Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 08.10.2014, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014 ✝ Bjarni ÞórFriðþjófsson fæddist á Ísafirði 16. september 1940. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 27. september 2014. Foreldrar Bjarna voru Frið- þjófur Valdimars- son, stýrimaður frá Ísafirði, fæddur 17. apríl 1920, d. 26. nóvember 1943, og Jóhanna Vilhjálms- dóttir, húsmóðir frá Ísafirði, fædd 24. nóvember 1922, d. 13. apríl 2001. Bjarni var ókvæntur og barnlaus. Systkini Bjarna eru Hulda Friðþjófsdóttir, fædd 26. sept- ember 1943, Jóhannes G. Bjarnason, fæddur 1. maí 1945, Reykjavíkur til vinnu. Eftir að Jóhanna hóf sambúð með síðari manni sínum, Stefáni Ingólfi Jónssyni, húsasmíðameistara, ólst Bjarni upp hjá þeim í Reykjavík og gekk þar í barna- skóla, en var talsvert á Ísafirði á sumrin. Þegar Jóhanna og Stef- án fluttust vestur á Ísafjörð upp úr 1950 fór Bjarni með þeim og var þar til 1971. Hann gekk í Gagnfræðaskóla Ísafjarðar en hóf fljótlega störf í tengslum við fiskvinnslu og sjósókn. Hann var m.a. um árabil bílstjóri hjá Norðurtanganum, en stundaði einnig handfæraveiðar og fleiri störf tengd sjósókn. Bjarni flutt- ist til Suðurnesja árið 1971, fyrst til Sandgerðis þar sem hann vann við að koma upp fisk- verkunarhúsi, en lengst af bjó hann í Keflavík og Njarðvík og vann við fyrirtæki í fiskverkun og útgerð. Bjarni verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju í dag, 8. októ- ber 2014, og hefst athöfnin klukkan 13. d. 28. október 2013, Jón Kristinn Stef- ánsson, fæddur 15. maí 1948, Sesselja Sveinbjörg Stefáns- dóttir, fædd 25. maí 1951, Lilja Svanhvít Stefánsdóttir, fædd 9. ágúst 1954, Stef- án Jóhann Stefáns- son, fæddur 28. desember 1957, Haraldur Hersir Stefánsson, fæddur 18. maí 1960 og Elín Þóra Stefánsdóttir, fædd 19. september 1965. Fljótlega eftir að faðir Bjarna fórst með skipinu Hilmi tóku fósturforeldrar móður hans, þau Bjarni Hávarðsson skip- stjóri og Þóra Jónsdóttir Ein- arsson hjúkrunarkona, Bjarna í fóstur á meðan Jóhanna fór til Elsku Bjarni Þór. Þegar þú varst 25 ára fæddist ég. Þú varst elstur og ég yngst. Þrátt fyrir það var á milli okkar einhver ósýni- legur þráður sem erfitt er að átta sig á. Iðulega þegar ég var eitthvað óviðráðanleg í æsku fékk ég að heyra að ég væri alveg eins og þú, já uppeldi starfið hefur ekki alltaf verið auðvelt með þennan stóra barnahóp, því með vissu veit ég að hin systkinin áttu það til að láta hafa fyrir sér líka. Fyrstu sex æviárin mín bjóst þú á heimili foreldra minna. Þú stundaðir þína vinnu svo minning mín um þig er aðallega frá matmálstím- um, annars varst þú í þínu her- bergi með eftirminnilegu vegg- lömpunum þínum. Það varst þú sem gafst mér fyrsta skólaúrið. Já, gjafmildi var alltaf mikil hjá þér. Þegar þú fluttir til Sand- gerðis upp úr 1970 var eins og þú hefðir flust til útlanda. Þú varst svo óralangt í burtu og komst mjög sjaldan til baka og við heim- sóttum þig ekki oft. Jólapakkarn- ir frá þér innihéldu alltaf mjög fallegt og sérstakt Barbie-dót, eitthvað sem ekki fékkst á Ísa- firði. Í minningunni var jólagjöfin frá fjölskyldunni til þín alltaf bók og vindlakassi. Ég hugsaði oft til þín um jólin, hversu langt þú vær- ir frá okkur aleinn. En í dag sé ég að þú hefur verið umvafinn tryggum vinum dýrmætari en gull. Það er gott fyrir sálina að hafa hitt þig í sumar, því að ekki var alltaf hægt að hitta á þig þeg- ar leiðin lá um Keflavík. Elsku Bjarni, hvíldu í friði. Þín litla systir, Elín Þóra Stefánsdóttir. Bjarni Þór var stóri bróðirinn sem við ólumst upp með, dálítið eldri en aðrir í systkinahópnum, enda frumburður móður okkar af fyrra hjónabandi hennar. Bjarni missti föður sinn aðeins þriggja ára og sjálfsagt markaði það spor í sálina. En þótt hann væri mikið út af fyrir sig tók hann þátt í að setja þau viðmið sem maður varð að fylgja. Hann var mjög hand- laginn, hvort sem hann átti við vélar eða timbur. Þannig tók hann að sér á táningsaldri að gera upp gömul og ryðguð reiðhjól svo þau litu út og virkuðu sem ný. Þá smíðaði hann árabát og gaf mér þegar ég var 11 ára. Þeim báti réri ég á Pollinum í Skutulsfirði og fór jafnvel út fyrir Tangann og að Dokkunni, með ausu en ekkert björgunarvesti! Sjálfsagt færu félagsmálayfirvöld í dag á annan endann og björgunarsveit send til bjargar ef börn færu í slíka leið- angra. Aðstæður og viðhorf voru þá önnur og áratökunum náði ég vel. Þá átti Bjarni sinn þátt í því að gera mig að bókaormi á ákveðnu tímabili, því hann gaf mér hillumetra af barna- og ung- lingabókum sem hann átti sjálfur. Þá voru lestrarstundirnar ánægjulegar. Viðfangsefni Bjarna voru oftast tengd sjávar- útvegi, vélum og ýmsu handverki. Hann var vel að sér um skip og báta og einnig bifreiðar. Þannig eignaðist hann á þrítugsaldri flottan amerískan bíl, Rambler, sem mér þótti þá það flottasta á götum Ísafjarðar. Og ekki sakaði að sumir fengju að prófa jafnvel þótt þeir hefðu varla aldur né getu til. Þegar ég man fyrst eftir var Bjarni vörubílstjóri hjá Norð- urtanganum á Ísafirði og ók þar forláta Bedford með fisk, ís og fleira. Hann var um tíma á hand- færaveiðum á mótorbátnum Ver frá Ísafirði. Þá tók hann þátt í því fyrir eitt sjávarútvegsfyrirtækið á Ísafirði að flytja heljarmikla stálbita frá yfirgefinni varnar- liðsstöð á Straumnesfjalli við Að- alvík til Sandgerðis þar sem vest- firskir aðilar voru að reisa fiskvinnsluhús. Þangað fór hann árið 1971 og var síðan í vinnu hjá nokkrum fyrirtækjum í Sand- gerði, Njarðvík og Keflavík. Bjarni var þúsundþjalasmiður og vann við það um tíma að innrétta hvalaskoðunarstöð í skipi við höfnina í Reykjavík, að mestu leyti einn, auk þess sem hann átti stóran þátt í smíði sumarhúss með vinum sínum. Hjálpsemi Bjarna var við brugðið og hann mátti vart nokk- uð aumt sjá og rangsleitni eða yf- irgangssemi var honum mikill þyrnir í augum. Bjarni hafði gaman af rokktón- list og man ég að hann hélt um stund meira upp á Elvis en hipp- ana sem á eftir komu, eins og Bítlana og aðra sem tilheyrðu um stund mótmælahreyfingu sjö- unda áratugarins. Enda var Bjarni lengst af fremur til hægri í pólitík, jafnvel þótt hann ætti það til að tala fallega um vinstri mennina líka, svona stöku sinn- um. Bjarni var yfirleitt ekki mikið gefinn fyrir veislur eða mikla mannfagnaði og bjó lengst af einn. Og þótt samverustundirnar hafi verið færri en maður hefði viljað verður hans þó sárt saknað. Blessuð sé minning hans. Stefán Jóhann Stefánsson. Elsku Bjarni Þór, ég er mjög þakklát fyrir að hafa fengið að eiga mörg góð ár með þér. Það sem er mér efst í huga er hversu góður þú varst við dóttur mín Erlu Ósk sem leit alltaf á þig sem afa sinn. Allar þær stundir sem þið áttuð saman í sumarbú- staðnum á sumrin þar sem þú átt- ir mörg handbrögð í glæsilega sumarbústaðnum sem þú byggðir fyrir okkur – sannkallað meist- araverk. Það var mikill missir fyrir okkur öll þegar við misstum pabba en við vorum heppin að fá að hafa þig í lífinu okkar og veit ég að það hafa verið ánægju- stundir þegar þú og pabbi hittust á ný. Hjá okkur varst þú alltaf einn af fjölskyldunni og varst þú alltaf velkominn á heimili okkar allra. Þú vildir allt gera fyrir börnin okkar svo barngóður varst þú og máttir þú ekkert aumt sjá. Þær stundir sem við eigum eftir að eiga í bústaðnum okkar verða hlýjar þegar við horfum yfir og sjáum minningarnar sem við eig- um þar um einstaka menn eins og þig og pabba, þar eru bæði Maggalundur og Bjarnastaðir svo þið verðið alltaf með okkur á okkar besta stað í sveitinni okkar. Það er mikill missir að þér en ég veit að þér líður vel núna, hvíl þú í friði, elsku vinur minn. Takk fyrir allt. Kær kveðja, Guðbjörg. Í dag kveðjum við góðan vin, Bjarna Þór, sem hefur verið stór partur af fjölskyldunni minni í mörg ár, eða frá því að hann fór að vinna hjá Magga og bræðrum hans við útgerð og svo seinna meir með Magga. Bjarni var mjög handlaginn og sést það best á sumarbústaðnum sem hann byggði fyrir okkur einn síns liðs og mátti helst ekki hjálpa honum þar, það var alveg sama hvort það var timbur, rafmagn eða pípu- lagnir, allt lék í höndunum á hon- um. Mér eru ofarlega í huga allar þær stundir sem við höfum átt þar saman, þegar hann var að byggja bústaðinn og svo seinna þegar hann var þar með að halda bústaðnum við, stækka palla og það sem þurfti að gera. Bjarni var mjög barngóður, og kom alltaf fram við barnabörn mín eins og þau væru hans barna- börn og er hans sárt saknað af þeim núna. Eftir að Bjarni veiktist þá hef ég farið með hann margar ferðir til lækna og í hina ýmsu snúninga sem mér þótti bæði ljúft og skylt að gera. Þin er sárt saknað, elsku vinur. Kær kveðja, Ásta Einarsdóttir. Elsku Bjarni minn. Það er komið að kveðjustund. Ég vildi óska þess að þú hefðir ekki kvatt okkur fjölskylduna svona fljótt, þú varst alltaf partur af fjölskyldunni okkar og varst okkur barnabörnunum hennar ömmu Ástu og afa Magga svo góður, það var eins og afi Maggi hefði beðið þig um að þú tækir okkur barnabörnin að þér þegar hann fór. Ég er svo þakklát að hafa kynnst þér og að hafa eytt öllum sumrunum mínum, þegar ég var yngri, með þér og ömmu Ástu uppi í sumarbústað og ég á svo sannarlega eftir að sakna þess að fá sælgæti hjá þér, sérstaklega brjóstsykurinn með súkku- laðifyllingunni. Ég er mjög þakklát fyrir að hafa eytt síðustu tveimur dögun- um þínum með þér, því mér leið svo vel í nærveru þinni. En leið- inlegast þykir mér þó að hafa ekki fengið tækifæri til að sál- greina þig eins og þú djókaðir með oft. Elsku Bjarni minn, guð geymi þig. Þín, Ásta Erla Ósk Vignisdóttir. Fyrstu kynni okkar Bjarna Þórs voru þegar hann fór að vinna hjá föður mínum og bræðr- um hans í fiskverkuninni Andra. Mér fannst alltaf spennandi að fylgjast með honum og verkum hans og dáðist að því hve laghent- ur hann var. Sem dæmi um það tók hann inn í hús lyftara sem bú- ið var að afskrifa og henda út úr húsi. Hann notaði frítíma sinn það sumarið í að taka hann í sundur stykki fyrir stykki, setja hann saman aftur og gera sem nýjan. Þessi lyftari var svo not- aður í mörg ár á eftir. Svona var Bjarni, hann naut sín best ef hann hafði verkefni – eitthvað sem þurfti að laga. Bjarni Þór fór svo síðar að starfa við útgerð föður míns þar sem hann sá um veiðarfæri og fleira. Bjarni Þór og faðir minn urðu mestu mátar og kunnu vel hvor á annan. Samvinna þeirra var til fyrirmyndar. Það var því mikill missir fyrir Bjarna Þór þegar faðir minn fórst í sjóslysi þann 8. janúar 1988 aðeins fimm- tugur að aldri. Eftir það starfaði Bjarni Þór á nokkrum stöðum en kom svo til starfa við útgerðar- fyrirtækið okkar og starfaði þar eins lengi og kraftar leyfðu. Bjarni var listasmiður. Hæfi- leikar hans á því sviði nutu sín vel í sumarbústaðalöndum fjölskyld- unnar í Þrastaskógi. Hann naut þess að vera þar, en fékkst samt aldrei til að staldra þar við nema hafa verk að vinna. Sumarbústað- urinn okkar og umgjörð hans ber þess merki. Eftir að hafa smíðað heilan sumarbústað og allt sem honum fylgir fyrir móður mína kom hann yfir til okkar og smíð- aði viðbyggingu, stóran pall, úti- geymslu og kom fyrir heitum potti. Það var ekki verið að hlaupa til og kaupa hurðir og glugga, allt var smíðað á staðn- um. Hann vildi gera allt sjálfur, það eina sem mátti hjálpa til með var að grafa holur og halda við meðan hann reisti háa veggi. Við þökkum Bjarna Þór fyrir samfylgdina og allar góðu stund- irnar með honum. Hann var son- um okkar sem besti afi og kenndi bæði þeim og okkur margt um líf- ið og tilveruna. Hann var hluti af fjölskyldunni okkar. Hans verður sárt saknað. Einar Magnússon og Bryndís Sævarsdóttir. Við höfum allir þekkt Bjarna Þór allt okkar líf. Það var svo gaman að fylgjast með honum þegar hann var að smíða og laga. Hann var alltaf tilbúinn til að spjalla og hlusta og útskýra fyrir okkur allt í sambandi við smíðar. Það var líka svo spennandi að opna afmælis- og jólagjafirnar frá honum, hann vissi alveg hvað við vildum og kunni svo vel að velja flott strákadót. Fjarstýrðu bílarnir og bílabrautirnar hittu sérstaklega vel í mark. Við vitum að Bjarni Þór vildi alls ekki vera veikur eða háður öðrum. Því var það ennþá erfið- ara að vita til þess að hann var orðinn svona mikið veikur, það var ekki það sem hann óskaði sér. Þó að við söknum hans mikið vit- um við að honum líður vel núna og að afi Maggi hefur örugglega tekið vel á móti vini sínum. Við kveðjum vin okkar Bjarna Þór með virðingu og söknuði. Þínir vinir, Sævar Magnús, Unnar Geir og Einar Sveinn Einarssynir. Það er komið að kveðjustund, þú ert farinn til annarra verka. Við sitjum hér og hugsum um þig og við finnum að þín er sárt sakn- að. Við vitum ekki hvort þú hefur gert þér grein fyrir því hversu mikilvægur þú varst okkur, en við mátum þig mikils. Þrátt fyrir þrjósku og að vera stundum dálít- ið öfugsnúinn, þá varstu einstak- ur maður sem kenndi okkur mik- ið og margt. Þú hefur gert svo ótal margt fyrir okkur, smíðað skúrinn okkar, sólpall, snúrus- taura, æfingapall og margt fleira. Sumarbústaðurinn sem þú hefur gert fyrir fjölskylduna er staður sem okkur þykir afskaplega vænt um og þá sérstaklega „Bjarna- staði“. Þú hefur kennt Bergþóri margt í smíðinni, sem hann er þér eilíft þakklátur fyrir. Sunnu Líf hefur alltaf þótt spennandi að fá jóla- og afmælisgjafir frá þér, þú kunnir svo sannarlega að velja rétt. Okkur er það minnisstætt þegar þú gafst henni nánast heilt bókasafn í jólagjöf, því þú gast ekki valið á milli þessara góðu bóka. Sunna Líf hafði fengið tvær alveg eins bækur í jólagjöf og þurftum við því að skila annarri. Þegar við komum í bókabúðina til að skila, þá nefndi ég það við af- greiðsludömuna að Sunna hefði verið ótrúlega heppin að hafa fengið svo margar bækur í jóla- gjöf frá einum góðum manni sem væri svona hálfgerður afi hennar. Þá sagði afgreiðsludaman: „Já, er það hún sem var svona heppin, ég afgreiddi þennan mann og ég vissi að hann ætlaði að gefa ein- hverri lítilli stúlku þessar bækur og ég sagði við hann: vá, hvað þessi stúlka er heppin.“ Já, Sunna var heppin að fá að kynn- ast þér. Við vissum að þér þótti vænt um okkur, þrátt fyrir að þú ættir erfitt með að koma orðum að því, þú sýndir það bara á ann- an hátt. Við vissum að þú varst ekki mikið fyrir veisluhöld, en þú lést þig þó ekki vanta í afmæli til Sunnu Lífar, við vorum svaka- lega ánægð með það. Það var svo gaman að sjá hvað þú passaðir vel upp á þær myndir sem þú fékkst af krökkunum í fjölskyldunni, þú vildir ramma þær inn og hengja þær upp hjá þér. Við höfðum oft gaman af því hvernig þú gast lát- ið í sambandi við að huga að heils- unni, þú sagðir oft við okkur þeg- ar við vorum að koma af æfingu: „tja … ekki er ég að hreyfa mig og slíta mér út að óþörfu“ en við vissum vel að þú varst að stríða okkur, því þú hafðir gaman af því að rölta um göturnar. Þú hefur sýnt mörgu af því sem við höfum verið að gera mik- inn áhuga og það hefur veitt okk- ur hlýju. Það hefur verið notalegt að hafa þig í næsta húsi, en við gátum alltaf séð þegar Bjarni Þór var kominn á fætur, því þá var búið að kveikja á eldhúsljósinu. Núna hefur ljósið þitt slokknað hér á jörðu, en við vitum að það skín skært annars staðar. Þú ert kominn á góðan stað þar sem þér líður vel og vel er tekið á móti þér. Elsku Bjarni Þór. Þú varst frá- bær einstaklingur sem við gleym- um aldrei. Guð veri með þér og verndi þig. Kær kveðja frá Kristjönu, Bergþóri og Sunnu Líf Zan. Bjarni Þór Friðþjófsson ✝ Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBJÖRG NIELSEN, Kirkjubraut 5, Seltjarnarnesi, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 5. október. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 10. október kl. 13.00. Margrét Bragadóttir, Hjalti Valur Helgason, Sigurbjörg Dagmar Hjaltadóttir, Jón Sigurður Ingason, Ingunn Anna Hjaltadóttir, Tryggvi Steinn Helgason, Hildur Vala Hjaltadóttir, Einar Örn Hannesson, Bragi Þór og Kári Freyr. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, MAGNÚS JÓNSSON, Háteigi 19, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikudaginn 24. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Aðstandendur vilja koma á framfæri sérstöku þakklæti til starfsfólks legudeildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja D-álmu. Sigríður Magnúsdóttir, Einar Haukur Helgason, Ingibjörg Guðrún Magnúsdóttir, Kristbjörg Jónína Magnúsdóttir, Sjöfn Magnúsdóttir, Óskar Gunnarsson, Elísabet Magnúsdóttir, Hafþór Óskarsson, Pétur Magnússon, Valerie Jaqueline Harris, Sigurborg Magnúsdóttir, Gunnar Ellert Geirsson, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi PÁLL STEINAR BJARNASON andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands fimmtudaginn 2. október. Minningarathöfn verður í Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 9. október klukkan 11.00. Hann verður jarðsunginn frá Hafnarkirkju í Hornafirði föstudaginn 10. október klukkan 14.00. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands. Gróa Ormsdóttir, Helga Lilja Pálsdóttir, Sturlaugur Þorsteinsson, Birna Þórunn Pálsdóttir, Sigurður Grímsson, Páll Rúnar Pálsson, Jón Pálsson, Hrönn Björnsdóttir, Björk Pálsdóttir, Geir Þorsteinsson, barnabörn, barnabarnabörn og fjölskyldur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.