Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 10
Spurningaspil hafa í fjölda ára verið
ótrúlega vinsæl. Það ætti því að vera
unnendum slíkra spila mikið ánægju-
efni að gríðarvinsælt spil, Bezzerwizz-
er, er komið út á íslensku. Það hefur
notið mikilla vinsælda víða í Skandin-
avíu. Í Bezzerwizzer reynir svo um
munar á klókindi leikmanna sem mega
gera í því að notfæra sér veikleika and-
stæðingsins, enda er hægt að græða á
þeim. Rétt eins og leikmaður fær stig
fyrir rétt svör er dregið frá fyrir röng
svör. Í spilinu eru hvorki fleiri né færri
en 3.000 spurningar og eru flokkarnir
20. Flokkarnir eru eftirfarandi: At-
vinnulíf, bókmenntir, byggingarlist,
hönnun, íþróttir og leikir, kvikmyndir,
landafræði, listir, manneskjan, matur
og drykkir, náttúra, náttúruvísindi,
saga, samfélag, sjónvarp og útvarp,
stjórnmál, tónlist, trú og hefðir, tungu-
mál og síðast en ekki síst tækni.
Daninn Jesper Bülow er höfundur
spilsins Bezzerwizzer og gaf það út í
Danmörku árið 2006. Spilið náði strax
miklum vinsældum og hefur í dag
selst í meira en einni milljón eintaka.
Aldur: 15 +
Fjöldi leikmanna: Tveir eða fleiri.
Sölustaðir: Hagkaup, Spilavinir og
flestar bókabúðir.
Verð: 9.900 kr.
Spil vikunnar BEZZERWIZZER
Nú kemur í ljós hvað hver
og einn raunverulega veit!
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Láttu Rekstrarland
létta þér lífið
Gerðu ítrustu kröfur um hreinlæti
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
14
0
61
9
Við bjóðum fallegar servíettur, kerti og dúka ásamt miklu úrvali
af einnota vörum. Einnig úrval hreinsiefna og hreinlætisvara fyrir
stofnanir, hótel og veitingahús. Sérsniðnar lausnir sem mæta
þörfum hvers og eins. Allt þetta og miklu meira í Rekstrarlandi.
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða hjá útibúum Olís um land allt.
Morgunblaðið/Golli
Safnstjóri Halldór Björn Runólfsson, safnstjóri Listasafns Íslands, fagnar 130 ára afmæli safnsins.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Þ„Það verður mikið um aðvera í tilefni afmælisins, al-veg fram á næsta ár,“ segirHalldór Björn Runólfsson,
safnstjóri Listasafns Íslands. Safnið
er elsta listastofnun landsins og fagn-
ar 130 ára afmæli sínu.
Um helgina verður frítt inn á
safnið og boðið upp á leiðsögn, innlit í
málverkageymslu safnsins, boðið upp
á tertur prýddar listaverkum og
margt fleira. „Þetta er afmæli okkar
allra og bjóðum við alla velkomna,“
segir Halldór Björn.
Í tilefni afmælisins verður opnuð
sýning í nóvember á völdum verkum
úr safneign. Á afmælisárinu verða
opnaðar nýjar sýningar í nóvember,
efnt verður til málþings um framtíð
safnsins og gefin út bók með völdum
verkum úr safneigninni ásamt því að
ný heimasíða verður opnuð. Þetta er
á meðal viðburða Listasafnsins. Dag-
skrá safnsins er þéttskipuð á afmæl-
isári sem endranær.
Ferðamönnum fjölgar
„Við finnum fyrir vaxandi þunga
ferðamanna til okkar. Þeir eru orðnir
fjölmennur aðdáendahópur og byrj-
aðir að banka eldsnemma á morgn-
ana á hurðina hjá okkur,“ segir Hall-
dór Björn.
Helsta nýjung Listasafnsins er
sú að Vasulka-stofa var opnuð form-
lega á fimmtudaginn síðastliðinn. Þar
verður vistað gagnasafn hjónanna
Steinu og Woody Vasulka. Ætlunin
er að Vasulka-stofa verði miðstöð raf-
miðlalista á Íslandi.
„Vasulka-stofa á eftir að breyta
ásýnd safnsins og rífa okkur upp,“
segir Halldór Björn um stofuna. Í til-
efni opnunar Vasulka-stofu var gefin
út bók um hjónin en þau voru braut-
ryðjendur í vídeólist á sjöunda áratug
síðustu aldar. Ennfremur eru þau á
meðal virtustu listamanna á því sviði
á heimsvísu.
Listform framtíðarinnar
„Þetta er listform framtíð-
arinnar, en tekið skal fram að þetta
er sagt með fullri virðingu fyrir allri
annarri list,“ segir Halldór Björn.
Hann bendir á að mikil gróska sé
í rafmiðlalist hér á landi og Vasulka-
stofa á eftir að hafa enn meiri áhrif á
hana.
„Þetta hefur áhrif á stöðu okkar
í heiminum og með þessu erum við
komin á sama stall og aðrar þjóðir.
Ég er ekki í nokkrum vafa um að
Rafmiðlalist sækir
fram í framtíðinni
Vasulka-stofa í Listasafni Íslands var formlega opnuð í vikunni í tilefni þess að
elsta listastofnun landsins fagnar 130 ára afmæli sínu um þessar mundir. Þessi
nýja stofa er tileinkuð hjónunum Steinu og Woody Vasulka sem eru meðal helstu
frumkvöðla vídeólistar og heimsþekkt fyrir verk sín. Vegleg afmælisdagskrá er um
helgina í boði, leiðsögn verður um safnið, hægt að taka þátt í videógjörningi og
smakka afmælisköku með listaverki eftir íslenska listamenn svo fátt eitt sé nefnt.
Ekki eru allar hugmyndir til þess
fallnar að gera heiminn að betri
stað til að búa á. Sumar eru jafnvel
til þess fallnar að gera okkur að let-
ingjum og virðist áhuginn og eft-
irspurnin eftir slíkum uppfinningum
óþrjótandi. Á vefsíðunni veryviral.-
com er meðal annars að finna bráð-
skemmtilegan lista yfir slíkar upp-
finningar.
Gaffall með rafhlöðum er til
dæmis gerður til að snúa spagettí-
inu sjálfkrafa fyrir þá sem nenna
því ekki. Tæki til að koma fólki í
sokkana, sjálfklippandi skæri,
klósettrúllugormur til að fólk þurfi
ekki að teygja sig eftir pappírnum
og moppuskór eru á meðal fjöl-
margra hugmynda sem komist hafa
á markað. Allar eru þær hugsaðar
til þess að létta okkur lífið. En eru
slíkar uppfinningar í raun bjarn-
argreiði? Sitt sýnist hverjum um
það.
Vefsíðan www.veryviral.com
Nauðsyn? Ekki er hægt að sjá skyn-
semina í öllum uppfinningum heimsins.
Uppfinningar
fyrir þá lötu
Það ætti ekki að koma á óvart að
fjölmargt sé um að vera á Borg-
arbókasafni Reykjavík á næstu dög-
um, því iðulega er dagskrá safnsin
ljómandi góð og fjölbreytt. Dagarnir
17. - 21. október eru sérstaklega
ætlaðir grunnskólabörnum og fjöl-
skyldum þeirra. Eitthvað verður um
að vera í öllum söfnum, s.s. bingó,
föndur og upplestur en svo er alltaf
hægt að koma á bókasafnið og setjast
niður og eiga notalega stund með bók
í hönd. Ekki má gleyma að í aðalsafni
er sýning tileinkuð Guðrúnu Helga-
dóttur í tilefni 40 ára rithöfund-
arafmæli hennar.
Endilega ...
... bregðið á leik!
Morgunblaðið/Ómar
Gaman Á safninu er
margt um að vera.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.