Morgunblaðið - 18.10.2014, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014
Hafsjór
fróðleiks
-stórmerkileg bók
Metsölulisti
Eymundsson
1.
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Við uppbyggingu á svæði hesta-
mannafélagsins Spretts á Kjóavöll-
um síðustu misserin var sérstaklega
miðað við það að þar væri hægt að
halda landsmót hestamanna í fram-
tíðinni. Á það mun reyna fyrr en
Sprettarar hugðu því stjórn Lands-
sambands hestamannafélaga (LH)
tilkynnti á fimmtudag að gengið
yrði til viðræðna við Sprett um að
halda landsmótið árið 2016 eftir að
hætt var við að halda það á
Vindheimamelum.
Sprettur sótti um að halda lands-
mótið 2016 en LH ákvað upphaflega
að skrifa undir viljayfirlýsingu um
að það yrði haldið á Vindheima-
melum. Það var ekki fyrr en í þess-
ari viku sem Spretti bárust fyrir-
spurnir um hvort félagið gæti tekið
landsmótið upp á sína arma, að
sögn Lindu Bjarkar Gunnlaugs-
dóttur, formanns Spretts.
„Auðvitað gat maður ekki skorast
undan þegar maður er spurður
svona og við vorum búin að bjóða
fram svæðið fyrir 2016. Þetta er
auðvitað mun skemmri fyrirvari en
við hefðum viljað hafa en svæðið er
nú tilbúið að mestu leyti,“ segir
hún.
Koma 20.000 manns fyrir
Mikil uppbygging hefur átt sér
stað á svæði Spretts en félagið
byggir á grunni félaganna Andvara
í Garðabæ og Gusts í Kópavogi.
Stærsta reiðhöll landsins, 4.000 fer-
metrar að stærð, var tekin í notkun
þar 1. febrúar en í henni komast
850 manns í sæti. Um 20.000 kom-
ast fyrir í brekkunum í kringum
keppnissvæðið. Þá státar svæðið af
fjórum keppnisvöllum, hesthúsum
sem rúma 2.500 hross og fjölda
reiðleiða í nágreninu.
„Það er mikil reynsla af móta-
haldi þó að við höfum ekki haldið
landsmót og svæðið er náttúrlega
alveg frábært til mótahalds. Það er
byggt alveg frá grunni til að hægt
sé að halda stórmót. Það var hugs-
unin frá byrjun. Það er allt til stað-
ar. Við segjum stundum að við get-
um sett landsmót í samband en
auðvitað er töluvert mikil vinna sem
er eftir í undirbúningi,“ segir Linda.
Timberlake greiðir götuna
Fleiri þúsund hestamenn og
áhugafólk sækir landsmótin og því
er að mörgu að huga, þar á meðal
gistingu og samgöngum. Linda
bendir á þann fjölda hótela og gisti-
staða sem eru í nágrenni Kjóavalla
og á höfuðborgarsvæðinu öllu. Þá sé
glæsilegt tjaldsvæði í Guðmundar-
lundi í Kópavogi þar sem öll aðstaða
er fyrir þá sem vilja gista í tjöldum.
Kjóavellir eru á mörkum Kópa-
vogs og Garðabæjar, rétt hjá
íþróttahúsinu Kórnum þar sem
stórtónleikar Justins Timberlake
voru haldnir í sumar. Reynslan af
þeim nýtist við skipulagningu lands-
móts, að sögn Lindu.
„Það er búið að prófa hverfið.
Þegar við sóttum um landsmótið
2018 höfðum við þann sem sá um
skipulagninguna á fólksflutningum
á Timberlake-tónleikana til skrafs
og ráðagerða um hvernig þetta væri
hægt. Það verður að hugsa fyrir
stæðum og almenningssamgöngum.
Það sem er líka gott við þetta svæði
er að það eru þrjár aðkomuleiðir,“
segir Linda.
Ætlað að halda stórmót frá byrjun
Hestamannafélagið Sprettur mun að líkindum halda landsmótið 2016 á Kjóavöllum Svæðið
nánast tilbúið eftir uppbyggingu Stærsta reiðhöll landsins og 20.000 áhorfendur komast fyrir
Morgunblaðið/Ómar
Kjóavellir Á svæði Spretts á mörkum Garðabæjar og Kópavogs eru meðal annars hesthús sem geta hýst 2.500 hesta.
Gunnlaugur Auðunn Árnason
Stykkishólmi
Í hugum margra er Stykkishólmur
ekki stór útgerðarbær á landsvísu.
Sjávarútvegur er þó ein af undir-
stöðuatvinnugreinum bæjarins. Á
síðasta kvótaári var landaður afli
um 3.400 tonn og úthlutaðar afla-
heimildir á þessu ári eru um 3.800
þorskígildistonn.
Það vekur hins vegar athygli
þegar skrá yfir skipaeign Íslend-
inga er skoðuð að í Stykkishólmi
eru skráðir um 100 bátar með
heimahöfn. Það eru ekki margar
hafnir á landinu þar sem fleiri
bátar eru skráðir. Þar kemur fram
að aðeins þrjú skip eru yfir 100
brúttórúmlestir að stærð. Af þess-
um bátafjölda eru einungis 16
bátar með skráðar aflaheimildir.
En hvað með alla hina bátana?
Skýringin er lífríki Breiðafjarðar
og Breiðafjarðareyjar. Margir
bátar eru á grásleppuveiðaum á
vorin og fram á sumar. Oft á tíðum
hefur verið landað mestum grá-
sleppuafla í Stykkishólmi á vertíð-
um. Strandveiðar, ígulkersveiðar,
síldveiðar, skelveiðar eru meðal
annars veiðar sem stundaðar eru á
smábátum. Ferðaþjónustan notar
báta til siglinga. Fjölmargir bátar
tilheyra eigendum Breiðafjarð-
areyja og eyjarnar á Breiðafirði
eru margar. Þar er báturinn eina
samgöngutækið. Það eru því mikil
not fyrir minni báta í Stykkishólmi
Morgunblaðið/Gunnlaugur Auðunn
Stykkishólmshöfn Aðstaða fyrir bátaflotann hefur batnað mjög mikið á síðustu árum.
Lífríkið í Breiðafirði
kallar á mikinn fjölda báta
Hestamenn ættu að standa
saman um ákvörðun LH um
staðarval fyrir landsmótið
enda voru góðar ástæður fyrir
henni, að sögn Lindu. Hún seg-
ist skilja að fyrirvarinn sé
stuttur fyrir Skagfirðinga og
að hún hefði viljað að aðdrag-
andi þess að Sprettur fengi
landsmótið væri annar.
„Aðalmálið er að við náum
að halda flott landsmót þannig
að það fari að gefa okkur
hagnað. Við eigum að halda
mótið þannig að aðstæður fyr-
ir hesta, knapa og áhorfendur
séu í lagi og að við séum að
gera mótið stærra en það er í
dag. Það eru rökin sem LH er
með. Þeir treysta sér ekki í að
halda landsmót miðað við að-
stöðuna fyrir norðan og þá
verður bara að virða það,“ seg-
ir Linda.
Virði
ákvörðunina
AÐDRAGANDINN