Morgunblaðið - 08.10.2014, Síða 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. OKTÓBER 2014
Davíð Már Stefánsson
davidmar@mbl.is
„Verkin á sýningunni eru öll unnin
í Brighton árin 2013 og 2014, ég
var búsettur þar síðastliðið ár
ásamt fjölskyldu minni. Viðfangs-
efni verka minna eru náttúrufyrir-
brigði sem ég hef lagt mikla
áherslu á síðustu ár,“ segir list-
málarinn Sigtryggur Bjarni Bald-
vinsson sem opnar sýninguna
Veðra von í Hverfisgalleríi á
morgun klukkan 17.
„Verkin eru annars vegar gerð
eftir fyrirmyndum frá Íslandi og
hinsvegar frá Brighton. Þetta var
nú bara eitt ár sem ég bjó þarna
úti en það komst töluvert rót á
hugann, margt nýtt að sjá og mað-
ur speglar sig svolítið upp á nýtt
sem er mjög hollt og gott. Mér
finnst verkin eiga það sameigin-
legt að þau eru þyngri en þau
verk sem ég hef unnið áður. Þetta
eru myndir af trjám, brimi og
blómum í mýri. Ég hef verið að
mála svo til daglega í aldarfjórð-
ung og það að mála er orðið það
eðlilegur hluti hins daglega amst-
urs að innihald og merking verk-
anna er ekki augljós meðan ég
vinn að þeim. Greiningin kemur
eftir á,“ segir hann.
Breyting á lífríki og veðurfari
Í gegnum tíðina hefur Sig-
tryggur meðal annars gert af-
mörkun náttúrufyrirbrigða skil í
málverkum, ljósmyndum og vatns-
litamyndum. Vatnsfletir hafa verið
leiðandi stef í verkum hans,
straumvatn og haffletir sem end-
urspegla hinar höfuðskepnurnar,
ljós, loft og jörð og einstaka krafta
náttúrunnar svo sem vind og
þyngdarafl. Það má þó greina nýja
náttúrutóna í nýjustu verkum
hans.
„Veturinn í Brighton var ein-
hver sá vindasamasti frá því mæl-
ingar hófust og gekk á með flóðum
og ósköpum. Veðurfar á jörðinni
er almennt að breytast og verkin
taka meðal annars á því. Fréttir
um hnattræna hlýnun eru ekki
lengur bara í útvarpinu heldur er
maður farinn að upplifa þetta
sjálfur. Undirmeðvitund mín varp-
aði því fram þegar ég málaði þessi
málverk. Mýrarmyndirnar sem ég
málaði, sem eru með mótíf frá
Héðinsfirði fyrir norðan, bera þess
einnig keim. Þegar ég var í
Brighton var veðrið óvenjuelgt en
það er búið að vera óeðlilegt í
mörg ár í Héðinsfirði. Það hefur
verið mikill snjór, þurrkar, fiðr-
ildalirfur sem étið hafa lyngið og
bleikjan er að hopa. Þessar breyt-
ingar hafa læðst inn í verkin mín
og gert þau einhvernveginn myrk-
ari,“ segir hann.
Verkin ætluð sem speglar
„Það var í sjálfu sér ekki mikill
eðlismunur á því að vinna verkin í
Englandi og á Íslandi en það hef-
ur allt áhrif. Ég býst kannski frek-
ar við því að það komi betur fram
seinna hjá mér þegar ég vinn verk
síðar ár ferlinum. Kannski hefur
þessi dvöl mín sest meira inn á
mig en mig grunar,“ segir Sig-
tryggur.
„Sýningin kemur til með að
standa í sex vikur. Ég mun síðan
taka á móti fólki 1. nóvember og
spjalla við það um verkin. Mér
finnst það mjög mikilvægur þáttur
að deila skoðunum um það sem
maður sér. Því er nefnilega svo
farið með málverk að þó að ég sé
með minn skilning á því sem ég er
að gera, þá eru þau opin fyrir
túlkun. Verkin eru í rauninni op-
inn spegill og ætluð til þess að
fólk spegli sjálft sig. Það er líka
eiginlega það sem ég sjálfur er að
gera. Styrkur og gæði listaverka
eru hversu góður spegill þau eru,
hversu gott er að spegla sig í
þeim. Ég vona að verkin mín séu
opin fyrir slíkri nálgun,“ segir Sig-
tryggur að lokum.
Verkin í raun ætluð sem speglar
Listmálarinn Sigtryggur Bjarni Baldvinsson opnar sýninguna Veðra von í Hverfisgalleríi
Mótíf frá Brighton á Englandi og Héðinsfirði fyrir norðan Sýningin stendur í sex vikur
Morgunblaðið/Golli
List „Verkin eru í rauninni opinn spegill og ætluð til þess að fólk spegli sjálft sig,“ segir Sigtryggur en sýningin tekur meðal annars á náttúrufyrirbrigðum.
Málverk Mýri 2, olía á striga. Brot úr einu af verkum Sigtryggs.
Bústaðakirkja
er nú á
bleiku skýi en
hún er lýst
með bleikum
ljósum í til-
efni átaks
Krabbameins-
félagsins og
listamánaðar
kirkjunnar í
október. Há-
degistón-
leikar verða fastir liðir alla mið-
vikudaga í listamánuðinum og að
þessu sinni eru það Rósalind
Gísladóttir, messósópran, og Jón-
as Þórir, píanóleikari, sem stíga á
svið og flytja létta tóna, meðal
annars úr söngleikjum. Í lok tón-
leikanna flytur séra Pálmi Matt-
híasson nokkur orð en boðið
verður uppá súpu og brauð í
safnaðarheimilinu að loknum tón-
leikum.
Tónleikarnir hefjast kl. 12.10
og eru öllum opnir og ókeypis.
Fluttir léttir tónar
á bleiku skýi
Rósalind Gísladóttir
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar