Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 18.10.2014, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. OKTÓBER 2014 Jarðskjálftinn mikli í Holtum 17. júní árið 2000, klukkan 15:41, var af stærðinni 6.6 á Ms-kvarða, sem er not- aður til að áætla stærð sögulegra skjálfta á Ís- landi. Þá hafði enginn jarðskjálfti stærri en 5 verið í Suðurlands- brotabeltinu frá því 1912 ef undan er skil- inn skjálfti af stærðinni 5,8 árið 1987 sem átti upptök við austurmörk svæðisins, í Vatnafjöllum, suður af Heklu. Skjálftinn 1912 var 7,0 (Ms). Ég lít á hann sem lokahnykk í að leysa út spennu á beltinu í útlausn sem byrjaði 16 árum áður, jarð- skjálftaárið mikla 1896. Hristingurinn, S-bylgjan, frá 17. júní-skjálftanum hleypti á næstu sek- úndutugum af stað nokkrum skjálft- um til vesturs í allt að 85 km fjarlægð. Tveir þeirra voru 5,5 að stærð, annar við Hvalhnjúk 65 km frá upptökunum og hinn við Kleifarvatn 80 km frá þeim. Sunnan við Hestfjall, í innan við 20 km fjarlægð, hleypti hann af stað hrinu lítilla skjálfta sem héldu áfram þar til annar Suðurlandsskjálfti sem var jafnstór skall þar á 21. júní, kl 00:52. Þessir Suðurlandsskjálftar tveir urðu við lárétt hnik um lóðrétta, norð-suðlæga sprungufleti sem náðu niður gegnum alla hörðu skorpuna, sem er um 10 km þykk á þessum slóð- um. Sprunga fyrri skjálftans, niðri í skorpunni, var rúmlega 12 kílómetra löng, en þess seinni rúmlega 16 kílómetrar. Hægri handar snið- gengi um sprungu fyrri skjálftans var 2 metrar og þess seinni 1,5 metr- ar. Skjálftunum var spáð, að nokkru leyti Eins og sagði í síð- ustu grein var sagt fyrir um staði og líklega stærð þessara skjálfta áratug áður en þeir brustu á, en ekki um hvenær það mundi gerast að öðru leyti en því að á þessum tilteknu stöðum væri líkleg- ast að næstu stóru Suðurlands- skjálftar mundu verða. Þessi spá var byggð á skjálftasögu Suðurlands og betur staðfest með því hvernig smá- skjálftar dreifðust um svæðið 1991- 1993. Það var ekki gefin út skammtíma- viðvörun um hvenær fyrri skjálftinn, 17. júní, mundi bresta á. Starfsmenn Veðurstofunnar gáfu hins vegar út skammtímaviðvörun um seinni skjálftann, Hestvatnsskjálftann 21. júní, 25-26 klukkustundum áður en hann brast á, sjá fyrstu myndina hér. Kortið í efri hluta myndarinnar, þó án svera rauða striksins, var sent til Almannavarna ríkisins og til Sveitar- félagsins Árborgar 25-26 klukku- stundum áður en Hestvatnsskjálftinn aðfaranótt 21. júní 2000 reið yfir. Rauðu punktarnir tákna sjálfvirka staðsetningu skjálftaupptaka dagana á undan. Stóri græni ferhyrningurinn sýnir svæði mestu áætlaðra skemmda í jarðskjálfta sem líklegast var að væri yfirvofandi. Rauða svera strikið var sett inn eftir á og sýnir sprungu Hestvatnsskjálftans, og hversu rétt spáin var. Kortið í neðri hluta myndarinnar er sett hér til útskýringar á samheng- inu. Það sýnir alla smáskjálfta á svæðinu frá því eftir 17. júní og fram að skjálftanum 21. júní. Kassinn er svæði spákortsins fyrir ofan. Upp- hafspunktur skjálftans 17. júní er sýndur með stjörnu og með 12 km langri misgengissprungu sinni. Lóð- rétt svört strik marka „nærsvið“ þessara tveggja skjálfta. Í símtölum sem fylgdu strax í kjöl- far kortsins við aðila sem tengdir voru almannavörnum svöruðum við spurningunni um hvenær þetta mundi verða með því að þeir skyldu búa sig undir að skjálftinn gæti brost- ið á hvenær sem væri innan skamms. Viðvörunin var gefin út seint að kvöldi hinn 19. júní og við útilokuðum ekki að skjálftinn gæti orðið þá um nóttina. Spurningunni um hvort út- varpa skyldi viðvöruninni svöruðum við með því að við vildum ekki ráð- leggja það, spáin væri ekki nógu örugg til þess, þótt við teldum hana nógu örugga til þess að almannavarn- ir og aðrir viðbragðsaðilar legðu mikla áherslu á að undirbúa sig og sín tæki undir að hann gæti brostið á hvenær sem væri. Jarðskjálftinn, oft- ast kenndur við Hestvatn, brast svo á 25-26 klukkustundum eftir viðvör- unina, rétt eftir miðnætti hinn 21. Viðvörunin var gagnleg fyrir við- bragðsaðila til að gera sig klára þótt hún væri ekki nákvæmari og ákveðnari en þetta. Af hverju var ekki líka skammtímaviðvörun um fyrri skjálftann? Það mældust breytingar síðasta hálfa mánuðinn á undan honum. Hinn 28. maí, 19 dögum fyrir 17. júní skjálftinn, kom fram bergþrýstings- púls á þenslumæli í borholu í Saurbæ sem er nálægt upptökunum, sjá með- fylgjandi graf. Grafið endar rétt áður en skjálftinn brestur á. Púlsinn sást ekki á öðrum mælum. Nokkrir svipaðir púlsar höfðu sést á sama mæli 20 árum fyrr, án þess að það boðaði neitt. Annar forboði var þessi. Í borholu að Flúðum 10 km norðan við 17. júní skjálftasprunguna féll vatnsborð í heitavatnsborholu um 6 metra, sólar- hring fyrir 17. júní skjálftann. Starfs- menn Veðurstofunnar fréttu ekki af þessu fyrr en eftir á, enda mælirinn ekki hugsaður til að fylgjast með for- boðum jarðskjálfta. Þriðji forboðinn. Sjálfvirkar stað- setningar SIL-kerfisins síðustu vik- una fyrir 17. júní skjálftann sýndu næstum línulega dreifingu skjálfta- upptaka í Holtunum, sjá mynd. Línan féll nokkurn veginn saman við snið- gengissprungu verðandi skjálfta. Síð- ustu 1-2 dagana fyrir hann færðust upptök allra smáskjálfa á mitt bro- taplanið hjá grænu stjörnunni þar sem brotahreyfing stórskjálftans hófst. Þótt þetta þrennt hefði allt verið tiltækt fyrir sérfræðingana hefði það ekki verið nóg til að gefa út viðvörun um að Suðurlandsskjálfti væri að bresta á. Að gefa út slíka viðvörun er mikið alvörumál og á þessum tíma höfðum við ekki nægilega góðan skilning á því hvað þessar mælingar þýddu. Þriðji forboðinn hefði vissu- lega getað verið grunnur að gagn- legri skammtímaspá ef við hefðum verið komin lengra í að þýða skilaboð sem þessir smáskjálftar báru með sér, til að skilja strax að sniðgeng- ishreyfing var þá þegar byrjuð djúpt í rót 17. júní skjálftans, tveimur vikum áður en hann brast á. Aukinn skiln- ingur sem við öðluðumst í 17. júní skjálftanum gerði okkur hins vegar kleift að gefa út skammtímaviðvörun um skjálftann 21. júní. Ný rannsóknarverkefni Sömu aðilar og voru í fyrri jarð- skjálftaspáverkefnum sóttu nú um fjármagn og fengu styrk til að vinna úr aðdraganda fyrsta skjálftans og útskýra eðlisfræði hans. Markmiðið var að greina og skilja nógu snemma ferla sem gætu verið undanfari stórs skjálfta og hvað þeir gætu sagt okkur um staðsetningu hans, styrkleika og tíma. Í næstu tveimur greinum verður sagt stuttlega frá fjölbreytilegri for- virkni í aðdraganda 17. júní skjálftans sem kom út úr þessum rannsóknum. Ég vísa þeim sem vilja kynna sér betur efni þessarar greinar á kaflann Jarðskjálftaspár í bókinni Náttúruvá á Íslandi og svo á bók mína sem Springer gaf út 2011: Advances in Earthquake Prediction. Suðurlandsskjálft- arnir árið 2000 Eftir Ragnar Stefánsson » Viðvörunin var gefin út seint að kvöldi hinn 19. júní og við úti- lokuðum ekki að skjálft- inn gæti orðið þá um nóttina. Ragnar Stefánsson Höfundur er jarðskjálftafræðingur. Að segja fyrir um jarðskjálfta Spáskeytið Efri hluti myndarinnar er spákortið sem sent var viðbragðsaðilum seint að kvöldi 19. júní 2000, að því við- bættu að svera rauða strikinu hefur verið bætt inná, en það er sniðgengissprunga Hestfjallsskjálftans 21. júní eins og hún reyndist vera. Rauðir punktar eru smáskjálftar frá því eftir 17. júní skjálftann, sjálfvirkt staðsettir með sæmilegum gæðum q>70. Neðri hluti kortsins sýnir skjálftavirkni á svæðinu í heild á tímabilinu mili 17. og 21. júní skjálftanna. Þrýstingspúls skömmu fyrir 17. júní skjálftann, á þenslumæli í Saurbæ. Upp sýnir „samþjöppun" mælisins vegna vaxandi bergþrýstings. Nanóþensla er þúsund milljónasti úr þenslu, sem táknar breytingu rúmmáls við álag deilt með stærð þess. Forskjálftar Rauðir punktar eru upptök smáskjálfta síðustu 17 daga fyrir 17. júní skjálftann. Græna stjarnan sýnir upptök hans og rauða strikið sprunguna. Saurbær: −10 mínútna miðgildi þenslu N an óþ en sl a maí júní − − − − − −

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.