Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 30

Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Fyrir skömmu heyrði ég fullyrt í menningarþætti í útvarpinu aðokkur væri stjórnað af plebbum, fólki sem aldrei hefði komistí snertingu við menntun og menningu. Mér brá við svo ein-dregna yfirlýsingu og átti von á að umræður næstu daga myndu snúast um hana. Svo varð ekki þannig að annaðhvort þykir þetta sjálfsagt eða fólk lætur sér í léttu rúmi liggja hvort plebbar sitji við stjórnvölinn eða ekki. Sjálfur velti ég fyrir mér hvort það þætti í lagi að nota útlenda slettu af þessu tagi í virðulegum fjölmiðli. Orðið plebbi er með spurning- armerki í gömlu orðabók Menningarsjóðs en sagt óformlegt mál í útgáfu Marðar og merkir, eftir sem áður: ómenningarlegur eða lágkúrulegur maður. Í Orðabók um slangur merkir það: ruddi, deli, rustamenni og Ás- geir Blöndal segir að plebbi sé lágkúrulegur, menningarsnauður maður. Varla er álitið sjálfsagt mál að sitja undir stjórn „rudda, dela og rusta- menna“ þannig að ég leitaði frekari heimilda um plebba og sá að elsta dæmið í Ritmálssafninu er úr skáldsögunni Þetta eru asn- ar, Guðjón. Oft eru eldri dæmi á timarit.is og þar fann ég að Kristján Albertsson varð fyrstur til að prenta orð- ið í leikdómi um Straumrof eftir Halldór Kiljan Laxness í Morgunblaðinu 1. des. 1934. Þar segir Kristján um persónur af betra slekti í Reykjavík – sem kommúnismi Halldórs komi í veg fyrir að hann geti lýst sómasamlega: „Það kann að virðast furðulegt hve skáldið seilist langt í vilja sínum til þess að gera þessa konu og manninn sem hún elsk- ar, að tilkomulausum plebbum (svo að jeg noti tækifærið til þess að rit- festa þá orðmynd, sem latnesk-danska orðið plebejer hefir fengið á ís- lensku).“ Á þessum árum varð mörgum greinilega um svo óvandað mál því að nokkrum dögum síðar er skrifað í Nýja Dagblaðið um Bókmennta- plebbann að plebbi muni „vera eina nýyrðið, sem íslensk tunga hefir auðgast um af bókmenntastarfsemi hans“. Undir jól birtist skopmynd í Speglinum af „Bókmenta-plebbanum“. Orðið hefur breiðst út um hátíð- arnar því að í janúar er það svo vel þekkt að tímaritið Dvöl bauð upp á vísbendinguna nýyrði um bókmenntamenn í krossgátu þar sem lausn- arorðið var plebbar. Í sama mánuði ritar R. dóm um Sjálfstætt fólk í Skólablað MR og segir það margra manna mál að þetta muni „vera ein hin allra bezta bók Laxness og þá jafnframt eitt hið bezta, sem fram hef- ur komið í íslenzkri skáldsagnagerð“. Síðan berst talið að hinni fram- úrskarandi athyglisgáfu höfundar „sem einn auðvirðilegur plebbi nefni snuður“ – og verður að ætla að þessi orðanotkun vísi beint í það pleb- bagrín sem gengið hafði í blöðunum vikurnar á undan. Viðbrögðin við nýyrðinu plebbi í íslensku árið 1934 voru því talsvert harkalegri en nú, 80 árum síðar, þegar fullyrt er að okkur sé stjórnað af plebbum – og flest láta sér fátt um finnast líkt og slík ósköp væru ekki tiltökumál. Plebbar Tungutak Gísli Sigurðsson gislisi@hi.is Rannsóknir hafa sýnt fram á og staðfest aðrofni tengsl barns við móður á fyrstu vik-um, mánuðum og árum æviskeiðs hefur þaðáhrif á og mótar líf hins nýja einstaklings alla ævi. Um þetta segir Sæunn Kjartansdóttir, sál- greinir, í hinni merku bók sinni, Árin sem enginn man - Áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna: „John Bowlby, sem varð fyrstur til að rannsaka mikilvægi tengsla milli móður og barns, telur ástæðu til að ætla að langur eða endurtekinn aðskilnaður þeirra á fyrstu þremur árum ævinnar geti leitt til þess að fáskiptni verði ríkjandi varnarviðbrögð barns- ins, alveg fram á fullorðinsár.“ Í Bretlandi hafa kannanir sýnt að fjórða hvert barn eigi foreldri sem ýmist þjáist af heimilisofbeldi, geð- sjúkdómi og fíkniefna- eða áfengisneyzlu. Í þessum tölum felst að 39 þúsund börn verða fyrir áhrifum af heimilisofbeldi, 144 þúsund börn verða fyrir áhrifum af geðsýki foreldris og 109 þúsund börn vegna áfeng- is- eða fíkniefnaneyzlu á heimili. Á Íslandi fæðast um 4.400 börn á ári að meðaltali. Það er ljóst að sum þessara barna verða fyrir barðinu á slík- um aðstæðum hér. Ég hef á öðrum vettvangi fjallað um rofin tengsl móður og barns vegna geðsjúkdóms móð- ur (Ómunatíð – saga um geð- veiki) en það liggur í augum uppi að það gildir einu hvers vegna tengslin rofna á viðkvæmu aldursskeiði, hvort sem það er vegna sjúkdóms, heimilisofbeldis, fíknar – eða t.d. fangelsisvistar – í öllum tilvikum verða afleiðingarnar alvarlegar fyrir viðkomandi ein- stakling og reyndar fjölskylduna alla. Þeir sem vilja kynna sér slíkar afleiðingar ættu að lesa bók sem Sigursteinn Másson skrifaði og út kom um síðustu aldamót. Bókin heitir Undir köldu tungli. Hún lýsir örlögum stúlku sem átti móður sem átti við geðsjúkdóm að stríða. Þessi kona kemur fram undir nafnleynd í bókinni en hún er hér á meðal okkar í þessu fámenna samfélagi. Hún lifði af en til þess þurfti ótrúlega harða baráttu. Vitund um þennan veruleika hefur farið vaxandi hér á Íslandi og á geðdeild Landspítalans hefur verið auk- in sérhæfing í þjónustu við foreldra á meðgöngu og eftir fæðingu með tilkomu sérhæfðs teymis á göngu- deild geðdeildarinnar. Barnið getur fylgt móðurinni inn á spítala og sérstök áhersla er lögð á að styrkja tengsl móður og barns, jafnvel strax á meðgöngunni. Sl. vetur var samþykkt á Alþingi þingsályktun- artillaga um geðheilbrigðismál, sem Sigríður Ingi- björg Ingadóttir, alþingismaður, hafði forgöngu um ásamt fleirum, um mótun geðheilbrigðisstefnu. Krist- ján Þór Júlíusson, heilbrigðisráðherra, hefur sett af stað undirbúning að slíkri stefnumörkun og frum- varpsgerð þar um. Í gær, föstudag, efndi nefnd á veg- um ráðherrans til opins fundar, þar sem þessi und- irbúningsvinna var kynnt. Áhugamenn um þessi mál gera sér vonir um að þessi vinna leiði til þess að það verði lagaskylda að sinna þörfum barna, sem búa við slíkar aðstæður. En jafnhliða því frumkvæði sem tekið hefur verið á geðdeild Landspítala í þessum efnum settu fjórar konur, þær Anna María Jónsdóttir, Sæunn Kjart- ansdóttir, Helga Hinriksdóttir og Stefanía Arnar- dóttir, upp Miðstöð foreldra og barna fyrir nokkrum árum og hafa sérhæft sig í meðferð tengslavanda for- eldra og ungbarna. Á þessu ári má gera ráð fyrir að þær taki til meðferðar um 140 fjölskyldur. Sú vinna sem í þá meðferð er lögð jafngildir um einu stöðugildi en þau þyrftu að vera tvö. Starfsemin hefur verið fjármögnuð bæði af einkaað- ilum, ekki sízt Kiwanis-klúbbum, og opinberum að- ilum. Nú stefnir í að þessi starfsemi leggist niður vegna þess að fjárveiting fæst ekki á fjárlögum. Um er að ræða 14-24 milljónir króna. Við lifum á tímum niður- skurðar og hann er nauðsyn- legur, hvort sem er í opinbera kerfinu eða einkageiranum. Að- haldsstefnan sem svo mjög er um deilt í Evrópu er ekki út í hött. Hvorki ríki né ein- staklingar geta lifað á skuldasöfnun. En þegar kemur að niðurskurði kemur í ljós hvað við sem samfélag teljum skipta máli og hvað ekki skipti máli eða alla vega minna máli. Niðurskurður var farinn að ganga of nærri heilbrigðiskerfinu fyrir hrun og ekki hefur það batnað. Afleiðingin er sú, að innviðir samfélagsins eru ýmist byrjaðir að fúna eða eru að bresta. Það á við um heil- brigðiskerfið og fleiri þætti velferðarkerfisins. Það á við um skólakerfið en í minna mæli og kannski suma þætti menningarlífsins, sem berjast í bökkum. Það þarf ekki mikla fjármuni á nútíma mælikvarða til að huga að velferð ungbarna sem búa við erfiðar aðstæður. Og þeir peningar sem í það eru lagðir í dag skila sér eftir 20 ár eða 30 ár í minni framlögum en ella þyrfti til að takast á við vandamál þeirra sem ekki var sinnt í bernsku. Hér hafa sjúkdómar, heimilisofbeldi og fíkn verið nefnd til sögunnar. En í raun koma áþekk vandamál upp þegar móðir fellur frá og börnin eru ung að árum. Fráfall móður eða föður mótar allt líf þeirra barna sem fyrir því verða. Hið sama á við um brotthvarf for- eldris úr lífi barna af öðrum ástæðum. Börn sem eru gefin geta átt við sálræn vandamál alla ævi. Það eru áreiðanlega margir alþingismenn sem þekkja það úr eigin fjölskyldum og eigin lífi að það sem hér hefur verið sagt er rétt. Þess vegna er æski- legt að þingmenn úr öllum flokkum taki höndum sam- an um að tryggja að sú mikilvæga starfsemi sem hér hefur verið fjallað um geti haldið áfram og eflst með eðlilegum hætti. Það skilar sér í betra samfélagi. Hvers eiga börnin að gjalda? Starfsemi Miðstöðvar foreldra og barna á ekki og má ekki leggjast niður Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@styrmir.is ÍFinnlandi skoðaði ég fyrirskömmu vígstöðvarnar við Ilo- mantsi, þar sem barist var í Vetrar- stríðinu 1939-1940 og líka í Fram- haldsstríðinu 1941-1944, en bæði stríðin háðu Finnar við Stalín og her- lið hans. Ilomantsi er austasti bær Evrópusambandsins á meginlandinu, örstutt frá rússnesku landamær- unum. Svo einkennilega vill til, að Vetrarstríðið er einn fárra erlendra viðburða, sem raskað hafa flokka- skiptingu á Íslandi. Tildrög voru þau, að Stalín og Hitler höfðu með griða- sáttmála í Moskvu 23. ágúst 1939 skipt Mið- og Austur-Evrópu upp á milli sín, og voru alræðisherrarnir tveir bandamenn fram að óvæntri árás þýska hersins á Ráðstjórn- arríkin 22. júní 1941. Finnland kom samkvæmt griðasáttmálanum í hlut Stalíns. Vetrarstríðið skall á, þegar Rauði herinn hóf loftárásir á Helsinki 30. nóvember 1939 og 450 þúsund manna herlið þrammaði yfir finnsku landamærin. Á Íslandi háttaði þá svo til, að íslenskir kommúnistar höfðu nýlega fengið vinsælan jafn- aðarmann, Héðin Valdimarsson, og nokkra samherja hans til samstarfs. Sameinuðust kommúnistar og þessir jafnaðarmenn haustið 1938 í nýjum flokki, Sósíalistaflokknum, en um leið var kommúnistaflokkurinn lagður niður. Héðinn var formaður hins nýja flokks, sem skyldi ólíkt komm- únistaflokknum virða lýðræði innan marka laganna. Strax og fregnir bárust til Íslands af árásinni á Finnland, boðaði Héðinn Valdimarsson fund miðstjórnar Sósí- alistaflokksins, þar sem hann gerði tillögu um að lýsa yfir samúð með finnsku þjóðinni. Hún var samþykkt með sex atkvæðum gegn fimm at- kvæðum kommúnista, sem vildu ekki una þeirri niðurstöðu og skutu tillög- unni til flokksstjórnar. Þar var hún felld með 18 atkvæðum gegn 14. Á meðal þeirra, sem felldu tillöguna, voru forystumenn kommúnista, stal- ínistarnir Einar Olgeirsson og Brynj- ólfur Bjarnason, en líka Halldór Kilj- an Laxness, sem þá átti sæti í flokksstjórninni. Við svo búið sögðu Héðinn Valdimarsson og stuðnings- menn hans sig úr Sósíalistaflokknum. Eftir stóðu fáir aðrir en komm- únistar. Þótt Finnar fengju ekki sam- úðarkveðju frá Sósíalistaflokknum í desemberbyrjun 1939, vörðust þeir ofureflinu vel og drengilega, en neyddust í mars 1940 til að semja frið við Stalín og afhenda honum mikið land, um það bil tíunda hluta Finn- lands. Nokkrum árum síðar lést Héð- inn Valdimarsson langt um aldur fram, kalinn á hjarta. Athugasemdir og leiðréttingar vel þegnar Hannes H. Gissurarson hannesgi@hi.is Fróðleiksmolar úr sögu og samtíð Vetrarstríðið og flokkaskiptingin sem gleður Rennibekkir, standborvélar, bandsagir, hjólsagir, bandslípivélar, beygjuvélar, röravalsar, legupressur, fjölklippur, sandblásturstæki og margt fleira. Sýningarvélar á staðnum og rekstrarvörur að auki - fyrir fagfólk í léttum iðnaði og lítil verkstæði IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.