Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 1
"
#$
! "#
%
&
L A U G A R D A G U R 1 8. O K T Ó B E R 2 0 1 4
Stofnað 1913 244. tölublað 102. árgangur
SNÝST UM GOTT
HJARTALAG, ÁST
OG UMHYGGJU
DRAUMA-
HLUTVERK
FYRIR BASSA
DON CARLO 46DÝRASPÍTALINN 22
Nítján Íslend-
ingar 95 ára og
eldri eru með
ökuskírteini í
gildi, þar af 17
karlar og tvær
konur, að sögn
Jónasar Ragn-
arssonar, um-
sjónarmanns síð-
unnar Langlífis á
Facebook. Eftir
80 ára aldurinn gildir skírteinið að-
eins ár í senn. Í Morgunblaðinu í
dag er rætt við Guðjón Daníelsson á
Fáskrúðsfirði sem er næstelsti öku-
maður landsins, 101 árs. Hann er
við góða heilsu og fer stundum á
rúntinn í bæinn. »6
19 Íslendingar eldri
en 95 með bílpróf
Eldri ökumönnum
fer fjölgandi.
29 af 163 mánuðum
» Síðan verðbólgumarkmið
Seðlabankans, sem er 2,5%,
var tekið upp í mars 2001 hef-
ur verðbólgan verið yfir mark-
miðinu í 134 mánuði.
» Verðbólgan hefur verið und-
ir markmiðinu í 29 mánuði á
þessu tímabili.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Heimsmarkaðsverð á hrávörum er
að lækka og gæti það skapað skilyrði
til verðlækkana á ýmsum vörum á
Íslandi á næstu vikum. Gangi það
eftir mun það auka líkur á að verð-
bólga verði áfram lítil á Íslandi.
Verð á ýmsum hrávörum hefur
ekki verið jafn lágt síðan 2009, eða
2010, og á evrukreppan þátt í því.
Alþjóðabankinn telur góðar líkur
á að hrávöruverðið verði lágt lung-
ann af næsta ári. Það er líklegt til að
framlengja eitt lengsta tímabil verð-
stöðugleika á Íslandi á þessari öld.
Það annað lengsta á öldinni
Verðbólgan hefur nú verið undir
2,5% markmiði Seðlabankans sam-
fleytt í 8 mánuði og er þetta skeið
orðið það annað lengsta á öldinni.
Markmiðið náðist í 13 mánuði frá
nóvember 2002 til 2003 og má ætla
að verðlækkanir á hrávöru auki lík-
urnar á að því meti verði ógnað.
Yngvi Harðarson, framkvæmda-
stjóri Analytica, bendir t.d. á að
bensínverð í framvirkum samning-
um í New York hafi lækkað um 16%
sl. þrjár vikur og um nærri 30% frá í
sumar. Það feli í sér vísbendingu um
að innistæða verði fyrir frekari
lækkun eldsneytisverðs hér.
Þá hafi hveiti lækkað um tæp 30%
frá í sumar, bómull um rúm 30%,
sykur um tæp 10% og maís um rúm
30%. M.a. vegna þessa geti verð-
bólga jafnvel nálgast 1% um áramót.
MVerð á hrávörum »16
Svigrúm til verðlækkana
Bensín, maís og hveiti hefur lækkað um 30% á heimsmörkuðum frá því í sumar
Hagfræðingur telur að verðbólga geti jafnvel nálgast 1% um næstu áramót
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Félag íslenskra heimilislækna (FÍH)
skorar á stjórnvöld að bjarga því sem
bjargað verður í heilbrigðiskerfinu
og semja við lækna landsins um kjör.
Í greinargerð frá FÍH kemur fram
að 330 læknar með lækningaleyfi
hafa flutt af landi brott á síðustu
fimm árum og tæplega 140 læknar
hafa flutt aftur til landsins. Sam-
kvæmt tölum frá Læknafélagi Ís-
lands voru rúmlega 110 færri læknar
starfandi hér á landi í ársbyrjun 2014
en árið 2009.
Þórarinn Ingólfsson, formaður
FÍH, segir að samkvæmt útreikn-
ingum félagsins séu a.m.k. 30 þúsund
einstaklingar á höfuðborgarsvæðinu
án heimilislæknis. Þeir gætu verið
allt að 50 þúsund. „Við teljum að það
séu mannréttindi að fólk hafi sinn
heimilislækni, lækni sem þekkir þess
sögu og það treystir,“ segir Þórarinn
í samtali við Morgunblaðið. Þórarinn
telur að Kristján Þór Júlíusson heil-
brigðisráðherra sé fyrsti heilbrigð-
isráðherrann sem viðurkennir og
gerir sér grein fyrir alvarleika
læknaskorts hér á landi.
Oddur Steinarsson, framkvæmda-
stjóri lækninga hjá Heilsugæslu höf-
uðborgarsvæðisins, segir að það
vanti þónokkra tugi heimilislækna til
starfa á höfuðborgarsvæðinu. „Við
hefðum auðvitað viljað sjá fleiri í sér-
náminu, heimilislækningum,“ segir
Oddur. Þeim hafi þó fjölgað síðustu
ár.
MHætta á frekari fækkun »4
Liðlega 110 færri læknar en 2009
Félag íslenskra heimilislækna telur a.m.k. 30 þúsund manns án heimilislæknis
Læknaflótti
» Fólk sem hættir hjá heim-
ilislækni sínum vegna flutninga
fær ekki nýjan heimilislækni.
» Skortur á heimilislæknum er
margra ára uppsafnað vanda-
mál. Heimilislæknar horfa til
þess hvernig málum er háttað í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Þeir Sigurður Helgason og Gylfi Guðmundsson,
starfsmenn Meitils, lokuðu fyrir Hvalfjarðar-
göngin sunnanmegin stundvíslega kl. 20 í gær-
kvöldi, og hófst fræsing þá um leið. Gylfi segir
að lokunin hafi gengið betur en menn hafi þorað
að vona og ökumenn hafi sýnt framkvæmdunum
mikinn skilning. Á morgun verður svo lagt nýtt
malbik og er stefnt að því að göngin verði opnuð
að nýju kl. 6 á mánudagsmorgun. sgs@mbl.is
Hafist handa við malbikun ganganna
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„Getið þið stoppað þessi símtöl
frá olíufélögunum, þetta er stór-
hættulegt,“ er meðal erinda sem
borist hafa Samgöngustofu frá al-
menningi en landsmenn eru dug-
legir að láta í sér heyra með ábend-
ingar og kvartanir til opinberra
stofnana og fyrirtækja sem gera út
á símsvörun.
Í Sunnudagsblaði Morgunblaðs-
ins eru skoðuð algeng erindi sem
berast í gegnum tölvupóst og síma-
ver en ekki síður þau óvenjulegu og
skrautlegu. Erindin snúa að öllu
mögulegu; hrotum, hvítlaukslykt
nágrannans, málfari og skorti á
dúfum í borginni.
Hefðbundin og líka
skrautleg erindi
Mörg stéttarfélög á almennum
vinnumarkaði hafa lokið frágangi
sérkrafna vegna endurnýjunar
kjarasamninga og eru viðræður
einstakra félaga komnar í gang um
sérmál við SA.
Á fundum sem stóðu í þrjá daga í
vikunni gengu 16 af 19 aðildar-
félögum Starfsgreinasambandsins
frá kröfugerð. »28
Skriður kemst á við-
ræður um sérmálin
Notkun á beisl-
ismélum með
tunguboga og
vogarafli er
bönnuð á stór-
mótum, hvers
kyns keppnum
og sýningum,
samkvæmt
reglugerð um
velferð hrossa
sem landbún-
aðarráðherra hefur sett og birt var
í gær í b-deild Stjórnartíðinda.
Sigurborg Daðadóttir yfirdýra-
læknir greindi frá ákvörðun ráð-
herra þegar hún ávarpaði aðalfundi
Landssambands hestamannafélaga
í gær. Stjórn LH bannaði fyrr á
þessu ári notkun umrædds búnaðar
í keppni og lagði til við aðalfundinn
að bannið yrði varanlegt. Bann
ráðuneytisins nær einnig til kyn-
bótasýninga. helgi@mbl.is
Notkun méla með
tunguboga bönnuð
Reglur Stuðlað að
velferð hrossa.