Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 43

Morgunblaðið - 18.10.2014, Síða 43
í uppsetningu Litla leikklúbbsins á Ísafirði á leikritinu, Þið munið hann Jörund, og þótti sýna leikræna til- burði í þremur sjónvarpsþáttum af Réttur er settur, sem sýndir voru af laganemum. Nú spilar Lárus golf, fer töluvert í fjallgöngur, stundar veiðar og hefur gaman af ferðalögum og íþróttum. En eru hann og fjölskyldan endan- lega sest að fyrir austan? „Já, ég geri ráð fyrir því. Hér hafa börnin okkar sest að og fest rætur og við hjónin munum una hag okkar vel hér í ellinni, verði ekki einhverjar óvæntar breytingar á okkar högum. Vinir og vandamenn eru löngu hættir að spyrja: „Hvað ætlið þið eiginlega að vera lengi þarna?“ eða „Ætlið þið aldrei að koma suður?“ Svarið er auð- vitað: „Nei, elskurnar! Líf okkar snýst um fjölskylduna og þó okkur þyki ágætlega vænt um ykkur þá eru börn, barnabörn og tengdabörn í fyrsta sætinu!““ Fjölskylda Lárus kvæntist 17.3. 1984 Hrafn- hildi Sigurðardóttur, f. 4.2. 1960, þroskaþjálfa og sérkennara. Foreldrar hennar: Sigurður Örn Hjálmtýsson, 28.8. 1918, d. 20.8. 1994, lagerstjóri, og Erna G.Á. Mathiesen, f. 12.4. 1928, f. 12.1. 2003, skrifstofu- maður. Þau voru búsett í Garðabæ en síðustu árin í Reykjavík. Börn Lárusar og Hrafnhildar eru Svava Lárusdóttir, 11.10. 1980, grunnskólakennari á Seyðisfirði, en maður hennar er Andri Borgþórsson, sérhæfður tollvörður, og eru börn þeirra Valur Andrason, f. 31.5. 2006, og Edda Andradóttir, f. 3.1. 2012; Árni Geir Lárusson, f. 5.1. 1986, raf- eindavirki og tónlistarkennari á Seyðisfirði, en kona hans er Halldóra Malin Pétursdóttir leikari og er sonur þeirra Stígur Árnason, f. 29.5. 2012; Ingibjörg Lárusdóttir, f. 17.10. 1994, nemi við Menntaskólann á Egils- stöðum, búsett á Seyðisfirði. Systkini Lárusar: Lárus Bjarna- son, f. 28.4. 1947, d. 6.6. 1950; Jón Halldór Bjarnason, f. 30.7. 1949, gull- smíðameistari í Hafnarfirði; Ragn- hildur Bjarnadóttir, f. 26.4. 1951, hár- greiðslumeistari í Reykjavík; Svava Bjarnadóttir, f. 21.5. 1964, sjúkraliði á Álftanesi; Bjarni Þorgeir Bjarnason, f. 27.1. 1967, prentari í Kópavogi. Foreldrar Lárusar voru Bjarni Þorgeir Bjarnason , f. 15.11. 1924, d. 11.4. 1995, gullsmíðameistari, og Svava Jónsdóttir, f. 26.7. 1928, d. 9.2. 1974, húsfreyja. Þau bjuggu lengst af í Kópavogi. Úr frændgarði Lárusar Bjarnasonar Lárus Bjarnason sýslumaður á Seyðisfirði Guðrún Eiríksdóttir húsfr. í Holtahólum Bjarni Einarsson gullsm. í Rvík Ragnhildur Jónsdóttir húsfr. í Rvík Bjarni Þorgeir Bjarnason gullsmíðameistari í Rvík Guðný Sigurðardóttir húsfreyja á Núpi Jón Benónýsson söðlasm. á Núpi undir Eyjafjöllum Guðlaug Gísladóttir húsfr. í Rútsstaðahjáleigu Ásgrímur Jónsson listmálari Kristín Þorsteinsdóttir útgefandi 365 Vilmundur Jónsson landlæknir Ólöf Vilmundardóttir ritari í Rvík Gísli Gíslason b. í Lambastaðahjáleigu, bróðursonur Guðmundar á Grafarbakka, langafa Einars Kristjánssonar óperusöngvara Jón Halldór Gíslason múrari í Rvík Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Rvík Svava Jónsdóttir húsfr. í Rvík og Kópavogi Jón Loftsson b. á Hafþórsstöðum í Norðurárdal, fékkst við dýralækningar Guðrún Pétursdóttir húsfr. á Hafþórsstöðum í Norðurárdal Brynjólfur Jónsson skáld og fræðimaður frá Minna-Núpi Sesselja Jónsdóttir húsfreyja í Lambastaðahjáleigu Guðrún Vilmundardóttir húsfr. í Rvík Þórhallur Vilmundarson prófessor Þorsteinn Gylfason heimspekingur Vilmundur Gylfason ráðherra Þorvaldur Gylfason prófessor Einar Sigurðsson b. í Holtahólum í Einholtssókn Jón Sigurðsson b. á Fornustekkjum í Nesjum Margrét Gísladóttir húsfr. í Rvík Haraldur Gíslason skipasmiður og frægur KR-ingur á Vesturgötu 30 Gísli Gíslason skipasmiður og frægur KR-ingur á Vesturgötu 30 Á Sandhólatindi Lárus á toppnum. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Suðurlandsbraut 48 (bláu húsin í Faxafeni) - Sími 553 3450 - Vefverslun: www.spilavinir.is - sendumumallt land! kl. 13:00Upplestur 20% afsláttur Við aðstoðum þig við að velja spilið og pökkum því inn fyrir þig. Gefðu spil í afmælisgjöf Sendum um allt land spilavinir.is Sigurbjörn Sveinsson fæddist áKóngsgarði í Austur-Húna-vatnssýslu 19.10. 1878. For- eldrar hans voru Sveinn Sigvalda- son húsmaður og k.h., Sigríður Þórðardóttir. Eiginkona Sigurbjörns var Hólm- fríður Hermannsdóttir og eignuðust þau tvær dætur. Sigurbjörn hóf skósmíðanám í Reykjavík er hann var 15 ára. Hann var búsettur á Ísafirði um skeið og tók þá mikinn þátt í starfi Hjálp- ræðishersins þar, var skósmiður og starfaði á vegum Hjálpræðishersins á Akureyri um skeið, en flutti til Reykjavíkur og var barnakennari þar 1908-19. Þá flutti hann til Vest- mannaeyja og bjó þar síðan, lengst af í húsinu Hnjúk við Brekastíg. Sigurbjörn var barnakennari í Eyjum 1919-32, kenndi síðan í einkatímum, ensku og á fiðlu, en var fyrst og síðast rithöfundur. Hann er einn fyrsti höfundurinn sem skrifar meðvitað fyrir börn og unglinga en þekktustu verk hans eru Bernskan I sem er æskuminningar hans, og Bernskan II sem er smásögur og ævintýri. Þá má nefna Geisla, Æskudrauma, Skeljar og Margföld- unartöfluna, eða söguna um Glókoll sem flestir lásu í einni lestrrarbók Námsflokka Reykjavíkur og gert var barnaleikrit eftir sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu 1971. Ritsafn hans hefur oft verið endurútgefið. Sigurbjörn var einn stofnenda Taflfélags Vestmannaeyja, samdi fjölda fallegra skákdæma, var kos- inn fyrsti heiðursfélagi Taflfélags Vestmannaeyja 1936 og fékk verð- laun frá Taflfélagi Reykjavíkur fyr- ir sérlega fögur skákdæmi. Hann var kjörinn heiðursborgari Vest- mannaeyjakaupstaðar. Halldór Laxness dáði mjög verk Sigurbjörns, vinar síns, en textinn í trúarsöngnum „Þú vínviður hreini“, sem einnig er heitið á fyrra bindinu um Sölku Völku, er eftir Sigur- björn. Þá samdi hann ljóðið við nokkurs konar ættjarðarlag Eyja- manna sem hefst svo: „Yndislega eyjan mín, en hvað þú ert morgun- fögur.“ Sigurbjörn lést 2.2. 1950. Merkir Íslendingar Sigurbjörn Sveinsson Laugardagur 90 ára Ragna Stefánsdóttir 85 ára Birna Vilborg Jakobsdóttir Friðný Friðriksdóttir Haukur Eyþórsson Hrefna Kristín Gísladóttir Sesselja Sigurðardóttir Sigríður Helgadóttir Sigurrós Gísladóttir 80 ára Aðalgeir Pálsson Brynhildur G. Hansen Elsa Valgarðsdóttir Gunnur Sæmundsdóttir Hjalti Oddsson Hulda Baldvinsdóttir Ingibjörg Stefánsdóttir Sæmundur Hjaltason 75 ára Björn Kristjánsson 70 ára Árni Sverrisson Margrét Björgvinsdóttir Pálína G. Ólafsdóttir Ragnar Sigurðsson Sigurjón Stefánsson 60 ára Einar Hallsson Evangeline Acero Ramas Hjördís Gunnlaugsdóttir Ingibjörg Sigurðardóttir Jón Þórarinn Magnússon Renoo Sareekhao Stefán Jakobsson 50 ára Aðalsteinn Aðalsteinsson Auðbjörg Jónsdóttir Elsa Ólafsdóttir Garðar Svavarsson Jakob Ásmundsson Jóhanna Magnúsdóttir Kristján H. Kristjánsson Ragna Jóhannsdóttir Þorvaldur Þórisson 40 ára Axel Axelsson Davíð Hansson Löf Eygló Logadóttir Jakob Valdimar Hafstein Lilja Rós Agnarsdóttir Ragnheiður Ásta Jóhannsdóttir 30 ára Andri Sæmundsson Atli Elíasson Auróra Anna Ágústsdóttir Einar Beinteinn Árnason Eyþór Helgi Guðmundsson Friðþór Örn Kristinsson Jóna Guðný Arthúrsdóttir Jökull Guðjónsson Lotta Kaarina Leivo Marcin Filip Watroba Marija Tverjanovica Rut Vilhjálmsdóttir Sara Karlsdóttir Theódóra Heba Guðmundsdóttir Vilberg Andri Kristinsson Ylfa Lind Gylfadóttir Sunnudagur 100 ára Þórólfur Sæmundsson 85 ára Baldur Jóhannsson Guðmundur S. Steingrímsson Sveinbjörg Guðmundsdóttir 80 ára Óskar Ingimarsson Tryggvi Þór Jónsson 75 ára Gunnar Jóhannesson Margrét Helena Högnadóttir 70 ára Erna Sigurðardóttir Guðrún Gunnarsdóttir Helga Skúladóttir Inga Dagný Malmberg Lilja Guðjónsdóttir Sigrún Valgerður Ásgeirsdóttir Tómas Tómasson Trausti Hermannsson 60 ára Agnes Sigurðardóttir Gunnar Víkingsson Helgi Jóhann Kristjánsson Hilmar Sigurður Kristjánsson Hörður Guðmundsson Ingi Jóhann Valgeirsson Jon Kjell Seljeseth Ólafur Ragnarsson Þórdís Ósk Sigtryggsdóttir 50 ára Anna Kristinsdóttir Bettina Guðnason Guðlaugur Maggi Einarsson Hafdís Þorgilsdóttir Jóhanna Bergland Guðmundsdóttir Laufey Björnsdóttir Margrét Kjartansdóttir 40 ára Anna Baldursdóttir Baldur Jóhannsson Ehud Kafri Hulda Þórisdóttir Rannveig Hildur Kristinsdóttir Soffía Auður Sigurðardóttir Þorvaldur Ásgeirsson 30 ára Auður Lára Sigurðardóttir Karólína Lárusdóttir Mark Vincent Canada Aratea Mateusz Sarnacki Svavar Helgi Jakobsson Valgerður Helga Hauksdóttir Þórunn Arnardóttir Til hamingju með daginn Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.