, heilbrigðisráðherra Spánar, sagði að rannsakað yrði hvort öllum öryggisreglum sjúkra- hússins hefði verið hlítt. Um 70% sýktra hafa dáið af völdum ebóluveirunnar Heimildir: WHO/The New England Journal of Medecine Barátta upp á líf og dauða Dánartíðni eftir aldri (í %)Hlutfall smitaðra Þróun sjúkdómsins að meðaltali Helstu einkenni 11,4 dagar 13,8% 48,4% Karlmenn Konur 51,6% 60,8% Meðalaldur 25,4% 32 73,4 66,1 80,4 Undir 15 Undir 15 15-44 15-44 Yfir 45 Yfir 45 1 ebólusjúklingur smitar 2 aðra menn að meðaltali Sótthiti Þreyta Lystar- leysi Uppköst Niðurgangur Óútskýrð blóðtæming Blæðingar 18% allt 5,7% 87,1% 76,4% 64,5% 67,6% 65,6% Hámarkstími frá smitun og þar til einkenni koma í ljós: 21 dagur +5 dagar: dvöl á sjúkrahúsi Höfuðverkur 53,4% Sjúkdómurinn verður smitandi þegar fyrstu einkenni koma í ljós Fyrstu einkenni Smitun +5 dagar: dauði Eftir kyni Eftir aldri Hægt hefði verið að koma í veg fyrir smitið  Fyrsta ebólusmitið utan Afríku rannsakað á Spáni Norskur læknir var í gær fluttur með franskri sjúkraflugvél til Óslóar frá Síerra Leóne eftir að hafa smitast af ebólu. Læknirinn, þrítug kona, er nú í sóttkví á Háskólasjúkra- húsinu í Ósló. Norsk heilbrigð- isyfirvöld hafa pantað til- raunalyf við sjúkdómnum. Embættismaður í norska heil- brigðisráðuneytinu sagði í sjón- varpsviðtali að hættan á að konan smitaði aðra á sjúkrahúsinu væri „hverfandi lítil“. Konan starfaði á vegum samtak- anna Lækna án landamæra í Bo, næststærstu borg Síerra Leóne. Samtökin rannsaka nú hvernig hún smitaðist af veirunni. Að sögn norskra fjölmiðla er hugsanlegt að konan hafi smitast þegar hún skipti um hlífðarbúning. Smithættan „hverfandi lítil“ NORSKUR LÆKNIR FLUTTUR TIL ÓSLÓAR EFTIR EBÓLUSMIT Heilbrigðisstarfsmaður í hlífðarbúningi á sjúkra- húsi í Líberíu. Hátt í 3.500 látnir » Alls hafa 3.439 manns dáið úr ebólu og 7.478 sýkst í Líb- eríu, Gíneu, Síerra Leóne, Níg- eríu og Senegal. » Barack Obama Bandaríkja- forseti sagði í fyrradag að „nokkur stór ríki“ hefðu ekki gert nóg til að koma í veg fyrir að veiran breiddist út. Hann sagði að mjög lítil hætta væri á ebólufaraldri í Bandaríkjunum. Hundruð manna liggja í valnum eftir þriggja vikna sókn vígasveita „Ríkis íslams“, samtaka íslamista, að sýr- lenska bænum Kobane, við landa- mærin að Tyrklandi. Fregnir hermdu í gær að víga- sveitir íslamistanna væru að ná Kob- ane á sitt vald eftir harða bardaga við Kúrda sem reyndu að verja bæ- inn. Íslamistarnir hafa reynt að leggja undir sig stórt svæði við tyrk- nesku landamærin. Um 200.000 íbúar Kobane og ná- lægra bæja hafa flúið heimkynni sín vegna átakanna, að sögn fréttaveit- unnar AFP. Hún hafði eftir flótta- manni við landamærin að allir íbúar Kobane hefðu flúið úr bænum áður en vígasveitir íslamistanna réðust inn í hann. Að minnsta kosti 412 manns, þar af rúmur helmingur íslamistar, hafa beðið bana í átökunum frá því að sókn íslamistanna hófst um miðjan september, að sögn hreyfingarinnar Syrian Observatory for Human Rights. Hafa gert 2.000 loftárásir Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði að sókn íslamist- anna sýndi að beita þyrfti landhern- aði til að sigra þá. „Ég segi það við leiðtoga Vesturlanda – sprengju- árásir úr lofti duga engan veginn til að leysa vandamálið,“ sagði Erdog- an. Stjórnvöld í Íran, sem styðja ein- ræðisstjórnina í Sýrlandi, gagnrýndi „aðgerðaleysi þjóða heims“ gagnvart hættunni sem stafaði af samtökum íslamistanna. Herflugvélar Bandaríkjanna og samstarfslanda þeirra hafa gert um 2.000 sprengjuárásir á liðsmenn samtakanna í Írak og Sýrlandi, þar af fimm í grennd við Kobane í gær og fyrradag. bogi@mbl.is Segir að ekki dugi að gera loftárásir  Erdogan vill landhernað í Sýrlandi AFP Hörð átök Reykmökkur stígur upp eftir sprengjuárás á Kobane. Hentar mjög vel íslenskri veðráttu Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Sólskálar -sælureitur innan seilingar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.